Viðskipti erlent
268 269 270 271 272 273 274 275 276 … 334 ›
Kínverjar kaupa Volvo Volvo verksmiðjurnar verða seldar kínverska framleiðandanum Geely Holding. Skrifað var undir samning þess efnis í dag, eftir því sem fram kemur í sænskum og kínverskum fjölmiðlum. Viðskipti erlent 28.3.2010 14:05
Um 1.500 viðskiptavinir vildu verða andlit Iceland Um 1.500 viðskiptavinir Iceland lágvörukeðjunnar vildu verða andlit hennar út á við í nýrri auglýsingaherferð sem hefst síðar í ár. Búið er að velja 56 manns úr þessum hóp og í dag verður lokahópurinn valinn, að því er segir í frétt í Daily Star. Viðskipti erlent 28.3.2010 14:00
Bono óheppinn með fjárfestingar sínar Allar líkur eru á að Bono, söngvari U2, muni tapi gífurlegum upphæðum á fjárfestingum sínum undanfarin ár. Í aðra hönd hagnaðist Bono vel á tónlist sinni en í hina tapaði hann þessum fjármunum jafnóðum á fjárfestingum sínum. Viðskipti erlent 28.3.2010 12:00
Launahæsti bankamaður í Evrópu fær 2,4 milljarða króna á ári Forstjóri Credit Suisses, Brady Dougan, er hæst launaði bankamaður í Evrópu. Hann fær um það bil 2,4 milljarða íslenskra króna í laun á ári, fullyrðir breska blaðið Financial Times. Viðskipti erlent 28.3.2010 07:00
Álverðið nokkuð stöðugt í um 2.200 dollurum Heimsmarkaðsverð á áli hefur haldist nokkuð stöðugt í rúmlega 2.200 dollurum á tonnið allan þennan mánuð. Þetta er töluvert hærra verð en spáð hafði verið að verðið yrði að meðaltali í ár. Viðskipti erlent 26.3.2010 14:32
Stærsta bankahneyksli í sögu Danmerkur afhjúpað Fjármálaeftirlit Danmerkur hefur kært tvo af bönkum landsins til lögreglunnar fyrir markaðsmisnotkun af stærðargráðunni 300 milljónir danskra kr. eða tæpa 7 milljarða kr. Í frétt um málið í Jyllands Posten er þetta sagt vera stærsta bankahneyksli í sögu landsins. Viðskipti erlent 26.3.2010 11:10
Risavaxin einkavæðing lokkar Goldman Sachs til Varsjár Áform pólskra stjórnvalda um eignasölu og einkavæðingu ríkisfyrirtækja upp á um 10 milljarða dollara lokkar nú alþjóðlega fjárfestingabanka með Goldman Sachs í broddi fylkingar til Varsjár. Viðskipti erlent 26.3.2010 10:42
Áætlun um aðstoð við Grikki samþykkt AP Evruríkin sextán komu sér í gær saman um að veita Grikklandi fjárhagsaðstoð, ef önnur úrræði duga ekki. Önnur evrulönd, sem eiga í alvarlegum fjárhagsvandræðum, geta fengið aðstoð á sömu forsendum. Viðskipti erlent 26.3.2010 00:01
Efnahagsbatinn í Noregi ekki eins góður og talið var Komið er á daginn að efnahagsbatinn í Noregi var ekki jafn góður og leit út fyrir í upphafi þannig að Norðmenn hafa stigið á bremsuna í vaxtahækkunum. Viðskipti erlent 25.3.2010 11:59
Nestlé í vandræðalegum slagsmálum á Facebook Matvælarisinn Nestlé hefur hafnaði í vandræðalegum slagsmálum á Facebook eftir að Greenpeace ásakaði fyrirtækið fyrir að nota ósjálfbæra indónesíska pálmaolíu í afurðir sínar. Ásakanir Greenpeace voru aðeins upphafið að hamförum Nestlé í almannatengslum. Viðskipti erlent 25.3.2010 10:29
Auknar efasemdir um evruna í Danmörku Meirihluti Dana vill gerast aðili að myntbandalagi Evrópu samkvæmt niðurstöum nýrrar könnunar sem Hagstofa Danmerkur og Danske Bank gerðu í mars. Sagt er frá niðurstöðunum á danska vefnu epn.dk. Viðskipti erlent 25.3.2010 10:02
