Viðskipti
66 67 68 69 70 71 72 73 74 … 334 ›
Aðhafast ekki í prentvélarmáli en segja einokunarstöðu komna upp Samkeppniseftirlitið hefur undanfarið haft til skoðunar kaup félagsins Landsprents á prentvél og fleiru út úr þrotabúi Torgs ehf., sem gaf út Fréttablaðið. Með kaupunum myndi samkeppni í dagblaðaprenti leggjast af, að því leyti sem brotthvarf slíkrar samkeppni verður rakið til kaupanna. Viðskipti innlent 22.12.2023 17:38
Setja takmarkanir á kínversk leikjafyrirtæki Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag nýjar reglur sem eiga að draga úr eyðslu bæði tíma og peninga í tölvuleiki. Kína er stærsti leikjamarkaður heims og virði leikjafyrirtækja þar hríðféll eftir yfirlýsinguna. Viðskipti erlent 22.12.2023 16:53
Tveggja milljarða króna fjármögnun lokið Geo Salmo hefur lokið tveggja milljarða króna fjármögnun með þátttöku norskra, sænskra, íslenskra og hollenskra fjárfesta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti innlent 22.12.2023 16:25
Rannsóknin á Guðmundi og Svanhildi felld niður Embætti héraðssaksóknara hefur fellt niður rannsókn á kaupum hjónanna fyrrverandi Guðmundar Arnar Þórðarsonar og Svanhildar Nönnu Vigfúsdóttur á hlutum í Skeljungi og færeyska félaginu P/F Magni. Viðskipti innlent 22.12.2023 16:11
Nokkur óskuldbindandi tilboð gerð í TM Nokkur óskuldbindandi tilboð hafa borist Kviku í hlutabréf TM, bæði í félagið í heild og að hluta. Fjórum aðilum hefur verið boðið að halda áfram í söluferlinu. Viðskipti innlent 22.12.2023 12:53
Stefán nýr framkvæmdastjóri hjá Seðlabankanum Stefán Guðjohnsen hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs Seðlabanka Íslands en staðan var auglýst laus til umsóknar í nóvember. Viðskipti innlent 22.12.2023 12:36
Gjaldþrot Steingríms nam nærri fimmtán milljörðum króna Skiptum er lokið í þrotabúi Steingríms Wernerssonar athafnamanns. Lýstar kröfur í búið námu 14,5 milljörðum króna. Viðskipti innlent 22.12.2023 10:25
Dýrara í Strætó á nýju ári Ný gjaldskrá hjá Strætó tekur gildi þann 8. janúar næstkomandi. Hækkunin nemur að meðaltali 11% yfir alla fargjaldaflokka. Sem dæmi má nefna að stakt fargjald fer úr 570 kr. í 630 kr. og 30 daga nemakort fer úr 4500 kr. í 5.200 kr. Verð á Klapp plastkortum helst þó óbreytt eða 1.000 kr. Neytendur 21.12.2023 15:16
Sjö fjölmiðlar á landsbyggðinni fá milljón hver Sjö fjölmiðlar sem starfræktir eru utan höfuðborgarsvæðins munu fá rúmlega milljón króna styrk frá hinu opinbera. Viðskipti innlent 21.12.2023 13:43
Ræddu samruna Warner og Paramount David Zaslav og Bob Bakish, æðstu yfirmenn Warner Bros. Discovery og Paramount funduðu í þessari viku um mögulegan samruna fyrirtækjanna tveggja. Forsvarsmenn Paramount vilja selja og forsvarsmenn Warner Bros leita að nýjum samruna. Viðskipti erlent 21.12.2023 12:03
Gleðilegt að verðbólga virðist hjaðna fyrr en spáð var Verðbólga er minni í desember en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir og mælist nú 7,7 prósent samkvæmt vísitölu Hagstofunnar. Hagfræðingur Landsbankans segir gleðiefni að verðbólgan virðist vera að hjaðna hraðar en spáð hafði verið. Viðskipti innlent 21.12.2023 11:27
Fossaforstjórarnir veðsetja allt sitt í VÍS Haraldur I. Þórðarson, forstjóri samstæðu VÍS og fyrrverandi forstjóri Fossa, og Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa, hafa sett alla hluti sína í VÍS, sem þeir eignuðust í kjölfar sameiningar félaganna tveggja, að veði til tryggingar lánasamningum. Samanlagt virði hlutanna er tæplega 1,5 milljarðar króna. Viðskipti innlent 21.12.2023 11:23
Letrið of smátt og lýsingarorðin of jákvætt hlaðin Mat Neytendastofu er að GS Verslanir ehf, rekstraraðila GS Búlluna, hafi brotið gegn auglýsingarbanni með því að birta myndir og myndbönd af nikótínvörum, rafrettum og áfyllingum fyrir þær á samfélagsmiðlum. Hefur félaginu verið bannað að birta auglýsingarnar. Neytendur 21.12.2023 11:04
Skanna strikamerki og sjá verðið í öðrum verslunum Alþýðusamband Íslands hefur frá því síðsumars safnað miklu magni gagna um vöruverð í öllum mögulegum matvöruverslunum. Úr þessu hefur verið þróað app svo neytendur geti borið saman vöruverð með því einu að skanna strikamerki með símanum. Neytendur 21.12.2023 10:15
Samherji finnur not fyrir gamla Landsbankahúsið Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, og Kristján Vilhelmsson, framkvæmdastjóri útgerðarsviðs Samherja, hafa stofnað frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtæki sem verður til húsa í gamla Landsbankahúsinu við Ráðhústorg á Akureyri. Fyrirtækið mun bera nafnið Drift EA. Viðskipti innlent 21.12.2023 10:10
