Spænski boltinn
259 260 261 262 263 264 265 266 … 266 ›
Nistelrooy í skiptum fyrir Eto´o? Götublaðið <em>The Sun</em> greinir frá því að Manchester United hafi boðið Barcelona Ruud Van Nistelrooy í skiptum fyrir Samuel Eto´o. Ólíklegt er talið að Barcelona þekkist boðið en Joan Laporta, forseti Barcelona, segir að Eto´o verði aldrei seldur. Sport 13.10.2005 19:17
Edu til Valencia Fyrrum miðvallarleikmaður Arsenal, Brasilíumaðurinn Edu, mun skrifa undir fimm ára samning við spænska stórliðið Valencia, en félagið greindi frá þessu í dag. Sport 13.10.2005 19:17
Villareal og Betis í forkeppnina Síðasta umferðin í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu fór fram um helgina. Villareal og Real Betis tryggðu sér 3. og 4. sætið í deildinni og taka því þátt í 3. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu á næstu leiktíð. Sport 13.10.2005 19:17
Jafntefli í lokaleik Barcelona Real Sociedad og Barcelona gerðu markalaust jafntefli í lokaumferðinni spænsku úrvalsdeildimnni í knattspyrnu og Real Madrid vann Real Zaragossa á útivelli með þremur mörkum gegn einu. Michel Owen, Roberto Carlos og Ronaldo skoruðu mörk Real Madrid. Barcelona, sem þegar hafði tryggt sér spænska meistaratitilinn, lauk keppni með 84 stig en Real Madrid varð fjórum stigum á eftir í öðru sæti. Sport 13.10.2005 19:17
Figo heilsar mér ekki lengur! Þjálfari Real Madrid, Vanderlei Luxemburgo upplýsti á blaðamannafundi í dag að samband hans við portúgalska landsliðsmanninn Luis Figo sé við frostmark. Figo hefur ekki heilsað þjálfaranum frá því hann missti byrjunarliðssæti sitt í liðinu snemma í apríl sl. Sport 13.10.2005 19:16
Segist ekki hafa boðið í Zlatan Real Madrid neitar að hafa boðið 30 milljónir punda í Svíann Zlatan Ibrahimovich hjá Juventus. Real hefur ekki unnið titil í tvö ár sem er talið óviðunandi á þeim bænum. Liðið eru orðað við fleiri stjörnur, þar á meðal Rio Ferdinand og Cristiano Ronaldo hjá Manchester United og Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool. Sport 13.10.2005 19:15
Barcelona ekki á eftir Ferdinand Barcelona neitaði í dag þeim orðrómi að varnarmaðurinn sterki, Rio Ferdinand, væri á leið til félagsins og sögðu sögusagnirnar vera úr lausu lofti gripnar. Sport 13.10.2005 19:15
Viljandi gult hjá Beckham? Real Madrid og Atletico Madrid gerðu markalaust jafntefli í fremur bragðdaufum nágrannaslag í spænsku úrvalsdeildinni. David Beckham krækti sér í gult spjald í leiknum og það viljandi að talið er því hann verður í leikbanni í lokaumferðinni og getur því farið með enska landsliðinu til Bandaríkjanna um næstu helgi. Sport 13.10.2005 19:14
Del Horno staðfestir áhuga Chelsea Vinstri bakvörður Athletic Bilbao, Asier del Horno, hefur staðfest að Chelsea vilji fá hann og segir tilboðið vera of gott til að hafna. Sport 13.10.2005 19:14
Jose Mari vill fá Abbiati Spænski framherjinn hjá Villarreal, Jose Mari, hefur skorað á félagið að fá varamarkvörð AC Milan, Cristiano Abbiati, til liðs við félagið. Villarreal er á höttunum eftir nýjum markverði þar sem Jose Reina, núverandi markvörður þeirra, mun að öllum líkindum skrifa undir hjá Liverpool í sumar. Sport 13.10.2005 19:14
Beckham viðrar óánægju sína Enski landsliðsfyrirliðinn hefur viðrað óánægju sína með að fara í gegnum annað tímabilið án bikars hjá Real Madrid. Þessi fyrrum leikmaður Manchester United hefur ekki unnið til verðlauna síðan hann flutti sig til Spánar fyrir tveimur árum. Sport 13.10.2005 19:14
Etoo ekki til sölu Forseti Barcelona, Joan Laporta, sagði í dag að hann myndi aldrei selja Samuel Etoo þrátt fyrir orðróm um áhuga Chelsea. Sport 13.10.2005 19:14
Van Bommel semur við Barcelona Hollendingurinn Mark van Bommel skrifaði í morgun undir þriggja ára samning við spænsku meistarana Barcelona. Bommel er 28 ára og var fyrirliði PSV Eindhoven og varð fjórum sinnum hollenskur meistari með liðinu. Hann verður 17. Hollendingurinn sem spilar með Barcelona en sá fyrsti var Johan Cruyff árið 1973. Sport 13.10.2005 19:13
"Zidane sá besti" segir Pele Brasilíska knattspyrnugoðsögnin Pele segir að franski landsliðsmaðurinn Zinedine Zidane sé besti knattspyrnumaður síðasta áratugar. Pele sem nú er 64 ára er staddur á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi þar sem hann er að kynna nýja heimildarmynd um feril sinn sem besti knattspyrnumaður sögunnar. Sport 13.10.2005 19:13
