Helstu fréttir
1 2 3 4 ›
Gosið sást greinilega frá Reykjavík Gosið úr Grímsvötnum sást greinilega víða á landinu í gærkvöld. Meðal annars í Reykjavík. Sveinn Þorsteinsson, lesandi Vísis, var staddur í Öskjuhlíð í gærkvöld og tók þá þessa mynd af gosmekkinum. Innlent 22.5.2011 06:38
Keflavíkurflugvöllur opinn til sjö Keflavíkurflugvöllur verður opinn fram til klukkan sjö og þá verður staðan metin að nýju. Sama gildir um innanlandsflug. Staðan fyrir daginn verður svo metin aftur eftir það. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sendi frá sér nú í nótt. Eldgos hófst í Grímsvötnum um klukkan sjö í gærkvöld og var samhæfingamiðstöðin í Skógarhlíð samstundis virkjuð vegna hennar. Innlent 22.5.2011 06:12
Aska fellur víða til jarðar Aska hefur fallið víða í byggð í nágrenni Vatnajökuls og hefur talsvert verið um öskufall á Kirkjubæjarklaustri og sveitinum í kringum. Einnig hefur orðið vart við öskufall á Höfn í Hornarfirði. Askan er fín og berst til suðausturs. Líkt og Vísir greindi frá fyrr í kvöld hvetja almannavarnir íbúa á svæðinu í nágreni Vatnajökuls að halda sig innan dyra vegna eldgossins í Grímsvötnum sem hófst á sjöunda tímanum í kvöld. Innlent 21.5.2011 23:19
Mun öflugra gos en 2004 "Þetta er mun öflugra gos en árið 2004. Það sést á hæð gosmakkarins og öskudreifingu,“ segir Björn Oddsson, jarðfræðingur hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Björn var að koma úr flugi yfir gosstöðvarnar. Í fluginu voru fulltrúar helstu viðbragðsaðila vegna eldgossins. Innlent 21.5.2011 23:16
Gosmökkurinn sést frá Reykjavík Gosið í Grímsvötnum virðist vera mjög öflugt, segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, jarðskjálftafræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi. Hann segir að mökkurinn sjáist alla leið frá Reykjavík. Innlent 21.5.2011 22:07
Grimsvatnagosið í heimsfréttunum Fjölmiðlar víða um heim hafa í kvöld sagt frá eldgosinu í Grímsvötnum minnugir þess hve mikil röskun varð á flugi í fyrra þegar Eyjafjallajökull gaus. Innlent 21.5.2011 21:53
Búist við hlaupi í Grímsvötnum "Það má búast við einhverju hlaupi í Grímsvötnum vegna gossins,“ segir Matthew Roberts, vatnamælingamaður hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir þó að það liggi fyrir að vegna þess að það varð jökulhlaup í Grímsvötnum í nóvember í fyrra þá sé hugsanlegt að hlaupið verði ekki stórt. "Spurningin er núna hvar gosið er. Við vitum það ekki fyrir víst hvar það er," segir Matthew. Innlent 21.5.2011 21:21
Flogið um Keflavíkurflugvöll þrátt fyrir gosið Eldgosið í Vatnajökli kemur ekki í veg fyrir að hægt sé að lenda á eða taka á loft á Keflavíkurflugvelli, segir Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Isavia. Innlent 21.5.2011 20:53
Allir viðbragðsaðilar komnir af stað vegna gossins "Það er búið að setja allt í gang, almannavarnir og búið að tilkynna þetta erlendis,“ segir Hjörleifur Sveinbjörnsson, skjálftafræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Hann segir að strókurinn frá gosinu sjáist víða af á landinu. "Hann sést jafnvel frá Selfossi,“ segir Hjörleifur. Því sé ekki um að villast að gosið sé hafið. Hins vegar sé ekki ljóst hversu mikið gosið sé. Verið sé að undirbúa flug til að sjá gosið og finna nákvæma staðsetningu þess. Allt bendi hins vegar til þess að það sé í Grímsvötnum. Innlent 21.5.2011 19:41
Gosmökkurinn sést víða Gosmökkurinn frá Grímsvötnum í Vatnajökli sést víða og hefur risið hratt frá því að hans varð vart. Íbúar á Selfossi, Laugarvatni og Flúðum eru meðal þeirra sem haft hafa samband við fréttastofu síðustu mínútur. Samkvæmt sjónarvottum á Flúðum er mökkurinn dökkur neðst en að mestu hvítur. Samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum sést mökkurinn einnig frá Skaftafelli, Vík og víðar á Suðurlandi. Innlent 21.5.2011 19:40
Eldgos í Grímsvötnum staðfest „Það sést til gosmakkar. Þannig að það er staðfest að eldgos er hafið," segir Víðir Reynisson, hjá almannavörnum Ríkislögreglustjóra, í samtali við Vísi. Hann segir ómögulegt að segja til um það hversu mikið gosið er. Innlent 21.5.2011 19:26
Eldgos að hefjast í Grímsvötnum Á sjöunda tímanum í kvöld komu fram merki á jarðskjálftamælum um að eldgos gæti verið að hefjast eða er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Samhæfingarstöðin í Skógarhlíð hefur verið virkjuð vegna þessa. Frekari upplýsingar verða gefnar um leið og þær berast, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum Innlent 21.5.2011 19:06
Aukafréttatími vegna eldgossins Aukafréttatími verður á Stöð 2 á slaginu klukkan tólf, sunnudaginn 22. maí, vegna eldgossins í Vatnajökli. Eldgosið er mun meira en það var síðast þegar gaus á þessu svæði árið 2004. Flugvél flugfélagsins Ernis flaug yfir gosstöðvarnar í kvöld og með í för var Egill Aðalsteinsson kvikmyndatökumaður á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis. Myndirnar verða sýndar í aukafréttatímanum. Innlent 22.5.2011 01:29
Gosmökkurinn mikill og öskufall víða Askan frá eldgosinu í Grímsvötnum er nú farin að dreifa sér víða eins og sést á þessari mynd sem Vihelm Gunnarsson ljósmyndari tók af lögreglumanni á Kirkjubæjarklaustri. Almannavarnir hafa sent frá sér viðvörun vegna öskufalls frá gosinu. Innlent 22.5.2011 00:29
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent