Tónlist
210 211 212 213 214 215 216 217 218 … 226 ›
Kennir aðdáendum að spila lögin sín Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, eða Mugison eins og hann er jafnan kallaður, hefur bryddað upp á skemmtilegri nýjung á heimasíðu sinni, Mugison.com. Þar hefur kappinn tekið upp gítarkennslu fyrir aðdáendur sína. Mugison skrifar að aðdáendur hans óski oft eftir upplýsingum um hvaða grip hann noti í hverju lagi og hann hafi ákveðið að bæta úr skorti á þessum upplýsingum. Tónlist 12.1.2007 09:45
Nafn komið á nýja plötu Næsta plata bresku hljómsveitarinnar Kaiser Chiefs mun heita Yours Truly, Angry Mob og er hún væntanleg 26. febrúar. Tónlist 12.1.2007 09:30
Orð eins árs Haldið verður upp á eins árs afmæli hip hop-þáttarins Orð á Barnum í kvöld. Fyrsti árslisti þáttarins, sem er á dagskrá Flass 104,5, var fluttur í síðasta þætti og samanstóð hann af 25 bestu plötum ársins 2006 og 34 bestu lögunum. Tónlist 12.1.2007 09:15
Söngleikjafár á fjölunum á næstunni Fimm íslenskir söngleikir eru væntanlegir á fjalirnar í vor og haust og má því með sanni segja að söngleikjafár ríði nú yfir landið. Tónlist 12.1.2007 08:00
Tónleikum frestað Tónleikum sænsku hljómsveitarinnar Peter, Bjorn & John, sem áttu að fara fram hér á landi 27. janúar, hefur verið frestað til 31. mars vegna óviðráðanlegra orsaka. Tónlist 12.1.2007 07:45
Tvö lög frumflutt Hljómsveitin Manic Street Preachers frumflutti nýverið tvö lög á tónleikum í Manchester. Sveitin hefur ekkert starfað síðan þeir James Dean Bradfield og Nicky Wire hófu sólóferil en ætlar nú að reyna fyrir sér á nýjan leik eftir tveggja ára hlé. Platan Send Away the Tigers er væntanleg í vor og lofa þeir félagar góðri endurkomu þar sem ferskleikinn verður í fyrirrúmi. Tónlist 12.1.2007 07:30
Ætlar ekki að gefast upp Tónlistarmaðurinn og annar af meirihlutaeigendum húsnæðis Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar, Danny Pollock, játar að allt líti út fyrir að efnaðir menn ætli sér að kaupa húsnæðið, eins og kom fram í Fréttablaðinu í gær. Tónlist 12.1.2007 06:45
Ítölsk-íslensk veisla í kvöld Ítölsk-íslensk raftónlistarveisla verður haldin í Stúdentakjallaranum í kvöld. Fram koma Evil Madness, Fabrizio Modonese Palumbo og Paul Beauchamp. Tónlist 12.1.2007 04:00
Garðar Thór bjartasta vonin í Bretlandi Breska tímaritið Classic FM Magazine gerir ferli stórsöngvarans Garðars Thórs Cortes góð skil í febrúarhefti sínu og segir hann vera björtustu vonina í óperuheiminum um þessar mundir, eða „Hot Property“. Tónlist 12.1.2007 02:30
Aldrei of seint fyrir Noruh Bandaríska tónlistarkonan Norah Jones gefur út sína þriðju sólóplötu 29. janúar næstkomandi. Platan nefnist Not Too Late og hefur að geyma þrettán glæný lög. Tónlist 12.1.2007 00:30
Vinsælustu lög Ladda Tvöföld safnplata með Ladda, Hver er sinnar kæfu smiður, kemur út á mánudag. Á plötunum tveimur er að finna öll vinsælustu lögin í flutningi Ladda og spanna þau langan feril hans. Tónlist 11.1.2007 17:00
Syngja meðan heilsan leyfir Hin níutíu og sex ára gamla Ólöf Sigurrós Ólafsdóttir, kölluð Sigurrós, lætur háan aldur ekki aftra sér og mætir reglulega á hálfsmánaðarlegar söngvökur hjá Félagi eldri borgara ásamt Bergdísi Kristjánsdóttur, heimsóknavini Sigurrósar frá Rauða krossinum. Tónlist 11.1.2007 14:30
Bítlatexti á uppboð Handskrifaður texti við Bítlalagið While My Guitar Gently Weeps verður seldur á uppboði í Bandaríkjunum næstkomandi mánudag. Tónlist 11.1.2007 09:00
Morrissey keppir í Eurovision Fulltrúi Englendinga í Evrópsku söngvakeppninni í maí gæti orðið af ólíklegra taginu. Allt útlit er fyrir að það verði Morrissey, sem keppi fyrir Englands hönd í Eurovision. Morrissey, sm er 47 ára, er best þekktur sem aðalsöngvari The Smiths, hinna myrku meistara breska indie-rokksins á níunda áratugnum. Sólóferill Morrisseys hefur frekar verið á uppleið að undanförnu. BBC, breska ríkisútvarpið, sem sér um að velja þátttakendur Englands í söngvakeppninni, hefur staðfest að það sé í viðræðum við Morrissey um að hann semji of flytji lag Englands í keppninni, sem verður haldin í Helsinki í Finnlandi í maí í vor. Tónlist 10.1.2007 15:40
R.E.M., Van Halen og Patti Smith valin Hljómsveitirnar R.E.M., Van Halen, The Ronettes, Grandmaster Flash and the Furious Five og söngkonan Patti Smith verða innvígð inn í Frægðarhöll rokksins í New York hinn 12. mars. Tónlist 10.1.2007 14:00
Kemur The Police saman aftur? Orðrómur er uppi um að hljómsveitin The Police ætli að koma saman á nýjan leik á þessu ári með tónleikahaldi í Bretlandi og Bandaríkjunum. Á þessu ári verða þrjátíu ár liðin frá því að eitt vinsælasta lag sveitarinnar, Roxanne, kom út. Var það jafnframt fyrsta lagið sem vakti athygli á The Police í Bandaríkjunum. Hljómsveitin hætti störfum árið 1986. Tónlist 10.1.2007 11:30
Í viðræðum vegna Eurovision Morrissey, fyrrum söngvari The Smiths, verður hugsanlega fulltrúi Bretlands í Eurovision-söngvakeppninni í ár. Tónlist 10.1.2007 11:15
Eftirvænting við Hagatorg Samstarf Sinfóníuhljómsveitarinnar og Listaháskóla Íslands er meðal annars fólgið í árlegum tónleikum þar sem ungir og upprennandi tónlistarmenn fá að spreyta sig með hljómsveitinni. Tónlist 10.1.2007 10:00
Jarvis - þrjár stjörnur Ekki láta spaugileg „90"s“ kvöld vinar míns Curvers plata ykkur. Þó svo að nostalgía yngri kynslóða snúist yfirleitt um það að gera því hátt undir höfði sem miður fór í tónlist á síðasta áratug og þau kvöld séu full af Aqua, 2Unlimited og öðrum viðbjóði sem fáir myndu leggja á sig að hlusta á edrú var tíundi áratugurinn líka fullur af frábærri tónlist. Tónlist 10.1.2007 09:00
Úrval einleiksverka fyrir selló Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari heldur tónleika í Salnum í kvöld og leikur þar fjölbreytt einleiksverk. Sæunn hóf sellónám sitt 5 ára gömul og útskrifaðist frá Cleveland Institute of Music síðastlitið vor og hlaut þar verðlaun sem framúrskarandi nemandi bæði í sellóleik og kammertónlist. Tónlist 9.1.2007 16:00
