Anton og Jónas dæma í Final Four í Köln Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. maí 2016 15:17 Jónas Elíasson. Vísir/Stefán
Besta handboltadómarapar landsins hefur fengið flotta viðurkenningu frá evrópska handboltasambandinu því íslensku dómararnir hafa verið valdir til að dæma á stærstu handboltahelginni í Evrópu. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson hafa nefnilega fengið úthlutað leik á úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu sem fram fer í Köln 28. til 29. maí næstkomandi. Þetta kemur fram á heimsíðu HSÍ. Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson munu dæma leikinn um þriðja sætið sem fer fram sunnudaginn 29. maí. Liðin sem hafa tryggt sér sæti í Final Four þetta árið eru MVM Vezprém, Vive Tauron Kielce, PSG Paris og THW Kiel. Það verður Íslendingaslagur í undanúrslitunum þegar Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska liðinu Kiel taka á móti Aroni Pálmarssyni og liðsfélögum hans í ungverska liðinu Vezprém. Það er því öruggt að þeir Anton og Jónas munu dæma hjá öðru Íslendingaliðinu og þau gæti verið tvö því lið Róberts Gunnarssonar, PSG Paris, er einnig í undanúrslitunum í ár. Þetta verður stórt ár fyrir Anton Gylfa Pálsson og Jónas Elíasson því í ágúst munu þeir dæma í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í Ríó í Brasilíu.
Íslenski handboltinn Handbolti Mest lesið „Mjög undarlegt að þessi höll standist kröfur“ Handbolti Segir að Maradona hafi búið í hryllingshúsi síðustu ævidagana Fótbolti Ósáttur fótboltapabbi skaut þjálfarann Sport Skiptir úr sálfræðinni í Duolingo Handbolti Velta því fyrir sér hvort fimmtán ára HK-ingur hafi skorað mark ársins Handbolti „Skiptir engu máli hvort við áttum skilið að vinna“ Fótbolti Donnarumma varði tvö víti í vítakeppninni og PSG fór áfram Fótbolti „Við tókum út alla lukkuna í síðustu viku“ Enski boltinn Prentuðu Dag Sig og strákana hans á frímerki Handbolti Sjáðu mörkin og vítakeppnina hjá Liverpool og PSG Fótbolti Fleiri fréttir Velta því fyrir sér hvort fimmtán ára HK-ingur hafi skorað mark ársins Skiptir úr sálfræðinni í Duolingo Strákarnir sem mæta Grikkjum í dag: Margir aðalleikarar utan hóps „Mjög undarlegt að þessi höll standist kröfur“ Prentuðu Dag Sig og strákana hans á frímerki Aron enn einn lykilmaðurinn sem missir af Grikklandsleiknum Aldís Ásta og félagar fóru illa með liðið fyrir neðan þær í töflunni Eftirmaður Þóris segir stelpurnar þurfa að æfa sig í að senda og grípa „Við erum of mistækir“ Benedikt Gunnar kallaður inn í landsliðshópinn Stjarnan tryggði sér sæti í úrslitakeppninni Uppgjörið: FH - Afturelding 34-29 | Heimamenn endurheimtu toppsætið Björgvin Páll strax kallaður aftur í landsliðið Danski dómarinn aftur á börum af velli Valur tímabundið á toppinn Gauti bjargaði stigi en ÍR færist fjær botninum Engir Íslendingar en samt ekkert vandamál hjá Melsungen í kvöld Elliði markahæstur í stórsigri Gummersbach Orri skoraði mark umferðarinnar í Meistaradeildinni Tekur hatt sinn ofan fyrir Söndru sem kveður Jóhannes Berg fer til Arnórs í Danmörku Ekki hættur í þjálfun Sænsku meistararnir fá Elínu inn sem fyrsta kost: „Mjög fínn kostur“ Landsleik Svía og Rúmena hætt eftir svakalegt samstuð leikmanna Haukur flottur í sigri á liði Gumma Gumm í Meistaradeildinni Elvar bjó til sjö mörk en liðið missti af sigri í lokin Gunnar kveður og Stefán tekur við Elín Rósa fullkomnar íslenska tríóið hjá þýska stórliðinu Draumadagar Elínar Klöru sem fer í atvinnumennsku Valsmenn skutu bikarmeistarana aftur niður á jörðina Sjá meira