Viðskipti erlent
212 213 214 215 216 217 218 219 220 … 334 ›
Vilja skatt á fjármagnsflutninga Framkvæmdastjórn Evrópusambandins hefur formlega lagt til skatt á fjármagnsflutninga í öllum ríkjum Evrópusamstarfsins. Gert er ráð fyrir að skatturinn myndi afla um 57 milljarða evra tekna á ári og yrði settur á í byrjun ársins 2014. Viðskipti erlent 28.9.2011 11:32
Papandreu segir Grikki standa við sitt Gríski forsætisráðherrann staðhæfir að Grikkir geti staðið við allar skuldbindingar sínar. Georg Papandreu sagði þetta á fundi í Þýskalandi í gær en þar ræddi hann við forkólfa þýsks viðskiptalífs. Síðar um daginn fundaði hann með Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Viðskipti erlent 28.9.2011 10:19
Papandreú biðlar til þýskra stjórnvalda „Ég ábyrgist það að Grikkland mun standa við allar sínar skuldbindingar,“ sagði Georg Papandreú, forsætisráðherra Grikklands, nýkominn til Berlínar í gærmorgun til að ræða við Angelu Merkel Þýskalandskanslara. Viðskipti erlent 28.9.2011 00:00
Nýi síminn á leiðinni Apple, sem framleiðir meðal annars iPad og iPhone, hefur staðfest að nýjasta kynslóðin af iPhone verði kynnt þann fjórða október. Sögusagnir um þetta voru þegar farnar að berast manna á milli. Í dag var einnig greint frá því að sama dag og Apple mun kynna nýja símann mun Facebook kynna nýtt forrit fyrir iPad og nýja útgáfu af slíku forriti fyrir iPhone símana. Það eru því spennandi tímar framundan fyrir tækniunnendur. Viðskipti erlent 27.9.2011 16:02
"Ríkisstjórnir stjórna ekki heiminum, Goldman Sachs gerir það“ Hlutabréf hækkuðu talsvert í viðskiptum í morgun og er það rakið til vaxandi væntinga um að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og leiðtogar á evrusvæðunum nái samkomulagi um lausn á skuldavandanum í evrulöndunum. Verðbréfamiðlari segir það engu skipta, þar sem ríkisstjórnir stjórni ekki heiminum. Hann spáir því að sparifé milljóna manna muni hverfa innan árs. Viðskipti erlent 27.9.2011 11:51
Von á nýjum Lada Von er á nýjum Ladabílum aftur á markað á næstunni. Það er Steve Mattin, sem var yfirhönnuður hjá Volvoverksmiðjunum allt til ársins 2009, sem vinnur að hönnun nýju bílanna. Mattin var rekinn úr starfi sínu hjá Volvo af ástæðum sem ekki eru þekktar. Hann mun hefja störf hjá rússneska bílaframleiðandanum AvtoVAZ, sem framleiðir Lada. Viðskipti erlent 26.9.2011 15:24
Nubo horfir til fleiri Norðurlanda Huang Nubo, kínverski milljarðamæringurinn sem hefur stórhuga áform um ferðaþjónustu á Grímsstöðum á Fjöllum, segir í viðtali við Bloomberg fréttaveituna að hann hafi áhuga á frekari fjárfestingum í ferðaþjónustu annars staðar á Norðurlöndum. Viðskipti erlent 26.9.2011 11:18
Markaðir í Evrópu taka við sér Hlutabréf á mörkuðum í Evrópu lækkuðu við opnun klukkan sjö í morgun þrátt fyrir fregnirnar af björgunarpakkanum sem nú berast frá Washington. Þetta þótti benda til þess að fjárfestar hafi litla trú á því að stjórnmálamönnum takist að gera björgunarpakkann að veruleika en nú hafa markaðir tekið við sér og nú eru flestar tölur grænar, sem merkir hækkun. Viðskipti erlent 26.9.2011 09:54
Fyrsta Dreamliner vélin afhent Boeing flugvélaverksmiðjurnar hafa afhent fyrstu 787 Dreamliner farþegaþotuna til japanska flugfélagsins All Nippon Airways. Vélin fer í almenna notkun í næsta mánuði en hún er þremur árum á eftir upphaflegri áætlun og segir breska blaðið Guardian að tafirnar hafi kostað Boeing milljarða dollara og sérfræðingar efast um að vélin fari að skila félaginu hagnaði fyrr en í fyrsta lagi að áratugi liðnum. Viðskipti erlent 26.9.2011 08:04
Grikkir fái helming skulda sinna afskrifaðan Í höfuðstöðvum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington leggja menn nú á ráðin um viðamikinn björgunarpakka fyrir ríki evrusvæðisins. Búist er við því að áætlunin sem nú er í bígerð feli í sér að helmingur allra ríkisskulda Grikkja verði afskrifaður auk þess sem björgunarsjóður evrusvæðisins verði fjórfaldaður og telji í framtíðinni 2000 milljarða evra. Viðskipti erlent 26.9.2011 07:56
