Viðskipti
178 179 180 181 182 183 184 185 186 … 334 ›
Loka BioBorgara til að elta drauminn Veitingastaðurinn BioBorgari við Vesturgötu í Reykjavík lokar dyrum sínum í seinasta sinn á sunnudag eftir um fimm ára rekstur. Hamborgarastaðurinn, sem rekinn er af Vífli Rúti Einarssyni og eiginkonu hans Alejandra Hernandéz, hefur markað sér þá sérstöðu að nota fyrst og fremst lífrænt hráefni. Viðskipti innlent 27.5.2022 15:50
Næsta þáttaröð True Detective tekin á Íslandi með Jodie Foster í aðalhlutverki Bandaríska stórleikkonan og leikstjórinn Jodie Foster mun snúa aftur á sjónvarpsskjáinn í fjórðu þáttaröðinni af HBO-seríunni True Detective. Samkvæmt heimildum fréttastofu stendur til að taka þættina upp á Íslandi næsta vetur en þeir gerast í Alaska í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 27.5.2022 15:00
Fyrrum félag Björgólfs og Róberts endaði í fjórtán milljarða þroti Skiptum er lokið í þrotabúi Mainsee Holding ehf. en engar eignir fundust upp í lýstar kröfur sem námu 13,87 milljörðum króna. Félagið var tekið til gjaldþrotaskipta í febrúar árið 2018. Viðskipti innlent 27.5.2022 14:44
Jóhannes til Viðskiptaráðs Jóhannes Stefánsson hefur verið ráðinn lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Jóhannes mun gegna stöðunni í fjarveru Öglu Eirar Vilhjálmsdóttur, sem er í fæðingarorlofi. Viðskipti innlent 27.5.2022 14:20
Hundraðasta sýningin á Kardemommubænum um helgina Laugardaginn 28. maí stíga leikarar í Þjóðleikhúsinu á svið í hundraðasta sinn í hlutverkum sínum í Kardemommubænum. Nú eru tæp tvö ár frá frumsýningu og á þeim tíma hafa ríflega 40.000 gestir komið að sjá sýninguna. En allt tekur enda og nú er komið að leiðarlokum að sinni. Þetta var sjötta uppsetning Þjóðleikhússins á Kardemommubænum, en sýningar Torbjörns Egners hafa notið ótrúlegra vinsælda frá árinu 1960 þegar Kardemommubærinn var settur upp í fyrsta sinn. Samstarf 27.5.2022 12:17
Neytendastofa slær á fingur Aventuraholidays vegna „besta verðsins til Tenerife“ Neytendastofa hefur slegið á fingur Aventuraholidays ehf. fyrir að hafa birt auglýsingar þar sem því var haldið fram að ferðaskrifstofan biði upp á „Besta verðið til Tenerife í vetur“ og „Aventura tryggir bestu hótelin á Tenerife á miklu betra verði“. Neytendur 27.5.2022 10:59
Skuldabréf Ljósleiðarans komin í Kauphöllina Skuldabréf Ljósleiðarans, dótturfélags Orkuveitu Reykjavíkur, voru tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í dag að fenginni staðfestingu fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á útgefenda- og verðbréfalýsingu. Viðskipti innlent 27.5.2022 09:30
Ekkert endilega jákvætt ef fjarvinna eyðir veikindadögum Kannanir í Bretlandi og Bandaríkjunum sýna að veikindadögum hefur fækkað verulega eftir að fleira fólk fór að vinna í fjarvinnu heiman frá. Atvinnulíf 27.5.2022 07:01
Hvalrekaskatti skellt á bresk orkufyrirtæki Breska ríkisstjórn hyggst leggja 25 prósent hvalrekaskatt á hagnað breskra olíu- og gasframleiðanda. Samhliða kynnti ríkisstjórnin fimmtán milljarða punda stuðningspakka fyrir bresk heimili vegna hækkandi orkuverðs. Viðskipti erlent 26.5.2022 22:39
Þörungaræktandi telur Ísland geta orðið miðstöð kolefnisbindingar Tugir manna gætu fengið vinnu hér á landi við verksmiðju bandarísks nýsköpunarfyrirtækis sem ætlar sér að binda kolefni með þörungarækt í Atlantshafi á næstu árum. Stofnandi fyrirtækisins segir Ísland geta orðið miðstöð kolefnisbindingar í heiminum. Viðskipti innlent 26.5.2022 07:30
Ekkert eðlilegt við að fjölmiðlar gefi vinnu sína Viðskiptablaðið hefur takmarkað það magn efnis sem er aðgengilegt lesendum að endurgjaldslausu. Ritstjóri miðilsins segir ekkert eðlilegt við það að fjölmiðlar gefi vinnu sína og um sé að ræða mjög eðlilegt skref. Viðskipti innlent 25.5.2022 15:32
Stóð við sitt og hefur greitt um hálfan milljarð í skatta Haraldur Þorleifsson sem seldi fyrirtæki sitt Ueno til Twitter í fyrra samdi við félagið um að stærstur hluti kaupverðsins yrði greiddur með launagreiðslum svo hann gæti greitt skatta af sölunni á Íslandi. Viðskipti innlent 25.5.2022 14:00
Leggur blessun sína yfir auglýsingar Nettós um „fría heimsendingu“ Neytendastofa hefur lagt blessun sína yfir auglýsingar matvörukeðjunnar Nettós þar sem segir frá „fríum heimsendingum“ ef verslað væri fyrir meira en fimm þúsund krónur. Neytendur 25.5.2022 13:20
Bankahvelfingin leigð út í sögufrægu húsi Eitt helsta kennileiti Ísafjarðarbæjar hefur gengið í endurnýjun lífdaga og hýsir nú fjarvinnuaðstöðu með skrifstofum, fundarherbergjum og opnum vinnurýmum. Húsið sem stendur við Pólgötu 1 er frá árinu 1958 og hýsti áður útibú Landsbankans. Viðskipti innlent 25.5.2022 11:02
Bein útsending: Play skýrir 1,4 milljarða tap Tap flugfélagsins Play nam 11,2 milljónum bandaríkjadala, eða rúmlega 1,4 milljörðum íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022. Þetta kemur fram í uppgjöri félagsins sem kynnt var í gær en Play mun gera nánar grein fyrir því á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 08:30. Viðskipti innlent 25.5.2022 08:00
Snjallvæðingin: Mótstaðan getur líka verið hjá stjórnendum og stjórnarmönnum Margir óttast þá þróun að gervigreind og snjallar lausnir munu leysa af hólmi ýmiss störf og verkefni sem mannfólkið hefur séð um hingað til. Atvinnulíf 25.5.2022 08:00
Óðinn snýr aftur í blaðamennskuna Óðinn Jónsson, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, hefur verið ráðinn blaðamaður hjá ferðamiðlinum Túrista. Óðinn kemur frá samskiptastofunni Aton.JL þar sem hann hefur starfað undanfarin ár sem ráðgjafi. Viðskipti innlent 25.5.2022 07:24
Íhuga að taka eigin herbergi undir starfsfólk Áskorun verður að anna eftirspurn eftir gistingu á Norður- og Austurlandi í sumar, að mati framkvæmdastjóra samtaka ferðaþjónustunnar - en þar er allt að fyllast. Í höfuðborginni íhuga hóteleigendur að taka eigin herbergi undir starfsfólk vegna húsnæðisskorts. Viðskipti innlent 24.5.2022 20:31
Tap upp á 1,4 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Tap flugfélagsins Play nam 11,2 milljónum Bandaríkjadala, eða rúmlega 1,4 milljörðum íslenskra króna, á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022. Viðskipti innlent 24.5.2022 18:03
Lagning nýs sæstrengs frá Þorlákshöfn til Írlands hafin Áhöfn kapalskips bandaríska strengjaframleiðandans SubCom hóf í gær lagningu nýja fjarskiptastrengsins ÍRIS frá Hafnarvík við Þorlákshöfn til Galway á Írlandi. Sæstrengurinn er um 1.800 kílómetra langur og mun stórauka fjarskiptaöryggi Íslands við Breltand og meginland Evrópu. Viðskipti innlent 24.5.2022 16:02
