Eldgos og jarðhræringar
117 118 119 120 121 122 123 124 125 … 132 ›
Öskuframleiðslan aðeins brot af því sem hún var Kvikustreymi og gosmökkur á Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Sprengivirknin og öskuframleiðsla er aðeins brot af því sem hún var í byrjun gossins en engin merki sjást um að gosi sé að ljúka. Innlent 30.4.2010 20:35
Kvikuflæðið allt að 50 tonn á sekúndu Talið er að kvikuflæðið upp úr gosrásinni í Eyjafjallajökli, sé allt að 50 tonn á sekúndu, sem er meira en haldið hefur verið, en minna en við upphaf gossins. Þetta flæði jafngildir þyngd fimmtíu lítilla fólksbíla á sekúndu. Innlent 30.4.2010 12:22
Engin merki um að gosi sé að ljúka Vatnsrennsli undan Gígjökli í Eyjafjallajökli jókst nokkuð undir morgun og er að berast út í Markarfljót. Þetta er þó ekki neitt stórhlaup og tala vísindamenn frekar um gusu. Annars hélt gosið ámóta krafti í nótt og verið hefur síðasta sólarhringinn. Engin merki er um að gosinu sé að ljúka. Innlent 30.4.2010 08:34
Allt flug með eðlilegum hætti Allir alþjóðaflugvellir á landinu hafa verið opnir síðan í gærkvöldi og millilandaflugið fer nú um Keflavíkurflugvöll. Allt bendir til að innanlandsflug verði samkvæmt áætlun í dag eftir tveggja daga röskun. Fyrstu innanlandsvélarnar fóru frá Reykjavík í gærkvöldi til Akureyrar og Egilsstaða. Innlent 29.4.2010 08:08
Enn engin merki um goslok Kvikustreymi og gosmökkur í Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Af gufu sem leggur upp af Gígjökli má ráða að hraunið sé komið í hallann til norðurs. Ekki sjást merki um að gosi sé að ljúka að mati Veðurstofunnar en gosórói hefur verið svipaður og undanfarna daga. Innlent 28.4.2010 18:23
Græn slikja komin á tún á öskusvæði undir Eyjafjöllum Bændur á öskufallssvæðinu undir Eyjafjöllum huga nú að sumarbeit fyrir sauðfé og öflun heys, að sögn Katrínar Andrésdóttur héraðsdýralæknis. Hún er þessa dagana á ferð um svæðið ásamt Þorsteini Ólafssyni, sérgreinadýralækni sauðfjár og nautgripa. Þau ræða við bændur og taka stöðuna. Innlent 27.4.2010 22:09
Engin merki um að gosi sé að ljúka Kvikustreymi og gosmökkur í Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Í stöðumati Veðurstofunnar segir að sprengigos og gjóskumyndun sé aðeins lítið brot af því sem var þegar gosið var mest þó gjóskufalls gæti 40 km vestan gosstöðvanna. Ekki sjást merki um að gosi sé að ljúka. Innlent 27.4.2010 21:04
Flugumferð leyfð um Akureyri og Egilsstaði Flugvellirnir á Akureyri og á Egilsstöðum verða opnir áfram í kvöld og í nótt en útlit var fyrir að þeim yrði að loka sökum öskufalls frá Eyjafjallajökli. Flugvellirnir í Keflavík og í Reykjavík eru hinsvegar enn á svokölluðu svörtu svæði miðað við spá um öskudreifingu og verða því lokaðir áfram. Innlent 27.4.2010 19:20
Sex milljónum varið í kaup á svifryksmæli Sex milljónum króna verður varið til kaupa og uppsetningar á sjálfvirkum mæli til að mæla svifryk á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli. Ríkisstjórnin samþykkti tillögu Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra þess efnis á fundi í morgun. Innlent 27.4.2010 17:55
Bannsvæði í kringum gossvæðið minnkað Þjóðvegur 1 er opinn undir Eyjafjöllum en vegfarendur eru beðnir um að fara með gát þar sem bráðabirgðaviðgerðir eru á veginum. Innlent 27.4.2010 14:42
Flugfélag Íslands aflýsir öllu flugi í dag Flugfélag Íslands hefur aflýst öllu flugi í dag sökum gjóskuskýja sem takmarka flugumferð. Innanlandsflug klukkan 7:15 í fyrramálið er í athugun. Innlent 27.4.2010 12:33
Horfur á að ferðamönnum fækki um hundrað þúsund Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í morgun að leggja allt að 350 milljónir króna í kynningarátak á íslandi, vegna fyrirsjáanlegrar fækkunar ferðamanna til Íslands. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði að stefnt gæti í að erlendum ferðamönnum fækkaði um allt að eitt hundrað þúsund miðað við áætlanir þessa árs, sem hefði í för með sér tekjutap upp á 25 til 30 milljarða króna. Innlent 27.4.2010 12:25
Töluvert vatnsrennsli niður Gígjökul Smá sprengingar hafa verið í morgun í gosinu í Eyjafjallajökli, en að öðru leyti er gosórói svipaður og undanfarna sólarhringa. Aska stígur upp í rösklega þriggja kílómetra hæð og leggur til norðvesturs, en öskufall í byggð er sára lítið og greinist varla, þar sem það er á annað borð. Innlent 27.4.2010 12:07
Kanna skilyrði eftir hádegi Ekkert innanlandsflug hefur verið í morgun vegna eldfjallaösku í lofti, en Flugfélag Íslands og Ernir ætla að kanna skilyrði eftir hádegi. Flugi Icelandair og Iceland Express frá landinu var flýtt un nokkrar klukkustundir í morgun, en loftrými yfir Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvöllum eru lokuð. Innlent 27.4.2010 12:05
