Stj.mál
34 35 36 37 38 39 40 41 42 … 187 ›
Vilja gagnsæi í starfskjörum þingmanna og ráðherra Samtök atvinnulífsins segja að ekki skapist sátt um starfskjör kjörinna fulltrúa ef þau verði áfram ógagnsæi og ákvörðuð á mörgum stöðum. Þau vilja að þingmenn og ráðherrar deili lífeyriskjörum með öðrum í landinu en miðað við núverandi stöðu geta lífeyriskjör ráðherra umfram almenna launþega eftir þrjú kjörtímabil verið ígildi yfir 100 milljóna króna starfslokagreiðslu. Innlent 4.5.2006 22:58
Deilt um skattbyrði í ljósi nýrra útreikninga Síðustu þrír fjármálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru mestu skattpíningarráðherra Íslandssögunnar fyrir fólk með lágar tekjur og meðaltekjur, sagði Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar í umræðum á þingi í kvöld um skattbyrði. Fjármálaráðherra sakaði Samfylkinguna um hentistefnu í skattaumræðum og sagði vitlausar fullyrðingar um skattbyrði ekki verða réttari þótt fleiri endurtækju þær. Innlent 4.5.2006 22:53
Sakar stjórnarandstöðu um verðbólguna Stjórnarandstæðingar sökuðu stjórnarliða um að flýja af hólmi fyrir sveitarstjórnarkosningar og forðast að ræða efnahagsmál. Þingmaður Framsóknarflokksins svaraði með því að segja að stjórnarandstaðan hefði talað upp verðbólguna. Innlent 4.5.2006 15:06
Síðasti þingfundadagur fyrir kosningar Aðeins tvö frumvörp, og jafnvel bara eitt, verða að lögum frá Alþingi í dag, á síðasta þingfundadegi fyrir sveitarstjórnarkosningar. Þing kemur saman klukkan hálf tvö í dag og er það í síðasta sinn fyrir sveitarstjórnarkosningar í lok mánaðarins. Innlent 4.5.2006 12:04
Færist undir samgönguráðuneytið Yfirtakan á rekstri Keflavíkurflugvallar undir stjórn utanríkisráðuneytisins er aðeins biðleikur þar til völlurinn verður færður undir samgönguráðuneytið. Innlent 4.5.2006 12:06
Síðustu þingfundir fyrir kosningar Alþingi kemur saman til fundar í dag í síðasta skipti fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fara fram 27. maí. Þing kemur næst saman 30. maí. Allar líkur eru á að tvö frumvörp verði að lögum í dag. Innlent 4.5.2006 08:40
Þingfundum frestað á morgun til 30. maí Þingfundum verður frestað á morgun en þing kemur saman aftur 30. maí og starfar þá í tvær vikur. Þetta var ákveðið í dag á fundi formanna þingflokka með forseta Alþingis. Innlent 3.5.2006 17:14
Gæti kostað sex milljarða í fyrstu Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli getur kostað hátt í sex milljarða króna fyrsta árið eftir að Íslendingar taka við rekstri þess. Rekstur flugvallarins kostar um 1.400 milljónir króna á ári og stofnkostnaður gæti hlaupið á milljörðum. Innlent 3.5.2006 12:04
Fjölmargir fara á mis við vaxtabætur Fjölmargar fjölskyldur, sem eiga von á umtalsverðum vaxtabótum eins og í fyrra, og miða jafnvel einhverjar greiðslur við það, fá ekki krónu þegar álagningarseðlarnir berast í sumar. Innlent 3.5.2006 12:03
Atvinna, fjölskyldu- og skipulagsmál í forgrunni L-listinn, listi fólksins sem býður fram í 3. sinn í sveitarstjórnarkosningunum 27. maí næstkomandi kynnti stefnuskrá sína í morgun undir yfirskriftinni "Afl fyrir Akureyri til 2010". Þar er áherslan meðal annars lögð á fjölskylduvænni bæ, eflingu skóla, fría leikskóla og almenningssamgöngur og þá vill L-listinn að bæjarstjóri Akureyrar verði ráðinn á faglegum forsendum. Innlent 3.5.2006 11:52
