Ítalski boltinn
176 177 178 179 180 181 182 183 184 … 199 ›
Totti skoraði í 600. leiknum Francesco Totti lék sinn 600. leik fyrir Roma á Ítalíu í gær í fræknum 4-0 sigri liðsins á Udinese. Totti fékk sérstaka viðurkenningu fyrir leikinn og var dramatískur að venju. "Það sem ég fann í dag eru tilfinningar sem munu fylgja mér alla ævi," sagði Totti sem hefur haldið með og spilað með Roma allan sinn feril og er í guðatölu í rauða hluta Rómarborgar. Fótbolti 2.3.2008 16:47
Gilardino til Juventus í sumar? Nú er talið líklegt að ítalski landsliðsframherjinn Alberto Gilardino muni ganga í raðir Juventus frá Milan í sumar. Hann hefur ekki náð að standa undir væntingum hjá Milan eftir að hafa verið keyptur til félagsins frá Parma árið 2005, en er sjálfur harður stuðningsmaður Juventus. Viðræður munu standa yfir milli félaganna að sögn Tuttosport á Ítalíu og vilja forráðamenn Milan endilega leyfa honum að fara. Fótbolti 29.2.2008 11:16
Kaka framlengir hjá AC Milan til 2013 Brasilíumaðurinn Kaka hefur ákveðið að framlengja samning sinn við AC Milan til ársins 2013. Þetta var staðfest á heimasíðu AC Milan í dag. Fótbolti 28.2.2008 18:24
Emil lék í tapleik Reggina Reggina tapaði í kvöld fyrir Lazio í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, 1-0. Emil Hallfreðsson lék allan leikinn fyrir Reggina. Fótbolti 27.2.2008 21:34
Crespo langar að spila með Roma Argentínski framherjinn Hernan Crespo hjá Inter hefur lýst því yfir að hann væri alveg til í að ganga í raðir Roma á næstu leiktíð. Crespo hefur lítið fengið að spila með Inter í vetur. Fótbolti 27.2.2008 12:53
Kaka gæti átt stuttan feril Adriano Galliani, varaforseti AC Milan, segist óttast að Brasilíumaðurinn Kaka gæti þurfti að leggja skóna á hilluna snemma á ferlinum eins og Hollendingurinn Marco Van Basten nema hann fái meiri vernd frá dómurum. Fótbolti 27.2.2008 11:23
Markalaust í Tórínó-slagnum Einn leikur var í ítölsku A-deildinni í kvöld. Juventus og Tórínó gerðu markalaust jafntefli í grannaslag. Bæði lið áttu skot í tréverkið í leiknum en tókst ekki að finna leiðina yfir línuna góðu. Fótbolti 26.2.2008 21:29
Ancelotti reiknar með Kaka Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, segist sannfærður um að brasilíski snillingurinn Kaka verði tilbúinn í slaginn fyrir seinni viðureignina gegn Arsenal í Meistaradeildinni. Fótbolti 26.2.2008 17:34
Ronaldo: Kemur til greina að hætta Brasilíski framherjinn Ronaldo segir alls ekki útilokað að hann leggi skóna á hilluna eftir að hann meiddist illa á hné í leik með AC Milan fyrir hálfum mánuði. Fótbolti 25.2.2008 16:17
Forseti Juventus vill fá erlenda dómara Giovanni Cobolli Gigli, forseti Juventus, vill að fengnir verði erlendi dómara til að dæma leiki í ítalska boltanum. Fótbolti 24.2.2008 15:16
Ronaldo vonast til að spila aftur Brasilíumaðurinn Ronaldo segir að ferli sínum sé ekki lokið en hann gekkst undir aðgerð vegna alvarlegra meiðsla á hné nýverið. Fótbolti 22.2.2008 16:06
Framtíð Delle Alpi ræðst í vor Forráðamenn Juventus hafa gefið það út að niðurstöðu sé að vænta í vallarmálum liðsins í apríl í vor. Þar verður ákveðið hvort gamli Stadio delle Alpi verður endurbyggður eða hvort félagið reisir nýjan leikvang á sama svæði í Tórínó. Fótbolti 19.2.2008 20:55
Tileinkaði konunni 1000. leikinn Goðsögnin Paolo Maldini hjá AC Milan spilaði sinn 1000. leik fyrir félagið um helgina þegar Milan gerði markalaust jafntefli við Parma í A deildinni. Hann tileinkaði konu sinni þennan merka áfangaleik. Fótbolti 18.2.2008 17:57
Crespo ósáttur hjá Inter Inter er að stinga af á Ítalíu en það eru þó ekki allir í herbúðum liðsins ánægðir. Argentínski sóknarmaðurinn Hernan Crespo vill komast burtu frá félaginu og hefur gagnrýnt þjálfarann Roberto Mancini. Fótbolti 17.2.2008 14:23
