Enski boltinn

Stoke missir lykilmann til Spánar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
N'Zonzi lék alla deildarleiki Stoke á síðasta tímabili.
N'Zonzi lék alla deildarleiki Stoke á síðasta tímabili. vísir/getty
Sevilla hefur fest kaup á franska miðjumanninum Steven N'Zonzi frá Stoke City.

Sevilla borgar Stoke sjö milljónir punda fyrir N'Zonzi sem lék í þrjú ár með enska liðinu. Frakkinn gerði fjögurra ára samning við Sevilla sem lenti í 5. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar í fyrra, auk þess sem liðið vann Evrópudeildina annað árið í röð.

N'Zonzi kom til Stoke frá Blackburn sumarið 2012 fyrir þrjár milljónir punda. Hann lék 109 af 114 deildarleikjum Stoke á síðustu þremur tímabilum og skoraði sex mörk.

Stoke endaði í 9. sæti ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×