Ástin á götunni

Fréttamynd

Sérfræðingar óttast enskar bullur

Hollenskur sérfræðingur sem hefur að atvinnu að rannsaka fótboltabullur, segir að þrátt fyrir þokkalega hegðun stuðningsmanna enska landsliðsins í knattspyrnu á síðustu tveimur stórmótum, stafi enn hætta af enskum fótboltabullum og bendir á að þær verði undir smásjánni á HM í Þýskalandi næsta sumar.

Sport
Fréttamynd

Fær Pleat stöðuhækkun?

David Pleat hefur strax verið sterklega orðaður við stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá Portsmouth, eftir að Velimir Zajec sagði starfi sínu lausu eftir aðeins ellefu mánuði í starfi.

Sport
Fréttamynd

Ísland lagði Svía 4-1

Íslenska U-21 árs landsliðið lagði Svía 4-1 í Eskilstuna í Svíþjóð í dag og hafnaði því í fjórða sæti riðils síns í undankeppni EM. Hörður Sveinsson skoraði tvö marka íslenska liðsins í fyrri hálfleik og þeir Bjarni Þór Viðarsson og Garðar Gunnlaugsson bættu við sitt hvoru markinu í þeim síðari. Emil Hallfreðsson lagði upp þrjú marka íslenska liðsins.

Sport
Fréttamynd

Djetou til Bolton

Fyrrum franski landsliðsmaðurinn Martin Djetou hefur gengið til liðs við Bolton í ensku úrvalsdeildinni, en hann hafði verið samningslaus síðan hann fór frá franska liðinu Nice á síðustu leiktíð. Djetou er 31 árs og lék áður hjá Fulham á árunum 2002-04.

Sport
Fréttamynd

Potsdam hefur áhuga á Margréti

Þýska liðið Potsdam átti ekki í teljandi vandræðum með að vinna Val í Evrópukeppninni um helgina, en þjálfari liðsins sagðist hafa hrifist mjög af leik Margrétar Láru Viðarsdóttur og sagðist vilja fá hana til liðs við Potsdam. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

Sport
Fréttamynd

Ísland komið í 3-0 í Svíþjóð

Íslenska U-21 árs landsliðið er komið í 3-0 gegn Svíum í Eskilstuna í undankeppni EM og það var Bjarni Þór Viðarsson sem skoraði þriðja markið um stundarfjórðungi fyrir leikslok. Bjarni skoraði með glæsilegum skalla eftir hornspyrnu Emils Hallfreðssonar, sem hefur lagt upp tvö af mörkum Íslands í leiknum. Hörður Sveinsson skoraði hin tvö mörkin í fyrri hálfleik.

Sport
Fréttamynd

Ísland yfir 2-0 gegn Svíum

Íslenska U-21 árs landsliðið í knattspyrnu hefur 2-0 forystu í hálfleik gegn Svíum í Eskilstuna í Svíþjóð í undankeppni EM. Hörður Sveinsson skoraði bæði mörk liðsins á fjórum mínútum undir lok fyrri hálfleiksins.

Sport
Fréttamynd

Parlour fór í uppskurð

Ray Parlour, leikmaður Middlesbrough, hefur gengist undir aðgerð vegna hnémeiðsla sem hafa hrjáð hann síðan í september og verður líklega frá keppni fram í desember.

Sport
Fréttamynd

Sven-Göran bjartsýnn

Sven-Göran Eriksson landsliðsþjálfari Englands segir að liðið geti vel orðið heimsmeistari í Þýskalandi ef það verður heppið varðandi meiðsli lykilmanna. Enska landsliðið tryggði sér farseðilinn til Þýskalands um helgina eftir að Holland bar sigurorð af Tékklandi.

Sport
Fréttamynd

Damien Duff meiddur

Írski landsliðsmaðurinn Damien Duff verður frá keppni í nokkrar vikur vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í leiknum gegn Kýpur á laugardaginn og missir því af leiknum mikilvæga gegn Sviss á miðvikudag.

