Lífið

Að skreyta vegg

Auðir veggir pirra marga og þá er ráð að reyna að skreyta þá á sem fallegastan máta. Þegar listaverk eða myndir í ramma eru hengd upp er mikilvægt að skipuleggja það vel svo naglar séu ekki lamdir í fallega veggi að ástæðulausu. Gott ráð er að taka allt sem þú ætlar að hengja á vegginn, ef það er fleiri en einn rammi, og raða því saman á gólfinu. Þannig getur þú skipulaggt vegginn áður en þú byrjar að hamra. Ekki samt reyna að koma öllum myndum sem þú átt fyrir - það tekst aldrei. Ekki hrúga endalaust mörgum myndum á lítinn vegg heldur veldu nokkrar fallegar úr og komdu þeim fyrir á smekklegan hátt





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.