Erlent

Stjórnarskrá ESB ekki samþykkt?

Stjórnmálafræðingur, sem kennir við Háskóla Íslands, efast um að ný stjórnarskrá Evrópusambandsins verði samþykkt þegar hún verður borin undir þjóðaratkvæði í Bretlandi og Danmörku. Hann óttast ekki kreppu innan ESB, þótt enn hafi ekki tekist að velja næsta forseta framkvæmdastjórnarinnar. Betra sé að þjarka þar til sameiginlegri niðurstöðu sé náð, en að valta yfir aðra á skriðdrekum. Á sama tíma og leiðtogar Evrópusambandsríkja fögnuðu samkomulagi um fyrstu stjórnarskrá sambandsins, kraumaði undir niðri ósætti um hið mikilvæga mál, hver leysir Romano Prodi af sem forseti framkvæmdastjórnarinnar til næstu fimm ára. Staðan er gífurlega mikilvæg, sérstaklega allra næstu misseri, og er ljóst að framundan eru erfiðar samningaviðræður á bak við tjöldin um hver verður fyrir valinu. Tveir yfirlýstir frambjóðendur voru um stöðuna á fundinum í Brussel um helgina en þeir drógu sig báðir í hlé. Ekkert samkomulag er nú í sjónmáli. Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur segir menn þjarka sig að einhverri niðurstöðu og þó hún náist ekki á þessum fundi, þá náist hún bara seinna.  Forseti framkvæmdastjórnarinnar er valdamesta embætti ESB en vægi þess minnkar verulega eftir að stjórnarskráin tekur gildi, því þá verður valinn pólitískur forseti ráðherraráðsins sem leiðtogi ESB út á við. Eiríkur efast um að stjórnarskráin verði samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslum aðildarríkjanna. „Maður á nú eftir að sjá að Bretar og Danir samþykki stjórnarskrána því það getur allt eins farið svo að þeir felli hana. Þá er aftur komið upp kreppuástand sem er hið stöðuga ástand Evrópusambandsins,“ segir Eiríkur. Aðspurður hvort honum finnist fýsilegt að Íslendingar sæki um aðild að ESB fyrst sambandið er alltaf í kreppu segir Eiríkur Ísland vera hluta af Evrópu og hvort sem okkur líki betur eða verr, þá tökum við stóran hluta þeirra ákvarðana sem teknar eru innan sambandsins. „Ætli það sé ekki skárra að menn þjarki í loftlausum bakherbergjum en að þeir valti yfir hvern annan á skriðdrekum,“ segir Eiríkur.   



Fleiri fréttir

Sjá meira


×