Viðskipti erlent
235 236 237 238 239 240 241 242 243 … 334 ›
Taprekstur West Ham eykst milli ára Enska úrvalsdeildarliðið West Ham tapaði 20,6 milljónum punda, eða 3,8 milljörðum kr. á síðasta reikningsári sínu sem lauk 31. maí s.l. Brottrekstur Gianfranco Zola og ráðning Avram Grant í stöðu knattspyrnustjóra West Ham bætti 3,4 miljónum punda við tapið á árinu. Viðskipti erlent 7.3.2011 09:45
Charlie Sheen selur kókómjólk á Twitter Charlie Sheen hefur sett leikferil sinn á hilluna í bili og einbeitir sér að viðskiptum í augnablikinu. Sheen hefur tekið að sér að selja Broquiere kókómjólk á Twitter síðu sinni. Kókómjólkin hefur rokselst eftir að Sheen fór að mæla með henni. Viðskipti erlent 7.3.2011 09:09
Olíuverðið á hraðleið í 120 dollara á tunnuna Heimsmarkaðsverð á olíu heldur áfram að hækka og stefnir nú hraðbyri í 120 dollara á tunnuna. Verðið fyrir Brent olíuna hækkaði um 1% í morgun og stendur í 117,3 dollurum. Verðið fyrir bandarísku léttolíuna hækkaði um 1,9% og stendur í 106,4 dollurum. Viðskipti erlent 7.3.2011 08:20
King harðlega gagnrýndur fyrir ummæli sín Mervyn King, seðlabankastjóri í Bretlandi, þarf nú að sæta harðri gagnrýni frá virtum hagfræðingum eftir viðvaranir sínar vegna breska bankakerfisins. King sagðist óttast að önnur fjármálakreppa væri framundan ef ekki yrðu gerðar breytingar á bankakerfinu. Viðskipti erlent 5.3.2011 14:48
Olíumálaráðherra Noregs skipt út Olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Terje Riis-Johansen, lét af embætti í dag. Eftirmaður hans er Ola Borten Moe, 34 ára gamall þingmaður frá Þrándheimi, sem norskir fjölmiðlar kalla krónprins Miðflokksins. Vangaveltur hafa verið í norskum fjölmiðlum að undanförnu um að olíu- og orkumálaráðherranum kynni að verða skipt út. Það kom því ekki alveg á óvart þegar tilkynnt var um ráðherraskiptin í dag. Viðskipti erlent 4.3.2011 18:50
Evran styrkist gagnvart dollaranum Evran fór í fjögurra mánaða hámark gagnvart dollaranum í kjölfar ummæla bankastjóra evrópska seðlabankans, Jean-Claude Trichet, sem sagði í gær að það gæti verið að bankinn myndi hækka vexti á næsta vaxtaákvörðunarfundi sem verður í næsta mánuði. Viðskipti erlent 4.3.2011 12:01
Gullæði ríkir í Danmörku Hið himinháa heimsmarkaðsverð á gulli hefur leitt til þess að gullæði er runnið á Dani. Þeir keppast nú við að finna gamla skartgripi, úr og erfðagripi sem þeir selja hjá gullkaupendum í Danmörku. Viðskipti erlent 4.3.2011 08:35
Fésbókin er metin á 7500 milljarða króna Samskiptasíðan Facebook er metin á 7500 milljarða íslenskra króna samkvæmt nýjasta verðmati. Fjárfestingafyrirtækið General Atlantic er um þessar mundir að kaupa hlut í Facebook. Viðskipti erlent 3.3.2011 22:10
Exxon Mobil leitar olíu við Færeyjar Exxon Mobil, stærsta olíufélag heims, hefur ákveðið að hefja olíuleit undan ströndum Færeyja. Bandaríski olíurisinn hefur í því skyni samið við Statoil um að kaupa helmingshlut í þremur leitarleyfum, sem norska olíufélagið hefur fengið úthlutað í færeyska landgrunninu. Viðskipti erlent 3.3.2011 08:57
