Lífið

Stækkaðu herbergið

Alls konar brögðum og brellum er hægt að beita til að breyta herbergjum og er gott að nota málningu og liti til að blekkja augað. Herbergi sýnist stærra ef... ...þú málar það í köldum litum. ...þú málar allt yfirborð í sama lit. ...þú hefur gólfið dökkt en veggina ljósa. ...þú hefur húsgögn í sama lit og veggirnir.   Herbergi er meira kósí ef... ...þú málar það í heitum litum. ...þú málar það í sterkum lit en hefur loftið hvítt. ...þú hefur teppi eða gólfefni í hlutlausum lit. Hver kannast samt ekki við að mála vegg í flottum lit en svo er hann allt öðruvísi en í dósinni þegar hann þornar. Prófaðu litinn á pappír sem dregur ekki í sig málningu fyrst og sjáðu hvernig hann kemur út áður en þú málar heila íbúð.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.