Leysa þarf vanda evruríkja án tafar Verði skuldavandi evruríkjanna ekki leystur án tafar gæti það leitt til þess að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn ráði ekki yfir nægum fjármunum til að aðstoða önnur ríki í vanda. Þetta er mat seðlabankastjóra Kína og framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Viðskipti erlent 25.9.2011 12:00
Mótmælendur handteknir á Wall Street Um áttatíu mótmælendur voru í gær handteknir skammt frá kauphöllinni í New York en stíf mótmæli hafa verið á Wall Street undanfarna viku. Mótmælendurnir eru að andmæla kapítalisma og björgun bankanna. Viðskipti erlent 25.9.2011 11:45
Vikan endaði í smávegis plús Hlutabréfavísitölur í helstu kauphöllum heimsins hækkuðu lítillega í gær eftir sleitulítið verðfall í vikunni. Viðskipti erlent 24.9.2011 10:00
Markaðir í Evrópu enn í niðursveiflu Markaðir í Evrópu eru enn í rauðum tölum eftir stórfall beggja vegna Atlantsála í gær. G20 ríkin hafa boðað aðgerðir til að bregðast við sveiflum á mörkuðum. Viðskipti erlent 23.9.2011 12:23
Hækkanir við opnun markaða - sérfræðingar þó enn svartsýnir Þegar markaðir opnuðu í Evrópu klukkan sjö í morgun hækkuðu helstu vísitölur nokkuð, FTSE vísitalan í London hækkaði um eitt prósent við opnun en hefur nú lækkað á ný um hálft prósent. Svipaða sögu var að segja í París og í Frankfurt og þar var dálítil hækkun strax við opnun. Viðskipti erlent 23.9.2011 07:52
Verðfallið hélt áfram í Asíu Hlutabréf í Asíu héldu áfram að lækka við lokun markaða þar í nótt og fylgja lækkanirnar í kjölfarið á mikilli lækkun í Evrópu og Bandaríkjunum í gær. Vikan sem er að líða er því sú versta fyrir hlutabréfamarkaðina frá árinu 2008. Viðskipti erlent 23.9.2011 06:41
Christine Lagarde: Heimurinn er á hættulegum stað Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sagði efnahagsástandið væri á hættulegum stað vegna þeirra snörpu dýfu sem fjármálaheimurinn tók í dag eftir að seðlabanki Bandaríkjanna varaði við verulegri efnahagslegri hættu. Viðskipti erlent 22.9.2011 15:48
Ekkert lát á lækkunum Ekkert lát hefur orðið á lækkunum á mörkuðum í Evrópu í dag. Hlutabréf í bönkum, námufyrirtækjum og olíufyrirtækjum hafa lækkað mest en fjárfestar óttast enn ástandið í Grikklandi og ástand efnahagsmála heimsins almennt. Lækkanirnar í Evrópu koma í kjölfarið á lækkunum í Bandaríkjunum í gær og þá lækkuðu helstu vísitölur í Asíu fyrir lokun í nótt. FTSE vísitalan í London hefur lækkað um um 4,75 prósent það sem af er degi, DAX vísitalan í Frankfurt hefur lækkað um 4,37 og CAC vísitalan í París hefur hrunið um fimm prósent.. Viðskipti erlent 22.9.2011 12:11
Rauðar tölur á mörkuðum í Evrópu Miklar lækkanir urðu á mörkuðum í Evrópu við opnun í morgun. Hlutabréf í bönkum, námufyrirtækjum og olíufyrirtækjum urðu verst úti en fjárfestar óttast enn ástandið í Grikklandi og ástand efnahagsmála heimsins almennt. Lækkanirnar í Evrópu koma í kjölfarið á lækkunum í Bandaríkjunum í gær og þá lækkuðu helstu vísitölur í Asíu fyrir lokun í nótt. FTSE vísitalan í London lækkaði um 3,2 prósent við opnun og DAX vísitalan í Frankfurt fór niður um 3,5 prósent. Viðskipti erlent 22.9.2011 08:55
Grikkir efna til verkfalla - mikil mótmæli í Aþenu Verkföll lama nú samfélagið í Grikklandi en allar almenningssamgöngur hafa stöðvast í sólarhringsverkfalli sem ætlað er að mótmæla niðurskurðartillögum ríkisstjórnarinnar. Þá er búist við gríðarlegu fjölmenni þegar opinberir starfsmenn koma saman í Aþenu í dag til að mótmæla. Viðskipti erlent 22.9.2011 08:25
Ikea opnar sérstakt karlaland Ikea í Melbourne í Ástralíu ætlar að taka upp á þeirri nýbreytni að bjóða upp á sérstakt karlaland í verslun sinni. Þessi hluti verslunarinnar verður, eðli málsins samkvæmt, einungis opinn körlum. Hugmyndin er sú að þetta verði nokkurs konar athvarf fyrir karlmenn þar sem þeir geti borðað ókeypis pylsur, horft á íþróttir og spilað Xbox tölvuleiki á meðan betri helmingurinn skoðar húsgögn og annað þarfaþing fyrir heimilið. Viðskipti erlent 21.9.2011 23:48
