Stj.mál

Fréttamynd

Vopnahléið enn við lýði

Leiðtogi Hamas-samtakanna segir að vopnahlé á milli Ísraels og Palestínu sé enn við lýði þrátt fyrir ofbeldi og árásir undanfarinna daga. Sem fyrr er ofbeldi á báða bóga réttlætt með því að hinn aðilinn hafi átt fyrsta leikinn.

Innlent
Fréttamynd

Kosningar gætu eflt Samfylkinguna

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni á landsfundi flokksins í dag að þúsundir hefðu gengið til liðs við Samfylkinguna vegna formannskosninganna. Kosningarnar gætu því markað tímamót og eflt flokkinn til langframa.

Innlent
Fréttamynd

Æðra stjórnvald stjórni ekki

Yfirvöld eiga ekki að skipta sér af ættleiðingarferli ef barnaverndarnefnd hefur skorið úr um hvort einhver sé hæfur til að ættleiða eða ekki. Þetta segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, um mál Lilju Sæmundsdóttur sem hefur verið hafnað um að fá að ættleiða vegna þess að hún þykir of feit.

Innlent
Fréttamynd

Vill ekki rannsókn á atburðunum

Islam Karimov, forseti Úsbekistan, er mótfallinn því að alþjóðastofnanir fari ofan í kjölinn á atburðum í borginni Andijan undanfarna daga. Að sögn talsmanna Sameinuðu þjóðanna telur Karimov nóg að fjölmiðlafólk og starfsmenn alþjóðastofnana hafi fengið að heimsækja borgina á miðvikudaginn.

Innlent
Fréttamynd

Búist við sigri Ingibjargar

Búist er við því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir beri sigurorð af sitjandi formanni, Össuri Skarphéðinssyni, í formannskosningu Samfylkingarinnar. Úrslit verða kynnt á hádegi í dag á landsfundi flokksins. Talið er að þrír muni gefa kost á sér í varaformanninn, Ágúst Ólafur Ágústsson, Lúðvík Bergvinsson og Björgvin G. Sigurðsson. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Gætu unnið náið saman

Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur segir að pólitísk framtíð þess sem verður undir í formannskjöri Samfylkingarinnar ráðist meðal annars af því hversu afgerandi úrslitin verða. Ef það verður mjótt á mununum gæti orðið um nánari samvinnu að ræða. Hann segir litla þátttöku í kosningunum skýrast af því að fleiri séu skráðir í stjórnmálaflokka en kæri sig um.

Innlent
Fréttamynd

Leggjum niður allar deilur

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, talaði fyrir sáttum fylkinga innan flokksins að loknum formannsslagnum. Tímabilið fram að næstu kosningum verði hið mikilvægasta í sögu flokksins. Flokkurinn ætli sér að verða stærsti flokkurinn í næstu kosningum. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Ekki kosið aftur um stjórnarskrána

Hafni Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins verður hún ekki lögð í dóm kjósenda á nýjan leik með breyttu sniði. Þetta segir Jean Claude Junker, forsætisráðherra Lúxemborgar og núverandi forseti Evrópusambandsins.

Innlent
Fréttamynd

Spurning um reynslu og bakgrunn

"Ég tel mig hafa þá reynslu, þekkingu og getu sem þarf til að takast á við þetta verkefni. Ég tel að hún muni nýtast mjög vel," segir Lúðvík Bergvinsson þingmaður, sem hefur gefið kost á sér í embætti varaformanns Samfylkingar.

Innlent
Fréttamynd

Endalok stjórnarskrár ESB?

Forseti Evrópusambandsins segir að hafni Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins þýði það endalok hennar. Tuttugu og fimm háttsettir stjórnmálamenn frá allri Evrópu hafa verið fengnir til Frakklands til þess að hjálpa stjórnvöldum í landinu við að telja almenningi trú um ágæti stjórnarskrárinnar.

