Viðskipti erlent
269 270 271 272 273 274 275 276 277 … 334 ›
Trichet styður hertari reglur um skuldatryggingamarkaðinn Jean- Claude Trichet seðlabankastjóri Seðlabanka Evrópu (ECB) segir að hann styðji það að settar verði hertari reglur um skuldatryggingamarkaðinn. Trichet segir mikilvægt að þessi markaður sé ekki misnotaður til spákaupmennsku. Viðskipti erlent 19.3.2010 13:39
Klámmyndasýningar þurfa að bera fullan vsk í Belgíu Evrópudómstóllinn hefur fellt dóm í máli klámbíóeigenda í Ghent í Belgíu gegn belgískum stjórnvöldum. Samkvæmt dóminum eiga sýningar á myndum hans að bera fullan virðisaukaskatt (vsk) eins og aðrar vörur. Viðskipti erlent 19.3.2010 13:15
Evran aftur að lækka gangvart dollaranum Evran hefur á síðustu þremur dögum lækkað um 1,5% gagnvart Bandaríkjadollar en öll hækkun á þessum gjaldmiðlakrossi sem átt hefur sér stað frá síðustu mánaðarmótum er nú úr sögunni. Viðskipti erlent 19.3.2010 12:02
Árið í fyrra var hryllingur fyrir danskt atvinnulíf Velta danskra fyrirtækja dróst saman um rúmlega 14% á síðasta ári sem samsvarar 482 milljörðum danskra kr. eða um 11.000 milljörðum kr. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Danmerkur. Viðskipti erlent 19.3.2010 11:09
Forráðamenn í Grimsby hafa áhyggjur af Icesavedeilunni Forráðamenn í Grimsby hafa áhyggjur af Icesavedeilunni milli Íslands og Bretlands og Hollands. Vilja þeir helst ljúka málinu sem allra fyrst og komu þeim skilaboðum áleiðis til Irranca-Davies sjávarútvegsráðherra Bretlands þegar hann heimsótti Grimsby í vikunni. Viðskipti erlent 19.3.2010 10:35
Stjórnvöld vöruð við Lehman Brothers löngu fyrir fallið Bandarísk stjórnvöld, það er fjármálaeftirlit landsins (SEC) og seðlabanki New York ríkis voru vöruð við að eitthvað óhreint væri í pokahorninu hjá Lehman Brothers í mars árið 2008. Skilaboðin komu því sex mánuðum áður en Lehman Brothers varð gjaldþrota. Viðskipti erlent 19.3.2010 09:09
Telegraph fjallar um nýjar verslanir Jóns Ásgeirs Breska blaðið Telegraph fjallar í dag um áform Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um að opna nýjar lágvöruverslanir í London undir nafninu Best Price. Sjálfur hefur Jón Ásgeir neitað því að þetta standi til. Viðskipti erlent 19.3.2010 08:43
Actavis gæti reynt að kaupa Stada Arzneimittel Töluverðar vangaveltur eru komnar upp í Þýskalandi um að Actavis og bandaríski lyfjarisinn Pfizer leggi fram tilboð í þýska samheitalyfjafyrirtækið Stada Arzneimittel. Eins og kunnugt er af fréttum í gær töpuðu Actavis og Pfizer baráttunni um Ratiopharm til Teva. Viðskipti erlent 19.3.2010 08:24
Teva bauð töluvert meir en Actavis í Ratiopharm Stærsta samheitalyfjafyrirtæki heimsins, Teva frá Ísrael, bauð talsvert hærra verð en Actavis fyrir þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm. Samkvæmt frétt á Bloomberg mun Teva verða tilkynnt sem hinn nýji eigandi Ratiopharm á blaðamannafundi eftir hádegið. Viðskipti erlent 18.3.2010 10:36
Kaupþing reynir að selja verðmæta eign í London Skilanefnd Kaupþings er nú að reyna að selja verðmæta eign í miðbæ London og hefur Berkeley Group sýnt kaupunum áhuga en finnst verðmiðinn á eigninni alltof hár. Viðskipti erlent 18.3.2010 10:19