Sport
Fréttamynd

Valsstúlkur kjöldregnar af Potsdam

Kvennalið Vals var tekið í kennslustund af Evrópumeisturum félagsliða, Potsdam frá Þýskalandi, á Laugardalsvelli í dag. Eftir að leikurinn var nokkuð jafn í fyrri hálfleik, opnaðist fyrir allar flóðgáttir hjá Val í þeim síðari og niðurstaðan 8-1 sigur þýska liðsins.

Sport
Fréttamynd

Þær þýsku nýttu færi sín

Þýsku Evrópumeistararnir í Potsdam sigrðu Valsstúlkur á Laugardalsvelli 8-1 í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Margrét Lára Viðarsdóttir átti stórleik í framlínu Vals.

Sport
Fréttamynd

Gallas vill fara frá Chelsea

Franski varnarmaðurinn William Gallas hjá Chelsea hefur gefið það út að hann muni jafnvel fara frá liðnu þegar samningur hans rennur út eftir næsta keppnistímabil, því hann segist þurfa nýja áskorun áður en hann leggur skóna á hilluna.

Sport
Fréttamynd

Sigurður til Grindavíkur?

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins mun Sigurður Jónsson taka við af Milan Stefán Jankovic sem þjálfari meistaraflokks Grindavíkur í knattspyrnu. Sigurður stýrði Víkingum í sumar með góðum árangri og kom liðinu upp í Landsbankadeildina þrátt fyrir harða samkeppni frá KA-mönnum.

Sport
Fréttamynd

Meiðsli í herbúðum Englendinga

Nú hefur verið staðfest að Steven Gerrard mun ekki verða með Englendingum í leiknum gegn Pólverjum um efsta sætið í sjötta riðlinum í undankeppni HM, en auk hans verða þeir Ashley Cole, Sol Campell og David Beckham frá vegna meiðsla og leikbanns.

Sport
Fréttamynd

Potsdam leiðir 2-1 í hálfleik

Þýska stórliðið Potsdam hefur 2-1 forystu gegn Val í fyrri leik liðanna í 8 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða á Laugardalsvelli, en nú er hálfleikur í viðureigninni. Fyrsta mark leiksins var sjálfsmark Valsstúlkna, en Guðný Óðinsdóttir náði að jafna metin á 36. mínútu. Þær þýsku komust svo yfir rétt fyrir lok hálfleiksins með glæsilegu marki.

Sport
Fréttamynd

Beckham óhress með rauða spjaldið

David Beckham var ekki sáttur við að vera rekinn af leikvelli í leiknum gegn Austurríki nú áðan og sagði bæði gulu spjöldin sem hann fékk hafa verið mjög strangir dómar. Sven-Göran Eriksson tók í sama streng, en var sáttur við sigurinn.

Sport
Fréttamynd

Óvíst með Auðun

"Það er farið að líta betur út með Gunnar Heiðar en það er enn óvissa með Auðun fyrir þennan leik gegn Svíþjóð," sagði Logi Ólafsson landsliðsþjálfari í gær, rétt áður en haldið var til Svíþjóðar.

Sport
Fréttamynd

Beckham sá rautt

David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, fékk að líta rauða spjaldið á 59. mínútu leiksins við Austurríki, eftir að hafa fengið að líta sitt annað gula spjald. Dómurinn var nokkuð strangur, því austurríski leikmaðurinn kryddaði brot Beckham nokkuð vel og fiskaði hann í raun útaf. Staðan í leiknum er enn 1-0 fyrir England.

Sport
Fréttamynd

Enskir geta þakkað Hollendingum

Englendingar gátu leyft sér að fagna í gærkvöldi eftir sigur liðsins á Austurríki og enn fremur eftir sigur Hollands á Tékklandi. Þau úrslit þýddu að bæði Pólland og England eru komin áfram á HM þar sem þau tvö lið sem ná bestum árangri í 2. sæti riðlanna komast beint áfram.