Erlent
Fréttamynd

Tveir samningar undirritaðir

Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, hefur undirritað tvo samstarfssamninga á sviði umhverfismála við kínversk yfirvöld. Samningarnir eru á sviði jarðskjálftavár og umhverfisverndar og koma í kjölfar tveggja funda sem Sigríður átti í Kína.

Innlent
Fréttamynd

Afmælis kosningaréttar minnst

„Konur viðurkenndar löglegir borgarar þjóðfélagsins.“ Þetta var fyrirsögnin á grein Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í <em>Kvennablaðinu</em> um þær gleðifregnir sem bárust frá Kaupmannahöfn sumarið 1915 að konum hefði verið veittur kosningaréttur og kjörgengi til Alþingis. Í ár eru liðin níutíu ár frá þessum tímamótum og því er fagnað með ýmsum hætti.

Innlent
Fréttamynd

Þjóðin vill nýja stjórn

Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði við setningu landsfundar flokksins í Egilshöll í dag að á skömmum tíma hefði Samfylkingin náð þeim trúnaði fólksins í landinu að verða annað stóra aflið í íslenskum stjórnmálum. Þjóðin vildi nýjar hugmyndir, nýjar lausnir og nýja landsstjórn.

Innlent
Fréttamynd

Lægst skattbyrði á Norðurlöndum

Skattbyrði á Íslandi er lægri en annars staðar á Norðurlöndum en hærri en í sumum öðrum ríkjum Vestur-Evrópu. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu OECD um skattbyrði einstaklinga á árinu 2004, sem vefrit fjármálaráðuneytisins fjallar um í dag. Skattar á meðaltekjur einstaklinga á Íslandi, að frádregnum tekjutilfærslum, mældust 25,7 prósent af heildartekjum.

Innlent
Fréttamynd

Atkvæðagreiðslu lýkur í dag

Frestur til að skila inn atkvæðum í formannskjöri Samfylkingarinnar rennur út klukkan sex í kvöld. Þeir seðlar sem berast eftir þann tíma verða ekki taldir með.

Innlent
Fréttamynd

Aðeins eitt álver vegna mengunar

Aðeins er svigrúm fyrir eitt stórt álver í viðbót á Íslandi til ársins 2012 samkvæmt íslenska sérákvæðinu í Kyoto-bókuninni. Þetta er talið ýta undir álverskapphlaupið sem nú er hafið. Valdið til að úthluta mengunarkvótanum er í höndum iðnaðarráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Gunnar hvattur til að segja af sér

Frambjóðendur og stuðningsmenn Frjálslynda flokksins í Suðvesturkjördæmi, kjördæmi Gunnars Arnar Örlygssonar, hvetja hann til að segja af sér þingmennsku. Þetta kemur fram í ályktun frambjóðenda og stuðningsmanna flokksins fyrir síðustu kosningar í kjördæminu. Þar er harmað að Gunnar hafi snúið baki við félögum sínum og gengið í Sjálfstæðisflokkinn en með þeirri gjörð hafi hann fyrirgert því trausti sem til hans hafi verið borið.

Innlent
Fréttamynd

Rúmlega 11 þúsund kusu formann

Frestur til að kjósa formann Samfylkingarinnar og skila atkvæðinu rann út nú klukkan sex. Alls bárust rúmlega 11 þúsund atkvæði en úrslit verða birt á hádegi á laugardaginn.

Innlent
Fréttamynd

Fáar konur í stjórnum innan ASÍ

Konur skipa aðeins níu af 66 stjórnarsætum í þeim landssamböndum sem aðild eiga að Alþýðusambandi Íslands. Þetta kemur fram í niðurstöðum rannsóknar nema í stjórnmála- og viðskiptafræði við Háskóla Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Vara við óheftri stóriðju

Þingflokkur Vinstri-hreyfingarinnar - græns framboðs hefur sent frá sér ályktun þar sem varað er við því að halda áfram á braut óheftrar stóriðju á landinu. Mælst er til þess að öllum frekari stóriðjuskuldbindingum verði frestað fram yfir næstu kosningar. Vinstri - grænir segja stjórnvöld nú kynda undir hömlulausri útþenslu stóriðju og telja ruðningsáhrifin af þeirri þróun á aðra hluta atvinnulífsins verða alvarleg.