Actavis fær ekki að kaupa Ratiopharm Reuters hefur það eftir heimildarmönnum að Actavis komi ekki lengur til greina sem kaupandi að þýska samheitalyfjafyrirtækinu Ratiopharm. Viðskipti erlent 18.3.2010 10:04
Fjárfestagoðsögn: Evran deyr og tvær bólur bresta Fjárfestagoðsögnin Jim Rogers er ekki að skafa af hlutunum í sýn sinni á framtíðina. Rogers segir að evran verði dauð sem gjaldmiðil innan 15 til 20 ára, pundið muni hrapa á dramatískan hátt og bandarísk ríkisskuldabréf og kínverski fasteignamarkaðurinn verði tvær næstu bólur sem bresta. Viðskipti erlent 17.3.2010 14:03
Actavis leggur fram lokatilboð í Ratiopharm Actavis og Teva hafa verið beðin um að leggja fram lokatilboð sín í þýska samheitafyrirtækið Ratiopharm á morgun, fimmtudag, að því er heimildir Reuters herma. Hinsvegar mun bandaríski lyfjarisinn Pfizer leggja fram sitt lokatilboð í dag. Viðskipti erlent 17.3.2010 08:19
Hrakfallasagan heldur áfram - Honda innkallar 410 þúsund bíla Hrakfallasaga japanskra bílaframleiðenda heldur áfram því Honda hefur innkallað meira en 410 þúsund bifreiðar í Bandaríkjunum vegna galla í bremsum. Viðskipti erlent 17.3.2010 06:44
Dánarbú Michael Jackson gerir risasamning við Sony Dánarbú poppkóngsins Michael Jackson hefur fallist á stærsta útgáfusamning sögunnar við Sony Music. Verðmæti samningsins er talið nema ríflega 200 milljónum dollara eða um 25 milljarða kr. Viðskipti erlent 16.3.2010 10:42
Facebook kostar danska vinnuveitendur 250 milljarða Danir nota hina vinsælu vefsíðu Facebook það mikið í vinnu sinni að það kostar danska vinnuveitendur 11 milljarða danskra kr. eða um 250 milljarða kr. á hverju ári í glötuðum vinnustundum. Viðskipti erlent 16.3.2010 08:34
Nýr tískurisi: Calvin Klein kaupir Tommy Hilfiger Tískurisinn Calvin Klein er orðinn að stærsta fatafyrirtæki veraldar eftir að eigandi þess, Philip-Van Heusen keypti Tommy Hilfiger fatafyrirtækið. Salan var tilkynnt í dag en Van Heusen greiddi 2,2 milljarða evra fyrir meirihluta í fatafyrirtækinu. Viðskipti erlent 15.3.2010 22:55
Lögmenn hagnast um 80 milljarða á Lehman Brothers Tiltektin eftir fall Lehman Brothers í Bandaríkjunum hefur gefið lögmönnum 642 milljónir dollara eða um 80 milljarða kr. í aðra hönd. Alls hafa 28 lögmannstofur skrifað feita reikninga fyrir aðkomu sín að þrotabúinu frá haustinu 2008 að því er segir í frétt á CNN Money um málið. Viðskipti erlent 15.3.2010 13:16
Stöðutakan gegn pundinu orðin margföld á við Soros Stöðutaka hjá fjárfestum gegn pundinu er nú orðin áttföld á við stöðutökuna sem ofurfjárfestirinn George Soros tók árið 1992 þegar hann snýtti Englandsbanka um einn milljarð punda með því að veðja á veikingu pundsins. Viðskipti erlent 15.3.2010 10:21
Endurskipulagningu lokið hjá French Connection Endurskipulagningu tískuverslunarkeðjunnar French Connection er ný lokið en keðjan hefur selt vörumerkið Nicole Farhi og lokað flest öllum verslunum sínum í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 15.3.2010 09:45
