Viðskipti innlent

Landsteinar á ÓL

Hugbúnaðarlausnir frá Landsteinum - Streng verði notaðar í öllum verslunum á Ólympíuleikunum í Aþenu sem hefjast í september. Í fréttatilkynningu frá félaginu kemur fram að um 110 verslanir sé að ræða og að í kjölfar leikanna verði kerfi frá íslenska fyrirtækinu tekin í notkun á flughöfnum víðs vegar um Grikkland. Þar segir einnig að grískur samstarfsaðili Landsteina - Strengs hafi sett upp kerfið fyrir ástralskt fyrirtæki sem sér um rekstur verslanna á leikunum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×