Stj.mál
20 21 22 23 24 25 26 27 28 … 187 ›
Óttast að Framsóknarmenn komi í veg fyrir þingsetu Svo gæti farið að varaþingmaður, sem sagði sig úr Framsóknarflokknum, taki sæti á þingi á næstunni. Hann óttast þó að flokkurinn reyni að koma í veg fyrir það. Innlent 5.10.2006 20:34
600 hjón með 60% fjármagnstekjna 600 hjón eru með 60% allra fjármagnstekna á Íslandi. Þetta kom fram í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, í utandagskrárumræðu um aukinn ójöfnuð í íslensku samfélagi á Alþingi í dag. Geir H. Haarde, forsætisráðherra, segist ekki missa svefn þótt einhverjir hafi hagnast á viðskiptum, aðalatriðið sé að kaupmáttur landsmanna allra hafi aukist gríðarlega undanfarin ár. Innlent 5.10.2006 19:18
Ný skýrsla áfellisdómur yfir fyrri meirihluta að mati borgarstjóra Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri, segir nýja skýrslu KPMG um fjárhagsstöðu Reykjavíkurborgar, áfellisdóm yfir fjármálastjórn síðasta meirihluta. Skýrslan var kynnt í borgarráði í dag og segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg að sérfræðingar KPMG telji að ná megi fram aukinni skilvirkni í fjármálastjórn og reikningshaldi borgarinnar. Fara þurfi yfir fjármálastjórn borgarinnar í heild sinni og leita leiða til að ná betri rekstrarárangri. Innlent 5.10.2006 15:21
Prófkjör hjá Vinstri-grænum í desember Vinstri grænir halda prófkjör í Reykjavíkurkjördæmi suður, Reykavíkurkjördæmi norður og í Suðvesturkjördæmi þann 2. desember næstkomandi. Í prófkjörinu verða valdir fjórir efstu frambjóðendurnir á þrjá framboðslista svæðisins. Innlent 5.10.2006 14:56
Róbert Marshall í framboð í Suðurkjördæmi Róbert Marshall, fyrrverandi forstöðumaður NFS, sækist eftir 1. til 2. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar næsta vor. Innlent 4.10.2006 23:03
Jón fram í Reykjavík Jón Sigurðsson, formaður Framsóknarflokksins og iðnaðar- og viðskiptaráðherra, ætlar að bjóða sig fram í öðru hvoru Reykjavíkur kjördæmanna í Alþingiskosningunum í vor. Þetta tilkynnti hann á fundi á Grand hóteli í kvöld. Innlent 4.10.2006 22:09
Fær frjálsan aðgang að gögnum Nefnd sem forsætisráðherra skipaði í vor til að setja reglur um aðgang að opinberum gögnum um öryggismál, fær frjálsan aðgang að öllum gögnum í vörslu stjórnvalda sem snerta öryggismál landsins á árunum 1945 til 1991, samkvæmt frumvarpi sem kynnt var á Alþingi í kvöld. Innlent 4.10.2006 17:29
Öll spil á borðið Halldór Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist í ræðu á Alþingi í kvöld vera sammála formanni Vinstri grænna um að mikilvægt væri að fá öll spil á borðið varðandi Kaldastríðs árin á Íslandi. Tími sé kominn til að draga fram afstöðu manna á hverjum tíma. Ræða þurfi hvaðan flokkar hafi fengið fjárstuðning á liðnum árum og sagði hann að formenn Samfylkingar og Vinstri grænna hefðu báðir dregið taum utanríkisstefnu Sovétríkjanan á áttunda áratug liðinnar aldar. Innlent 3.10.2006 22:13
Gera þarf upp Kalda stríðið á Íslandi Nauðsynlegt er að gera upp atburði kalda stríðsins í kjölfar brotthvarfs hersins að mati Steingríms J. Sigfússonar, formanns Vinstri grænna. Þetta kom fram í ræðu hans á Alþingi í kvöld. Hann sagði að leggja þyrfti öll spil á borðið og upplýsa um símhleranir og njósnir sem fólk virðist hafa mátt sæta vegna skoðana sinna. Stofna þyrfti sannleiksnefnd í því máli. Innlent 3.10.2006 21:21
Rangfærslur og misskilningur um undirbúning Kárahnjúkavirkjunar Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, segir hafa orðið vart við ótrúlegar rangfærslur og misskilning í umræðunni um undirbúning Kárahnjúkavirkjunar. Þetta kom fram í ræðu hans á Alþingi í kvöld. Hann sagði andstæðinga framkvæmdanna hafa sáð fræjum ótta og kvíða með málflutningi sínum. Ráðherra sagði unnið að samfelldri heildaráætlun um nýtingu og vernd auðlinda. Megin stefnan væri að ráðdeild og aðgát, varúð og virðing ráði ferð við nýtingu þeirra. Innlent 3.10.2006 21:11
