Ástin á götunni
285 286 287 288 289 290 291 292 293 … 334 ›
Gunnar fékk úr litlu að moða Gunnar Heiðar Þorvaldsson sagði í samtali við Vísi nú áðan að hann hefði fengið úr litlu að moða í Evrópuleiknum gegn Hertha Berlin áðan, en lið hans Halmstad tapaði 1-0 á heimavelli fyrir þýska liðinu. Sport 23.10.2005 17:51
Laporta ætlar að ná í Henry Joan Laporta, forseti Barcelona, er sagður ætla að tryggja sér áframhaldandi setu í embætti með því að ná að lokka Thierry Henry til félagsins frá Arsenal, ef marka má frétt frá The Daily Star. Sú staðreynd að Henry hefur neitað að ræða nýjan samning við Arsenal, hefur nú ýtt frekar undir sögusagnir um að hann sé á förum frá félaginu. Sport 23.10.2005 17:51
Halmstad tapaði fyrir Hertha Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar í sænska liðinu Halmstad, töpuðu 1-0 fyrir þýska liðinu Hertha Berlin í C-riðli Evrópukeppni félagsliða nú áðan. Það var Neuendorf sem skoraði mark þýska liðsins á 67. mínútu. Síðar í kvöld mætast Steua Búkarest og Lens í þessum sama riðli. Sport 23.10.2005 17:51
Middlesbrough sigraði Middlesbrough sigraði svissneska liðið Grasshoppers með einu marki gegn engu í fyrsta leik liðsins í riðlakeppni UEFA bikarsins í kvöld. Mark liðsins skoraði Jimmy Floyd Hasselbaink snemma leiks. Bolton varð hinsvegar að sætta sig við jafntefli 1-1 við Besiktas. Ailton skoraði fyrir Tyrkina, en Borgetti fyrir Bolton. Sport 23.10.2005 17:51
Kerr ósáttur við uppsögnina Brian Kerr, fráfarandi landsliðsþjálfari írska landsliðsins í knattspyrnu, sakar stjórn knattspyrnusambandsins um skammsýni eftir að honum var sagt upp störfum á dögunum og bendir á að uppsögn hans sé á skjön við stefnu sem sett hafi verið árið 2002. Sport 23.10.2005 17:50
Auðveldur sigur Chelsea Chelsea burstaði Real Betis 4-0 á heimavelli sínum í kvöld. Ricardo Carvalho, Didier Drogba, Hernan Crespo og Joe Cole skoruðu mörk enska liðsins. Real Madrid valtaði yfir Rosenborg 4-1, eftir að hafa verið undir 1-0 í hálfleik. Sport 23.10.2005 17:50
Reyes verður ekki lengi frá Spánverjinn Jose Antonio Reyes hjá Arsenal verður ekki eins lengi frá keppni og óttast var, eftir að hann meiddist í leiknum gegn Sparta Prag í fyrrakvöld. Talið var að hann yrði frá keppni í nokkrar vikur, en meiðslin eru ekki eins alvarleg og talið var. Hann verður þó tæplega með Arsenal gegn Manchester City á laugardaginn. Sport 23.10.2005 17:50
Ísland í 92. sæti á FIFA listanum Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu stendur í stað á nýja styrkleikalistanum frá FIFA, sem gefinn var út í morgun. Brasilíumenn eru enn í efsta sæti listans en Hollendingar koma þar á eftir og Tékkar eru í þriðja sætinu. Svíar eru efstir Norðurlandaþjóðanna á listanum og sitja í fjórtánda sæti, einu sæti fyrir ofan Dani. Sport 23.10.2005 17:50
Rio tippar á Tottenham Varnarmaðurinn Rio Ferdinand segir að kannski sé tími Tottenham kominn í ensku úrvalsdeildinni og bendir á að liðið virðist loksins að ná þeim stöðugleika sem það hafi skort á undanförnum árum. Manchester United og Tottenham mætast á Old Trafford um helgina. Sport 23.10.2005 17:50