Horfur batna innan Evrópusambandsins Búast má við að meðalhagvöxtur verði 1,6 til 1,7 prósent innan aðildarríkja Evrópusambandsins (ESB) á þessu ári. Þetta er 0,1 prósentustigi meira en áður var gert ráð fyrir í hagspá ESB í nóvember í fyrra. Viðskipti erlent 3.3.2011 05:00
Skuldug félög Sigurðar Bollasonar Þrjú einkahlutafélög Sigurðar Bollasonar fjárfestis töpuðu 1,4 milljörðum króna árið 2009, samkvæmt nýbirtum ársreikningum. Félögin fengu um tíu milljarða lán hjá viðskiptabönkum í júlí og ágúst 2008 til kaupa á hlutabréfum í Existu, Glitni og Landsbankanum. Viðskipti erlent 2.3.2011 14:00
Stýrivextir víða orðnir hærri en á Íslandi Þrátt fyrir að stýrivextir hér á landi eru til muna hærri en í flestum öðrum iðnríkjum þá eru þeir orðnir lægri kantinum í samanburði við mörg nýmarkaðsríki. Stýrivextir Seðlabanka Íslands standa nú í 4,25% og hafa lækkað um 13,75 prósentur á síðastliðnum tveimur árum. Viðskipti erlent 2.3.2011 12:22
Nóbelsverðlaunahafi rekinn frá örbanka sem hann stofnaði Hinn heimsþekkti Nóbelsverðlaunahafi Mohammad Yunus hefur verið rekinn úr starfi sínu hjá örlánabankanum, Grameen Bank sem hann sjálfur stofnaði. Mikill þrýstingur hefur verið á stjórn bankans undanfarna mánuði um að reka Yunus. Viðskipti erlent 2.3.2011 11:21
Ný iPad-tölva handan við hornið Bandaríski tæknirisinn Apple sviptir í dag hulunni af næstu kynslóð iPad-spjaldtölvunnar. Fyrsta kynslóð tölvunnar kom á markað í apríl í fyrra. Beðið hefur verið með nokkurri eftirvæntingu eftir þessari nýjustu spjaldtölvu og mikið spekúlerað í því hvað hún muni bera og innhalda. Viðskipti erlent 2.3.2011 10:00
Gullverðið komið í sögulegt hámark Heimsmarkaðsverð á gulli í framvirkum samningum fram í apríl fór í rúma 1.431 dollar á únsuna undir lok markaða í gærdag. Hefur verðið aldrei verið hærra í sögunni. Gullið hækkaði um 21,30 dollara yfir daginn í gær. Viðskipti erlent 2.3.2011 09:59
ERT er valdamesti viðskiptaklúbbur Evrópu Valdamesti viðskiptaklúbbur Evrópu ber nafnið European Round Table of Industrialists (ERT). Klúbburinn samanstendur af 45 af háttsettustu forstjórum á sviði iðnaðar og framleiðslu í Vestur Evrópu og þegar hann tjáir sig er hlustað á það með athygli af helstu stjórnendum ESB. Viðskipti erlent 2.3.2011 09:33
Verðið á olíunni komið í 116 dollara á tunnuna Heimsmarkaðsverð á Brent olíunni stendur í rétt tæpum 116 dollurum á tunnuna í morgun en það fór yfir 116 dollara um tíma í gærdag. Á sama tíma er verðið á bandarísku léttolíunni komið yfir 100 dollara á tunnuna. Viðskipti erlent 2.3.2011 08:56
Álverðið er komið yfir 2.600 dollara á tonnið Ekkert lát er á verðhækkunum á áli á markaðinum í London. Er verðið nú komið í 2.612 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga. Hefur verðið ekki verið hærra síðan sumarið 2008. Viðskipti erlent 2.3.2011 08:11
Kaupþing ætlar að selja Karen Millen Skilanefnd/slitastjórn Kaupþings ætlar sér að skilja tískuverslanakeðjuna Karen Millen frá Aurora Fashions og selja hana sér. Þetta kemur fram í frétt um málið á Bloomberg fréttaveitunni. Karen Millen er sá hluti Aurora sem skilað hefur hvað mestum hagnaði innan samsteypunnar sem telur einnig Coast, Oasis og Warehouse. Viðskipti erlent 2.3.2011 08:01
