Erlent

Fær al-Sadr pólitískt hlutverk?

George Bush forseti Bandaríkjanna segist ekki munu standa í vegi fyrir því að sjítaklerkurinn Moqtada al-Sadr fái pólitískt hlutverk í Írak eftir valdaskiptin síðar í mánuðinum. Al-Sadr hefur farið fyrir andspyrnuhreyfingunni sem barist hefur við hernámsliðið í landinu undanfarnar vikur og kallaði George Bush hann andlýðsræðissinnaðan óþokka á dögunum. Forsetinn segir það undir hinni nýju ríkisstjórn Íraks komið hvernig þeim málum verði háttað en al-Sadr hefur sagst ætla að stofna stjórnmálaflokk sem muni taka þátt í kosningum í landinu sem áætlaðar eru í janúar á næsta ári



Fleiri fréttir

Sjá meira


×