Umhverfismat seinkar ekki gangagerð Íbúasamtök Laugardalshverfa og Grafarvogs segja það misskilning að framkvæmdir á Sundabraut muni tefjast vegna umhverfismats á jarðgöngum. Innlent 3.5.2006 07:21
Þúsundir missa allar vaxtabætur sínar Margir eiga eftir að fá óvæntan fjárhagslegan skell þegar álagningarseðlarnir berast í sumar, því þúsundir heimila munu missa allar vaxtabætur vegna hækkunar húsnæðisverðs. Þetta kom fram í máli Atla Gíslasonar þingmanns Vinstri grænna á Alþingi í gær. Innlent 3.5.2006 07:16
Hálfur annar milljarður í slökkviliðið Það kostar ríkissjóð tæpan einn og hálfan milljarð króna að yfirtaka rekstur slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli. Þetta kemur fram í umsögn fjármálaráðuneytisins um flutning slökkviliðsins undir flugvallarstjórann á Keflavíkurflugvelli. Innlent 3.5.2006 07:06
Þingfundur stendur enn Þingfundur stendur enn á Alþingi en hann hófst í dag laust eftir hádegi. Verið er að ræða breytingar á lögum um almannatryggingar vegna uppsagnar sjálfstætt starfandi sérfræðinga í hjartalækningum á samningi við ríkið. Innlent 2.5.2006 22:19
Í-listinn fengi hreinan meirihluta Í-listinn, sameiginlegt framboð Samfylkingarinnar, Vinstri - grænna, Frjálslyndra og óháðra á Ísafirði, næði hreinum meirihluta í bæjarstjórn ef kosið yrði nú. Þetta kemur í ljós í nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir NFS. Átta ára valdatíð sjálfstæðismanna og framsóknarmanna virðist á enda samkvæmt þessu. Innlent 2.5.2006 21:03
Kjósa milli þriggja nafna á Ströndum Heimabyggð, Strandabyggð, Strandahreppur og Sveitarfélagið Standir eru þær tillögur að nýju nafni á sameinað sveitarfélag Broddanes- og Hólmavíkurhreppa sem samstarfsnefnd um sameiningu hefur sent til umsagnar til örnefnanefndar. Þetta kemur fram á vefnum Strandir.is. Innlent 2.5.2006 17:33
Borgarafundur á Ísafirði í kvöld Bæjarmálin á Ísafirði verða í brennidepli á fimmta borgarafundinum sem NFS efnir til í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Þá verða kynntar niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar á fylgi flokkanna í bænum. Innlent 2.5.2006 13:56
Vinstri-grænir kynna lista sinn Þorgrímur Einar Guðbjartsson á Erpsstöðum leiðir framboðslista Vinstri-grænna í Dalasýslu fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Framboðslistinn var samþykktur einróma á félagsfundi Vinstri-grænna í gær. Innlent 1.5.2006 12:28
Femínistafélagið fær jafnréttisverðlaun Femínistafélag Íslands hlaut Jafnréttisverðlaun Reykjavíkurborgar. Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti í dag og sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri að það hefði komið á óvart hversu margar tilnefningar bárust. Innlent 1.5.2006 11:52
Kosningarnar framundan lita Gustsmálin Kosningarnar í vor hafa hugsanlega áhrif á deilurnar sem sprottnar eru upp um kaup á húsum á hinu svokallaða Gustssvæði, segir talsmaður viðræðunefndar Gusts. Forsvarsmenn félagsins sáu sig knúna til að kalla til fundar í kvöld til að skýra málin fyrir félagsmönnum. Innlent 28.4.2006 22:37