Innlent
Fréttamynd

Frítekjumark LÍN afnumið

Frítekjumark verður afnumið á næsta skólaári, samkvæmt nýsamþykktum breytingum stjórnar Lánasjóðs íslenskra námsmanna á úthlutunarreglum. Í tilkynningu frá námsmannahreyfingunum segir að um 85 prósent námsmanna muni njóta góðs af þessari breytingu auk þess sem hún hefur í för með sér auðveldari endurkomu í nám fyrir fólk á vinnumarkaði þar sem tekjusvigrúm hefur aukist.

Innlent
Fréttamynd

Formannsslagur og framtíðarsýn

Stefán Jón Hafstein, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, telur að framtíðarsýn og hugmyndafræði jafnaðarmanna hafi ekki notið sín sem skyldi í baráttunni um formannsstólinn í Samfykingunni undanfarna mánuði. Hann kveðst ganga lengra í ályktunum en framtíðarhópur flokksins og skilgreinir sig sem róttækan endurskoðunarsinna.

Innlent
Fréttamynd

Ráðherra gangi erinda Norðlendinga

Ýmislegt virðist vera að gerast í álmálum þessa dagana. Alcoa hefur lýst yfir áhuga á að reisa álver á Norðurlandi og verið er að stofna félög bæði með og á móti stóriðju í Eyjafirði. Sjálfstæðismenn á Suðurnesjum eru ósáttir við iðnaðarráðherra en þeir telja ráðherrann eingöngu ganga erinda Norðlendinga.

Innlent
Fréttamynd

Deilt um fjögur 19. aldar hús

Meirihluti borgarstjórnar samþykkti á fundi sínum í gær að vísa tillögu Ólafs M. Magnússonar, borgarfulltrúa F-lista, um að dregnar verði tilbaka heimildir til að rífa niður fjögur 19. aldar hús við Laugaveg til skipulagsráðs Reykjavíkurborgar. Allir fulltrúar R-listans samþykktu þetta gegn mótatkvæði Ólafs, sem telur að með þessu sé í raun verið að vísa málinu frá eins og gert hafi verið í mars síðastliðnum.

Innlent
Fréttamynd

Á von á meira lýðræði í Kína

Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands telur að Kína muni taka upp lýðræðislega stjórnarhætti innan tíðar. Hann ræddi við nemendur í Peking-háskóla í dag og minnti þá á að valdið væri þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Segir kínverska ráðamenn hræsnara

Einar K. Guðfinnsson, formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, er lítt hrifinn af auknum samskiptum íslenskra ráðamanna við Kínastjórn. Hann segir á heimasíðu sinni að það sé óskaplega hræsnisfullt tal þegar kínverskir ráðamenn lofi forseta Íslands öllu fögru í mannréttindamálum.

Innlent
Fréttamynd

Ávarpaði stúdenta í Peking

Lýðræðið er lykillinn að framþróun, segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands sem í dag ræddi við nemendur í Pekingháskóla um kosti lýðræðis og einkavæðingar.

Innlent
Fréttamynd

Framtíðarhópur fái nýtt umboð

Nýjar tillögur framtíðarhóps Samfylkingarinnar eingöngu kynntar á landsfundi en ekki teknar til afgreiðslu. Óskað eftir endurnýjuðu umboði hópsins til að starfa áfram að framtíðarstefnumótun flokksins.

Innlent
Fréttamynd

Amnesty fagnar

"Íslandsdeild Amnesty International fagnar undirskrift Íslands á nýjum samningi gegn mansali." Svo segir í fréttatilkynningu frá ÍAI. Davíð Oddsson skrifaði nýverið undir samning Evrópuráðsins fyrir hönd Íslands þar sem lögð er áhersla á að mansal sé brot á mannréttindum og árás á mannlega reisn.

Innlent