Fyrsti titlinn Barcelona í sex ár Barcelona varð í gærkvöldi spæsnkur meiststari í knattspyrnu í 17. sinn og í fyrsta sinn í sex ár þegar liðið gerði jafntefli við Levante, 1-1. Alberto Rivera náði forystunni fyrir Levante í fyrri hálfleik en Samuel Eto'o jafnaði fyrir Barcelona í síðari hálfleik. Eitt stig dugði Börsungum til að landa fyrsta meistaratitlinum frá árinu 1999. Sport 13.10.2005 15:33
Osasuna í úrslit bikarkeppninnar Osasuna komst í gærkvöld í úrslit í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Atletico Madrid í síðari leik liðanna, en Osasuna vann fyrri leikinn með einu marki gegn engu og mætir Real Betis í úrslitum. Sport 13.10.2005 19:12
Beckham meiddur David Beckham meiddist á æfingu og gæti misst af leik Real Madrid gegn Sevilla á laugardaginn. Hinn þrítugi enski landsliðsfyrirliði, sem hefur verið í fínu formi að undanförnu, gat ekki æft í dag né í gær. Sport 13.10.2005 19:12
Stutt í endalok ferils Zidanes Knattspyrnusnillingurinn Zinedine Zidane segir að svo geti farið að hann leggi skóna á hilluna áður en samningur hans við Real Madríd rennur út árið 2007. Hann segir alveg ljóst að hann hætti knattspyrnuiðkun þegar samningurinn rennur út en svo geti farið að styttra væri í það. Sport 13.10.2005 19:12
Sevilla á eftir Luis Fabiano Spænska liðið Sevilla eru komnir í kapphlaupið um brasilíska framherjann Luis Fabiano hjá Porto ef marka má fréttir frá Portúgal. Sport 13.10.2005 19:12
Kvikmynd væntanleg um Real Madrid Spænska knattspyrnustórveldið Real Madrid gefur á næstu dögum út fyrstu kvikmyndina í fullri lengd um félagið. Myndin sem ber titilinn "Real, The Movie" verður kynnt í nokkrum löndum í sumar á ferðalagi liðsins um heiminn. Myndin skiptist bæði í leikna og raunverulega kafla úr herbúðum liðsins. Sport 13.10.2005 19:11
Hierro hættur Fyrrum leikmaður Real Madrid og spænska landsliðsins, Fernando Hierro, hefur tilkynnt að hann muni leggja skóna á hilluna eftir yfirstandandi tímabil. Sport 13.10.2005 19:11
Real burstaði Santander Real Madríd burstaði Racing Santander, 5-0, í spænska fótboltanum í gærkvöldi og minnkaði forystu Barcelona í þrjú stig. Michael Owen skoraði fyrsta markið en Ronaldo og Raul skoruðu síðan tvö mörk hvor. Sport 13.10.2005 19:10
Barca vill ekki tjá sig um Pires Barcelona hefur neitað að tjá sig um Robert Pires og þær sögusagnir að Frakkinn sé á leiðinni til félagsins. Pires á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Arsenal og hefur verið tjáð að hann muni aðeins fá árs framlengingu þegar sá samningur rennur út. Sport 13.10.2005 19:10
Betis - Sevilla á Sýn í kvöld Klukkan 20 í kvöld verður leikur Betis og Sevilla í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu sýndur beint á Sýn. Liðin koma bæði frá Sevilla og berjast hart um að komast í Meistaradeildina á næstu leiktíð. Betis er í 7. sæti en Sevilla í 3. sæti. Sport 13.10.2005 19:10
Auglýsing á búning Barcelona Barcelona mun, í fyrsta skiptið í sögu félagsins, bera auglýsingu framan á búning sínum á næsta tímabili en félagið skrifaði í dag undir fimm ára samning við kínversku ríkisstjórnina. Sport 13.10.2005 19:10
Liverpool á eftir Joaquin Liverpool er á eftir Joaquin, kantmanni Real Betis, ef marka má frétt hjá Sky fréttastofunni. Rafael Benitez er mikill aðdáandi leikmannsins og vonast til að geta sannfært hann um að hafna tilboðum frá bæði Real Madrid og Chelsea til að koma til Liverpool. Sport 13.10.2005 19:10
Van Bommel við það að skrifa undir Mark van Bommel hefur staðfest að hann sé við það að skrifa undir hjá einu af bestu félagi Evrópu. Barcelona eru taldir líklegastir en talið er að þeir hafi sigrað Real Madrid í kapphlaupinu um leikmanninn. Sport 13.10.2005 19:09
Liverpool í viðræðum við Reina Umboðsmaður Jose Reina, markvörð Villarreal í spænska boltanum, hefur staðfest að Liverpool sé í viðræðum við Villarreal um kaup á Reina. Liverpool hefur verið á eftir Reina í þó nokkurn tíma og hefur Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, látið njósnara sína fylgjast með leikmanninum að undanförnu. Sport 13.10.2005 19:09
Barcelona heldur Real fjarri Barcelona sigraði Albacete í spænsku úrvalsdeildinni í gær, 2-0, og hefur því enn á ný sex stiga forskot á Real Madrid þegar fjórar umferðir eru eftir. Samuel Eto´o og Leo Messi skoruðu mörk Börsunga. Sport 13.10.2005 19:09
Real sigraði Sociedad Real Madrid sigraði Real Sociedad 2-0 á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld, en Ronaldo skoraði bæði mörk Madrídinga. Liðið er nú í öðru sæti deildarinnar með 72 stig, þremur stigum á eftir Barcelona sem mæti Albacete í dag og getur aukið forskot sitt í deildinni í sex stig með sigri. Sport 13.10.2005 19:08
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent