Menning

Trúin á spurningarmerkið

Ljóðið skín í skammdeginu á Fróni og nú sendir Einar Már frá sér bók sem gefur fyrri bókum hans ekkert eftir, ljóðum jafnt sem prósa. Fantagóð semsé. Djarfur, hvass, fyndinn og ögrandi - jafnt í orði sem erindi. Síbryðjandi vísdómsjaxl með djúpa rót í kvikunni.

Menning

Günter Grass rétt sáttarhönd

Rithöfundurinn og Nóbelsverðlaunahafinn Günter Grass opnaði nýverið myndlistarsýningu í Slésíska safninu (Schlesisches Museum) í Görlitz í Þýskalandi.

Menning

Rithöfundar með jólahroll

Það verður jólahrollur í Þjóðmenningarhúsinu fram að jólum en þar verður boðið upp á samnefnda upplestrardagskrá. Tólf rithöfundar eða staðgenglar þeirra munu kveðja sér hljóðs þar líkt og jólasveinarnir sem tínast nú til byggða einn af öðrum, og lesa úr nýjum spennusögum.

Menning

Þýðingarnar reifaðar

Stofnun Vigdísar Finnbogadóttir gengst fyrir stuttri fyrirlestraröð um þýðingar nú fyrir jólin. Í dag halda þýðendurnir Guðni Kolbeinsson og Guðlaugur Bergmundsson erindi í Lögbergi, stofu 101.

Menning

Upplestur í boði Bjarts

Klukkan tvö á sunnudaginn 10. desember, verður lesið upp úr nýjum Bjartsbókum í bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18.

Menning

Kristjáns Eldjárns minnst

Í dag eru 90 ár liðin frá fæðingu dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrverandi þjóðminjavarðar og forseta Íslands. Í tilefni af því er efnt til hátíðadagskrár í Þjóðminjasafni Íslands sem hefst á hádegi í fyrirlestrarsal safnsins.

Menning

Illa flensaður reyfari

Einkaspæjarinn hefur verið að gera það gott í glæpasögum í svona um það bil 165 ár eða frá því að Edgar Allan Poe kynnti Auguste Dupin til sögunnar í Morðunum í Líkhússgötu.

Menning

Á annað þúsund eintök seld

„Þetta er aldeilis búið að vinda upp á sig, mest allur minn frítími fer í að brjóta saman blöð og líma á þau strikamerki," segir Óttar Martin Norðfjörð, höfundur ævisöguhöfundur Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar prófessors.

Menning

Upplestur á Gljúfrasteini

Hefð hefur skapast fyrir því að höfundar lesi úr nýjum bókum í húsi skáldsins Halldórs Laxness á Gljúfrasteini í desember. Þessar samkomur hafa ætíð verið vel sóttar enda myndast oft skemmtileg stemmning í stofunni þegar höfundar lesa við þessar heimilislegu aðstæður.

Menning

Skopteiknari býður fórnarlömbum til veislu

“Við erum búnir að grafa upp heilmörg netföng og reynum að koma boði til sem flestra,” segir skopmyndateiknarinn Halldór Baldursson sem stefnir að því að bjóða öllum sem koma við sögu í skopmyndabókinni 2006 í grófum dráttum í útgáfuteiti í vikunni.

Menning

Picasso sleginn

Já, það er frábært úrval núna," segir Tryggvi Páll í Gallerí Fold sem mun stjórna glæsilegu listmunauppboði í kvöld í Súlnasalnum.

Menning

Málverkið uppgert

Yfirlitssýningunni Málverkið eftir 1980 lýkur í Listasafni Íslands í dag. Dr. Halldór Björn Runólfsson, listfræðingur og aðstoðarsýningarstjóri sýningarinnar, verður með leiðsögn um sýninguna kl. 14 og mun hann fjalla um þróunina í myndlist tímabilsins út frá verkum listamannanna sem eiga þar verk.

Menning

Laugardagur til lukku

Laugardagur Ian McEwan jók enn hróður þessa breska sagnaskáld þegar skáldsagan kom út í fyrra. Ástæðan var einföld, ekki aðeins var Ian fullsamdur að listilega spunnu plotti í söguna sem hvílir öll í kringum einn ás, dag í lífi miðaldra heilaskurðlæknis í London skömmu fyrir innrásina í Írak, heldur var sagan fantalega vel skrifuð og hugsuð í hugarþeli læknisins.