Ballack lofar ákvörðun fyrir jól Miðjumaðurinn sterki, Michael Ballack hjá Bayern Munchen, hefur lofað félaginu að hann tilkynni ákvörðun um framtíð sína fyrir jól, en hann hefur mikið verið orðaður við Manchester United eftir að samningi hans hjá þýska liðinu lýkur. Sport 23.10.2005 17:50
Owen meiddur á læri Framherjinn Michael Owen hjá Newcastle er tæpur fyrir grannaslag Newcastle og Sunderland í ensku úrvalsdeildinni um helgina vegna meiðsla á læri sem hann hlaut í æfingaleik í fyrrakvöld. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem kappinn meiðist á læri, en Shola Ameobi mun líklega taka stöðu hans um helgina. Sport 23.10.2005 17:50
Ronaldo handtekinn Knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United hefur verið handtekinn og færður til yfirheyrslu vegna gruns um nauðgun. Forráðamenn Manchester United hafa enn ekki tjáð sig um málið, sem er í rannsókn. Sport 23.10.2005 17:50
Meistaradeildin á Sýn í kvöld Átta leikir eru á dagskrá í Meistaradeildinni í knattspyrnu í kvöld og aðalleikur kvöldsins á Sýn er viðureign Chelsea og Real Betis, síðar um kvöldið verður svo leikur Anderlecht og Liverpool á dagskrá, en sá leikur verður í beinni á Sýn Extra. Leikirnir hefjast klukkan 18:30, en þar á undan verður upphitun með Guðna Bergs. Sport 23.10.2005 17:50
Rosenborg er yfir gegn Real Madrid Nú er kominn hálfleikur í leikjunum átta í Meistaradeild Evrópu. Chelsea hefur örugga 2-0 forystu gegn Real Betis, þar sem Drogba og Carvalho skoruðu mörkin, en Real Madrid er undir 1-0 gegn Rosenborg á heimavelli. Sport 23.10.2005 17:50
Ótrúleg endurkoma Henry Leikjum kvöldsins í Meistaradeildinni er lokið og óhætt að segja að Thierry Henry hjá Arsenal hafi verið maður kvöldsins, en hann tryggði liði sínu 2-0 sigur í Prag með tveimur mörkum, eftir að hafa komið inná sem varamaður eftir aðeins fimmtán mínútna leik. Sport 23.10.2005 17:50
O´Leary kærður Enska knattspyrnusambandið hefur kært David O´Leary, stjóra Aston Villa, fyrir óviðeigandi hegðun eftir að lið hans vann sigur á grönnum sínum í Birmingham í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Sport 23.10.2005 17:50
Wenger hrósaði Henry Arsene Wenger er yfir sig ánægður með gengi sinna manna í Arsenal í Meistaradeildinni í ár og þá ekki síður með framherja sinn Thierry Henry, sem í gærkvöld varð markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi þegar hann skoraði bæði mörk liðsins í sigrinum á Sparta Prag. Sport 23.10.2005 17:50
Ferguson ekki kátur með jafnteflið Alex Ferguson var ekki par hrifinn af leik franska liðsins Lille í Meistaradeildinni í gær og sagði liðið aldrei hafa reynt að vinna leikinn. Einnig þótti honum rauða spjaldið sem Paul Scholes fékk í leiknum vera ansi strangur dómur. Sport 23.10.2005 17:50
Giggs verður frá í nokkrar vikur Ryan Giggs hjá Manchester United verður frá keppni í allt að sex vikur vegna kinnbeinsbrots sem hann hlaut í leiknum við Lille í Meistaradeildinni í gærkvöld og eykur þar með enn á ófarir liðsins, sem hefur verið einstaklega óheppið með meiðsli á leiktíðinni. Sport 23.10.2005 17:50
Melchiot meiddur Varnarmaðurinn Mario Melchiot hjá Birmingham verður frá keppni í þrjár vikur í viðbót vegna hnémeiðsla, en hann missti af leik liðsins við grannaliðið Aston Villa um helgina. Fyrir eru þeir Stephen Clemence og David Dunne meiddir og verða frá í nokkurn tíma. Sport 23.10.2005 17:50
