Arion banki
1 2 3 4 5 6 … 8 ›
Framtíð menntunar er í einkarekstri Á undanförnum árum hefur þátttaka einkaaðila í rekstri leikskóla í Reykjavík aukist þó nokkuð. Samkvæmt nýlegum tölum fjölgaði börnum á sjálfstætt starfandi leikskólum um 13% á sama tíma og börnum fækkaði um 9% á leikskólum undir stjórn Reykjavíkurborgar (2014–2022). Skoðun 19.12.2024 10:32
Segir fæsta spyrja að því hvað sé best fyrir börnin Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, virðist gefa lítið fyrir áform um aukna aðkomu atvinnulífsins að leikskólamálum. Hugsanavilla virðist vera í gangi um að einkafyrirtækjum muni ganga betur en hinu opinbera að laða til sín kennara og fæstir spyrji að því hvað sé best fyrir sjálf börnin. Innlent 17.12.2024 06:44
Alvotech og Arion banki stofna grunnskóla Borist hafa af því fréttir að fyrirtæki eins og Alvotech og Arion banki hafi hug á því að stofna leikskóla eða einhvers konar dagvistunarúrræði fyrir börn starfsmanna sinna. Skoðun 16.12.2024 23:16
Segir að vel væri hægt að lækka vexti Bankastjóri Arion banka segir að hægt væri að lækka vexti hressilega með því að breyta reglum sem valda svokölluðu Íslandsálagi, ástæðu þess að vextir á Íslandi eru almennt hærri en í nágrannalöndum okkar. Þá segir hann að stóru bankarnir þrír fái dýrari fjármögnun vegna óvæginnar umræðu um þá. Viðskipti innlent 5.12.2024 09:49
Það eru leiðir til að lækka vexti íbúðalána – viljum við gera eitthvað í því? „Leiðir til að lækka vexti“ var yfirskrift fundar sem Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu og Samtök atvinnulífsins stóðu nýverið að. Þar var meðal annars fjallað um Íslandsálagið svokallaða, þ.e. ástæður þess að vextir á Íslandi eru almennt hærri en í nágrannalöndum okkar. Óhætt er að fullyrða að stærsti hluti Íslandsálagsins felist í þeim sérstöku álögum og reglum sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að leggja á fjármálaþjónustu. Skoðun 5.12.2024 08:32
„Kemur ekki til greina“ að lækka eiginfjárkröfur Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka kerfisáhættuauka en hækka eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á móti. Með þessu lækkar eiginfjárkrafa á minni innlánastofnanir, til að mynda Indó og Kviku, en stendur í stað fyrir stóru viðskiptabankana þrjá. Seðlabankastjóri segir ekki koma til greina að lækka eiginfjárkröfur á stóru bankana. Viðskipti innlent 4.12.2024 12:04
Stjórnmálamenn segjast styðja PPP-verkefni en meina „flestir ekkert með því“ Löggjöf frá 2020 sem átti að opna á meira en hundrað milljarða fjárfestingu í vegasamgöngum með samningum við einkaaðila hefur ekki skilað þeim árangri sem lagt var upp með, að sögn utanríkisráðherra, en þótt stjórnmálamenn segist iðulega vera jákvæðir á slík samvinnuverkefni stjórnvalda og fjárfesta þá meini „flestir ekkert með því.“ Framkvæmdastjóri hjá danska ráðgjafafyrirtækisins COWI, sem keypti nýlega Mannvit, tekur í sama streng og segir skorta á pólitískan vilja að styðja við slík fjárfestingaverkefni til að bæta úr bágbornu ástandi vegakerfisins hér á landi. Innherji 3.12.2024 14:34
Ráðinn forstöðumaður Arion Premíu Magnús Már Leifsson hefur verið ráðinn forstöðumaður Premíu hjá Arion banka. Viðskipti innlent 26.11.2024 13:25
