Fótbolti

Ronaldo með þrjú í sigri Real

vísir/getty
Cristiano Ronaldo skoraði þrennu í 4-1 sigri Real Madrid á Alaves í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Deyverson kom Alaves yfir á sjöttu mínútu, en ellefu mínútum síðar jafnaði Ronaldo metin af vítapunktinum eftir að Deyverson hafði handleikið knöttinn.

Ronaldo kom svo Real í 2-1 á 33. mínútu og þannig var staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Áðurnefndum Ronaldo brást svo bogalistinn á 79. mínútu þegar hann klúðraði vítaspyrnu, en Alvaro Morata kom Real í 3-1 á 84. mínútu.

Þrenna Ronaldo var svo innsigluð tveimur mínútum fyrir leikslok og lokatölur 4-1, en Real er á toppi deildarinnar með 24 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×