Öruggt hjá Golden State sem er enn taplaust í úrslitakeppninni | Myndbönd Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. júní 2017 11:25 Curry og Durant skoruðu samtals 65 stig. vísir/getty
Golden State Warriors er komið í 2-0 í einvíginu gegn Cleveland Cavaliers í úrslitum NBA-deildarinnar eftir 132-113 sigur í öðrum leik liðanna í nótt. Golden State hefur þar með unnið alla 14 leiki sína í úrslitakeppninni til þessa. Golden State var með frumkvæðið nær allan tímann í leiknum í nótt. Meistaraefnin hótuðu því margoft að stinga af en tókst ekki fyrr en í upphafi 4. leikhluta. Cleveland átti nokkur ágæt áhlaup en náði aldrei að jafna eða komast yfir. Kevin Durant hélt uppteknum hætti frá fyrsta leiknum og var frábær í nótt. Durant skoraði 33 stig úr aðeins 22 skotum, tók 13 fráköst, gaf sex stoðsendingar, varði fimm skot og stal þremur boltum. Stephen Curry átti einnig skínandi góðan leik og náði þrefaldri tvennu í fyrsta sinn í lokaúrslitum. Curry skoraði 32 stig, tók 10 fráköst og gaf 11 stoðsendingar. Klay Thompson, sem hitti mjög illa í fyrsta leiknum, náði sér betur á strik í nótt og skoraði 22 stig. Stórleikur LeBron James dugði Cleveland ekki til sigurs. James skoraði 29 stig, tók 11 fráköst og gaf 14 stoðsendingar. Kevin Love var einnig öflugur með 27 stig og sjö fráköst. Kyrie Irving skoraði 19 stig og gaf sjö stoðsendingar en hefur oft spilað betur.
NBA Tengdar fréttir Golden State átti fyrsta höggið | Myndbönd Golden State Warriors tók forystuna gegn Cleveland Cavaliers í úrslitum NBA-deildarinnar með 113-91 sigri í fyrsta leik liðanna í nótt. Golden State hefur nú unnið alla 13 leiki sína í úrslitakeppninni. 2. júní 2017 07:15 Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Favre opinberar baráttu við Parkinsons: „Fékk þúsundir heilahristinga“ Sport Óvænt alveg hættur Fótbolti Drukkinn undir stýri og enn í „lederhosen“ Fótbolti Harðneitar því að hafa rekið við í leik Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ Enski boltinn Mbappé úr leik næstu vikurnar Fótbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira
Golden State átti fyrsta höggið | Myndbönd Golden State Warriors tók forystuna gegn Cleveland Cavaliers í úrslitum NBA-deildarinnar með 113-91 sigri í fyrsta leik liðanna í nótt. Golden State hefur nú unnið alla 13 leiki sína í úrslitakeppninni. 2. júní 2017 07:15