Ríkisstjórnin mætir tómhent til leiks Ríkisstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks mætir tómehnt til leiks á nýju þingi að mati Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar. Þetta kom fram í ræðu hennar á Alþingi í kvöld. Hún segir forsætisráðherra ekki hafa talað um framtíðina í stefnuræðu sinni á þingi í kvöld og sá forsætisráðherra sem geri það ekki sé saddur og fullmettur og hafi ekki brennandi áhuga á að laga það sem betur megi fara. Innlent 3.10.2006 21:01
Stjórnarandstaðan í tilhugalífinu Stjórnarandstaðan er í tilhugalífinu, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Formenn stjórnarandstöðuflokkanna kynntu í dag, á sameiginlegum fundi, þrjú þingmál sem flokkarnir standa að. Ætlun þeirra er að sameinast um fleiri þingmál á þessu haustþingi auk þess að standa sameiginlega að kosningum í nefndir og ráð á vegum þingsins. Innlent 2.10.2006 19:35
Alþingi sett á morgun Alþingi verður sett á morgun við hátíðlega athöfn sem hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö. Sólveig Pétursdóttir, forseti alþingis, gefur áfram kost á sér í embætti forseta en hún hefur ákveðið að hverfa af vettvangi stjórnmálanna eftir þennan vetur. Innlent 1.10.2006 18:25
Mikilvægt að andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar verði í öndvegi Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, segir mikilvægt að andstæðingar Kárahnjúkavirkjunar verði í öndvegi á framboðslistum flokksins fyrir kosningar vegna nýrrar umhverfisstefnu flokksins, Fagra Ísland. Hann hafi því ákveðið að gefa kost á sér í fjórða sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík Innlent 1.10.2006 18:03
Sjálfstæðismenn með prófkjör í Suðurkjördæmi 11. nóv. Kjördæmisráð sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi ákvað á fundi sínum í dag að halda prófkjör þann 11. nóvember til að velja á framboðslista flokksins í kjördæminu fyrir komandi þingkosningar. Tólf hafa lýsti yfir framboði í prófkjörinu og er ljóst að baráttan verður hörð. Innlent 1.10.2006 17:23
Guðfinna stefnir á þriðja sætið í Reykjavík Guðfinna Bjarnadóttir, rektor háskólans í Reykjavík, tilkynnti á fundi í Iðnó nú klukkan fjögur að hún hygðist gefa kost á sér í þriðja sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í prófkjöri fyrir alþingiskosningar næsta vor. Guðfinna hyggst ljúka þessu skólaári og taka ákvarðanir í framhaldinu, út frá genginu í prófkjörinu og í samráði við stjórn skólans, hvort hún haldi áfram sem rektor. Innlent 1.10.2006 17:05
Um sjötíu manns skoðuðu herstöðina á Miðnesheiði Um sjötíu manns á vegum Samtaka herstöðvaandstæðingar hafa í dag skoðað herstöðina á Miðnesheiði eftir að Bandaríkjaher fór þaðan í gær. Voru þeir fyrstir almennra borgara að gera það. Hópurinn fór um svæðið og skoðaði markverðustu staði í fylgd leiðsögumanns. Innlent 1.10.2006 15:35
Guðfinna á leið í pólitík Guðfinna Bjarnadóttir, rektor háskólans í Reykjavík hefur ákveðið að gefa kost á sér í eitt af efstu sætunum á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík í prófkjöri fyrir Alþingiskosningar næsta vor. Hún mun tilkynna um ákvörðun sína opinberlega síðar í dag. Innlent 1.10.2006 12:41
Fyrstir almennra borgara til að skoða herstöð Herstöðvaandstæðingar verða fyrstir almennra borgara til að skoða herstöðina á Miðnesheiði eftir að Bandaríkjamenn yfirgáfu svæðið í gær. Stöðin telst ennþá vera varnarsvæði. Af þeim sökum gilda þar strangar reglur. Innlent 1.10.2006 11:53
