Erlent
1 2 3 4 5 6 7 8 9 … 334 ›
Sautján látnir vegna ofsafenginna vinda, hvirfilbylja og sandstorma Sautján eru látnir og tugir slasaðir vegna hvirfilbylja og ofsafenginna vinda sem hafa farið um mið- og suðurríki Bandaríkjanna síðustu tvo daga. Veðrakerfi sem færist austur yfir landið hefur orsakað mikla sandstorma og mörg hundruð gróðurelda í tólf ríkjum. Erlent 15.3.2025 18:22
„Við munum ekki standa hjá og bíða eftir því að Pútín bregðist við“ Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands kallar eftir því að byssurnar þagni. Hann segir undirbúning öryggisráðstafana fara bráðum á framkvæmdastig. Erlent 15.3.2025 16:28
Fundu líkbrennsluofna, skó og beinflísar í „útrýmingarbúðum“ Mexíkóskir sjálfboðaliðar í leit að týndum ættingjum sínum römbuðu í síðustu viku á yfirgefinn búgarð sem hefur í kjölfarið verið lýst sem „útrýmingarbúðum“. Þar fundu sjálfboðaliðarnir þrjá líkbrennsluofna neðanjarðar, brenndar líkamsleifar, beinflísar og aragrúa skóa og annarra persónulegra muna. Erlent 15.3.2025 14:38
Rússneskur skipstjóri ákærður fyrir skipaáreksturinn banvæna Skipstjóri fraktskipsins Solong hefur verið ákærður og farið fyrir dóm í Hull í Englandi. Skipið sigldi á efna- og olíuflutningaskipið Stena Immaculate í Norðursjó fyrr í vikunni með þeim afleiðingum að einn áhafnarmeðlimur Solong lést. Erlent 15.3.2025 11:54
Hefndardráp, ofbeldi og áróður í Sýrlandi Hundruð óbreyttra borgara hafa verið myrtir í umfangsmiklum hefndardrápum og ódæðum í Sýrlandi í þessum mánuði. Morðin hafa verið framin af öryggissveitum, tengdum hópum og einnig Assad-liðum. Erlent 15.3.2025 11:24
Níu mánaða geimferð sem átti að taka átta daga lýkur Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna og SpaceX skutu í gærkvöldi fjórum geimförum af stað til Alþjóðlegu geimstöðvarinnar, þar sem þeir eiga að leysa af hólmi tvo geimfara sem verið nokkurs konar strandaglópar í geimstöðinni í níu mánuði. Erlent 15.3.2025 09:59
Feldu næstráðandi leiðtoga Íslamska ríkisins Bandaríkjamenn felldu á dögunum leiðtoga Íslamska ríkisins í Írak og Sýrlandi í loftárás. Abdallah Makki Muslih al-Rifai, sem gekk einnig undir nafninu Abu Khadijah var felldur í Anbar-héraði í Írak, auk annars vígamanns, þegar bíll þeirra var sprengdur í loft upp en hann er sagður hafa verið næstráðandi innan hryðjuverkasamtakanna á heimsvísu. Erlent 15.3.2025 08:50
Segir sendiherra hata Trump og Bandaríkin Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, lýsti því yfir í gær að sendiherra Suður-Afríku væri ekki lengur velkominn í Bandaríkjunum. Rubio sagði Ebrahim Rasool ýta undir rasisma og að sagði sendiherrann hata Bandaríkin og Donald Trump, forseta. Erlent 15.3.2025 07:47
Saka Norðmenn um hervæðingu Svalbarða Yfirvöld í Rússlandi sökuðu í dag Norðmenn um að hervæða Svalbarða. Slíkt valdi spennu og auki hættuna á átökum á norðurslóðum. Þetta kom fram á fundi erindreka utanríkisráðuneytis Rússlands með sendiherra Noregs í Rússlandi. Erlent 14.3.2025 16:55
Bað Pútín um að hlífa hermönnum sem enginn kannast við Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir að hann og/eða erindrekar hans hafi átt gott og uppbyggilegt samtal við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, í gær. Hann segir góðar líkur á því að hægt verði að binda enda á innrás Rússa í Úkraínu, þó Pútín hafi hafnað vopnahléstillögu Bandaríkjamanna í gær og lagt fram viðbótarkröfur. Erlent 14.3.2025 15:52
