Ástin á götunni
331 332 333 334 ›
Ronaldinho seldur á tíu milljarða? Ítalskir fjölmiðlar greina frá því um helgina að Chelsea ætli sér að gera 83 milljóna punda mettilboð í framherjann Ronaldinho hjá Barcelona. Samkvæmt heimildum ítalska blaðsins Corriere dello Sport myndi brasilíski leikmaðurinn fá níu ára samning og hafa um tíu milljónir punda í árslaun. Sport 13.10.2005 19:29
Kaup á leikmönnum í enska boltanum Everton hefur boðið í brasilíska sóknarmanninn Edu hjá Celta Vigo en hann var í láni hjá Real Betis á síðustu leiktíð. Liverpool er einnig talið hafa áhuga á leikmanninum. Arsenal menn eru vongóðir um að landa Julio Baptista frá Sevilla á tíu milljónir punda en Manchester United og Tottenham eru einnig að reyna að ná í sóknarmanninn. Sport 13.10.2005 19:29
Ólafsvíkur-Víkingar skoruðu fjögur Ólafsvíkur-Víkingar skoruðu fjögur mörk og unnu 2-4 sigur á Þór á Akureyri í 1. deild karla í dag og komust þar með upp í fjórða sæti deildarinnar. Fjölnismenn unnu einnig góðan sigur á KS og eru líka komnir upp í efri hluta deildarinnar. Sport 13.10.2005 19:29
Naumur sigur hjá Liverpool Liverpool vann í dag nauman 4–3 sigur á 2. deildarliði Wrexham í fyrsta æfingaleik tímabilsins en jafnframt þeim eina fyrir leik liðsins gegn Total Network Solutions frá Wales í undankeppni Meistaradeildarinnar í næstu viku. Sport 13.10.2005 19:29
Ronaldinho gerir risasamning Samkvæmt spænskum fjölmiðlum þá hefur Ronaldinho samþykkt nýjan risasamning við meistara Barcelona. Samingurinn verður til árins 2014 og fyrir hann fær leikmaðurinn tæplega tíu milljarða króna um 85 milljónir punda. Ronaldinho verður 34 ára þegar samningum lýkur. Sport 13.10.2005 19:29
Luxemburgo fær nóg Miklar vangaveltur hafa verið uppi um framtíð nokkurra leikmanna Real Madrid á síðustu vikum og mánuðum og svo virðist sem knattspyrnustjóranum brasilíska þyki nóg komið af svo góðu. Sport 13.10.2005 19:29
Vieira á leiðinni til Torínó Ítalska stórliðið Juventus er ákveðið í því að klófesta miðjumanninn Patrick Vieira frá Arsenal. Viðræður milli félaganna tveggja hafa staðið yfir undanfarna daga og talað er um að þær þokist í rétta átt fyrir Juventus. Samkvæmt fréttum er Juventus búið að bjóða átta milljónir punda í leikmanninn. Sport 13.10.2005 19:29
Stefán Þórðarson skorar Norrköbing, lið Stefáns Þórðarsonar komst í gærkvöldi í fjórðungsúrslit í sænsku bikarkeppninni í knattspyrnu, þegar liðið lagði Sundsvall 2-0, og skoraði Stefán fyrra markið. Í fjórðungsúrslitunum mætir Norrköbing, sem er í 8. sæti í 1. deild, Assyriska, sem er næstneðst í úrvalsdeildinni Sport 13.10.2005 19:29
Stórleikur KR og Vals í bikarnum Dregið var í gær í fjórðungsúrslit í Visa-bikarkeppni karla. Tvö stærstu liðin í pottinum, FH og Valur, mætast ekki nú en Valsmenn fá það erfiða verkefni að heimsækja KR í Vesturbæinn á meðan að FH-ingar taka á móti bikarstemningsliðinu ÍA. </font /></b /> Sport 13.10.2005 19:28
Crespo spilar með Chelsea Argentínski sóknarmaðurinn Hernan Crespo verður í herbúðum Englandsmeistara Chelsea á næstu leiktíð en hann var í láni hjá AC Milan á síðustu leiktíð. Milan keypti Christian Vieri á dögunum en hann lék með Inter á síðasta tímabili. Sport 13.10.2005 19:28
