Fastir pennar
140 141 142 143 144 145 146 147 148 … 245 ›
Hófleg bjartsýni Óli kristján Ármannsson skrifar Rétt er að halda til haga inntaki erindis Dr. Pedro Videla, prófessors í hagfræði-við IESE viðskiptaháskólann í Barcelona, á árlegu Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs, undir lok síðustu viku. Fastir pennar 18.3.2009 05:00
Brotinn er baugur Guðmundur Andri Thorsson skrifar Baugur þýðir hringur. Þetta er hátíðlegt orð, hefur á sér fornan blæ, næstum skáldlegan, enda höfðu skáld til forna ást á fyrirbærinu sem þau fengu iðulega að kvæðalaunum hjá konungum. Baugurinn er djásn karlmannsins og getur táknað dyggðir sem karlmenn sjá stundum í eigin fari: algjöra hollustu, einbeitni, styrk. Orðið vekur hugrenningatengsl um góðmálm sem höfðingjum hæfir: baugur var eftirlætisdjásn hinna glysgjörnu víkinga. Fastir pennar 16.3.2009 12:21
Kosningasvik Forseti Alþýðusambandsins lýsti á dögunum vonbrigðum með viðtal við fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Í því hafði komið fram að óskýrar áætlanir eru um hvernig koma má landinu úr fjötrum gjaldeyrishafta. Þetta var réttmæt athugasemd í því ljósi að nú skiptir tvennt mestu máli: Að varða þær leiðir sem fylgja á til að endurreisa peningakerfið og ná jöfnuði í ríkisfjármálum. Fastir pennar 14.3.2009 07:15
Mat sem ætti að vera í sívinnslu Fyrsta opinbera skýrslan sem ríkisstjórn Íslands hefur látið vinna um áhættumat fyrir landið var kynnt í utanríkisráðuneytinu á miðvikudag. Hana vann sérskipaður starfshópur sem Valur Ingimundarson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, fór fyrir. Fastir pennar 13.3.2009 06:00
Úrelt prentlög Jón Kaldal skrifar Stjórn Blaðamannafélags Íslands sendi í gær frá sér yfirlýsingu sem afhjúpar fádæma þekkingarleysi á starfsumhverfi meðlima félagsins. Tilefni yfirlýsingarinnar er nýfallinn dómur í Hæstarétti, þar sem blaðamaður Vikunnar var dæmdur fyrir ærumeiðandi ummæli um Ásgeir Davíðsson, eiganda Goldfingers. Ummælin voru höfð eftir nafngreindum viðmælanda, en niðurstaða Hæstaréttar er að samkvæmt prentlögum teljist blaðamaðurinn, sem var skrifaður fyrir greininni, bera ábyrgð á þeim sem höfundur greinarinnar. Fastir pennar 12.3.2009 06:00
Vanskil og virðing Þorvaldur Gylfason skrifar Þjóðir geta aldrei orðið gjaldþrota í venjulegum skilningi þess orðs. Allt tal um „þjóðargjaldþrot" á Íslandi eða annars staðar er út í bláinn. Þjóðríki geta að vísu ákveðið að standa ekki skil á skuldum sínum við önnur ríki, en það eru vanskil, ekki gjaldþrot. Þess eru dæmi frá nýliðinni tíð, að þjóðríki kjósi að vanefna skuldbindingar sínar. Skoðum fyrst gjaldþrot, síðan vanskil. Fastir pennar 12.3.2009 06:00
Má fara aðra leið? Þorsteinn Pálsson skrifar Tvö framboð hafa sprottið úr grasrótinni. Úr röðum beggja hefur komið fram snörp gagnrýni á frumvörp til breytinga á kosningalögum og stjórnarskrá. Hún vekur aftur spurningu um jarðsamband forystu ríkisstjórnarinnar. Fastir pennar 10.3.2009 06:30
Ákvarðana er enn beðið Óli Kristján Ármannsson skrifar Fyrir helgi fjölluðu Samtök iðnaðarins um þá stöðu sem hér er kominn upp í hagkerfinu og leiðir til úrlausnar á árvissu Iðnþingi sínu. Þar kom meðal annars fram í máli manna að Evrópusambandið væri ekki valkostur, heldur nauðsyn. Undir lok þessarar viku er önnur árviss samkoma af svipuðum meiði, en þá blæs Viðskiptaráð Íslands til Viðskiptaþings 2009. Fastir pennar 9.3.2009 06:00
Að kjósa hrunið Guðmundur Andri Thorsson skrifar Kannanir segja okkur að Sjálfstæðisflokkurinn hafi nú um það bil 30% fylgi landsmanna, og virðist ýmist stærsti flokkurinn eða sá næst stærsti. Þetta er vissulega við neðri mörk fylgis þessa flokks sem yfirleitt hefur verið nær fjörutíu prósentunum, en eins og háttar er maður samt hálf hvumsa yfir öllu þessu fylgi. Fastir pennar 9.3.2009 06:00
Góðverkin tala Steinunn Stefánsdóttir skrifar Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins vöktu strax athygli þegar þau voru veitt í fyrsta sinn árið 2006. Með árunum hafa þau náð að festa sig æ betur í sessi. Fastir pennar 6.3.2009 10:22
Pólitískur og ólöglegur Fyrir skömmu var Jóhanna Sigurðardóttir dæmd fyrir valdníðslu í félagsmálaráðherratíð sinni. Hún hafði rekið mann ólöglega úr trúnaðarstöðu vegna stjórnmálaskoðana hans. Þessi frétt vakti furðulitla athygli í fjölmiðlum, sem höfðu þó jafnan sýnt gagnrýni á aðra ráðherra áhuga. Jóhanna notaði síðan fyrstu dagana í minnihlutastjórn, sem var mynduð í því skyni einu að sjá um kosningar, til að reka Davíð Oddsson seðlabankastjóra. Með því braut hún þá reglu, sem hún hafði sjálf mælt með áður, að Seðlabankinn skyldi vera sjálfstæður. Flausturslegt og vanhugsað seðlabankafrumvarp var keyrt í gegnum þingið. Fastir pennar 6.3.2009 06:00
Munu ekki hafa raunveruleg áhrif Svanborg Sigmarsdóttir skrifar Stuttu fyrir kosningar þarf að fara varlega í að breyta kosningalögum. Sérstaklega þegar kosningaundirbúningur er í raun hafinn. Mun eðlilegra og lýðræðislegra væri að slíkum lögum væri breytt, að undangenginni mikilli undirbúningsvinnu, í upphafi kjörtímabils, áður en þeir sem sitja á þingi og bera fram lagafrumvarpið verða helsjúkir af kosningaskjálfta. Fastir pennar 5.3.2009 06:00
Tíu lærdómar Þorvaldur Gylfason skrifar Fjármálakreppan úti í heimi heldur áfram að dýpka og ógnar framleiðslu og atvinnu mikils fjölda fólks. Þetta átti ekki og á ekki að geta gerzt, því að ríkisvaldið býr yfir stjórntækjum, sem eiga að duga til að vinna bug á djúpri kreppu eða kæfa hana í fæðingu. Ósætti í röðum stjórnmálamanna í Bandaríkjunum og Evrópu hefur tafið og truflað mótvægisaðgerðir, en Bandaríkjastjórn hefur nú ráðizt gegn kreppunni með róttækum inngripum af hálfu ríkisins, úr því að einkageirinn liggur sem magnvana af völdum kreppunnar. Evrópa, Japan og Kína hljóta að grípa til svipaðra ráðstafana. Þetta er enginn áfellisdómur yfir blönduðum markaðsbúskap. Almannavaldið þarf stundum að hlaupa í skarðið fyrir einkaframtakið og öfugt. Fastir pennar 5.3.2009 06:00
Er hægt að læra af mistökum annarra? Óli Kristján Ármannsson skrifar Finnar gengu í gegn um djúpa efnahagskreppu í byrjun tíunda áratugs síðustu aldar og lentu líka í hruni fjármálakerfis síns. Landið stendur um margt sterkara á eftir, en leiðin í batann var þyrnum stráð. Fastir pennar 4.3.2009 07:00
Þegar svör fást Þorsteinn Pálsson skrifar Þegar ríkisstjórnin var mynduð lofaði forsætisráðherra kosningum 25. apríl. Nú íhugar forsætisráðherra að ganga á bak þeirra orða sinna fyrir þá sök að ríkisstjórnin hafi of mikið að gera. Eru það gild rök? Fastir pennar 4.3.2009 06:00
Krókódíllinn Einar Már Jónsson skrifar Einhvern tíma í janúar upplauk Brice Hortefeux, félagsmálaráðherra Frakklands, upp sínum stóra túla og mælti þá orð sem um leið urðu fleyg: „Maður móðgar ekki krókódílinn áður en hann fer yfir fljótið." Þessu til skýringar er rétt að geta þess, að áður en Brice Hortefeux fékk þá stöðu sem hann gegnir nú var hann um skeið innflytjendaráðherra frönsku stjórnarinnar og lærði þá langar runur af spakmælum og orðskviðum upprunnum úr hinni svörtustu Afríku. Hefur hann þennan vísdóm frá Suðurálfu nú á hraðbergi við öll tækifæri og er þetta nokkuð merkilegt dæmi um það hvernig stjórnmálamenn geta lært af erfiðri reynslu. Fastir pennar 4.3.2009 06:00
Afskriftir skulda Jón Kaldal skrifar Hvernig skal meðhöndla mjög skuldsett heimili og fyrirtæki er spurning sem enn er ósvarað. Framsóknarmenn hafa kynnt tillögur um að afskrifa flatt 20 prósent skulda íbúðakaupenda og fyrirtækja við vægast sagt dræmar undirtektir. Fastir pennar 3.3.2009 06:00
Ábyrgð kjósenda Jónína Michaelsdóttir skrifar Þegar ég var krakki og heyrði talað um bestu manna yfirsýn, velti ég því stundum fyrir mér hverjir þeir væru þessir bestu menn, og hvar þá væri að finna. Í dag er ég að vona að þeir séu önnum kafnir við uppbyggingu samfélagsins með alla sína yfirsýn. Ég treysti því líka að þá sé að finna í fylkingunni sem sækist eftir þingsætum í næstu kosningum. Við hin eigum mikið undir því að svo sé. Fastir pennar 3.3.2009 06:00
Krafa um ábyrg kosningaloforð Svanborg Sigmarsdóttir skrifar Skoðanakannanir þær sem birtust fyrir helgi um stöðu flokkanna segja meira til um það hversu ánægt fólk er með stjórnmálaflokkana í stjórn eða stjórnarandstöðu nú en hvað skuli kjósa eftir tæpa tvo mánuði. Kjósendur hafa enn sem komið er fáar forsendur til að meta hvaða stjórnmálaafl verður best að kjósa, því stefnur eða kosningaloforð eru ekki komin fram. Fastir pennar 2.3.2009 06:00
Gangan langa Guðmundur Andri Thorsson. skrifar Ógleymanleg verður manni myndin af Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur þar sem hún er studd út af heimili Geirs Haarde af Össuri Skarphéðinssyni, sínum nánasta samverkamanni - og hafði risið af sjúkrabeði sínum til að bregðast við kröfu kjósenda um nýja ríkisstjórn, nýja forystu í landsmálum, ný úrræði. Að fara nú að gera eitthvað og hætta þessu ráðleysi. Fastir pennar 2.3.2009 06:00
Að halda sig við aðalatriði máls Óli Kristján Ármannsson skrifar Þriðja umræða og kosning í kjölfarið um ný lög um Seðlabanka Íslands stóð frá því klukkan ellefu árdegis í gær og fram undir klukkan sex síðdegis. Sjálfsagt má deila um hvort afgreiðsla málsins hafi þurft allan þennan tíma og óvíst að gagnið sé í samræmi við lengd umræðunnar. Fastir pennar 27.2.2009 00:01
Rætur hrunsins Þorvaldur Gylfason skrifar Ísland þarf nú að margra dómi nýja stjórnarskrá, þótt ófullkomleiki stjórnarskrárinnar sé ekki aðalorsök hrunsins. Íslendingar búa að stofni til við sömu stjórnarskrá og Danir. Þau ákvæði, sem Danir hafa bætt inn í stjórnarskrá sína og Íslendingar ekki, eru ekki frumorsök þess, að fjármálakerfi Danmerkur stendur föstum fótum öndvert bankahruninu hér. Fastir pennar 26.2.2009 06:00
Flýta þarf bata með öllum tiltækum ráðum Óli Kristján Ármannsson skrifar Næsta sunnudag er fyrsti mars. Sumir halda upp á daginn og nefna hann bjórdaginn. Fyrir fyrsta mars 1989 var einungis á færi útvalinna að flytja inn og drekka bjór. Allur almenningur mátti halda sig við brennda drykki og vín. Fastir pennar 25.2.2009 11:51
Gamla lagið Þorsteinn Pálsson skrifar Nýr formaður Framsóknarflokksins tók ákvörðun um að búa til þriggja daga tafaferli með stjórnarandstöðunni í umfjöllun viðskiptanefndar Alþingis um Seðlabankafrumvarpið. Þessi atburður varpar skýru ljósi á tvennt: Breytta taflstöðu Framsóknarflokksins og ráðherraræðið sem herðir nú tökin á Alþingi. Fastir pennar 25.2.2009 06:00
Friðlýsum Ísland Sverrir Jakobsson skrifar Fyrir viku bárust alvarleg tíðindi af árekstri bresks og fransks kjarnorkukafbáts á Atlantshafi í febrúarbyrjun. Betur fór þar en á horfðist, en fréttirnar vekja mann óneitanlega til umhugsunar um áhrif þess sem skaðlegt kjarnorkuslys á höfunum gæti haft fyrir Ísland og Íslendinga. Auk beinna skaðlegra umhverfisáhrifa sem slíkt slys hefði í för með sér, mætti búast við því að sala og neysla á sjávarafurðum yrði fyrir áfalli með hörmulegum afleiðingum fyrir þjóðarhag sem síst má við miklum skakkaföllum. Þetta er raunveruleg ógn sem vofir yfir Íslendingum. Fastir pennar 24.2.2009 06:00
Endurreisn á trausti Alþingis Steinunn Stefánsdóttir skrifar Hrun íslenska fjármálakerfisins í haust sem leið hefur markað djúp spor í þjóðlífið. Svo djúp að tímatal miðast nú að talsverðu leyti við hrunið og mun áreiðanlega gera um langt skeið. Fastir pennar 24.2.2009 06:00
Mesta steypan Guðmundur Andri Thorsson skrifar Það vantaði tónlistarhús. Árum saman bentu tónlistarmenn og tónlistarunnendur á að óviðunandi væri að hér skyldi ekki vera sérstakt hús fyrir tónlist, líkt og sérstök hús eru fyrir íþróttir í hverjum hreppi eins og vera ber, sérstök hús eru fyrir guðsdýrkun (eins og vera ber), sundiðkun, leiklist, jafnvel bækur, að ógleymdum öllum verslunarhöllunum. Hér hafa verið reist hús sérstaklega í því skyni að þar sé hægt að spila badminton. En ekki tónlist… Jafnvel þótt Íslendingar séu miklu meiri tónlistarmenn en íþróttamenn - og upp til hópa miklu áhugasamari um tónlist en til dæmis hinn ofmetna fótbolta - þá hefur ekki verið til tónlistarhús í höfuðborginni fram að þessu. Kannski er það vegna þess að stjórnmálamenn eru almennt ekki mjög músíkalskt fólk. Kannski ekki. Þetta er ráðgáta: tónlistin, drottning listanna, hefur í höfuðborginni verið iðkuð í bíóum og búllum, kirkjum og - íþróttahúsum. Fastir pennar 23.2.2009 04:30
Upprakning hnattvæðingar Auðunn Arnórsson skrifar Sænska Saab-bílasmiðjan fór fyrir helgi fram á greiðslustöðvun, eftir að móðurfélagið GM í Detroit hafði tilkynnt að það myndi ekki leggja sænska dótturfélaginu til meira fé og sænsk stjórnvöld höfnuðu beiðni um að gangast í ábyrgðir fyrir nýju rekstrarfé. Þar með stefnir allt í endalok merks kafla í sögu bílaiðnaðarins, sem hófst upp úr síðari heimsstyrjöld þegar sænska herflugvélasmiðjan SAAB (Svenska Aeroplan-AB) vantaði ný verkefni og brá á það ráð að fela verkfræðingum sínum að þróa fólksbifreið til að skjóta frekari stoðum undir reksturinn á friðartímum. Fastir pennar 23.2.2009 04:00
Rangar upplýsingar Þorvaldur Gylfason skrifar Stjórnvöld hafa mörg undangengin ár fóðrað fólkið í landinu á röngum upplýsingum um sum brýn þjóðmál, í sjálfsvörn að því er virðist. Margir virtust kæra sig kollótta um blekkingaflóðið meðan allt lék í lyndi. Fastir pennar 19.2.2009 05:00
Sú eina Einar Már Jónsson skrifar Á Íslandi hafa menn oft spurt mig hvernig franskir fjölmiðlar fjalli um ástandið á skerinu, um bankahrunið, kreppuna og allt það sem siglt hefur í kjölfar hennar, og hvernig þeim liggi yfirleitt orð til Mörlandans; eru þessar spurningar jafnan bornar fram með miklum áhyggjutón og titringi í röddinni. Fastir pennar 18.2.2009 06:00