Erlent
37 38 39 40 41 42 43 44 45 … 334 ›
Minnst 120 létust í aurskriðum á Indlandi Aurskriður sem féllu í Kerala-fylki í Suðurhluta Indlands í morgun urðu minnst 123 að bana. Hundrað til viðbótar er enn saknað og óttast er að tala látinna hækki enn fremur. Erlent 30.7.2024 23:38
Óeirðir í Southport eftir mannskæðu árásina Hópur öfgahægrimanna safnaðist saman fyrir utan mosku í bænum Southport í Norður-Englandi í kvöld, þar sem þrjár stúlkur voru stungnar til bana á dansnámskeiði í gær. Mótmælendur köstuðu flöskum og grjóti í lögreglumenn og kveiktu í lögreglubíl. Erlent 30.7.2024 21:30
Ísraelar í hefndaraðgerðum gegn Hezbollah í Líbanon Ísraelar gerðu loftárásir á úthverfi Beirút, höfuðborgar Líbanons, þar sem ísraelski herinn telur háttsetta meðlimi Hezbollah halda til. Loftárásirnar eru hefndaraðgerðir fyrir árásir Hezbollah á byggð Ísraela á Golan-hæðum þar sem 12 börn létu lífið. Erlent 30.7.2024 19:14
Nokkur dauðsföll eftir að þyrla brotlenti á svínabúi Þyrla brotlenti á húsi nálægt írska bænum Killucan síðdegis í dag með þeim afleiðingum að nokkrir létu lífið. Þetta staðfesta írskir viðbragðsaðilar án þess að gefa upp nánari upplýsingar um fjölda látinna. Erlent 30.7.2024 17:38
Skammast sín vegna skotárásarinnar Ronald Rowe, settur forstjóri bandarísku öryggisþjónustunnar Secret service, segist skammast sín vegna skotárasar sem beindist að Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og forsetaframbjóðanda. Erlent 30.7.2024 16:49
Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Stelpurnar þrjár sem létust í hnífaárás í Southport á Englandi í gær hétu Bebe King, Elsie Dot Stancombe og Alice Dasilva Aguiar. Þær voru sex, sjö og níu ára gamlar. Erlent 30.7.2024 15:52
Ber ekki vitni í spillingarrannsókn á eiginkonu sinni Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, baðst undan að bera vitni í réttarrannsókn á meintri spillingu eiginkonu hans í dag. Hann sakar dómarann sem rannsakar málið um embættisafglöp. Erlent 30.7.2024 14:53
Hermenn sakaðir um að misþyrma palestínskum fanga kynferðislega Til uppþota kom á herstöð þar sem Ísraelsher heldur palestínskum föngum eftir að níu ísraelskir hermenn voru handteknir og sakaðir um að misþyrma föngum kynferðislega. Stuðningsmenn þeirra brutust inn í herstöðina og kröfðust þess að þeim yrði sleppt. Erlent 30.7.2024 13:47
Þriðja stelpan látin í Southport Þrjár stelpur á aldrinum sex til níu ára eru látnar og fimm börn til viðbótar eru þungt haldin eftir hnífaárás á dansnámskeiði í Southport í Englandi í gær. Erlent 30.7.2024 12:15
Fjöldamorðingi í My Lai látinn Bandarískur liðsforingi úr Víetnamstríðinu sem var sá eini sem var látinn sæta ábyrgð á fjöldamorðinu alræmda í þorpinu My Lai er látinn, áttræður að aldri. Bandarískir hermenn drápu hundruð óbreyttra borgara í My Lai, þar á meðal konur og börn. Erlent 30.7.2024 11:48
Grunar vinstriöfgamenn um græsku Innanríkisráðherra Frakklands segir að grunur beinist að herskáum hópum vinstriöfgamanna vegna skemmdarverka sem voru unnin á hraðlestakerfi fyrir opnunarhátíð Ólympíuleikanna í París. Frekari skemmdarverk voru unnin í gær. Erlent 30.7.2024 10:16
Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Aksel V. Johannesen lögmaður Færeyja flutti ávarp sitt við þingsetningu á Ólafsvöku í Þórshöfn í gær og ítrekaði að Færeyjar ættu að fá fulla aðild að Norðurlandaráði. Erlent 30.7.2024 08:37
Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Um þúsund bréfberar á Bretlandseyjum hafa misst fingur eða framan af fingri á síðustu fimm árum eftir að hafa verið bitnir af hundi þegar þeir voru að setja bréf inn um póstlúgu. Erlent 30.7.2024 08:33
Átta enn í lífshættu eftir árásina mannskæðu í Southport Sex börn og tveir fullorðnir liggja enn þungt haldnir á sjúkrahúsi eftir að sautján ára gamall piltur gekk berserksgang með hníf á dansskemmtun fyrir börn í bænum Southport á Englandi í gær. Enn liggur ekki fyrir hvert tilefni árásarinnar var en tvö börn eru þegar látin. Erlent 30.7.2024 08:00
Einn látinn í mótmælunum Mótmælaalda geisar enn í Venesúela eftir að endurkjör Nicolasar Maduro forseta var staðfest á sunnudag. Einn hefur látið lífið í mótmælunum. Erlent 30.7.2024 07:42