Fjarskiptastöð í Grindavík mikilvæg í hernaðarlegum samskiptum Fjarskiptastöð bandaríska flotans í Grindavík gegnir engu beinu hlutverki í vörnum landsins. Samkvæmt heimildum NFS er hún hins vegar mikilvægur hlekkur í hernaðarlegum samskiptum herskipa og kafbáta Bandaríkjahers. Innlent 1.10.2006 12:13
Bera ekki ábyrgð á vatnsmengun við Keflavíkurflugvöll Bandaríkjamenn bera ekki ábyrgð á vatnsmengun á svæðinu við Keflavíkurflugvöll. Þeir firrtu sig ábyrgð með því að kosta nýja vatnsveitu fyrir Keflavík og Njarðvík fyrir sautján árum. Innlent 1.10.2006 11:35
Herstöðvaandstæðingar fagna brottför hersins Herstöðvaandstæðingar halda klukkan tólf til Suðurnesja þar sem þeir munu fagna því að Bandaríkjaher er farinn af landi brott. Farið verður á slóðir herstöðvarinnar og minnisvarðar um hersetuna skoðaðir. Innlent 1.10.2006 10:04
Borgar sækist eftir fjórða sæti í NV-kjördæmi Borgar Þór Einarsson, formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna, gefur kost á sér í 4. sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá honum. Innlent 30.9.2006 18:26
Krefjast þess að fá land varnarliðsins aftur Eigendur að stórum hluta þess lands sem tekið var undir herstöðina á Keflavíkurflugvelli krefjast þess að fá landið til baka nú þegar íslensk stjórnvöld taka við því við brottför hersins. Landeigendurnir hafa aldrei sætt sig við landtökuna, hafnað nauðungarbótum og staðið í lagaþrætu við Bandaríkjaher og utanríkisráðuneytið í sextíu og fimm ár. Innlent 30.9.2006 18:32
Sameiginlegt prófkjör hjá Vg á höfuðborgarsvæðinu Vinstri - grænir hafa ákveðið að halda sameiginlegt forval í báðum Reykjavíkurkjördæmunum og Suðvesturkjördæmi fyrir komandi þingkosningar. Þetta varð ljóst eftir að kjördæmisráð flokksins í Suðvesturkjördæmi samþykkti tillögu þar að lútandi á fimmtudag. Innlent 30.9.2006 16:11
Vill að kannað verði hvort jafnræðisregla hafi verið brotin Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor hefur skrifað menntamálaráðherra og óskað eftir svari við því hvort Þjóðskjalasafnið hafi brotið jafnræðisreglu stjórnsýslulaga þegar það veitti fræðimönnunum Helgu Kress og Halldóri Guðmundssyni aðgang að bréfasafni Halldórs Laxness en synjaði Hannesi um slíkan aðgang árið 2003. Innlent 30.9.2006 15:04
Iceland Naturally hleypt af stokkunum í Þýskalandi Verkefnið Iceland Naturally, þar sem náttúra Íslands og matvæli eru kynnt á erlendum mörkuðum, hófst formlega í Þýskalandi á fimmtudag. Samgönguráðherra flutti ávarp við opnun jarðvísindasýningar í Frankfurt en þar er Ísland kynnt í sérstakri deild. Innlent 30.9.2006 14:04
Þjónustusamningur sýnir að hlutafélagavæðing sé óþörf Þjónustusamningurinn við Ríkissjónvarpið sýnir að hlutafélagavæðing RÚV er óþörf segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar. Forseti Bandalags íslenskra listamanna fagnar samningnum en telur RÚV hafa efni á að gera enn betur. Innlent 30.9.2006 12:48
Fram fari óháð rannsókn á leyniþjónustu í kalda stríðinu Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, segir Sjálfstæðisflokkinn eiga að koma hreint fram og láta fara fram óháða rannsókn á hvernig flokkurinn kom að rekstri leyniþjónustu hér á landi á tímum kalda stríðsins. Hann fagnar því að ríkisstjórnin ætli að breyta lögum til að auðvelda störf nefndar sem er að skoða gögn um símahleranir og starfsemi öryggislögreglu. Innlent 30.9.2006 12:26
Bandaríski herinn kveður í dag Bandaríski herinn fer af landi brott í dag eftir fimmtíu og fimm ára veru á Miðnesheiði. Herstöðvaandstæðingar sem ætla að fagna brottför hersins við herstöðina á morgun fá ekki að draga íslenska fánann þar að húni. Innlent 30.9.2006 12:02