Ellefu stiga forskot Inter Inter er svo sannarlega búið að stinga af í ítölsku deildinni. Liðið vann Livorno 2-0 í gær en um kvöldið vann Juventus síðan Roma 1-0 í stórleik helgarinnar á Ítalíu. Fótbolti 17.2.2008 02:51
Kýs frekar að tapa 0-3 en vinna eins og Inter Inter hefur átta stiga forskot í ítölsku deildinni en Roma er í öðru sæti. Mikið hefur verið talað um furðulega dóma Inter í hag í leikjum Ítalíumeistarana. Nú hefur Bruno Conti, fyrrum þjálfari Roma, ákveðið að kasta olíu á eldinn. Fótbolti 16.2.2008 11:55
Ronaldo er ekki búinn Læknar AC Milan segja alls ekki útilokað að framherjinn Ronaldo geti snúið til baka eftir hnémeiðslin sem hann varð fyrir í gærkvöld - og talið var að gætu bundið enda á feril hans. Sport 14.2.2008 11:32
Ronaldo spilar ekki meira á árinu Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá AC Milan sleit liðband í hné aðeins þremur mínútum eftir að hann kom inn sem varamaður í leik gegn Livorno í gærkvöldi og spilar ekki meira með liðinu á leiktíðinni. Fótbolti 14.2.2008 10:19
Ferrari á leið til AC Milan? Varnarmaðurinn Matteo Ferrari gæti farið til AC Milan eftir tímabilið ef eitthvað er að marka ítölsku pressuna. Þessi 28 ára leikmaður er í herbúðum Roma en samningur hans rennur út í sumar. Fótbolti 12.2.2008 15:53
Ronaldo íhugar að hætta Fjölmiðlar í Brasilíu segja að sóknarmaðurinn Ronaldo hjá AC Milan sé að íhuga að hætta knattspyrnuiðkun. Ástæðan eru þrálát meiðsli sem á hann hafa herjað. Fótbolti 12.2.2008 13:10
Umræða um dómaramál á Ítalíu heldur áfram Dómarinn Stefano Farina gæti átt yfir höfði sér refsingu eftir framkomu sína í gær. Farina strunsaði fyrstur af velli um leið og hann flautaði af leik Inter og Catania án þess að taka í hendur leikmanna. Fótbolti 11.2.2008 14:32
Ég er betri en Mascherano Miðjumaðurinn Momo Sissoko hjá Juventus segist vera betri leikmaður en fyrrum félagi hans Javier Mascherano hjá Liverpool. Fótbolti 8.2.2008 20:01
Ætti Juventus að vera á toppnum? Vafasamir dómar í ítalska boltanum hafa aldrei verið eins margir eins og á yfirstandandi tímabili. Ítalska blaðið La Gazzetta dello Sport hefur birt sína útgáfu af stöðunni í deildinni. Fótbolti 5.2.2008 18:50
Collina vill annan dómara Pierluigi Collina, fyrrum besti knattspyrnudómari heims, segist hlynntur hugmyndum um að bæta við dómara á leikjum. Collina sér nú um niðurröðun dómara fyrir ítalska knattspyrnusambandið. Fótbolti 5.2.2008 17:01
Inter með 8 stiga forystu á Ítalíu Zlatan Ibrahimovic skoraði sigurmark meistara Inter Milan úr vafasamri vítaspyrnu í dag þegar liðið lagði Empoli 1-0 og náði átta stiga forskoti í ítölsku A-deildinni. Fótbolti 3.2.2008 16:31
Mancini yngri til Manchester City Filippo Mancini hefur verið lánaður frá ítalska úrvalsdeildarliðinu Inter til Manchester City til loka leiktíðarinnar. Hann er sonur Roberto Mancini, knattspyrnustjóra Inter. Enski boltinn 31.1.2008 21:44
Rozehnal lánaður til Lazio Tékkneski landsliðsmaðurinn David Rozehnal var í dag lánaður til ítalska úrvalsdeildarliðsins Lazio. Enski boltinn 31.1.2008 20:14
Ég hefði étið Zlatan lifandi Fyrrum varnarjaxlinn Pasquale Bruno hefur ekki mikið álit á mönnum eins og Zlatan Ibrahimovic og Alessandro Del Piero. Hann segir tíma til kominn til að kenna sænska framherjanum lexíu á knattspyrnuvellinum. Fótbolti 30.1.2008 10:48
Zambrotta ætlar að enda ferilinn á Ítalíu Gianluca Zambrotta hefur verið talsvert orðaður við AC Milan. Þessi þrítugi leikmaður er hjá Barcelona en fer ekki leynt með að hann ætlar að enda feril sinn í ítölsku deildinni. Fótbolti 28.1.2008 17:25
Inter og Zlatan hótað með byssukúlubréfum Inter Milan varð í dag annað ítalska knattspyrnufélagið á tveimur dögum til að fá hótunarbréf sem innhélt byssukúlur. Hótanirnar beindust að forseta og þjálfara Inter, sem og framherjanum Zlatan Ibrahimovic. Fótbolti 25.1.2008 19:55