Century Aluminium fær meðbyr til að endurræsa álver Frumvarp sem samþykkt var á þingi Vestur Virginíu í Bandaríkjunum gefur stjórn Century Aluminium, móðurfélagi Norðuráls, von um að geta endurræst álver sitt í ríkinu en því var lokað í febrúar í fyrra. Viðskipti erlent 15.3.2010 08:22
Bensínlítrinn kominn yfir 11 krónur í Danmörku Bensínlítrinn í Danmörku kostar nú ellefu danskar krónur. Það jafngildir 253 íslenskum krónum. Bensínið hefur þó áður verið hærra í Danmörku, en sumarið 2008 fór lítrinn í 12 krónur. Í upphafi níunda áratugar fór bensínverðið upp í 14 krónur. Viðskipti erlent 15.3.2010 07:00
Fylgja í fótspor Evrópubúa Bandaríkin, AP Almennt er reiknað með að stýrivöxtum í Bandaríkjunum verði haldið óbreyttum í 0,25 prósentum í vikunni. Viðskipti erlent 15.3.2010 02:00
Lehman Brothers notaði ástarbréf til að fegra stöðuna Lehman Brother notaði ýmis vafasöm ráð til að fegra stöðu sína í tveimur síðustu ársfjórðungsuppgjörum sínum fyrir gjaldþrot bankans haustið 2008. Eitt þeirra kallaðist Repo 105 og eru svipuð viðskiptum hérlendis sem hafa gengið undir nafninu ástarbréf Seðlabankans. Viðskipti erlent 14.3.2010 12:00
Mikilvægt að kínverski gjaldmiðillinn haldist stöðugur Forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, þvertekur fyrir að Kínverjar haldi gengi gjaldmiðils síns vísvitandi lágu til þess að ýta undir útflutning frá landinu. Hann segir það mjög mikilvægt fyrir efnahagslegan stöðugleika í heiminum að halda gengi yuansins stöðugu. Viðskipti erlent 14.3.2010 10:30
Tveir horfa hýru auga til Manchester Tveir hópar fjárfesta horfa hýru auga til enska knattspyrnufélagsins Manchester United. Áður hefur verið sagt frá áhuga Rauðu riddarann á því að kaupa félagið en nú lítur út fyrir að þeir hafi fengið samkeppni. Viðskipti erlent 14.3.2010 10:21
Fær 2,8 milljarða fyrir hálfsárs starf Tim Cook, sem var starfandi forstjóri Apple fyrirtækisins, fær 22, milljónir dollara eða 2,8 milljarða króna fyrir að stýra fyrirtækinu í sex mánuði á meðan að Steve Jobs var í veikindaleyfi. Viðskipti erlent 14.3.2010 08:00
Skortsalar í klípu þar sem dollarinn hríðfellur Bandaríkjadollar hefur hríðfallið gagnvart helstu gjaldmiðlum það sem af er degi. Mest er fallið gagnvart evrunni, enda hefur síðarnefnda myntin heldur styrkt sig í sessi gagnvart ýmsum fleiri myntum en dollaranum í dag. Gera má ráð fyrir að þeir fjárfestar sem höfðu skortselt evru gagnvart dollar hafi þrotið örendið. Viðskipti erlent 12.3.2010 12:27
Hamleys í útrás á Balkanskaganum Leikfangaverslanakeðjan Hamleys er komin í mikla útrás á Balkanskaganum. Hefur Hamleys gert saminga um notkun á nafni keðjunnar í verslunum á níu markaðssvæðum í löndum sem tilheyra Balkanskaganum að því er segir í frétt á Retailweek. Viðskipti erlent 12.3.2010 09:14
Bútar niður Turner-verk, selur og grefur upphæðina á Íslandi Listamaðurinn Bill Drummond ætlar að búta niður listaverkið A Smell of Sulphur in the Wind eftir landslagslistamanninn Richard Long sem hlaut hin virtu Turner-verðlaun fyrir verkið árið 1989. Drummond ætlar að selja hvern bút á dollar og grafa svo heildarupphæðina niður í jörð á Íslandi á þeim stað sem var Long innblástur fyrir listaverkið. Viðskipti erlent 12.3.2010 08:35