Fréttir
133 134 135 136 137 138 139 140 141 … 334 ›
Erlendir þrjótar reyna að brjótast inn til Harris og Trump Bandaríska alríkislögreglan FBI gerði framboði Kamölu Harris viðvart um að erlendir aðilar sem sækjast eftir að hafa áhrif á forsetakosningarnar beini spjótum sínum að henni. Framboð Donalds Trump segist fórnarlamb íranskra tölvuþrjóta. Erlent 14.8.2024 08:53
Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum Heildarakstur í þjóðvegakerfinu á Íslandi nærri tvöfaldaðist á tímabilinu 2002 til 2023. Heildarakstur í þjóðvegakerfinu utan héraðsvega árið 2023 er áætlaður um 3.181 milljón ekinna kílómetra en var árið 2002 áætlaður um 1.781 milljón ekinna kílómetra. Innlent 14.8.2024 08:36
„Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Óskar Hallgrímsson ljósmyndari og fjölmiðlamaður hefur verið búsettur í Úkraínu um árabil. Hann segir ljóst að hermenn úkraínska hersins séu ekki að fara frá Kúrsk-héraði í Rússlandi. Þeir séu með þúsund ferkílómetra undir sinni stjórn og á því svæði séu þeir að grafa sig niður, að mynda birgðalínu og ætli sér að halda áfram. Óskar ræddi áhrif og merkingu innrásarinnar í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Erlent 14.8.2024 08:22
Forsætisráðherra Japan sækist ekki eftir endurkjöri Forsætisráðherra Japans Fumio Kishida ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri sem formaður Frjálslynd demókrataflokksins en kosið verður í embættið á næsta landsfundi í september. Það er því ljóst að hann mun einnig hætta sem forsætisráðherra Japans en Kishida, sem er 67 ára gamall, hefur gegnt embættinu frá árinu 2021. Erlent 14.8.2024 08:12
Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Þjóðverjar hafa gefið út handtökuskipun innan evrópska efnahagssvæðisins á hendur úkraínskum köfunarkennara sem er sakaður um að hafa verið hluti af teymi sem sprengdi upp Nord Stream gasleiðsluna á sínum tíma. Erlent 14.8.2024 07:56
„Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar, gagnrýnir áform um vindorkuver við Búrfell og segir mikilvægt að áætlanir um vindorkuver fari ekki fram úr regluverkinu. Innlent 14.8.2024 07:30
Lægð nálgast landið úr suðvestri Lægð nálgast landið úr suðvestri nú í morgunsárið. Það gengur í austan- og suðaustankalda með rigningu sunnanlands, en dregur úr vindi síðdegis. Yfirleitt hægari og bjart með köflum fyrir norðan, en dálítil væta seinnipartinn. Veður 14.8.2024 07:13
Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Hamas munu ekki senda fulltrúa til friðarviðræðna á morgun, þegar áætlað er að sendinefndir frá Ísrael, Bandaríkjunum, Egyptalandi og Katar munu koma saman. Erlent 14.8.2024 06:56
Þakklát fyrir þrjósku hundsins Margrét Víkingsdóttir var sofandi í íbúð sinni við Amtmannsstíg 6 þegar eldur kviknaði á neðri hæðinni. Hún slapp vel frá eldsvoðanum en sér á eftir nágranna sínum á sjötugsaldri sem lést í brunanum. Hún varð fyrst vör við eldinn eftir að hundurinn hennar vakti hana í morgunsárið. Innlent 14.8.2024 00:06
Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Eigendur Fjölskyldulands gætu þurft að loka náist ekki að snúa erfiðum rekstri við. Eigandinn segir þjónustuna afar mikilvæga, ekki síst fyrir fjölskyldur af erlendum uppruna til að ná að aðlagast íslensku samfélagi. Innlent 13.8.2024 23:13
„Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Kvikumagnið undir Svartsengi er orðið meira en fyrir síðasta eldgos og gögn benda til þess að þrýstingur sé að aukast. Töluvert hefur verið um skjálfta á svæðinu í dag og telja þeir nú hátt í hundrað á sólarhring. Náttúruvársérfræðingur segir að gos gæti í raun byrjað hvenær sem er en líka teygst fram í september. Innlent 13.8.2024 21:25
Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Lögreglufulltrúi segir Sverri Þór Gunnarsson, betur þekktan sem Svedda tönn, hafa rætt um fíkniefnaviðskipti við notanda sem lögregla telur ljóst að sé Pétur Jökull Jónasson. Pétur Jökull sætir ákæru fyrir aðild að stóra kókaínmálinu sem kom upp sumarið 2022. Lögreglufulltrúinn kafaði ofan í samskipti Sverris Þórs á Signal. Innlent 13.8.2024 21:00
Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Vindorka verður að líkindum þriðja stoðin í orkukerfi landsins. Þetta er mat forstjóra Landsvirkjunar sem kallar eftir skilvirkara regluverki. Orkustofnun veitti Landsvirkjun í gær virkjunarleyfi fyrir fyrsta vindorkuveri landsins sem á að rísa við Búrfell. Innlent 13.8.2024 19:27
Meiri kvika, erfiður rekstur og blandað gras Kvikumagnið undir Svartsengi er orðið meira en fyrir síðasta eldgos og gögn benda til þess að þrýstur sé að aukast. Samkvæmt nýju hættumati eru enn taldar miklar líkur á hraunflæði innan Grindavíkur. Rætt verður við fagstjóra á Veðurstofunni í beinni í kvöldfréttum Stöðvar 2. Fréttir 13.8.2024 18:11
Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Karlmaður á sjötugsaldri sem var í íbúðarhúsnæði við Amtmannsstíg í miðborg Reykjavíkur þegar eldur kviknaði í morgun hefur verið úrskurðaður látinn. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn hjá rannsóknarsviði lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 13.8.2024 17:28
Hafa ekki í hyggju að halda Kúrsk Úkraínsk stjórnvöld segjast ekki ætla sér að halda landsvæðum í Rússlandi eftir óvænta innrás í síðustu viku. Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir herinn hafa hrundið frekari sókn Úkraínumanna dýpra inn í landið. Erlent 13.8.2024 15:49
Milla hætt hjá Willum Milla Ósk Magnúsdóttir hefur látið af störfum sem aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra. Hún hafði verið aðstoðarmaður ráðherra frá árinu 2021. Innlent 13.8.2024 15:06
Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Kostnaður við húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur nam tæplega fimm milljörðum króna árið 2023 og áætlaður kostnaður fyrir þetta ár er tæplega 4,7 milljarðar. Innlent 13.8.2024 14:58
Lögreglan leitar að stolnum Volvo Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir svörtum Volvo XC90 með skráningarnúmerið MH048. Honum var stolið úr Sóltúni í Reykjavík í gær. Innlent 13.8.2024 14:16
Svipaður hlátur á öllum upptökunum Sérfræðingur í raddbeitingu við Háskólann í Árósum segir ýmislegt benda til þess að rödd Péturs Jökuls Jónassonar sé sú sem heyrist á upptöku sem er meðal helstu sönnunargagna lögreglu í stóra kókaínmálinu. Þetta kom fram við aðalmeðferð á þætti Péturs Jökuls Jónassonar í málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 13.8.2024 13:45
Tugir þúsunda létust af völdum hita í Evrópu Fleiri en 47.000 manns létust af völdum hita í Evrópu í fyrra samkvæmt niðurstöðum spænskrar rannsóknar. Aðlögunaraðgerðir vegna hækkandi hita síðustu tvo áratugina eru sagðar hafa forðað mun meiri mannskaða. Erlent 13.8.2024 13:17
Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Viðskiptaráð hefur sent mennta- og barnamálaráðuneytinu upplýsingabeiðni um niðurstöður námsmats í grunnskólum. Í beiðninni er óskað eftir PISA-einkunnum, niðurstöðum samræmdra könnunarprófa og skólaeinkunnum sundurgreindum eftir grunnskólum. Innlent 13.8.2024 13:11
Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Framkvæmdastjóri Landverndar segir að leyfi Orkustofnunar til vindorkuvers sé mikið áhyggjuefni. Nú þurfi að þrýsta á stjórnvöld að móta framtíðarstefnu í vindorkumálum áður en lengra er haldið. Innlent 13.8.2024 12:51
Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Lögreglufulltrúar sem rannsökuðu stóra kókaínmálið lýstu því fyrir dómi í morgun að sakborningar hefðu endurtekið skipt út símum og breytt um notendanöfn í þeim tilgangi að hylja slóð sína við innflutninginn. Þeir komust á sporið í málinu við rannsókn á saltdreifaramálinu svokallaða vegna tengingar milli aðila í því máli og stóra kókaínmálinu. Innlent 13.8.2024 12:35
Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Náttúruvársérfræðingur segir litlar líkur á að gos hefjist innan bæjarmarka Grindavíkur. Starfsmenn Veðurstofunnar eru nú í biðstöðu og bíða eftir kvikuhlaupi eða eldgosi sem gæti hafist hvenær sem er. Innlent 13.8.2024 12:16
Mannréttindastjóri gagnrýnir óhóflega beitingu valds í Venesúela Volker Türk mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna lýsti í dag miklum áhyggjum af áframhaldandi geðþótta-fjöldahandtökum í Venesúela. Jafnframt telur hann beitingu valds óhóflega að loknum forsetakosningum í landinu. Erlent 13.8.2024 11:57
Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar. Meðal umsækjenda eru settur forstjóri Náttúrufræðistofnunar, líftæknir og forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ á Snæfellsnesi. Hæfnisnefnd fer yfir umsóknirnar. Innlent 13.8.2024 11:31
Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Í hádegisfréttum fjöllum við um bruna sem kom upp á Amtmannsstíg í morgun þar sem einn var fluttur á slysadeild. Innlent 13.8.2024 11:31
Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn var fluttur á slysadeild eftir bruna í íbúðarhúsnæði við Amtmannsstíg í morgun. Aðstoðarvarðstjóri segir mikinn og þykkan reyk hafa verið í íbúðinni þegar viðkomandi fannst. Innlent 13.8.2024 11:06
Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Bandarískir fjölmiðlar sem fengu upp í hendurnar trúnaðargögn sem var lekið úr framboði Donalds Trump hafa kosið að skrifa ekki fréttir upp úr þeim. Það er allt önnur nálgun en þegar tölvupóstum kosningastjóra Hillary Clinton var lekið árið 2016. Erlent 13.8.2024 08:53