Gerrard biðst fyrirgefningar Steven Gerrard gaf út yfirlýsingu í morgun þar sem hann lýsir ást sinni á Liverpool og biðst fyrirgefningar á hringli sínu varðandi hugsanleg félagaskipti. Hann segir einnig að félagið hafi beðið hann afsökunar á að bjóða honum ekki samning strax eftir sigurinn í Meistaradeildinni í lok maí. Sport 13.10.2005 19:28
Saviola ekki áfram hjá Barcelona Argentínski sóknarmaðurinn Javier Saviola leikur ekki með Barcelona á næstu leiktíð en leikmaðurinn var lánaður til Mónakó á síðustu leiktíð. Það er ekki pláss fyrir Saviola í herbúðum Spánarmeistarana en hann lék mjög vel með argentínska landsliðinu í Álfukeppninni. Sport 13.10.2005 19:28
KR fær Valsmenn í heimsókn Dregið var í fjórðungsúrslit Visa-bikarkeppni karla í hádeginu á Hótel Loftleiðum í dag. Stórleikur umferðarinnar er væntanlega leikur KR og Vals þar sem Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, mætir sínu gamla liði í Frostaskjólinu. 1. deildarlið HK fékk heimaleik gegn Fylki. Sport 13.10.2005 19:28
GERRARD HÆTTUR VIÐ AÐ HÆTTA ! Sápuóperan um fyrirliða Liverpool, Steven Gerrard tók heldur betur óvænta stefnu í morgunsárið í morgun þegar Rick Parry stjórnarformaður Liverpool tilkynnti að Gerrard sé hættur við að yfirgefa félagið. Steven Gerrard verður sem sagt áfram hjá Liverpool og mun skrifa undir nýjan samning sem færir honum 100.000 pund í vikulaun. Sport 13.10.2005 19:28
Tveir Mexíkóar í árs leikbann Mexikóska knattspyrnusambandið hefur dæmt tvo landsliðsmenn í árs keppnisbann. Salvador Carmona og Aron Galindo voru reknir heim úr álfukeppninni í knattspyrnu í Þýskalandi í síðasta mánuði eftir að þeir höfðu fallið á lyfjaprófi. Sport 13.10.2005 19:28
Visa-bikarkeppnin 4. júlí KR, Valur og Akranes komust í gærkvöldi í 8-liða úrslit Visa-bikarkeppni karla í knattspyrnu. KR-ingar mörðu sigur á 1. deildarliði Víkings í vítaspyrnukeppni. Eftir 90 mínútna leik var staðan jöfn, 3-3. Sport 13.10.2005 19:28
Gerrard: Ég vil fara frá Liverpool Nú er orðið endanlega ljóst að fyrirliði Liverpool, Steven Gerrard, er á förum frá félaginu en þetta staðfesti hann í yfirlýsingu nú síðdegis. Gerrard hafnaði launatilboði frá Liverpool upp á 100.000 pund gærkvöldi. Í yfirlýsingu frá Liverpool í dag segir að Gerrard hafi nú þegar óskað eftir því að fara frá félaginu. Sport 13.10.2005 19:28
Liverpool hafnar tilboði í Gerard Liverpool hafnaði í morgun tilboði frá Chelsea í Steven Gerard. Enskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að tilboð Chelsea hafi numið 32 milljónum punda auk þess ætlaði Chelsea að borga þrjár milljónir í viðbót ef liðið næði ákveðnum markmiðum. Heildarupphæðin fyrir Gerard er því rúmir 4 milljarðar íslenskra króna. Sport 13.10.2005 19:28
Figo sagður semja við Liverpool Netmiðillinn squarefootball.net greinir frá því í kvöld að portúgalski landsliðsmaðurinn Luis Figo sé genginn til liðs við Evrópumeistara Liverpool en hann hefur fengið leyfi frá Real Madrid til að yfirgefa félagið. Netmiðillinn kveðst hafa heimildir fyrir því frá innanbúðarmanni á Anfield að Figo hafi gert eins árs samning. Sport 13.10.2005 19:28
Enskar stjörnur til Íslands Fjöldi stórstjarna úr ensku knattspyrnunni á árum áður er væntanlegur til landsins í byrjun nóvember til að taka þátt í alþjóðlegu knattspyrnumóti í Egilshöll. Það er gamla markamaskínan og Íslandsvinurinn Ian Rush sem stendur fyrir mótinu. Sport 13.10.2005 19:28
