Menning

Dýrasta bókin

Ritverk sem kallað hefur verið dýrasta bók í heimi er nú til sýnis í Þýskalandi. Vefritið Deutsche Welle greinir frá því að bók þessi sé svo viðkvæm að almenningi gefst aðeins kostur á að sjá hana í sex vikur á ári.

Menning

Listahátíðin í Björgvin

Það verða eitt hundrað og sextíu dagskráratriði í boði á Listahátíðinni í Bergen í vor, en þar er dagskráin kynnt. Listahátíðin í Reykjavík kynnir sína dagskrá á föstudag.

Menning

Rafræn útgáfa

Félag íslenskra bókaútgefenda býður til morgunverðarfundar á föstudaginn þar sem litið verður yfir stöðu rafrænnar bókaútgáfu á Íslandi og rædd helstu úrlausnarefni og tækifæri á þeim vettvangi.

Menning

Maður sem giftist konu með skegg

Það er frumsýning í Óperunni á föstudagskvöldið og leikstjórinn og hans lið eru að komast á lygnan sjó: tæknin er að komast í lag og söngvararnir teknir að setjast í hlutverkin sín.

Menning

Endurskapa sögulegt vistkerfi

Velgengni samvinnuverkefnisins Wikipedia hefur alið af sér annað netfyrirbrigði sem kennt er við Wiki-skáldskap. Forlagið Penguin hefur í samvinnu við De Montfort-háskólann í Leicester stofnað til verkefnis sem þau kenna við „Milljón mörgæsir“ og er einhvers konar opin ritæfing fyrir áhugasama netverja sem vilja taka þátt í því að skrifa skáldsögu.

Menning

Miðvikudagserindi Orkugarðs

Stefanía G. Halldórsdóttir, sérfræðingur á Vatnamælingum Orkustofnunar, mun flytja miðvikudagserindi Orkustofnunar næstkomandi miðvikudag. Ber erindi hennar heitið Vatnafarsleg flokkum vatnssvæða á Íslandi - Hvernig bragðast landsvæði við úrkomu og miðla henni? Verður fræðsluerindið haldið í Víðigemli, sal Orkugarðs að Grensásvegi 9 í Reykjavík, á milli klukkan 13:00 og 14:00 miðvikudaginn 7. febrúar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomir.

Menning

Mínus hitar upp fyrir Incubus

Hljómsveitin Mínus mun hita upp fyrir tónleika Incubus í Laugardalshöll sem fram fara þann 3. mars. Hljómsveitin mun flytja efni af nýrri breiðskífu. Þetta eru fyrstu tónleikar Mínus hér á landi síðan á Iceland Airwaves-hátíðinni í fyrra. Væntanleg breiðskífa var tekin upp í Los Angeles. Incubus þykri með betri tónleikasveitum Bandaríkjanna og nýjasta plata sveitarinnar, Light Granades fór beint í fyrsta sæti Billboard listans þegar hún kom út.

Menning

Heimspekifyrirlestur

Félag áhugamanna um heimspeki verður með fyrirlestur á morgun, laugardagin 3. febrúar kl: 15:00. Fyrirlesturinn ber heitið ,,Smalakrókar - Paul Ricoeur um sjálfsvitund og samsemd”.

Menning

Leiðsla – Ný sýning í Listasafni ASÍ

Á morgun, laugardaginn 3. febrúar klukkan 15:00, opnar sýning Eyglóar Harðardóttur í Ásmundarsal og Gryfjunni í Listasfani ASÍ. Ber sýningin heitið Leiðsla. Á sýningunni má sjá skjáverk, málverk á pappír, teikningar og þrívíð verk sem öll eru unnin með Ásmundarsal og Gryfjuna í huga.

