Mál Brynjars Joensen Creed
Brynjar ákærður fyrir að brjóta á fleiri stúlkum Héraðssaksóknari hefur ákært Brynjar Joensen Creed fyrir kynferðislega áreitni gegn átta stúlkum. Stúlkurnar voru aldrinum 11 til 14 ára þegar brotin eiga að hafa átt sér stað. Brynjar afplánar nú sjö ára dóm fyrir nauðganir og önnur brot gegn fimm stúlkum. Fjallað var fyrst um ákæruna á vef RÚV í kvöld. Innlent 26.9.2024 21:32
Ósammála Hæstarétti og telja brot Brynjars nauðgun Tveir starfsmenn við lagadeild Háskóla Íslands, Brynhildur G. Flóvenz dósent emerita, og Ragnheiður Bragadóttir prófessor, telja dóm Hæstaréttar í máli Brynjars Joensen Creed, rangan. Þær vona að fordæminu verði snúið við, en þær birtu grein um dóminn í Úlfjóti í síðastliðnum mánuði. Innlent 17.6.2024 15:48
Óskar eftir því að dómur Hæstaréttar verði ræddur í nefnd Eyjólfur Ármannsson, þingmaður Flokks fólksins, hefur óskað þess að allsherjar- og menntamálanefnd taki til umræðu nýjan dóm Hæstaréttar í máli ákæruvaldsins gegn Brynjari Joensen Creed og hvort að breyta þurfi ákvæðum hegningarlaga til að vernda börn betur. Innlent 3.2.2024 17:05
Dómur Brynjars stendur þó ekki sé fallist á að netbrot séu nauðgun Kynferðisbrot þar sem gerandi og þolandi eru fjarri hvoru öðru og brotin fara fram í gegnum samfélagsmiðla eða samskiptaforrit teljast ekki til nauðgunar að mati Hæstaréttar. Þetta kemur fram í dómi Hæstaréttar á hendur Brynjari Joensen Creed. Innlent 31.1.2024 15:45
Hæstiréttur tekur mál Brynjars fyrir Hæstiréttur samþykkti á dögunum málskotsbeiðni Brynjar Joensen Creed, sem dæmdur var til sjö ára fangelsisvistar fyrir nauðganir og önnur brot gegn ólögráða stúlkum í Landsrétti. Innlent 19.6.2023 15:24
Landsréttur þyngir dóm yfir nýdæmdum barnaníðingi Barnaníðingurinn Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir nauðganir og önnur brot gegn ólögráða stúlkum. Landsréttur kvað upp dóm í málinu í dag og þyngdi dóm héraðsdóms um eitt ár. Innlent 31.3.2023 14:49
Rannsókn lögreglu lokið: Nýdæmdur barnaníðingur grunaður um brot gegn tugum til viðbótar Lögregla hefur lokið rannsókn á tugum meintra kynferðisbrota karlmanns á sextugsaldri. Í öllum tilvikum er maðurinn grunaður fyrir að hafa brotið gegn stúlkum undir 15 ára aldri, á þriðja tug stúlkna. Karlmaðurinn hlaut sex ára dóm fyrir kynferðisbrot í maí á þessu ári. Innlent 13.12.2022 18:29
Ríkissaksóknari áfrýjar dómi Brynjars Creed Ríkissaksóknari mun áfrýja dómi Héraðsdóms Reykjaness í máli Brynjars Creed til Landsréttar. Að sögn Kolbrúnar Benediktsdóttur, varahéraðssaksóknara sem rak málið fyrir héraðsdómi, snýr áfrýjunin að því að Brynjar verði jafnframt sakfelldur fyrir nauðgun, með því að hafa fengið stúlkur undir lögaldri til þess að framkvæma ýmsar kynferðislegar athafnir í gegnum netið. Innlent 22.6.2022 13:34
Kynferðisbrotamenn reyni að nálgast börn í auknum mæli á Snapchat Ábendingum til lögreglu um meinta kynferðisbrotamenn á samskiptaforritinu Snapchat hefur fjölgað á undanförnum árum. Þetta segir lögregla sem telur óvíst hvort lögregla hafi lagalegar heimildir til að loka slíkum reikningum. Innlent 20.5.2022 12:07
Brynjar dæmdur fyrir þrjár nauðganir og margvísleg önnur brot gegn ungum stúlkum Brynjar Joensen Creed, sem ákærður var í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli, hefur verið dæmdur í sex ára óskilorðsbundið fangelsi. Dómur í málinu gegn Brynjari var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness á þriðja tímanum. Innlent 19.5.2022 15:35
Meintur barnaníðingur grunaður um miklu fleiri brot Rúmlega fimmtugur karlmaður sem bíður dóms í umfangsmiklu kynferðisbrotamáli gegn börnum, er grunaður um fleiri brot en þau sem hann hefur verið ákærður fyrir. Dómur fellur í málinu í næstu viku. Innlent 13.5.2022 16:23
Ákærður fyrir að hafa keypt kynlífstæki fyrir fimm stúlkur og svo nauðgað þeim Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað fjórum ólögráða stúlkum, sumum oftar en einu sinni, ítrekað og beitt þær allar, auk þeirrar fimmtu, ítrekuðu kynferðisofbeldi og -áreiti. Aðalmeðferð í málinu er lokið fyrir Héraðsdómi Reykjaness og er dómsuppsaga á dagskrá 19. maí næstkomandi. Þinghald í málinu er lokað. Innlent 11.5.2022 12:50