Ætla að breyta stjórnarskrá til að auka fjárútlát til varnarmála Friedrich Merz, væntanlegur kanslari Þýskalands, hefur komist að samkomulagi við Græningja um áætlun vegna gífurlegra fjárveitinga til varnarmála og innviða á næstu árum. Merz, sem leiðir Kristilega demókrata, hafði áður komist að samkomulagi við Sósíaldemókrata. Erlent 14.3.2025 14:32
Einn stofnenda Pirate bay lést í flugslysi Carl Lundström, einn meðstofnenda deilisíðunnar alræmdu Pirate bay, lést þegar flugvél hans brotlenti á fjallakofa í fjallshlíð í Slóvakíu á mánudag. Hann var einn um borð í flugvélinni. Erlent 14.3.2025 14:10
Mótmælt vegna dauða átta ára stúlku sem lést í kjölfar nauðgunar Andlát átta ára stúlku í Bangladess hefur vakið mikla reiði en barnið lést eftir að hafa orðið fyrir nauðgun á heimili eldri systur sinnar. Efnt hefur verið til mótmæla og aðgerða krafist í kynferðisbrotamálum. Erlent 14.3.2025 12:36
Forsvarsmenn Tesla gjalda varhug við tollaaðgerðum stjórnvalda Forsvarsmenn Tesla hafa sent erindi á Jamieson Greer, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, þar sem segir að fyrirtækið styðji „sanngjarna viðskiptahætti“ en að stjórnvöld þurfi að tryggja að aðgerðir þeirra komi ekki niður á innlendum fyrirtækjum. Erlent 14.3.2025 11:50
Lúffar af ótta við enn meira niðurrif Trumps Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings, lýsti því yfir í gær að hann ætlaði sér að greiða atkvæði með tímabundnu fjárlagafrumvarpi Repúblikana í dag. Þannig dró hann verulega úr líkunum á því að rekstur alríkisins myndi stöðvast á miðnætti en Schumer sagðist telja það skárri kostinn af tveimur slæmum. Erlent 14.3.2025 11:38
Finnar dæma norsk- rússneskan nýnasista fyrir stríðsglæpi í Úkraínu Héraðsdómur Helsinki dæmdi í morgun Vaislav Torden í lífstíðarfangelsi fyrir stríðsglæpi í Úkraínu. Hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi vegna brota sem hann framdi þegar hann barðist í austurhluta Úkraínu 2014 og 2015. Erlent 14.3.2025 10:28
Ítrekar ósk Pólverja um bandarísk kjarnavopn Andrzej Duda, forseti Póllands, hefur ítrekað vilja pólskra stjórnvalda til að heimila Bandaríkjamönnum að koma upp kjarnavopnum í landinu. Erlent 14.3.2025 10:06
Vínkaup-og veitingamenn uggandi vegna hótana um ofurtolla Það mun koma harkalega niður á fjölda fyrirtækja í Bandaríkjunum ef Donald Trump Bandaríkjaforseti lætur verða af hótunum sínum um að leggja allt að 200 prósent toll á vín og aðra áfenga drykki frá Evrópu. Erlent 14.3.2025 08:02
„Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn“ „Við viljum ekki vera Bandaríkjamenn. Nei, við viljum ekki vera Danir. Við viljum vera Grænlendingar og við viljum sjálfstæði í framtíðinni,“ sagði Jens-Frederik Nielsen, formaður formaður Demokraatic, fyrir þingkosningarnar í síðust viku. Erlent 14.3.2025 06:36
Gerir lítið úr tilkalli Dana til Grænlands Donald Trump Bandaríkjaforseti segist halda að Bandaríkin muni innlima Grænland. Fráfarandi formaður landstjórnar Grænlands, Múte B. Egede, hefur ítrekað undirstrikað það í viðtölum að Grænlendingar hafi engan áhuga á því að ganga inn í Bandaríkin. Erlent 13.3.2025 18:00