Hlutabréfahrun í Saudi Arabíu, ótti við mótmæli Hlutabréfamarkaðurinn í Saudi Arabíu hefur verið í frjálsu falli í dag vegna orðróms um fjöldamótmæli og uppþot í landinu síðar í þessum mánuði. Samhliða er olíuverðið tekið að hækka að nýju. Viðskipti erlent 1.3.2011 13:40
Goldman Sachs tapar 400 milljörðum í dómsmálum Goldman Sachs, fimmti stærsti banki Bandaríkjanna, reiknar með að tapa 3,4 milljörðum dollara eða um 400 milljörðum kr. í dómsmálum á þessu ári. Viðskipti erlent 1.3.2011 12:08
Fjöldi milljarðamæringa fjórfaldast í Noregi Fjöldi milljarðamæringa, í norskum krónum, hefur fjórfaldast í Noregi frá árinu 1990 og eru þeir nú tæplega 400 talsins. Samhliða þessu hefur tekjubilið milli hinna ofurríku og millistéttarfólks aukist töluvert meira í Noregi en bæði Bandaríkjunum og Bretlandi á sama tímabili. Viðskipti erlent 1.3.2011 08:32
Fjórða hvern tíma opnar ný 7-Eleven verslun í heiminum Á fjórða hverjum tíma allan sólarhringinn á síðasta ári opnaði ný 7-Eleven verslun einhverstaðar í heiminum. Fjöldi þeirra á heimsvísu náði 40.000 um síðustu helgi. Viðskipti erlent 28.2.2011 15:08
Hækkanir á olíuverðinu ganga til baka Hinar miklu hækkanir á heimsmarkaðsverði á olíu hafa stöðvast í dag og raunar gengið aðeins til baka. Þannig hefur verðið á Brent olíunni lækkað um 0,2% í dag og er komið rétt undir 112 dollara á tunnuna. Viðskipti erlent 28.2.2011 13:29
Victoria Road er orðin dýrasta gatan í London Victoria Road er orðin dýrasta gatan í London og hefur þar með velt Chester Square úr sessi en Chester Square hefur verið dýrasta gatan undanfarin tvö ár. Viðskipti erlent 28.2.2011 10:31
Áfall fyrir Dani, landsframleiðsla dregst saman Landsframleiðsla Danmerkur dróst saman um 0,4% milli þriðja og fjórða ársfjórðungs síðasta árs. Þetta kemur eins og áfall fyrir Dani að sögn danskra viðskipamiðla þar sem reiknað hafði verið með því að hagvöxtur yrði jákvæður um 0,4% á fjórða ársfjórðungi. Viðskipti erlent 28.2.2011 10:04
Olíuverð snarhækkar í Asíu Átökin í Líbíu hafa leitt til þess að olíuverð fer snarhækkandi í Asíu. Þannig kostar tunnan af olíu núna 100 dollara í Asíu. Viðskipti erlent 28.2.2011 08:50
Skilanefndir gætu fengið 9 milljarða frá All Saints Breska tískuverslunarkeðjan All Saints er til sölu og verðmiðinn hljóðar upp á 140 milljónir punda. Skilanefndir Kaupþing og Glitnis gætu fengið um 9 milljarða kr. út úr sölunni á All Saints. Viðskipti erlent 28.2.2011 08:48
Warren Buffett klæjar í gikkfingurinn Ofurfjárfestirinn Warren Buffet segir í bréfi til hluthafa Berkshire Hatahaway að til staðar séu 38 milljarðar dollara eða um 4.400 milljarða kr. í lausu fé í félaginu. Því sé hann að íhuga eignakaup og fjárfestingar í stórum stíl. „Við erum búnir að endurhlaða fílabyssuna og mig klæjar í gikkfingurinn,“ segir Buffet í bréfinu. Viðskipti erlent 28.2.2011 08:25
Iceland Foods í útrás til Austur Evrópu Malcolm Walker forstjóri Iceland Foods verslunarkeðjunnar á nú í samningaviðræðum við samstarfsaðila í Austur Evrópu. Walker hyggst koma á fót Iceland verslunum í Póllandi, Tékklandi og Ungverjalandi. Viðskipti erlent 25.2.2011 11:15