Hörð viðbrögð við vaxtahækkunum Þrátt fyrir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í vikunni hefur stór hluti fjármálastofnanna hækkað vexti á verðtryggðum íbúðalánum og vísar til hárra raunvaxta. ASÍ fordæmir vaxtahækkanirnar og forsætisráðherra furðar sig á þeim. Innlent 22.11.2024 19:01
„Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Fjármálastofnanir hafa undanfarið lækkað vexti á óverðtryggðum íbúðalánum en hækkað á verðtryggðum. Bankastjóri Íslandsbanka segir ástæðu hækkunnar vera að fjármögnun á verðtryggðum lánum hafi hækkað því verðbólga hafi lækkað hraðar en stýrivextir. Hann vonast eftir myndarlegri stýrivaxtalækkun. Viðskipti innlent 22.11.2024 13:43
ASÍ fordæmir hækkun vaxta og Þórhallur sendi bankanum bréf Miðstjórn Alþýðusambands Íslands fordæmir þá ákvörðun Íslandsbanka að hækka vexti á verðtryggðum lánum á sama tíma og verðbólga gangi niður og vonir vakni um að hagur almennings taki að batna. Þórhallur Gunnarsson fjölmiðlamaður er meðal þeirra sem eru hugsi yfir vaxtahækkunum bankanna og lífeyrissjóðanna. Neytendur 22.11.2024 11:27
Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Arion banki hefur tilkynnt um vaxtabreytingar í kjölfar lækkunar stýrivaxta. Verðtryggðir vextir hækka og bankinn færir rök fyrir máli sínu samhliða tilkynningunni. Viðskipti innlent 22.11.2024 10:06
Munum áfram „velkjast um í heimi fjögurra prósenta raunvaxta“ Þótt ný þjóðhagsspá Seðlabankans geri ráð fyrir að verðbólgan verði farin að nálgast markmið um mitt næsta ár þá ætlar peningastefnunefndin ekki að láta mun betri horfur „slá ryki í augun á sér, að sögn hagfræðinga Arion banka, en einhver bið verður á því að aðhaldsstigið fari minnkandi. Útlit er fyrir töluverðar vaxtalækkanir á næstunni ef verðbólgan þróast í takt við væntingar en peningastefnunefndin mun hins vegar eftir sem áður vera varkár. Innherji 21.11.2024 12:22
Bankinn steli til baka hluta af ávinningi af vaxtalækkuninni Allir viðskiptabankarnir ætla eða hafa gert breytingar á vaxtakjörum sínum eftir stýrivaxtalækkun Seðlabankans í morgun. Hjá Íslandsbanka hafa vextir á óverðtryggðum lánum þegar lækkað en hækkað á verðtryggðum lánum. Formaður Neytendasamtakanna gagnrýnir harðlega hækkun á verðtryggðum lánum. Innlent 20.11.2024 21:31
Allir spá lægri vöxtum Hagfræðingur hjá Arion greiningu telur líklegast að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka vexti um núll komma fimm prósent á morgun, þegar vaxtaákvörðun verður kynnt. Verðbólga sé farin að hjaðna og verðbólguhorfur fari batnandi. Viðskipti innlent 19.11.2024 12:49
Freista þess að sækja þrjátíu milljarða í nýtt hlutafé frá erlendum fjárfestum Landeldisfyrirtækið First Water hóf formlega fyrr í þessum mánuði fjármögnunarferli með erlendum ráðgjafa sínum sem miðar að því að sækja allt að tvö hundruð milljónir evra í nýtt hlutafé frá alþjóðlegum fjárfestum og sjóðum. Félagið, sem stendur að uppbyggingu á eldisstöð með um fimmtíu þúsund tonna framleiðslugetu, hefur fram til þessa alfarið verið fjármagnað af íslenskum fjárfestum og bönkum. Innherji 17.11.2024 13:15
Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Borgarfulltrúi minnihlutans vill að Reykjavíkurborg útbúi skýrar leiðbeiningar fyrir þá vinnustaði sem vilja fara sömu leið og Arion banki og bjóða upp á daggæslu á vinnustað. Eðlilegt væri að borgin tryggi mótframlag í verkefnið. Innlent 15.11.2024 20:00
Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Arion banki ætlar á næstu mánuðum að opna daggæslu fyrir börn starfsmanna. Forstöðumaður segist vona til þess að daggæslan létti líf fleiri en bara starfsmanna. Innlent 15.11.2024 09:13
Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Arion banki mun á næstunni opna nýtt dagvistunarheimili sem ætlað fyrir starfsfólk bankans. Dagvistunin verður staðsett í næsta húsi við höfuðstöðvarnar í Borgartúni í Reykjavík, eða á jarðhæð í Borgartúni 21. Innlent 14.11.2024 14:05
Raunstýrivextir eru að „dúndrast upp“ sem gæti opnað á 75 punkta lækkun Flestir hagvísar sýna að það er að hægjast verulega um í hagkerfinu og peningastefnunefnd Seðlabankans, sem birtir síðustu vaxtaákvörðun sína á árinu um miðja næstu viku, mun að líkindum horfa mjög til þess við mat á raunstýrivöxtum á komandi mánuðum. Að óbreyttu er útlit fyrir að raunstýrivextir séu að fara „dúndrast“ upp þegar kemur inn á nýtt ár, að sögn skuldabréfamiðlara, sem telur ekki ólíklegt að nefndin muni því núna ráðast í 75 punkta vaxtalækkun. Innherji 12.11.2024 11:43
Controlant klárar milljarða fjármögnun með aðkomu lífeyrissjóða og Arion Tæknifyrirtækið Controlant, sem hefur glímt við rekstrarerfiðleika að undanförnu, hefur lokið við samanlagt um 35 milljóna Bandaríkjadala fjármögnun, einkum með nýju hlutafé frá nokkrum lífeyrissjóðum og láni frá Arion. Stjórnarformaður Controlant segir að þótt kaup- og innleiðingaferli alþjóðlegra lyfjarisa á stafrænni tækni og rauntímavöktun hafi tafist þá sé félagið bjartsýnt á framhaldið enda í „einstakri stöðu“ til að umbylta aðfangakeðju lyfja. Innherji 8.11.2024 13:46
Verðtryggingarmisvægi bankanna jókst um nærri hundrað milljarða Verðtryggingarmisvægi stóru viðskiptabankanna jókst um tæplega fimmtung á þriðja ársfjórðungi, langsamlega mest hjá Landsbankanum, samtímis áframhaldandi ásókn heimila í verðtryggð lán. Bankarnir hafa sögulega séð aldrei verið með eins mikla skekkju á verðtryggðum eignum og skuldum en sú staða á meðan verðbólga er að hjaðna hratt gæti sett þrýsting á vaxtatekjur þeirra. Innherji 2.11.2024 12:35
Umframfé Arion banka gæti brátt numið yfir tuttugu milljörðum Þrátt fyrir talsverðar niðurfærslur á lánum þá var hagnaður Arion banka á þriðja fjórðungi, einkum vegna sögulega sterkrar afkomu af tryggingarekstrinum, vel umfram spár greinenda og ekki útséð með að bankinn geti náð arðsemismarkmiði sínu á árinu. Með innleiðingu á nýju bankaregluverki í upphafi nýs ár er áætlað að umfram eigið fé Arion, sem er núna talið vera allt að tuttugu milljarðar, aukist um liðlega fimm milljarða til viðbótar. Innherji 31.10.2024 13:02
Vísbendingar um að mælda verðbólgan sé að „megninu til gamalt vandamál“ Undirliggjandi verðbólguþrýstingur heldur áfram að lækka og nýjasta verðbólgumælingin, sem sýndi hana fara niður í 5,1 prósent, er „heilt yfir“ nokkuð góð og ætti að þýða að peningastefnunefnd getur haldið áfram með vaxtalækkunarferlið þegar hún kemur saman í nóvember, að mati hagfræðinga Arion banka. Ef litið er á verðbólguhraðann undanfarna þrjá mánuði er hún á ársgrundvelli komin í markmið Seðlabankans sem er vísbending um að mæld verðbólga núna sé að stórum hluta „gamalt vandamál.“ Innherji 31.10.2024 10:59
Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða Hagnaður Arion banka á þriðja ársfjórðungi var 7,9 milljarðar króna, sambanborið við 6,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. „Núverandi vaxtaumhverfi er þess valdandi að við erum varfærin í okkar niðurfærslum,“ segir bankastjórinn um sögulega háa verðtryggða vexti. Viðskipti innlent 30.10.2024 17:05
Samþykktu hlutafjárhækkun til að verja tiltekna fjárfesta fyrir gengislækkun Mikill meirihluti hluthafa samþykkti tillögu stjórnar Controlant um að fara meðal annars í hlutafjárhækkun í því skyni að gefa út uppbótarhluti til að verja þá fjárfesta, einkum lífeyrissjóði, sem höfðu komið inn í síðasta útboði fyrir þeirri miklu gengislækkun sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Útlit er fyrir að sömu lífeyrissjóðir muni leggja til um þriðjunginn af þeirri fjárhæð sem Controlant hyggst sækja sér í nýtt hlutafé á næstu vikum. Innherji 18.10.2024 13:23
Útlit fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um nærri sextíu prósent Mun meiri samdráttur en áður var áætlað í verkefnum tengdum dreifingu á bóluefnum gegn Covid-19, ásamt því að hægar hefur gengið að klára samninga við nýja viðskiptavini, veldur því að útlit er fyrir að heildartekjur Controlant skreppi saman um hátt sextíu prósent á þessu ári. Samkvæmt tekjuspám sem félagið hefur kynnt fjárfestum í aðdraganda mögulegrar hlutafjáraukningar mun taka um tvö til þrjú ár þangað til umsvifin verða á svipuðum slóðum og á tímum farsóttarinnar. Innherji 11.10.2024 12:41
Landeldisfyrirtækið Laxey klárar lánsfjármögnun við Arion banka Eldisfyrirtækið Laxey, sem áformar uppbyggingu á fiskeldisstöð í Vestmannaeyjum með árlegri framleiðslugetu upp á 32 þúsund tonn, og Arion banki hafa gengið frá samningi um fjármögnun. Lánsfjármögnunin frá Arion kemur í framhaldi af því að Laxey lauk fyrr á árinu hlutafjáraukningu, sem var í tveimur áföngum, upp á samtals um sjö milljarða frá innlendum og erlendum fjárfestum. Innherji 8.10.2024 19:50
Vilja klára stóra fjármögnun í aðdraganda mögulegra samninga við Novo Nordisk Controlant áformar að klára á næstu vikum allt að sjö milljarða króna fjármögnun, meðal annars með sölu á nýju hlutafé til núverandi og nýrra fjárfesta, í aðdraganda þess að tæknifyrirtækið vonast til að landa stórum samningi við danska lyfjarisann Novo Nordisk. Talsverður kurr er hjá sumum hluthöfum með að þeir fjárfestar sem komu inn í síðasta hlutafjárútboði Controlant, einkum lífeyrissjóðir, hafi fengið samþykkt sérstakt ákvæði sem ver þá gegn þeirri verulegu lækkun á hlutabréfaverði sem er fyrirséð í yfirstandandi útboðsferli. Innherji 7.10.2024 14:37
Bankarnir farið „óvarlega“ þegar verðtryggingarmisvægi þeirra margfaldaðist Mikill vöxtur í verðtryggðum útlánum stóru viðskiptabankanna til heimila og fyrirtækja án þess að þeir væru með verðtryggða fjármögnun á móti þeim eignum hefur valdið því að verðtryggingarmisvægi þeirra er í hæstu hæðum en seðlabankastjóri telur að bankarnir hafi þar farið „heldur óvarlega.“ Meira en eitt ár er liðið síðan allar reglur sem kváðu á um lágmarks binditíma á verðtryggðar innstæður í bönkum voru afnumdar en frá þeim tíma hefur hins vegar verið óveruleg aukning í slíkum innstæðum. Innherji 3.10.2024 16:56