Verðbólgan minnkar um 0,3 prósentustig Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í desember 2023, er 608,3 stig og hækkar um 0,41 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 497,9 stig og hækkar um 0,26 prósent frá nóvember 2023. Ársverðbólgan minnkar þó um 0,3 prósentustig milli mánaða. Viðskipti innlent 21.12.2023 09:12
Telja alvarleg brot hafa verið framin varðandi samruna N1 og Festi Samkeppniseftirlitið hefur sent Festi andmælaskjal vegna ætlaðra brota á skilyrðum sem fram koma í ákvörðun frá árinu 2019 um samruna N1 og Festi. Það sé mat Samkeppniseftirlitsins að hin meintu brot séu alvarleg og að til álita komi að beita viðurlögum. Festi hafnar því að hafa brotið gegn ákvæðum sáttarinnar. Viðskipti innlent 21.12.2023 09:09
Staðan á byggingarmarkaði versnar og gjaldþrotum fjölgar mikið Staða á byggingarmarkaði hefur versnar mikið sem lýsir sér í að minna er flutt inn af byggingarhráefnum, skuldsetning byggingarverktaka hefur aukist og gjaldþrotum í byggingariðnaði hefur fjölgað mikið. Sölutími lítilla íbúða hefur styst samfellt frá í apríl, en merki eru um að jafnvægi sé að nást á fasteignamarkaði. Viðskipti innlent 21.12.2023 07:33
Veðsetja alla hluti sína í VÍS og Kaldalóni Fjárfestingafélagið Skel hefur veðsett alla hluti sína í félögunum VÍS og Kaldalóni, helstu skráðu félögunum í eignasafni Skeljar. Forstjórinn segir um hefðbundna fjármögnun að ræða. Viðskipti innlent 20.12.2023 16:10
Rúmur tugur búða sektaður vegna verðmerkinga Neytendastofa hefur sektað 11 fyrirtæki í miðborginni vegna ófullnægjandi verðmerkinga. Viðskipti innlent 20.12.2023 15:45
Spá fjölgun farþega og ferðamanna á næsta ári Tæplega 8,5 milljónir farþega munu ferðast um Keflavíkurflugvöll á næsta ári samkvæmt farþegaspá flugvallarins fyrir árið 2024. Frá því er greint í tilkynningu. Farþegar hafa aðeins tvisvar verið fleiri. Þá er einnig gert ráð fyrir fjölgun ferðamanna og að fjöldinn verði meiri en þegar hann var mestur árið 2018. Viðskipti innlent 20.12.2023 14:49
Þórdís Lind nýr forstöðumaður hjá N1 Þórdís Lind Leiva hefur verið ráðin forstöðumaður orkusviðs N1 og hefur hún þegar hafið störf. Viðskipti innlent 20.12.2023 08:27
Hætta að taka við 500 og 1.000 króna dönskum seðlum Arion banki hefur tilkynnt að ekki verði lengur tekið við 500 og 1.000 króna dönskum seðlum frá og með áramótum. Viðskipti innlent 19.12.2023 13:47
Bláa lónið lokað til 28. desember Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa tekið ákvörðun um að það verði lokað til 28. desember hið minnsta vegna eldgossins sem hófst við Sundhnúksgíga í gærkvöldi. Viðskipti innlent 19.12.2023 13:29
Lífeyrissjóðirnir töpuðu 815 milljörðum að sögn Gylfa Lífeyrissjóðirnir töpuðu talsvert miklu meiru en 200 milljörðum ef marka má Gylfa Magnússon prófessor í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Hann segir ljóst að þetta kalli á lækkun lífeyrisgreiðslna og réttinda. Viðskipti innlent 19.12.2023 11:09
Eldgosið hefur ekki áhrif á flug Icelandair Eldgosið sem hófst norðan Grindavíkur í gærkvöldi hefur ekki áhrif á flugáætlun Icelandair eins og staðan er nú. Viðskipti innlent 19.12.2023 10:13
Ragnar yfirgefur Brandenburg eftir uppákomu í afmæli Ragnar Gunnarsson, einn af fimm eigendum auglýsingastofunnar Brandenburg, hefur ákveðið að selja hlut sinn í félaginu. Samkvæmt heimildum fréttastofu tengist sala hlutarins uppákomu á skemmtun sem starfsmenn auglýsingastofunnar sóttu á dögunum. Viðskipti innlent 19.12.2023 09:56
Kemur ný í framkvæmdastjórn Nova Renata Blöndal hefur verið ráðin í starf fararstjóra (Chief Strategy Officer) Nova og tekur hún jafnframt sæti í skemmtana- og framkvæmdastjórn hjá félaginu. Viðskipti innlent 19.12.2023 09:56
Drykkjarvörur og konfekt hækka mest Dæmi eru um að verð á jólamatvörum hafi hækkað um tugi prósenta á milli ára. Samkvæmt nýrri verðkönnun ASÍ hefur jólamaturinn hækkað um allt að 17 prósent. Landsmenn finna misvel fyrir hækkuninni. Neytendur 18.12.2023 20:55
„Við myndum helst vilja selja þá saman“ Efnisveitan ehf., sem sér um að lengja lífdaga ýmissa húsgagna og hluta sem fyrirtæki, stór og smá, þurfa að losna við með því að selja áfram. Eitt og annað má finna á vefsíðu fyrirtækisins og óhætt er að segja að lógó Fréttablaðsins veki þar athygli. Eigendur fyrirtækisins eru bjartsýnir og vongóðir um að vörurnar seljist. Viðskipti innlent 18.12.2023 14:23