Stéttarfélög
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 27 ›
Ætlar ekki niður á fjóra fætur til að ná samningi Formaður VR segir tímarammann fyrir skammtímasamning vera mjög knappan en klára þurfi slíkan samning á allra næstu dögum. Ef það takist ekki þurfi að ræða langtímasamninga og því kunni að fylgja átök. Þó markmiðið sé að klára samninga fljótt og vel segist formaðurinn ekki ætla að fara niður á fjóra fætur til að ná samningi fyrir jól. Innlent 7.12.2022 14:29
Efling vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara Stéttarfélagið Efling hefur vísað kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins (SA) til ríkissáttasemjara. Formaður Eflingar segir það óhjákvæmilega aðgerð. Innlent 7.12.2022 12:58
Voru ekki beðin um að fresta undirskrift: „Sirkus sem heldur bara áfram“ Formaður Framsýnar segir ekki rétt að forkólfar Framsýnar á Húsavík hafi verið beðnir um að fresta því að skrifa undir samning Starfsgreinasambandsins við Samtök Atvinnulífisins. Fulltrúarnir hafi einfaldlega ekki komist suður til að skrifa undir. Umræða um að Framsýn hafi ekki ætlað að vera með sé hluti af tilraunum fólks til að grafa undan samningunum. Innlent 7.12.2022 10:14
Forystufólk einbeiti sér að eigin samningum í stað þess að rífa niður aðra Formaður Starfsgreinasambandsins segir formann Eflingar hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að vera ekki í samfloti við aðra fyrir kjaraviðræður og leggur til að hún einbeiti sér að því að ná kjarasamnningi handa sínu fólki frekar en að rífa niður samning Starfsgreinasambandsins. Formaður Eflingar segir gagnrýni sína fullkomlega réttmæta og segir samninginn til marks um óþolinmæði. Innlent 5.12.2022 23:09
Ekki mikill tími til stefnu Von um skammtímasamning er úti ef ekki tekst að semja á næstu dögum að mati formanns VR. Mikil ólga ríkir innan verkalýðshreyfingarinnar eftir að Starfsgreinasambandið samdi við Samtök atvinnulífsins um helgina. Innlent 5.12.2022 18:43
Vill einbeita sér að samningum í stað þess að munnhöggvast við félaga sína Formaður VR segir stöðuna sem upp er komin eftir deilur milli formanns Eflingar og formanns Starfsgreinasambandsins sorglega og eitthvað sem hann átti ekki von á. Sjálfur ætli hann ekki að taka afstöðu og munnhöggvast við félaga sína en er þó gagnrýninn á samning Starfsgreinasambandsins við Samtök atvinnulífsins. Innlent 5.12.2022 18:07
Villuljós í Vikulokum Það var áhugavert að hlusta á kunnuglega orðræðu Hildar Björnsdóttur, borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um launaþróunina í útvarpsþættinum Vikulokunum á Rás 1 sl. laugardag. Þar ræddi oddvitinn um hvernig hún vill skerða þjónustu Reykjavíkurborgar, skerða réttindi opinbers starfsfólks og ná þannig fram hagræðingu í fjármálum borgarinnar. Skoðun 5.12.2022 12:31
Herinn í viðbragðsstöðu fyrir umfangsmikil verkföll á Bretlandseyjum Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og sjúkraflutningamenn eru meðal þeirra sem hafa boðað umfangsmikil verkföll á Bretlandseyjum í desember vegna launamála. Breski herinn hefur verið settur í viðbragðsstöðu vegna málsins. Verkalýðsfélög innan annarra geira hafa sömuleiðis boðað verkfall. Erlent 30.11.2022 17:19
Efling gerir SA tilboð um skammtímasamning Samninganefnd Eflingar - stéttarfélags hefur samþykkt að gera Samtökum atvinnulífsins tilboð um kjarasamning til rúmlega árs. Tilboðið er 56.700 króna flöt krónutöluhækkun á öll laun og 15 þúsund króna framfærsluuppbót til viðbótar. Þessar hækkanir komi til framkvæmda frá 1. nóvember 2022. Samningur gildi til 31. janúar 2024. Innlent 29.11.2022 10:00
Sanngjarnt að segja að vinnumarkaðurinn sé vandamálið Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir sanngjarnt að tala um að vinnumarkaðurinn sé vandamálið þegar kemur að kjaraviðræðum hér á landi. Skortur sé á samhljómi á milli kröfugerða stéttarfélaga, kröfur þeirra séu ólíkar. Hann segist þó vera ágætlega bjartsýnn á að hægt verði að landa kjarasamningum á almennum vinnumarkaði þrátt fyrir viðræðuslit VR. Innlent 25.11.2022 13:01
Harmar viðræðuslit Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, harmar að VR hafi ákveðið að slíta kjaraviðræðum, en vonar að hægt verði að setjast aftur að samningaborðinu. Hún segir enga óeiningu innan ríkisstjórnarinnar hver aðkoma hennar eigi að vera að samningaviðræðunum. Innlent 25.11.2022 12:21
Mat hugmyndir SA bæði óaðgengilegar og óásættanlegar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að hugmyndir samninganefndar Samtaka atvinnulífsins hvernig ná mætti skammtímasamningi í kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði hafi verið algjörlega óásættanlegar. Þá hafi orð fjármálaráðherra á fundi Viðskiptaráðs í gær ekki hjálpað til. Innlent 25.11.2022 11:04
Framhald kjaraviðræðna ræðst í Karphúsinu í dag Forysta aðila almenna vinnumarkaðarins situr nú á fundi hjá ríkissáttasemjara til að meta möguleika á áframhaldandi viðræðum eftir fund með forsætisráðherra í morgun. Ríkisstjórnin er reiðubúin að liðka fyrir samningum og forsætisráðherra hefur skilning á að horft sé til skammtímasamninga við núverandi aðstæður. Innlent 24.11.2022 14:18
Allir sjái að mikið sé undir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur ljóst að allir sjái að mikið sé undir í kjaraviðræðum á almennum vinnumarkaði. Hann segir aðila vinnumarkaðarins ágætlega nestaða fyrir kjaraviðræður dagsins eftir óvæntan fund með forsætisráðherra í morgum. Innlent 24.11.2022 11:32
Félagsmenn Vilhjálms ekki með neinar tær á Tenerife Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, gagnrýndi stýrivaxtahækkun Seðlabankans harkalega er hann gekk inn á fund forsætisráðherra sem boðað var til með aðilum vinnumarkaðarins í morgun með nær engum fyrirvara. Innlent 24.11.2022 10:30
„Við munum hækka vexti eins og þarf“ Stjórnendur peningastefnunefndar Seðlabankans segja það alveg skýrt að nefndin muni hækka stýrivexti frekar, meti hún þörf á því. Seðlabankastjóri segir það alveg skýrt að Seðlabankinn geti ekki verið aðili að loforði um að stýrivextir verði ekki hækkaðir sem hluti af kjarasamningum. Viðskipti innlent 23.11.2022 11:34
Samflot iðn- og tæknifólks vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara Samninganefndir allra stéttarfélaga iðn- og tæknifólks hafa ákveðið að vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara en kjarasamningar hafa verið lausir síðan 1. nóvember sl. Innlent 16.11.2022 20:32
Verkefnið áfram að verja kaupmátt heimilanna „Verkefnið er áfram hið sama: að ná samningum hratt og örugglega til að verja kaupmátt heimilanna,“ segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir greindi frá því fyrr í dag að VR, Landssamband ísl. verzlunarmanna og Starfsgreinasamband Íslands hefðu tekið þá ákvörðun að vísa viðræðum við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Innlent 14.11.2022 15:42
VR/LÍV og SGS vísa kjaraviðræðum til ríkissáttasemjara VR, Landssamband ísl. verzlunarmanna og Starfsgreinasamband Íslands hafa tekið þá ákvörðun að vísa viðræðum við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara. Lífskjarasamningurinn, sem undirritaður var árið 2019, rann út um síðustu mánaðamót. Innlent 14.11.2022 13:49
Þrjátíu og tvær stundir eða fjögurra daga vinnuvika Í þeim kjarasamningaviðræðum sem nú standa yfir fer VR fram með kröfu um 4-daga vinnuviku. Það þýðir einfaldlega að við viljum stytta vinnuvikuna í 32 stundir, án skerðingar á launum. Þessi krafa er orðin æ háværari, ekki bara hér á landi heldur víða erlendis. Skoðun 11.11.2022 09:30
Bein útsending: BHM kynnir áherslur sínar í kjaraviðræðum Fulltrúar BHM munu kynna sameiginlegar áherslur allra aðildarfélaga sinna í kjaraviðræðunum framundan á opnum fundi í Grósku í Reykjavík sem hefst klukkan 9:30. Innlent 10.11.2022 09:00
„Ekkert annað en eðlilegt og réttlátt“ Efling krefst 167 þúsund króna krónutöluhækkunar allra launa á næstu þremur árum. Þetta kemur fram í kröfugerð sem félagið hefur afhent Samtökum atvinnulífsins. Þá krefst félagið þrjátíu daga orlofs fyrir alla félagsmenn auk þess sem ræða þurfi af fullri alvöru um styttingu vinnuvikunnar hjá félagsmönnum. Formaður Eflingar telur kröfur þess sanngjarnar og raunsæjar. Innlent 31.10.2022 21:16
Efling krefst 167 þúsund króna hækkunar allra launa á þremur árum Efling hefur afhent Samtökum atvinnulífsins kröfugerð fyrir komandi kjarasamningsviðræður sem hljóðar meðal annars upp á 167 þúsund króna hækkun allra mánaðarlauna á þriggja ára samningstíma. Innlent 31.10.2022 13:16
Stofnun stéttarfélags ekki til höfuðs Sólveigu Önnu Hafnarverkamenn komu saman í gær og ræddu mögulega stofnun stéttarfélags og þar með úrsögn úr Eflingu. Forsvarsmaður þeirra segir ekki rétt að stofnun stéttarfélags sé hugsuð til höfuðs Eflingu og formanni hennar. Innlent 30.10.2022 12:02
Hafnarverkamenn íhuga að segja sig úr Eflingu Hafnarverkamenn funduðu fyrr í dag á Þjóðminjasafninu og ræddu mögulega úrsögn sína úr stéttarfélagi Eflingar. Hópurinn er sagður ósáttur við samskipti sín við stjórnarmeðlimi stéttarfélagsins og hvernig staðið hafi verið að því að skipa fulltrúa á þing ASÍ. Innlent 29.10.2022 18:33
Í nafni frelsis og valdeflingar Nú hafa 11 þingmenn Sjálfstæðisflokksins mælt fyrir frumvarpi sem í orði kveðnu snýst um vernd félagafrelsis á íslenskum vinnumarkaði. Í ræðu og riti fara þingmenn flokksins mikinn um samanburð við hin Norðurlöndin og mikilvægi þess að við stöndum þeim jafnfætis. Skoðun 28.10.2022 14:01
„Afglöpum“ Eflingarstarfsmanna um að kenna að mál Ólafar Helgu tapaðist Fyrrverandi stjórnandi og starfsmaður Eflingar gerðu afglöp þegar þeir létu ekki endurnýja trúnaðarmannskosningu Ólafar Helgu Adolfsdóttur hjá Icelandair, að mati Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar. Félagsdómur dæmdi Icelandair í vil þar sem hann taldi að Ólöf Helga hefði ekki lengur notið verndar sem trúnaðarmaður. Innlent 27.10.2022 07:00
Í eina sæng fyrir kjaraviðræður við SA Landssamband íslenzkra verzlunarmanna og Starfsgreinasambandið munu taka höndum saman í viðræðum við Samtök atvinnulífsins í viðræðum um nýjan kjarasamning. Innlent 26.10.2022 13:34
Sofandi í bílskrjóðum við Alþingi Það hefur verið athyglisvert að fylgjast með málflutningi Sjálfstæðismanna á Alþingi, en þeir berjast nú sem aldrei fyrr í nafni frelsis og mannréttinda gegn félagslegum réttindum verkafólks. Aðferðir þeirra þurfa reyndar ekkert að koma á óvart, enda hefur flokkurinn löngum gengið erinda auðvaldsins. Skoðun 26.10.2022 11:31
Andstæðingur stéttarfélaga? Frelsi launafólks til að velja sér stéttarfélag hefur verið mikið til umræðu upp á síðkastið, bæði á Alþingi og í samfélaginu í kjölfar frumvarps til laga um félagafrelsi á vinnumarkaði sem við þingmenn Sjálfstæðisflokksins lögðum nýlega fram. Skoðun 26.10.2022 10:00