Ferguson vill hafa Keane í liðinu Sir Alex Ferguson sagði í viðtali í gær að hann vildi hafa Roy Keane í liði sínu eins lengi og hann gæti reimað á sig skóna og hefur ekki gefið upp alla von um að halda fyrirliða liðsins hjá félaginu lengur en út þessa leiktíð. Sport 23.10.2005 17:50
Henry í metabækurnar Thierry Henry varð í gærkvöldi markahæsti leikmaður Arsenal frá upphafi, þegar hann skoraði tvö mörk í sigri Arsenal á Sparta Prag í Meistaradeildinni. Hann hefur nú skorað alls 186 mörk fyrir félagið, eða einu meira en Ian Wright. Sport 23.10.2005 17:50
Samningur Kerr ekki endurnýjaður Stjórn írska knattspyrnusambandsins ákvað á fundi í gær að samningur landsliðsþjálfarans Brian Kerr yrði ekki endurnýjaður og þar með er átta ára starfi hans með liðið senn lokið. Ákvörðunin kemur ekki á óvart í kjölfar þess að honum mistókst að koma írska liðinu á HM næsta sumar. Sport 23.10.2005 17:50
Giggs verður fyrirliði Ryan Giggs er kominn inn í byrjunarlið Manchester United á ný og verður fyrirliði liðsins í leiknum gegn Lille í Meistaradeildinni nú á eftir. Manchester United mun spila kerfið 4-3-3 í leiknum og Darren Fletcher mun taka stöðu Park Ji-Sung á miðjunni. Sport 23.10.2005 17:50
Meistaradeildin á Sýn í kvöld Nokkrir leikir fara fram í Meistaradeild Evrópu í kvöld og aðalleikur kvöldsins á Sýn verður stórleikur Bayern Munchen og Juventus, en útsending hefst klukkan 18:30. Þá verður leikur Manchester United og Lille sýndur klukkan 21:20, en hann er sýndur beint á Sýn Extra klukkan 18:30. Sport 23.10.2005 17:50
Essien sleppur Michael Essien, leikmaður Chelsea, sleppur við frekari refsingu frá enska knattspyrnusambandinu eftir að farið var yfir myndbandsupptökur af broti hans í leiknum gegn Bolton um helgina. Brot hans þótti ljótt og var hann talinn sleppa vel með gult spjald, en sambandinu þótti ekki fótur fyrir frekari aðgerðum í málinu. Sport 23.10.2005 17:50
Verða að sætta sig við fallbaráttu Phil Neville, leikmaður Everton, segir að leikmenn liðsins verði nú að sætta sig við það að liðið sé í fallbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni, því þrátt fyrir að allir hafi beðið eftir að liðið rétti úr kútnum og færi að vinna, hefur það enn ekki gerst. Sport 23.10.2005 17:50
Henry kom Arsenal yfir Thierry Henry er búinn að koma liði Arsenal yfir gegn Sparta Prag í Tékklandi, en liðin eigast við í Meistaradeildinni. Eins og fram kom í frétt hér á vefnum fyrir nokkrum mínútum, var Henry á varamannabekk liðsins í kvöld, en hann kom inná fyrir Jose Antonio Reyes eftir aðeins fimmtán mínútna leik og skoraði mark sex mínútum síðar. Sport 23.10.2005 17:50
Henry á bekknum hjá Arsenal Thierry Henry verður á varamannabekknum hjá Arsenal í leiknum gegn Sparta Prag í Meistardeildinni á eftir, en Pascal Cygan og Kolo Toure verða vörninni. Þá koma þeir Robin van Persie og Gilberto aftur inn í liðið. Sport 23.10.2005 17:50
Wenger saknar Vieira Arsene Wenger hefur nú í fyrsta sinn viðurkennt að kannski hafði það ekki verið mjög góð hugmynd að selja Patrick Vieira til Juventus í sumar, en bendir á að liðið hafi verið einstaklega óheppið með meiðsli. Sport 23.10.2005 17:50