Segist opinn fyrir vopnahléi en hafnar tillögu Trumps Vladimír Pútín, forseti Rússlands, segist heilt yfir hlynntur því að samþykkja þrjátíu daga vopnahlé í Úkraínu, en því fylgi ákveðin skilyrði og vandkvæði. Hann í raun hafnaði tillögu Bandaríkjamanna á þeim grundvelli að Úkraínumenn myndu hagnast á því og sagðist vilja að vopnahlé leiddi til langvarandi friðar og að „rætur“ innrásar Rússa í Úkraínu yrðu ávarpaðar. Erlent 13.3.2025 16:06
Vörpuðu sprengju á heimili leiðtoga Íslamsks jíhad Ísraelskir flugmenn vörpuðu í dag sprengjum á fjölbýlishús í úthverfi Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Talsmenn ísraelska hersins segja bygginguna hafa verið notaða sem stjórnstöð hryðjuverkasamtakanna Íslamskt jíhad. Erlent 13.3.2025 15:39
Hélt stjúpsyni sínum föngnum í tuttugu ár Þegar slökkviliðsmenn í Connecticut í Bandaríkjunum voru kallaðir út vegna elds í húsi, komu þeir þar að verulega vannærðum manni sem lokaður var inn í litlu herbergi. Þar hafði stjúpmóðir hans haldið honum í rúm tuttugu ár. Erlent 13.3.2025 14:06
Ráðgjafi Pútíns segir tillögu Trumps tilgangslausa Tillaga Bandaríkjamanna um þrjátíu daga vopnahlé í Úkraínu þjónar engum tilgangi, samkvæmt ráðgjafa Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Vopnahlé yrði eingöngu tímabundin pása fyrir úkraínska hermenn, sem ættu undir högg að sækja. Erlent 13.3.2025 11:55
Vonska vegna vambaráns áhrifavalds í Ástralíu Töluverð reiði ríkir í Ástralíu vegna myndbands af bandarískum áhrifavaldi grípa vambaunga frá móður sinni og hlaupa á brott með hann. Sam Jones hefur meðal annars verið gagnrýnd af forsætisráðherra Ástralíu og eru yfirvöld þar sögð skoða hvort hleypa eigi henni aftur inn í landið. Erlent 13.3.2025 11:07
Umhverfisvernd ekki lengur meðal markmiða EPA Umhverfisverndarstofnun Bandaríkjanna (EPA) hefur nú það hlutverk að greiða fyrir markmiðum stjórnvalda um að lækka kostnaðinn við að kaupa bíl, hita heimilið og reka fyrirtæki. Erlent 13.3.2025 10:35
Saka Ísraela um kerfisbundin mannréttindabrot Sérfræðingar mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna hafa sakað Ísraela um umfangsmikil og kerfisbundin mannréttindabrot gegn Palestínumönnum, og þar á meðal kynferðisofbeldi, frá 7. október 2023. Markmiðið sé að undiroka og stjórna palestínsku þjóðinni. Erlent 13.3.2025 10:23
Rekin eftir að hafa neitað að endurnýja byssuleyfi Mels Gibson Náðunarfulltrúi dómsmálaráðuneytisins var rekinn degi eftir að hafa neitað að endurnýja byssuleyfi Mels Gibson, yfirlýsts stuðningsmanns Donalds Trump, en hann var sviptur því árið 2011 vegna heimilisofbeldisdóms. Ráðuneytið segir brottrekstur fulltrúans ekki tengjast Gibson. Erlent 13.3.2025 09:33
Wagnerliðar fremja ódæði í Malí: „Ég sá dauðann alls staðar“ Rússneskir málaliðar og hermenn Malí hafa framið fjölda ódæðisverka gegn íbúum í norðurhluta Malí, þar sem Túaregar eru í meirihluta. Fjöldamorð hafa verið framin og heilu þorpin brennd og hafa fjölmargir flúið undan ofbeldinu til Máritaníu og annarra ríkja. Erlent 13.3.2025 08:01
Handtekinn á vafasömum forsendum og hótað brottflutningi Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa handtekið og hyggjast flytja úr landi mann sem fór fyrir mótmælaaðgerðum gegn stríðinu á Gasa á skólalóð Columbia-háskóla í fyrra. Erlent 13.3.2025 06:49