Enski boltinn

Gomis kom Swansea til bjargar | Sjáðu sigurmarkið

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Bafetimbi Gomis skoraði eina mark leiksins þegar Swansea City vann 0-1 sigur á Aston Villa á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Markið má sjá í spilaranum hér að ofan.

Gomis skoraði markið dýrmæta á 87. mínútu eftir sendingu frá Jefferson Montero.

Þetta var þriðji sigur Swansea í síðustu fimm leikjum en liðið er nú komið upp fyrir Stoke í 8. sæti deildarinnar.

Aston Villa er hins vegar enn í bullandi fallbaráttu en lærisveinar Tims Sherwood eru í 16. sæti með 28 stig, þremur stigum frá fallsæti.

Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Swansea en var tekinn af leikvelli á 64. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×