HK yfir gegn bikarmeisturunum Ólafur Júlíusson hefur komið HK 1-0 yfir gegn bikarmeisturum Keflavíkur í 16 liða úrslitum Visa bikarkeppni karla. Þá hefur KA minnkað muninn gegn FH í Kaplakrika þar sem staðan er 3-1. Jóhann Þórahallsson skoraði markið eftir undirbúning Hreins Hringssonar. Víðir Leifsson hefur bætt við marki fyrir Fram sem er 2-0 yfir gegn Þór. Sport 13.10.2005 19:28
HK sló bikarmeistarana út Óvænt tíðindi urðu í 16 liða úrslitum Visa bikarkeppni karla í kvöld þegar bikarmeistarar Keflavíkur töpuðu fyrir 1. deildarliði HK, 1-0 á Kópavogsvelli. Ólafur Júlíusson skoraði sigurmarkið í síðari hálfleik. Þá vann Fylkir dramatískan sigur á Grindavík þar sem Guðni Rúnar Helgason skoraði sigurmarkið á 90. mínútu í Grindavík. Enginn leikur fór í framlengingu. Sport 13.10.2005 19:28
Norska úrvalsdeildin Árni Gautur Arason og félagar hans í Voleringa sigruðu Odd Grenland 3-0 í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Voleringa er ásamt Brann og Viking með 24 stig, 6 á eftir Start í Kristjánssandi sem hefur forystu í deildinni. Norski landsliðsmaðurinn Tore Andre Flo gekk í gær til liðs við Voleringa. Sport 13.10.2005 19:28
AC Milan fær Christian Vieri AC Milan gerði í dag 2 ára samning við ítalska landsliðssóknarmanninn Christian Vieri en aðeins nokkrir dagar eru síðan hann fékk sig lausan undan samningi hjá erkifjendunum í Inter Milan. Sport 13.10.2005 19:28
FH að ganga frá KA í bikarnum FH er 3-0 yfir í hálfleik gegn KA í 16 liða úrslitum Visa bikarkeppni karla í knattspyrnu en 5 leikir eru á dagaksrá í kvöld. Fram er 1-0 yfir gegn 1. deildarliði Þórs á Akureyri, ÍBV er 2-0 yfir gegn 1. deildarliði Njarðvíkur og það er markalaust hjá bikarmeisturum Keflavíkur gegn HK og sömuleiðis hjá Grindavík og Fylki. Sport 13.10.2005 19:28
Visa-bikarinn í kvöld 5. júlí Fimm leikir verða í Visa-bikarnum í kvöld. Þá keppa Grindavík og Fylkir, ÍBV og Njarðvík, HK og Keflavík, Þór og Fram, og FH og KA. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15. Sport 13.10.2005 19:28
Blikastúlkur yfir gegn Val Breiðablik er 0-1 yfir gegn Val á Hlíarenda í stórleik kvöldsins í Landsbankadeild kvenna þegar flautað hefur verið til hálfleiks. Guðlaug Jónsdóttir skoraði markið á 8. mínútu. Þrír leikir eru á dagskrá deildarinnar í kvöld og er einum þeirra lokið. ÍBV sigraði ÍA uppi á Skaga, 0-3. Þá er KR 0-3 yfir gegn Stjörnunni í Garðabæ. Sport 13.10.2005 19:28
4 mörk komin á Hlíðarenda Staðan hjá Val og Haukum í 16 liða úrslitum Visabikarkeppninnar er orðin 3-1 fyrir Val en seinni hálfleikur er nýhafinn. á 51. mínútu jók Baldur Aðalsteinsson forystuna fyrir Val í 3-0 en aðeins mínútu síðar minnkaði Rodney Parry muninn í 3-1. 1. Breiðablik er enn 0-1 yfir gegn ÍA uppi á Skaga og KR er 2-3 yfir gegn Víkingum í Fossvoginum. Sport 13.10.2005 19:27
Víkingur og ÍA jafna Hörður Bjarnason hefur jafnað fyrir Víking gegn KR 12 mínútum fyrir leikslok á Víkingsvelli þar sem staðan er 3-3. Sigurður Ragnar Eyjólfsson jafnaði fyrir ÍA gegn Breiðabliki 5 mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma uppi á Skaga þar sem staðan er 1-1. Þá er Garðar Gunnlaugsson kominn með þrennu fyrir Val sem er 5-1 yfir gegn Haukum. Sport 13.10.2005 19:27
ÍA kemst yfir í framlengingu Pálmi Haraldsson hefur komið Skagamönnum yfir gegn Breiðabliki 2-1 í framlengingu uppi á Skaga. Markið kom á 13. mínútu framlengingarinnar en staðan að loknum venjulegum leiktíma var 1-1. Ennþá er jafnt, 3-3 hjá Víkingi og KR. Sport 13.10.2005 19:27