Sveitarfélag Ölfuss og OR semja um samstarf Sveitarfélagsins Ölfuss og Orkuveita Reykjavíkur hafa gert með sér samkomulag sem felst meðal annars í lýsingu Þrengslavegar, samstarf við uppgræðslu og umhverfisvernd, framkvæmdir í sveitarfélaginu og ljósleiðaravæðingu í þar. Innlent 28.4.2006 14:03
Frumvarp um frjálst flæði vinnuafls samþykkt Frumvarp til laga um breytingar á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks innan EES og um atvinnuréttindi útlendinga var samþykkt á Alþingi nú á öðrum tímanum með 46 greiddum atkvæðum. Frumvarpið snýr að réttindum ríkisborgara frá átta af tíu hinna nýju Evrópusambandsríkja. Þeir geta nú komið hingað til lands og ráðið sig í vinnu án atvinnuleyfis frá og með 1. maí. Innlent 28.4.2006 13:54
Frumvarp til laga um frjálsa för verkafólks rætt á þingi Nú stendur yfir á þingi önnur umræða um frumvarp um breytingar á lögum um frjálsan atvinnu- og búseturrétt launafólks innan EES og um atvinnuréttindi útlendinga. Lögin eiga að taka gildi 1. maí og því liggur á að samþykkja þau. Innlent 28.4.2006 12:24
Ólíklegt að Íslendingar fái breytt varnaráætlun Ólíklegt má telja að Íslendingar fái nokkru breytt um þá varnaráætlun sem sendinefnd Bandaríkjamanna kynnti í íslenska utanríkisráðuneytinu í gær. Ekki síst í ljósi þess að varnarliðið birti í gær áætlun um um lokun allra þjónustustofnana við varnarliðsmenn áður en fundur fulltrúa Íslendinga og Bandaríkjamanna hófst í gær. Innlent 28.4.2006 12:18
Frakka íhuga að auka umsvif sín á N-Atlantshafi Frakkar íhuga að auka umsvif sín á Norður-Atlantshafi til að tryggja öryggi á svæðinu. Þetta segir Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í viðtali við Morgunblaðið eftir viðræður við varnarmálaráðherra Frakklands í París í gær. Innlent 28.4.2006 08:47
Óttast að laun verkafólks lækki Laun verkafólks geta versnað til muna ef lagafrumvarp um frjálsa för austur-evrópskra launamanna verður að lögum segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness. Alþingi tekur frumvarpið fyrir á morgun. Innlent 27.4.2006 20:27
Ávinna sér rétt sem jafngildir 90 milljónum króna í starfslokagreiðslu Ráðherra sem situr í 12 ár á stóli ávinnur sér lífeyrisrétt sem jafngildir 90 milljónum króna í starfslokagreiðslu umfram það sem almennur iðgjaldagreiðandi fær. Þetta sýna útreikningar Samtaka atvinnulífsins. Alþýðusamband Íslands segir þetta ólíðandi og mótmælir nýju frumvarpi til laga um kjararáð þar sem ráðið eigi ekki að fjalla um lífeyrisréttindin. Innlent 27.4.2006 18:50
Gríðarlegt ofbeldi og vitleysa Gríðarlegt ofbeldi og vitleysa eru orðin sem forstjóri 365 miðla notar um þá fyrirætlan ráðamanna að koma fjölmiðlafrumvarpinu og frumvarpinu um hlutafélagavæðingu Ríkisútvarpsins í gegn fyrir þinglok. Innlent 26.4.2006 22:24
Sundabraut í göng fyrsti kostur Fyrsti valkostur við lagningu Sundabrautar er að leggja hana í göng segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóraefni Samfylkingarinnar. Hann segir að nú snúi upp á Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra að tryggja fjármögnun framkvæmdarinnar. Innlent 26.4.2006 17:31
Gætu byrjað á tvöföldun á Kjalarnesi Samgönguráðherra telur koma til greina að byrja framkvæmdir vegna lagningar Sundabrautar á Kjalarnesi. Þannig megi losa Sundabrautina úr gíslingu borgarstjórnar Reykjavíkur. Innlent 26.4.2006 16:18