Sport

Heimsmet í 400 m fjórsundi

Bandaríski sundmaðurinn Michael Phelps vann gullverðlaun og setti heimsmet í 400 metra fjórsundi á Ólympíuleikunum í Aþenu í gær á 4 mínútum, 8,26 sekúndum. Ástralinn Ian Thorpe vann gullverðlaun í 400 metra skriðsundi. Hann kom í mark á 3 mínútum, 43,10 sekúndum. Þá sigraði sveit Ástralíu og setti heimsmet í 4x100 metra skriðsundi. Myndin er af Michael Phelps eftir að hann kom í mark í sundinu í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×