Sport
Fréttamynd

Hollendingar skutu England á HM

Hollendingar gerðu Englendingum stóran greiða í dag þegar þeir lögðu Tékka 2-0 á útivelli, en sigur Hollendinga þýðir að enska liðið er öruggt með sæti á HM, hvort sem það endar í fyrsta eða öðru sæti riðils síns.

Sport
Fréttamynd

Fjórir nýliðar frá Afríku á HM

Mikil dramatík var í Afríkuriðlum undankeppni HM í dag, en eftir leiki dagsins var ljóst að þrjú lönd úr álfunni færu á heimsmeistaramótið í fyrsta skipti í sögunni. Þetta eru Togo, Gana, Fílabeinsströndin og Angóla.

Sport
Fréttamynd

Guðjón æfur eftir tapið í gær

Guðjón Þórðarson, stjóri Notts County, var skiljanlega ekki kátur með sína menn eftir fyrsta tap liðsins á heimavelli á leiktíðinni gegn Boston United í gær og leikmenn hans eiga ekki von á góðu, því hann segist ætla að eyðileggja helgina fyrir þeim.

Sport
Fréttamynd

Englendingar sigruðu Austurríki

Englendingar unnu tilþrifalítinn en mikilvægan sigur á Austurríkismönnum í 6. riðli undankeppni HM í Manchester í dag, en það var Frank Lampard sem skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 25. mínútu leiksins, en enska liðið lék manni færra frá 59. mínútu, eftir að fyrirliðanum David Beckham var vikið af leikvelli.

Sport
Fréttamynd

Króatar í toppsætið í 8. riðli

Króatar skutust í kvöld í efsta sæti 8. riðilsins í undankeppni HM þegar þeir lögðu Svía 1-0 á heimavelli sínum. Það var Srna sem skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu á 56. mínútu. Fyrr um daginn sigruðu Búlgarir Ungverja 2-0 með mörkum frá Berbatov og Lazarov.

Sport
Fréttamynd

Englendingar komnir yfir

Englendingar eru komnir yfir gegn Austurríkismönnum í undankeppni HM, en leikurinn fer fram á Old Trafford í Manchester. Það var Frank Lampard sem skoraði markið úr vítaspyrnu á 25. mínútu eftir að brotið hafði verið á Michael Owen í teignum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Toshack ánægður með sína menn

John Toshack, landsliðsþjálfari Wales, hrósaði sínum mönnum fyrir góðan baráttuanda þegar liðið lagði Norður-Íra 3-2 í hörku leik í Belfast í dag, en Ryan Giggs skoraði sigurmark Wales úr aukaspyrnu eftir að þeir höfðu misst niður tveggja marka forystu sína.

Sport
Fréttamynd

Skotar töpuðu illa og eru úr leik

Vonir Skota um að komast í lokakeppni HM í Þýskalandi eru formlega úr sögunni eftir að liðið tapaði illa 1-0 á heimavelli fyrir Hvít-Rússum í dag. Það var Vitaly Kutuzov sem skoraði eina mark leiksins, en þegar Norðmenn sigruðu svo Moldavíu 1-0 síðar í kvöld, var ljóst að Skotar væru dottnir út úr myndinni.

Sport
Fréttamynd

Írar halda enn í vonina

Írar halda enn í vonina um að komast á HM næsta sumar, en þeir lögðu Kýpur 1-0 á útivelli í dag. Það var framherji Sunderland, Stephen Elliot sem skoraði eina mark leiksins strax á sjöttu mínútu leiksins. Írar geta þó þakkað markverði sínum Shay Given sigurinn, því hann varði stórkostlega í leiknum og þar á meðal vítaspyrnu frá heimamönnum.

Sport
Fréttamynd

Einbeitingarleysi felldi okkur

Logi Ólafsson, annar landsliðsþjálfarana, var þokkalega sáttur með frammistöðu sinna manna gegn Pólverjum í gær en sagði það óneitanlega vonbrigði að tapa leiknum með þessum hætti.

Sport