Raftónlistarfólk í nýju dagatali Verslunin 12 tónar hefur gefið út dagatal fyrir árið 2007 tileinkað íslenskum raftónlistarmönnum. Bassaleikaradagatal verslunarinnar kom út í fyrra og vakti mikla lukku. Tónlist 9.1.2007 15:30
Miðasala hefst í dag Miðasala á þrenna tónleika sænsku söngkonunnar Lisa Ekdahl hér á landi í byrjun mars hefst í dag. Fyrstu tónleikar hennar verða á Nasa 1. mars, þeir næstu verða á Græna hattinum á Akureyri kvöldið eftir og síðustu tónleikarnir verða í Víkurbæ í Bolungarvík 3. mars. Miðasalan hefst kl. 10 á midi.is og í verslunum Skífunnar og verslunum BT. Miðaverð er 2.900 krónur. Tónlist 9.1.2007 14:30
Barist fyrir framtíð TÞM Næstkomandi laugardag verða haldnir baráttutónleikar fyrir framtíð Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar sem er með starfsemi að Hólmaslóð 2 í Reykjavík. Tónlist 9.1.2007 09:30
Tilfinningarík tónlist Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Antonía Hevesi píanóleikari koma fram á hádegistónleikum í Hafnarborg á morgun. Yfirskrift tónleikanna er „Ljúflingslög“ en að sögn Antoníu verður leitast við að hafa andrúmsloftið rólegt og afslappandi og munu þau flytja íslensk sönglög í útsetningu Atla Heimis Sveinssonar tónskálds ásamt lögum eftir Vivaldi og Mozart. Tónlist 3.1.2007 16:15
Snow Patrol söluhæst Hljómsveitin Snow Patrol átti mest seldu plötu síðasta árs í Bretlandi. Platan, sem nefnist Eyes Open og er fjórða plata sveitarinnar, seldist í 1,2 milljónum eintaka. Tónlist 3.1.2007 15:15
Gavin Portland heldur útgáfutónleika Á morgun, fimmtudaginn 4. janúar, heldur rokksveitin Gavin Portland útgáfutónleika sína á Grand Rokk. Tónleikarnir hefjast klukkan 22:00. Tónlist 3.1.2007 14:46
Queen besta breska hljómsveitin Ofurhljómsveitin Queen er besta breska hljómsveitin að mati hlustenda BBC Radio 2. Alls bárust tuttugu þúsund atkvæði og skutu Freddie Mercury og félagar hljómsveitum á borð við Rolling Stones, Bítlana, Take That og Oasis ref fyrir rass. Hlustendur voru beðnir um að gefa hljómsveitum einkunn fyrir mikilvæga þætti og nægir þar að nefna texta- og lagasmíðar, framkomu á tónleikum og útgeislun. Tónlist 3.1.2007 13:30
Kylie ákaft fagnað Hin smávaxna ástralska söngkona Kylie Minogue gat ekki hafið söng fyrir fagnaðarlátum áhorfenda sem ætlaði aldrei að linna þegar hún söng nýja árið í garð á Wembley Arena. Alls mættu tólf þúsund aðdáendur söngkonunnar og stóð Kylie klökk á sviðinu þegar þeir tóku á móti henni með þessum hætti. Tónlist 3.1.2007 11:45
Fólk syngur með í hjartanu Frumraun Þóru Einarsdóttur sópransöngkonu með Sinfóníuhljómsveit Íslands var á Vínartónleikum þeirra fyrir tólf árum. Hún endurtekur nú leikinn og stígur á svið á fernum tónleikum því ekki má minna vera - svo vinsæll er þessi menningarviðburður. Tónlist 3.1.2007 09:30
Óljós framtíð System of a Down Það hefur lítið heyrst frá bandarísku rokksveitinni System of a Down síðustu mánuði. Sveitin sendi frá sér tvær vinsælar plötur árið 2005 en frá því um mitt síðasta ár hefur bandið verið í pásu. Liðsmenn sveitarinnar segjast ekki hafa tekið ákvörðun um að hætta, en tónlistarleg framtíð þeirra sé óljós. Tónlist 2.1.2007 13:00