Sport

Grikkirnir hætta þátttöku

Grísku hlaupararnir tveir sem mættu ekki í lyfjapróf fyrir Ólympíuleikana í Aþenu hafa ákveðið að hætta þátttöku á leikunum. Þau Kostas Kenteris og Katerina Thanou segja ástæðu þess að þau mættu ekki í prófið þá að þau lentu í mótorhjólaslysi sama dag. Mál þeirra var tekið fyrir hjá úrskurðarnefnd Alþjóða Ólympíunefndarinnar í morgun en nú hafa þau sem sagt ákveðið að draga sig sjálf í hlé. Kenteris, til hægri, sést hér yfirgefa fund Alþjóða Ólympíunefndarinnar í morgun ásamt lögmanni sínum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×