Fleiri samningar til að koma í veg fyrir skattsvik Norðurlöndin hafa gert upplýsingaskiptasamninga um skattamál við St.Vincent og Grenadineyjar, St. Kitts og Nevis. Samningurinn er liður í verkefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar með það að markmiði að koma í veg fyrir skattaundanskot. Viðskipti erlent 24.3.2010 14:15
Léttara andrúmsloft í stærsta hagkerfi Evrópu Andrúmsloftið í þýska atvinnulífinu er allt að léttast samkvæmt Ifo vísitölunni sem mælir væntingar stjórnenda í 7.000 þýskum fyrirtækjum í hverjum mánuði en mælingar fyrir mars mánuði voru birtar nú í morgun. Viðskipti erlent 24.3.2010 12:01
SFO íhugar rannsókn á viðskiptaháttum Rio Tinto Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office (SFO), íhugar nú að hefja rannsókn á viðskiptaháttum Rio Tinto. Kemur þetta í framhaldi af því að fjórir starfsmenn Rio Tinto í Kína hafa viðurkennt að hafa þegið mútur. Kínversk stjórnvöld eru stærsti viðskiptavinur Rio Tinto sem m.a. rekur álverið í Straumsvík. Viðskipti erlent 24.3.2010 10:02
Evran áfram undir grískum áhrifum Evran heldur áfram að gefa eftir og er það Grikklandskrísan eftir sem áður sem ræður mestu þar um. Evran kostar þegar þetta er ritað (11:00) 1.351 dal. Evran hefur nú lækkað um 1,9% á síðustu fjórum viðskiptadögum. Viðskipti erlent 23.3.2010 11:51
Alcoa prófar nýja tækni til að virkja sólarorku Alcoa, móðurfélag Fjarðaráls, og rannsóknamiðstöð orkumálaráðuneytis Bandaríkjanna um endurnýjanlega orkugjafa vinna nú að prófunum á nýrri tækni til að virkja sólarorku. Markmiðið er að lækka kostnað við gerð og rekstur sólarspegla til raforkuframleiðslu og gera þá samkeppnishæfa við aðrar leiðir til orkuframleiðslu. Viðskipti erlent 23.3.2010 10:43
Ótti veldur því að Danir spara sem aldrei fyrr Samanlagt á danskur almenningur um 798 milljarða danskra kr. eða vel yfir 18.000 milljarða kr. inni á reikningum í bönkum landsins. Þetta samsvarar því að hver Dani eigi 144.000 danskar kr. eða 3,3 milljónir kr. inni á bankabók sinni. Viðskipti erlent 23.3.2010 10:32
Time Warner leggur fram 190 milljarða tilboð í MGM Time Warner mun leggja fram tilboð upp á 1,5 milljarða dollara eða 190 milljarða kr. í kvikmyndafyrirtækið MGM í dag. Þetta hefur BusinessWeek eftir ónafngreindum heimildum. Ein verðmætasta eign MGM er rétturinn til að gera James Bond kvikmyndirnar. Viðskipti erlent 23.3.2010 09:40
FBI og FSB unnu saman að því að uppræta bankagengi Bandaríska alríkislögreglan FBI og rússneska leyniþjónustan FSB (áður KGB) unnu saman að því að uppræta bankagengi sem herjað hafði á breska bankann Royal Bank of Scotland (RSB). Málið er eitt stærsta sinnar tegundar hvað varðar stuld á gögnum úr bönkum. Viðskipti erlent 23.3.2010 09:06
Google gefur kínverskum stjórnvöldum fingurinn Leitarvélin Google hefur ákveðið að hundsa reglur kínverskra stjórnvalda um ritskoðun. Hefur netumferð Kínverja um Google nú verið flutt yfir á netþjónabú í Hong Kong en reglurnar um ritskoðunina ná ekki þangað. Þetta hefur vakið hörð viðbrögð kínverskra stjórnvalda sem að öllum líkindum munu henda Google alfarið út úr landinu. Viðskipti erlent 23.3.2010 08:38