Reyna að fá Ísrael til að ráðast ekki á Beirút Stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi hafa gefið út ferðaviðvörun til ríkisborgara sinna og hvatt þá til að ferðast ekki til Líbanon og íhuga að yfirgefa landið ef þeir eru þar. Erlent 30.7.2024 07:16
Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Úkraínumenn segjast hafa átt þátt að málum þegar aðskilnaðarsinnar og jíhadistar í Malí sátu fyrir og drápu fjölda málaliða Wagner. Fram kom á Telegram rás tengdri forystu Wagner í gær að fjöldi liðsmanna hópsins hefði verið drepinn í síðustu viku. Erlent 30.7.2024 06:55
Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Efnt hefur verið til mótmæla víða í Venesúela vegna endurkjörs Nicolás Maduro í embætti forseta. Maduro hlaut 51 prósent atkvæða, þvert á það sem útgönguspár gerðu ráð fyrir og hefur stjórnarandstaðan þar í landi sagt kosningarnar meingallaðar. Erlent 29.7.2024 21:42
Tvö börn stungin til bana í Southport Tvö börn létu lífið í fólskulegri stunguárás í bænum Southport í Norður-Englandi í dag. Níu börn til viðbótar særðust í árásinni, þar af sex alvarlega. Erlent 29.7.2024 18:38
Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Maður sem er grunaður um stunguárás í bænum Southport á Norðvestur-Englandi í dag er sautján ára gamall karlmaður. Hann er sagður vera íbúi þorpsins Banks, sem er skammt frá Southport. Hann var handtekinn skömmu eftir árásina Erlent 29.7.2024 16:46
Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja Réttarhöldum í máli Daníels Gunnarssonar hefur verið frestað um nokkra daga vegna þess dómsátt milli hans og ákæruvaldsins er í undirbúningi. Á síðasta ári var hann dæmdur fyrir morð og limlestingu á líki, en málið sem nú er fyrir dómstólum varðar brot gegn barni. Erlent 29.7.2024 15:00
Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Að minnsta kosti átta manns voru stungnir þegar karlmaður gekk berserksgang í bænum Southport á Norðvestur-Englandi í dag. Fórnarlömbin eru sögð börn en árásarmaðurinn er í haldi lögreglu sem lagði einnig hald á hníf. Erlent 29.7.2024 13:45
Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Æviskipanir hæstaréttardómara heyra sögunni til og dómarar þurfa að starfa eftir siðareglum nái tillögur Joe Biden Bandaríkjaforseta fram að ganga. Fráfarandi forsetinn vill einnig breyta stjórnarskrá til þess að bregðast við nýlegum dómi um friðhelgi forseta. Erlent 29.7.2024 10:52
Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Karlmaður sem er sagður af íslenskum uppruna var handtekinn í borginni Mazatlán í Mexíkó fyrir helgi, en hann er grunaður um valda skemmdarverkum. Erlent 29.7.2024 10:34
Á fjórða þúsund manna glímir við mikla elda í Kaliforníu Miklir gróðureldar geisa í norðurhluta Kaliforníu í Bandaríkjunum og ná þeir nú yfir tuttugu ferkílómetra svæði. Á fjórða þúsund viðbragðsaðila glímir við eldana en upptök þeirra eru rakin til brennandi bíls sem var velt út í gil í síðustu viku. Erlent 29.7.2024 08:20
Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Nicolás Maduro hefur verið lýstur sigurvegari forsetakosninganna í Venesúela en stjórnarandstaðan segir þær hafa verið meingallaðar og boðað hefur verið til mótmæla. Erlent 29.7.2024 07:45
Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Sinéad O'Connor lést af völdum langvinnrar lungnateppu og astma að því er segir á dánarvottorði tónlistarkonunnar, sem lést í fyrra. Erlent 29.7.2024 07:13
Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Miklar áhyggjur eru uppi af því að stjórnvöld í Ísrael ákveði að ráðast í umfangsmiklar hefndaraðgerðir gegn skotmörkum í Líbanon, sem gæti leitt til allsherjar stríðs á svæðinu. Erlent 29.7.2024 06:56
Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Forsetakosningar fóru fram í Venesúela í dag. Kjörstöðum átti að loka klukkan tíu í kvöld að íslenskum tíma en standa víða enn opnir vegna þess að enn stendur fólk í röð og bíður eftir að fá að kjósa. Erlent 28.7.2024 23:04
Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Ísraelski flugherinn segist hafa hæft skotmörk tengd Hezbollah-samtökunum í Líbanon eftir að tólf börn og ungmenni létust í eldflaugaárás á hernumdu svæði Ísraels í Gólanhæðum. Erlent 28.7.2024 10:35