Jón Gnarr
1 2 3 ›
Jón Gnarr: Konur Það er gott að hlæja. Maðurinn er eina dýrategundin á jörðinni sem hefur húmor. Simpansar hafa reyndar vott af húmor en hann er á frekar lágu plani; svokallaður kúk og piss húmor. Dýrin eru einfaldlega ekki nógu gáfuð til að hafa húmor. Þau hafa ekki tímaskyn og geta ekki hugsað abstrakt. Íslenska orðið yfir húmor er enda “kímnigáfa.” Skoðun 7.5.2010 20:02
Kæri Reykvíkingur Ég stofnaði Besta flokkinn vegna þess að ég var orðinn leiður á hegðun og framkomu stjórnmálamanna í borginni og langaði að gera athugasemd sem mark væri tekið á. Mig langaði að stríða þessu fólki, með því að draga upp afskræmda spegilmynd af því sjálfu. Ég var fyrir löngu orðinn þreyttur á að horfa uppá borgina mína drabbast niður af vanrækslu og skipulagsleysi. Ég var orðinn þreyttur á innantómum vaðli stjórnmálamanna, loforðum þeirra, valdabaráttu, yfirborðsmennsku og hroka. Þess vegna byrjaði ég á þessu og fékk til liðs við mig fólk sem ég þekki og treysti og vissi að var sammála mér. Viðbrögð kjósenda hafa svo sýnt okkur að við erum ekki ein um þessa skoðun. Fólk er bara búið að fá nóg. Sá mikli stuðningur sem framboðið hefur fengið kom mér töluvert á óvart og mér finnst það því skilda mín að útskýra mál mitt betur fyrir fólki og lýsa því yfir að ef það er vilji kjósenda þá erum við til í að gera okkar besta. Skoðun 1.5.2010 20:18