Fjárfestar vilja heldur lána Buffett en Obama Alþjóðlegi skuldabréfamarkaðurinn hefur sent þau skilaboð frá sér að það sé öruggara að lána Warren Buffett heldur en Barack Obama, það er bandarískum stjórnvöldum. Viðskipti erlent 22.3.2010 15:17
Royal Greenland kaupir verksmiðju af Icelandic Seafood Grænlenski útgerðar og fiskvinnslurisinn Royal Greenland (RG) hefur fest kaup á kavíarverksmiðjunni Westfalia-Strentz Gmbh í Cuxhaven af Icelandic Seafood. RG hefur séð verksmiðjunni fyrir grásleppuhrognum í fjölda ára en mun nú sjálft annast allan ferilinn frá veiðum til vinnslu og sölu kavíars að því er segir á vefsíðu RG. Viðskipti erlent 22.3.2010 12:28
Danir borga milljarða fyrir lélega fjárfestingaráðgjöf Ný rannsókn á vegum danska fjármálaeftirlitsins sýnir að almenningur í Danmörku borgar allt að 1,3 miljarða danskra kr., eða tæplega 30 milljarða kr., á hverju ári fyrir lélega ráðgjöf um fjárfestingar í bönkum landsins. Viðskipti erlent 22.3.2010 07:51
Vangaveltur um að Pfizer losi Deutsche Bank við Actavis Financial Times greinir frá því að bandaríski lyfjarisinn Pfizer gæti losað Deutsche Bank við höfuðverkinn Actavis. Þetta virðist upplagður samingur, Pfizer þarf að eignast samheitalyfjafyrirtæki og Deutsche Bank þarf að losna við um 4 milljarða evra sem bankinn lánaði Actavis þegar Björgólfur Thor Björgólfsson keypti félagið 2007. Viðskipti erlent 22.3.2010 07:08
Tölvuþrjótur græddi tugi milljóna á hlutabréfum Rússneski tölvuþrjóturinn Valery Maltsev græddi um 30 milljónir kr. með því að „hakka“ sig inn í hlutabréfaviðskiptakerfið hjá Scotttrade og breyta þar kaupverðum á hlutabréfum. Scotttrade er stærsta vefsíða heimsins þar sem boðið er upp á hlutabréfaviðskipti. Viðskipti erlent 21.3.2010 13:00
Samdráttur í fiskútflutningi kemur við kaunin í Grimsby Töluverður samdráttur í útflutningi íslenskra útgerða á ferskum fiski til Bretlands frá áramótum kemur nú við kaunin á fiskvinnslum í Grimsby. Blaðið Grimsby Telegraph greinir frá þessu og þar segir að höfuðorsökin liggi í 5% gjaldi á þennan útflutning sem Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra boðaði fyrr í vetur. Viðskipti erlent 21.3.2010 11:00
Flýja Bretland vegna skattahækkana Tveir stærstu vínframleiðendur í heimi ætla að flytja starfsemi sína frá Bretlandi vegna mikilla skattahækkanna þar í landi. Viðskipti erlent 21.3.2010 08:00
Læknir með Asperger einn sárafárra sem sá bankahrunið fyrir Bandarískur læknir með einhverfu var einn sárafárra einstaklinga sem sá bankahrunið fyrir. Hann veðjaði gegn Wall Street og græddi nánast óskiljanlega háar upphæðir fyrir vikið. Hinn umdeildi Íslandsvinur Michael Lewis komst að þessu en hann segir að kapítalistarnir hafi næstum tortímt markaðshagkerfinu með eigin heimsku. Viðskipti erlent 20.3.2010 18:45
Þúsundir fastir vegna verkfalls hjá BA Þúsundir farþega komast ekki leiðar sinnar vegna þriggja daga verkfalls flugliða hjá British Airways sem hófst á miðnætti. Viðskipti erlent 20.3.2010 09:59
Fasteignaverð í Danmörku hækkar ekki fyrr en eftir 10 ár Húsnæðisverð í Danmörku mun ekki hækka næstu 10 ár, eftir því sem fram kemur í danska viðskiptablaðinu Børsen. Viðskipti erlent 20.3.2010 09:39