Seinkun á flugi næsta sólarhringinn - flogið á fimmtudag Icelandair stefnir að því færa tengibanka sinn frá Glasgow til Íslands á morgun og fljúga samkvæmt áætlun frá og með fimmtudagsmorgni. Vegna takmarkana á flugi um Keflavíkur- og Akureyrarflugvelli næsta sólarhringinn er gert ráð fyrir töluverðum seinkunum fram að þeim tíma. Innlent 27.4.2010 11:53
Öllu flugi frestað fram yfir hádegi Öllu flugi Flugfélags Íslands hefur verið frestað fram yfir hádegi, vegna eldfjallaösku í lofti. Athugað verður nánar með flug upp úr klukkan eitt. Flugfélagi Ernir hefur líka frestað öllu sínu morgunflugi, sem átti að vera til Sauðárkróks, Hafnar og Bíldudals. Aðstæður verða endurmetnar í hádeginu. Innlent 27.4.2010 07:53
Tíðindalaust af gosstöðvunum Kvikustreymi og gosmökkur frá eldgosinu í Eyjafjallajökli hefur verið með svipuðum hætti og undanfarna sólarhringa og hraun heldur áfram að renna til norðurs í upptökum Gígjökuls. Í minnisblaði frá Veðurstofu Íslands og Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands segir að ekki sjáist merki um að gosi sé að ljúka, þó að virkni á yfirborði sé minni en þegar mest lét. Innlent 26.4.2010 19:34
Aukið rennsli í Markarfljóti Ekki hefur orði vart við öskufall frá gosinu í Eyjafjallajökli í morgun, en rennsli hefur aukist í Markarfljóti, án þess þó að jarðvísindamenn reikni með flóði. Innlent 26.4.2010 12:26
Óttast að verða innlyksa á Íslandi Hundruð erlendra ferðamanna hafa afbókað gistingu á hótelum borgarinnar í apríl og maí vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Hótelstjórar eru uggandi og segja fólk helst óttast að verða innlyksa hér á landi. Innlent 26.4.2010 12:19
Flug að komast í samt lag Iceland Express vonast til að flug komist í eðlilegt horf í dag. Framan af degi má þó búast við einhverjum seinkunum, að fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Reiknað er með að allt flug Iceland Express verði svo komið í samt lag frá Keflavík í fyrramálið. Innlent 26.4.2010 11:54
Engar fregnir hafa borist af öskufalli Gosið í Eyjafjallajökli er enn í gangi en heldur minni drunur heyrðust frá því niður á Hvolsvöll í nótt en verið hefur. Engar fregnir hafa borist af öskufalli í nótt, en í fyrrinótt varð þess vart, meðal annars á Selfossi. Innlent 26.4.2010 08:12
Bandaríska hagkerfið tapaði 100 milljörðum á öskunni Bandaríska hagkerfið tapaði 813 milljón dollara eða ríflega 100 milljörðum kr. vegna öskunnar frá Eyjafjallajökli. Hér er átt við fyrstu sex dagana sem gosið stóð og lamaði meir og minna flugsamgöngur í norðurhluta Evrópu. Viðskipti erlent 26.4.2010 08:11
Komu flugvéla seinkað í nótt vegna óvissu Tvær vélar frá Icelandair komu til Akureyrar frá Glasgow í nótt og eru báðar farnar út aftur. Komu þeirra seinkaði í nótt vegna óvissu um ösku í lofti. Þá er vél væntanleg frá Glasgow laust fyrir klukkan tíu. Millilandaflug félagsins verður áfram á milli Akureyrar og Glasgow í dag og allt Ameríkuflugið fer beint á milli Bandaríkjanna og Glasgow. Innlent 26.4.2010 08:01
Farþegaflug milli Íraks og Bretlands Farþegaþota flaug í gær í fyrsta sinn í tvo áratugi milli Íraks og Bretlands. Eldgosið í Eyjafjallajökli olli því að fresta þurfti fluginu um níu daga. Erlent 26.4.2010 07:58
Salan aðeins svipur hjá sjón eftir gosið Ráðast þarf í miklar aðgerðir til að fá erlenda ferðamenn aftur til landsins. Þetta er mat framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar, Ernu Hauksdóttur. Viðskipti innlent 25.4.2010 23:08
Stefnt að innanlandsflugi eftir helgarhlé Vonast er til að sú breyting verði á dreifingu ösku frá Eyjafjallajökli að hægt verði að taka innanlandsflug upp að nýju í dag. Innanlandsflugið lá niðri um helgina. Innlent 25.4.2010 23:07
Gosóróinn svipaður og undanfarna daga Ekkert sást til gosmökksins úr Eyjafjallajökli í gærdag, hvorki ofan né neðan frá, að sögn sérfræðinga Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar Háskóla Íslands. Innlent 25.4.2010 23:07
Sala á flugferðum aðeins fjórðungur af því sem var fyrir gos Það sem stefndi í að verða mesta ferðamannasumar í manna minnum er aðeins svipur hjá sjón eftir eldgosið. Salan er aðeins fjórðungur af því sem var fyrir gos. Þetta segir Matthías Imsland forstjóri Iceland Express. Hann vonar þó að hægt verði að lenda á Keflavíkurflugvelli á morgun. Innlent 25.4.2010 18:36
Minnt á lokun á Emstruvegi Lögreglan á Hvolsvelli vill minna á að lokað er um Emstruveg og hafa núna verið sett upp sérstök umferðarskilti til að vekja athygli á því. Mjög hart verður tekið á brotum gegn banni við umferð á þessum vegi. Innlent 25.4.2010 17:39
Enn heyrast drunur úr Eyjafjallajökli Miklar drunur hafa heyrst frá Eyjafjallajökli í allan dag, að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli. Innlent 25.4.2010 16:45