Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
87 88 89 90 91 92 93 94 95 … 334 ›
Þriðjungur sjúklinga á Vogi og Vík óbólusettur SÁÁ hóf í þessari viku að aðstoða óbólusetta og hálfbólusetta skjólstæðinga sína við að fara í bólusetningu. Innlent 13.8.2021 10:36
Þrettán á gjörgæslu en mannað fyrir tíu Klukkan 13 í gær lágu þrettán einstaklingar á gjörgæsludeildum Landspítala, þrátt fyrir að tíu rúm væru „opin“ og mönnun eftir því. Alls voru 592 rúm opin á spítalanum, sem þýðir að mannað var til að mæta þörfum 592 sjúklinga. Innlent 13.8.2021 09:06
Heimild veitt fyrir örvunarskömmtum fyrir fólk með skert ónæmiskerfi Lyfjastofnun Bandaríkjanna (FDA) hefur lagt blessun sína yfir af örvunarskammtar af bóluefni Pfizer og Moderna verði gefnir fólki með skerta ónæmiskerfisstarfsemi. Yfirvöld í nokkrum ríkjum, þar á meðal Íslandi, hafa gripið til þess ráðs að endurbólusetja fólk til að verjast delta-afbrigði kórónuveirunnar. Erlent 13.8.2021 08:43
Ferðir á leiðum 19 og 31 falla niður vegna smita og sóttkvíar Allar ferðir hafa verið felldar niður á leið 31 í dag. Sumar ferðir falla einnig niður fyrir hádegi á leið 19. Innlent 13.8.2021 07:27
Líkir gjörgæslunni við of lítinn björgunarbát Gjörgæslan er björgunarbátur þeirra sem veikjast alvarlega af Covid-19 og á Íslandi er hann of lítill. „Að sleppa veirunni lausri án takmarkana væri álíka ábyrgðarlaust og bjóða fólki um borð í skip með alltof fáa björgunarbáta.“ Innlent 13.8.2021 06:46
Telur grímuskylduna komna til að vera Sóttvarnalæknir mun skila tillögum um hertar aðgerðir ef staðan á Landspítala versnar. Forstjóri Landspítalans getur þó ekki svarað því hvað spítalinn ráði lengi við ástandið. Sóttvarnalæknir telur að grímuskyldan sé komin til að vera. Innlent 12.8.2021 19:30
Eldri borgarar bjartsýnir fyrir örvunarbólusetningu Stefnt er að því að hefja endurbólusetningar eldri borgara og fólks með undirliggjandi sjúkdóma samhliða örvunarbólusetningu þeirra sem fengu Janssen. Framkvæmdastjóri hjúkrunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir fólk jákvætt fyrir endurbólusetningunni. Innlent 12.8.2021 19:00
Á von á mikilli uppsveiflu í komu skemmtiferðaskipa á næstu árum Meira en fimmtíu skemmtiferðaskip hafa lagst að bryggju á Ísafirði í sumar. Hafnarstjóri segir að koma skemmtiferðaskipa í Skutulsfjörð í sumar hafi verið kærkomin breyting frá því í fyrra. Von er á að tæplega sextíu skip komi til Ísafjarðar á þessu ári. Innlent 12.8.2021 13:00
Engin alvarleg blóðsegavandamál síðustu fjórar vikur Engar tilkynningar um alvarleg blóðsegavandamál hafa verið tilkynnt á Bretlandseyjum í kjölfar bólusetninga síðustu fjórar vikur. Vísindamenn segja þetta mega rekja til þess að tilmælum var breytt þannig að yngri en 40 ára fá ekki bóluefnið frá AstraZeneca. Erlent 12.8.2021 12:51
Smit frestar aðalfundi Pírata Aðalfundi Pírata fyrir alþingiskosningarnar í haust, sem fram átti að fara um helgina, hefur verið frestað um eina viku. ágúst. Ástæðan er sú starfsmaður Vogs á Fellströnd, þar sem halda á fundinn, greindist smitaður af kórónuveirunni. Innlent 12.8.2021 12:39
Hætta að skoða öll bólusetningavottorð Bólusetningavottorð verða skoðuð með tilviljanakenndum hætti, í þeim tilgangi að leysa úr þeim flöskuhálsi sem hefur myndast og skapað mannmergð á Keflavíkurflugvelli undanfarnar vikur, segir ferðamálaráðherra. Farþegafjöldi á Keflavíkurflugvelli er nú um þriðjungur af því sem hann var fyrir tveimur árum. Innlent 12.8.2021 11:47
Hvetur fólk til að fara í sýnatöku: Er að koma beint inn á gjörgæslu Alls liggja nú 27 inni á Landspítalanum með Covid-19, fimm á gjörgæsludeild og þar af fjórir í öndunarvél. Meðalaldur þeirra 64 sem hafa lagst inn í þessari bylgju er 64 ára en meðalaldur útskrifaðra 50 ára. Innlent 12.8.2021 11:33
Framhaldið veltur á Landspítalanum: Gæti gerst fyrr en seinna að aðgerðir verði hertar Það gæti gerst fyrr en síðar að Landspítalinn sendir út neyðarkall vegna ástandsins og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sjái sig til neyddan að koma með tillögur að hertum aðgerðum innanlands. Innlent 12.8.2021 11:23