Menning

Svasíland með augum Sigur Rósar

Ljósmyndasýningin Yfirgefna kynslóðin var opnuð í húsnæði verslunarinnar Liborius á Mýrargötu 3 í vikunni. Sýningin en haldin til styrktar UNICEF-samtökunum og eru ljósmyndirnar á uppboði meðan á sýningunni stendur.

Menning

Síðasta sýning

Lokasýning á óperunni Skuggaleikir verður í Íslensku óperunni í Ingólfsstræti í kvöld. Óperan er byggð á sögunni Skugganum eftir H.C Andersen og í verkinu takast á öfl hins góða og illa en höfundar hennar eru Karólína Eiríksdóttir og skáldið Sjón.

Menning

Ljóðabókin uppseld!

Ljóðabókin Guðlausir menn, hugleiðingar um jökulvatn og ást eftir Ingunni Snædal er uppseld hjá forlaginu. Það er ekki á hverjum degi sem ljóðabækur seljast upp enda kom það víst fáum eins mikið á óvart og skáldinu: „Ég bara alveg rosalega glöð.

Menning

Fagurfræðin rædd

Þverfaglegt málþing um fagurfræði verður haldið við Háskóla Íslands milli kl. 13-16.30 í dag. Fyrirlesarar úr ýmsum áttum nálgast viðfangsefnið sem tekur til skynjunar okkar á umheiminum.

Menning

Rúna sýnir í Hafnarborg

Í dag kl. 17 opnar Sigrún Guðjónsdóttir, sem kunn er af listamannsnafni sínu, Rúna, sýningu í Sverrissal og Apóteki í Hafnarborg. Á sýningunni verða steinleirsmyndir og verk unnin á pappír með akrýl, olíukrít, pastel og bleki.

Menning

Leyndinni aflétt

Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur er höfundur bókarinnar Óvinir ríksins – ógnir og innra öryggi í kalda stríðinu á Íslandi sem kemur út hjá Máli og menningu.

Menning

Ný jólakort frá Fuglavernd

Fuglaverndarfélag Íslands hefur gefið út tvö ný jóla- og tækifæriskort með ljósmyndum eftir þá Daníel Bergmann og Jóhann Óla Hilmarsson. Þeir félagar eru báðir landskunnir fuglaljósmyndarar og félagar í Fuglavernd.

Menning

Stella Blómkvist í sjónvarp

Tilkynnt var í gær, miðvikudag, að samningar hafi tekist milli Réttindastofu Eddu útgáfu hf. og UFA Fernsehproduktion GmbH í Berlín um sölu á réttinum til gerðar sjónvarpsmyndar og sjónvarpsþátta byggðra á sögunni Morðið í hæstarétti eftir Stellu Blómkvist.

Menning

Loksins komin nútímaleg ensk-íslensk orðabók

Hér er komin verulega aukin og endurbætt útgáfa Ensk-íslenskrar skólaorðabókar sem kom fyrst út árið 1986. Við endurskoðunina var sérstök áhersla lögð á orðaforða á þeim sviðum þar sem mestar breytingar hafa orðið, svo sem í upplýsingatækni og viðskiptum, auk þess sem reynt var að gera daglegu máli sem best skil.

Menning

Óvinir ríkisins - Ógnir og innra öryggi í kalda stríðinu á Íslandi

Hjá Máli og menningu er komin út bókin Óvinir ríkisins - Ógnir og innra öryggi í kalda stríðinu á Íslandi eftir Guðna Th. Jóhannesson. Til skamms tíma var talið að leynilegt eftirlit hins opinbera með þegnum landsins væri harla lítið hér á landi. Með árunum hefur þó fjölmargt komið fram sem bendir til hins gagnstæða og eftir því sem leynd hefur verið aflétt af ýmsum skjalasöfnum hér heima og erlendis hefur myndin skýrst smám saman.

Menning

Lestin brunar

Á þessum árstíma er til siðs að rithöfundar kveðji sér hljóðs á ýmsum vettvangi og kynni verk sín enda er nú árleg vertíð hjá bókafólki. Vitað er af höfundum sem þeysast nú um fjallvegi landsins með skottin stútfull af jólabókum og bíða lesendur á landsbyggðinni án efa spenntir eftir nýjungunum. Nýlega fréttist af líflegum upplestri í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þar sem úrval höfunda messaði bókmenntaboðskapnum yfir Vestfirðinga sem gerðu að honum góðan róm.

Menning