Menning

Útgáfu- og upplestrarkvöld Nykurs

Út eru komnar þrjár ljóðabækur hjá útgáfu- og skáldafélaginu Nykri, og Því efnir Nykurinn til upplestrarkvölds á veitingastaðnum Litli ljóti Andarunginn við Lækjargötu n.k föstudagskvöld, 2. feb, kl. 21:00

Menning

Fjölbreytt sóknarfæri

Dr. Halldór Björn Runólfsson var nýlega skipaður í embætti forstöðumanns Listasafns Íslands af Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra. Halldór Björn lauk doktorsprófi frá sjónlista- og fagurfræðideild við Sorbonne-háskóla í París á síðasta ári og starfar sem lektor og yfirmaður listfræða við Listaháskóla Íslands. Hann mun taka við starfinu, sem veitt er til fimm ára, þann 1. mars næstkomandi.

Menning

Ingibjörg Sólrún til sölu fyrir rétt verð

„Ingibjörg er verðugt viðfangsefni fyrir málara,“ segir Björn T. Hauksson, ljósmyndari og málari, en hann hefur stillt olíumálverki sem hann málaði af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni Samfylkingarinnar, upp í glugga á ljósmyndastofu sinni á Óðinsgötu.

Menning

Þrælar þorrans

Skáldafélagsskapurinn Nýhil stendur fyrir upplestrarkvöldi í Stúdentakjallaranum við Hringbraut í kvöld.

Menning

Boðið í vettlinga Bjarts í Sumarhúsum

„Þetta er auðvitað tilbúningur og í gamni gert en það hafa margir tekið þessu alvarlega og boðið í vettlingana,“ segir Bragi Kristjónsson fornbókasali. Glöggir vegfarendur hafa rekið augun í forláta ullarvettlinga í glugga Bókarinnar, fornbókaverslun Braga við Klapparstíg, sem merktir eru sjálfum Bjarti úr Sumarhúsi, úr Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness. Tekið er skýrt fram að vettlingarnir séu ekki falir.

Menning

Faust í þýðingu Coleridge?

Stefnt er að því að þýðing enska skáldsins Samuel Taylor Coleridge á Faust, höfuðverki þýska starfsbróður hans Goethes, komi út hjá Oxford University Press í september. Þýðing þessi ku hafa legið í gleymsku í næstum tvær aldir en rómantíkerinn er talinn hafa tekið að sér að þýða verkið í kringum árið 1814. Vefmiðill breska dagblaðsins Independent greindi frá þessu nýlega.

Menning

Grasrótarstarf í galleriBOXi

GalleriBOX er gamall kontór í mjólkurvinnslu norður á Akureyri. Listalífið iðar í Gilinu en fjórar metnaðarfullar konur fara með lyklavöldin í Boxinu, sem hýsir fjölmargar sýningar á hverju ári.

Menning

Strætóbílstjóri opnar myndlistarsýningu

Strætóbílstjórinn Þórhallur Sigurðsson opnaði sína fyrstu opinberu málverkasýningu á sextíu ára afmælisdegi alnafna síns Ladda síðastliðinn laugardag. „Ég hef málað síðustu fjögur árin en ekki nógu mikið samt. Núna er ég að gefa þessu sjéns almennilega en ég hef alltaf hugsað mér að leggja myndlistina fyrir mig,“ segir Þórhallur, sem hefur starfað sem strætóbílstjóri í fjögur ár.

Menning

Nýsmíðar í Listasafni Íslands

Tónlistarhópurinn Aton heldur tónleika í Listasafni Íslands kl. 20 í kvöld – á fjórða degi Myrkra músíkdaga. Aton-hópurinn er skipaður ungu tónlistarfólki sem sérhæfir sig í nýrri íslenskri tónlist og hefur leikið á hátíðinni undanfarin ár.

Menning

Hið þekkta og óþekkta

Myndlistarmennirnir Hlaðgerður Íris Björnsdóttir og Aron Reyr Sverrisson opna sýninu á verkum sínum í Listasafni Reykjanesbæjar á morgun kl. 14. Sýningin ber yfirskriftina "Tvísýna“ og er haldin í Duushúsum.