Bill Gates er ríkasti maður Bandaríkjanna Bill Gates, stofnandi Microsoft, trónir á toppi nýs lista tímaritsins Forbes yfir ríkustu menn í Bandaríkjunum. Þar með skýtur hann mönnum eins og Warren Buffet ref fyrir rass. Viðskipti erlent 21.9.2011 19:32
Nýr iPhone kynntur 4. október Tim Cook, forstjóri Apple, mun kynna nýjan iPhone 5 til sögunnar þann 4. október næstkomandi á stórum fjölmiðlaatburði í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 21.9.2011 13:00
AGS telur hagkerfið hafa veikst umtalsvert Alþjóðahagkerfið hefur veikst umtalsvert á síðastliðnum mánuðum, segir í árshlutaskýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Úrræðaleysi ríkisstjórna hefur orðið til þess að bæta við þau vandamál sem liggja í loftinu. Alþjóðagjaldeyrissjóðiurinn segir að hagkerfið í Bretlandi muni vaxa hægar en áður var gert ráð fyrir. Gert var ráð fyrir 1,5% hagvexti en samkvæmt skýrslunni er nú gert ráð fyrir 1,1% hagvexti. Stjórnvöld í Bretlandi gera aftur á móti enn ráð fyrir 1,7% hagvexti en viðurkenna að sú tala muni lækka þegar spáin verður endurskoðuð næst. Viðskipti erlent 20.9.2011 18:18
Lækkunin af pólitískum toga Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, segir að ástæða þess að matsfyrirtækið Standard & Poor's hafi lækkað lánshæfismat landsins gærkvöldi sé af pólitískum toga en ekki vegna raunverulegrar stöðu ríkissjóðs Ítalíu. Viðskipti erlent 20.9.2011 15:27
S&P lækkar lánshæfi Ítalíu Matsfyrirtækið Standard&Poors hefur lækkað lánshæfi ríkissjóðs Ítalíu úr A plús niður í A og segir fyrirtækið horfur til framtíðar vera neikvæðar. Í skýringum með ákvörðuninni segir að lítil trú sé til þess að Ítölum takist að draga úr ríkisútgjöldum og koma lagi á fjármál sín. Viðskipti erlent 20.9.2011 07:18
Vilja niðurskurð og betri skattheimtur í Grikklandi Grikkland þarf betri skattheimtur og meiri niðurskurð, en ekki skattahækkanir. Með því má koma í veg fyrir frekari áföll í efnahagslífi landsins. Þetta kom fram í máli forystumanna Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í dag. Viðskipti erlent 19.9.2011 19:45
Obama tilkynnti niðurskurðartillögur í dag Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hefur kynnt áætlanir sínar til þess að draga úr fjárlagahalla Bandaríkjanna og örva hagvöxt. Á fundi í Hvíta húsinu í dag sagði hann að nauðsynlegt væri að skerða framlög til heilbrigðismála en hann sagði jafnframt að hinir auðugu yrðu að greiða hærri skatta. Viðskipti erlent 19.9.2011 18:38
Segir Grikki gerða að blórabögglum Gríski fjármálaráðherrann Evangelos Venizelos fundar síðar í dag með fulltrúum Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en hann er harðorður í garð stofnananna í fjölmiðlum í dag og segir að verið sé að nota Grikki sem blóraböggul og að harðari aðgerðir gegn þeim miði einungis að því að fela lélegan árangur forsvarsmanna þeirra í að takast á við krísuna. Viðskipti erlent 19.9.2011 13:01
Gríska ríkisstjórnin á neyðarfundi Gríska ríkisstjórnin kom í morgun saman á neyðarfundi en ótti manna um að ríkið verði gjaldþrota fer nú vaxandi með hverjum deginum sem líður. George Papandreu aflýsti í gær ferð sem hann ætlaði að fara til Bandaríkjanna til þess að vera viðstaddur aðalþing Sameinuðu Þjóðanna og fund hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Neyðarfundurinn snerist um nýjar niðurskurðartillögur sem miða að því að tryggja Grikkjum frekari lánveitingar en gríska dagblaðið To Vima fullyrðir að lánadrottnar landsins hafi sett ný skilyrði fyrir frekari lánum, meðal annars, að segja þurfi upp 20 þúsund ríkisstarfsmönnum. Leiðtogar á evrusvæðinu munu ákveða í Október hvort Grikkjum verði veitt frekari lánafyrirgreiðsla. Viðskipti erlent 19.9.2011 08:08