Kvikmyndarisar bíði eftir aukinni endurgreiðslu Leifur B. Dagfinnsson, stofnandi og formaður stjórnar kvikmyndaframleiðandans True North segir að stór kvikmyndaver séu að bíða eftir því að endurgreiðsla stærri kvikmyndaverkefna verði 35 prósent hér á landi. Mikil tækifæri felist í slíkri endurgreiðslu fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki en stjórnvöld hafa þegar lagt fram frumvarp þess efnis. Viðskipti innlent 24.5.2022 15:27
Innkalla leikfangið „Mushroom teether“ Amazon hefur innkallað leikfangið „Mushroom Teether toys for Newborn Babies, Toddlers, infants, Relieve Sore Gum – BPA-Free Chew Toy “sem selt hefur verið á heimasíðu fyrirtækisins. Neytendur 24.5.2022 14:32
Laun verkafólks og starfsfólks í veitinga- og gististarfsemi hækka mest Launavísitalan hækkaði um 1,6% milli mars og apríl samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar sem er óvenjuleg mikil hækkun milli mánaða. Skýrist það af stærstum hluta af hagvaxtarauka sem virkjaðist hjá launafólki þann 1. apríl. Viðskipti innlent 24.5.2022 13:48
Ná ekki að breyta enskuskotnum umbúðum Nóa kropps Sælgætisframleiðandinn Nói Síríus nær ekki að breyta enskuskotnum umbúðum á sumarútgáfu af Nóa kroppi þar sem búið er að dreifa nánast öllu takmörkuðu upplagi þess í verslanir. Málfræðingur við Háskóla Íslands gerði athugasemd við að umbúðirnar væru að hluta á ensku. Viðskipti innlent 24.5.2022 12:05
Fá 220 milljónir til að efla netöryggi hjá erlendum fyrirtækjum Íslenska netöryggisfyrirtækið Nanitor hefur tryggt sér 220 milljóna króna fjármögnun frá Brunni með þátttöku einkafjárfesta. Stendur til að nýta fjármagnið til stækkunar á erlendum mörkuðum. Viðskipti innlent 24.5.2022 10:22
Cocoa Puffs snýr aftur í verslanir Cocoa Puffs er væntanlegt aftur í verslanir á næstu dögum en morgunkornið hvarf af íslenskum markaði í byrjun seinasta árs. Uppskrift súkkulaðikúlnanna hefur nú verið breytt og er fyrsta sendingin þegar komin til landsins að sögn umboðsaðila. Viðskipti innlent 24.5.2022 09:07
Hagnaður OR nam 6,8 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi Tekjur samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 jukust um 14% frá fyrra ári og er helsta skýringin auknar tekjur Orku náttúrunnar af raforkusölu til stóriðju. Þetta kemur fram í uppgjöri OR sem gefið var út í dag. Viðskipti innlent 23.5.2022 17:05
Perla Ösp nýr framkvæmdastjóri Eflingar Perla Ösp Ásgeirsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eflingar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eflingu. Perla Ösp á að baki ellefu ár sem framkvæmdastjóri áhættustýringar hjá Landsbankanum en sagði upp störfum hjá bankanum fyrir ári. Viðskipti innlent 23.5.2022 15:25
Ítalskir áhrifavaldar kolféllu fyrir Íslandi í ferð með Scarpa Ítalskir áhrifavaldar féllu kylliflatir fyrir Íslandi er þeir heimsóttu landið á vegum Fjallakofans og Scarpa á dögunum. Samstarf 23.5.2022 15:14
Pálmi nýr forstjóri Wedo og Anna Jóna tekur við stöðu fjármálastjóra Pálmi Jónsson, sem fyrr í vetur tók við stöðu rekstrarstjóra Wedo ehf. hefur tekið við sem forstjóri Wedo ehf. Þá hefur Anna Jóna Aðalsteinsdóttir tekið við starfi fjármálstjóra félagsins. Wedo ehf er eigandi Heimkaupa, Hópkaupa og Blands. Viðskipti innlent 23.5.2022 12:39