Menning

Áttleysur og útþráin

Í hinu snyrtilega húsnæði gallerís i8 á Klapparstíg stendur frakkaklæddur gestur og heldur myndlistarmanni á snakki. Myndlistarmaðurinn er búinn að koma fyrir tveimur stórum stálplötulaga verkum á gólfinu en umhverfis eru 32 ferhyrnd en aflöng verk í römmum: öll sýna það sama - fleyg úr áttunum 32 á áttavitanum.

Menning

Hvað leynist í skúffunum?

Verðlaunasjóður íslenskra barnabóka efnir árlega til verðlaunasamkeppni og auglýsir eftir handritum að skáldsögum fyrir börn og unglinga. Sagan skal vera að lágmarki fimmtíu blaðsíður að lengd eða um tuttugu þúsund orð. Ekki er gert ráð fyrir því að verðlaunasagan verði myndskreytt.

Menning

Öðruvísi saga - Fjórar stjörnur

Bókin hentar vel ungum lesendum og er ég viss um að fólk á þeim aldri hefur oft leitt hugann að svipuðum aðstæðum og Kæja hugsar um. Hugleiðingar hennar gætu þannig vakið fleiri spurningar og veitt kjörið tækifæri fyrir hina eldri að ræða við hina yngri um stríðsátök, söguna og ástandið í dag.

Menning

Unnið með almenna ógæfu

Myndlistarmaðurinn Kolbeinn Hugi Höskuldsson heldur óvenjulega sýningu í Nýlistasafninu um þessar mundir. Yfirskrift hennar er „Still drinking about you“ en þar veitir hann gestum sínum „einstakt tækifæri til að skyggnast inn í íveru listamannsins jafnframt því að fjalla á fordómalausan hátt um sjúkan hugarheim fíkilsins“.

Menning

Afmælisrit um Melaskóla

Út er komin hjá Skruddu glæsilegt afmælisrit um Melaskólann sem varð 60 ára í október síðastliðinn. Þar eru birtar skrár um alla nemendur sem þaðan luku barnaskólaprófi frá upphafi til þessa dags ásamt bekkjarmyndum.

Menning

Mannamyndir á söfnum

Þrjár stórsýningar hafa verið uppi í London á þessu hausti: Mannamyndasýningu Þjóðverjans Hans Holbein (1497/98-1543) lauk í Tate-safninu síðasta sunnudag.

Menning

Bók um Mikines hrósað

Nesútgáfunnar um færeyska málarann Samal Joensen-Mikines sem Aðalsteinn Ingólfsson er aðalhöfundurinn að fær framúrskarandi umsögn hjá Peter Michael Hornung í Politiken um helgina. Ein glæsilegasta útgáfa ársins segir gagnrýnandinn og hrósar aðstandendum útgáfunnar fyrir metnað í öllum frágangi verksins.

Menning

Bláminn indigo

Þjóð sem klæðir sig árið um kring í bláar gallabuxur ætti ekki að kippa sér upp við að myndlistarmenn setji saman sýningu með yfirskriftinni Indigo. Á hverju ári er baðmullin í gallabuxunum lituð blá með tilbúnum indigo-lit sem hefur um langt árabil tekið við af hinum forna dimmbláa lit.

Menning

Steinunn í Florida

Steinunn Þórarinsdóttir á verk á listaverkamessunni í Palm Beach 3 Contemporary Art Fair í Flórida.Það eru um níutíu gallerí sem þar sýna og er Samuel Osborne galleríið í Mayfair sem höndalr alla jafna með verk Steinunnar sem sýnir þar syðra.

Menning

Byggingalist í ráðhúsinu

Það er ekki á hverjum degi sem almenningi gefst kostur á að sjá sæmilegt yfirlit um íslenska byggingarlist en nú gefst slíkt tækifæri: Sýning um byggingarlist á Íslandi á síðustu árum verður uppi í Tjarnarsal, Ráðhússins í Reykjavík frá föstudeginum 12. til 28. janúar.

Menning