Minnst 119 greindust innanlands og fækkar á sjúkrahúsi Í gær greindust hið minnsta 119 innanlands með Covid-19, þar af 80 utan sóttkvíar. 27 sjúklingar eru innlagðir á Landspítala og hefur þeim fækkað um tvo frá því í gær. Fimm eru á gjörgæslu. Þar af eru fjórir sjúklingar í öndunarvél og fjölgar úr tveimur. Innlent 12.8.2021 10:49
Starfandi fjölgar: Vinnumarkaðurinn að rétta úr kútnum Starfandi fólki á íslenskum vinnumarkaði fjölgaði um 7.200 frá öðrum ársfjórðungi síðasta árs til sama tímabils á þessu ári samkvæmt útreikningun Hagstofu Íslands. Innlent 12.8.2021 10:44
Þórólfur, Víðir og Páll fóru yfir stöðu mála á 189. upplýsingafundinum Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar í dag klukkan 11. Innlent 12.8.2021 10:30
Faraldurs-stíflan brestur loksins í haust Frumsýningum fjölmargra kvikmynda hefur verið frestað á tíma nýju kórónuveirunnar en nú virðist sem að stíflan sé að bresta. Fram að jólum verða fjölmargar efnilegar kvikmyndir frumsýndar (vonandi). Bíó og sjónvarp 12.8.2021 08:46
95 komur og brottfarir í dag Fimmtíu og ein brottför er á áætlun frá Keflavíkurflugvelli í dag. Þar ef eru þrjátíu brottfarir með flugvélum Icelandair og þrjár með Play. Innlent 12.8.2021 07:34
Fólk byrjað að losa sig við Covid-gæludýrin Gríðarleg eftirspurn hefur verið eftir gæludýrum í faraldrinum og hafa margir reynt að verða sér úti um málleysingja til að létta lundina í samkomubanni. Innlent 12.8.2021 07:01
Lok og læs á Nýja-Sjálandi út árið Jacinda Ardern, forsætisráðherra Nýja-Sjálands tilkynnti í gær að landamæri ríkisins verði lokuð út þetta ár vegna aukinnar útbreiðslu kórónuveirunnar. Það væri besta leiðin til að halda veirunni í skefjum og efnahagslífinu gangandi. Erlent 12.8.2021 06:38
Upplýsingafundur í dag og allir óbólusettir velkomnir í Höllina í næstu viku Boðað hefur verið til upplýsingafundar kl. 11 í dag um stöðu kórónuveirufaraldursins. Á fundinum fara Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir yfir málin og Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, fjallar um stöðuna á spítalanum. Innlent 12.8.2021 06:21
Þjóðhátíð aflýst annað árið í röð Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum mun ekki fara fram með neinum hætti í ár. Innlent 12.8.2021 00:00
Flestir sem smitast hafa í hópi bólusettra hafi fengið Janssen Flestir þeirra sem höfðu verið bólusettir en greindust engu að síður með kórónuveiruna í þeirri bylgju faraldursins sem nú stendur yfir höfðu fengið bóluefni Janssen. Innlent 11.8.2021 22:55
Sjúkratryggingar greiða fyrir heilbrigðisþjónustu Íslendinga sem smitast erlendis Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í heilbrigðiskostnaði Íslendinga sem smitast af kórónuveirunni erlendis. Greiðsluþátttakan fer þó eftir þeim reglum sem gilda í hverju landi fyrir sig. Innlent 11.8.2021 20:00
Íhugar að útskrifa dóttur sína úr einangrun eftir óljós svör úr öllum áttum Ljósmyndarinn Sigtryggur Ari Jóhannsson segist hafa fengið afar óljós svör um hvenær einangrun tólf ára dóttur hans eigi að ljúka. Hún var send í einangrun 3. ágúst síðastliðinn, og tjáð að hún myndi losna 16. ágúst, að því gefnu að hún yrði án einkenna í minnst sjö daga. Innlent 11.8.2021 19:43
Stefnt á staðnám þó félagslífið muni líklega litast af sóttvarnareglum Lagt verður upp með staðnám að öllu leyti í framhaldsskólum í haust þrátt fyrir samkomutakmarkanir. Formaður Skólameistarafélags Íslands óttast þó að félagslíf nemenda muni líða fyrir sóttvarnareglur. Innlent 11.8.2021 18:31
Öll greind sýni hafa reynst neikvæð Hátt í 120 íbúar svokallaðra öryggisíbúða á vegum hjúkrunarheimilisins Eirar í Grafarvogi voru í dag skimaðir fyrir kórónuveirunni, eftir að sex íbúar í nokkrum húsanna greindust með kórónuveiruna. Stærstu meirihluti niðurstaðna liggur nú fyrir og hefur enginn bæst í hóp smitaðra. Innlent 11.8.2021 17:27
Boða til upplýsingafundar á morgun Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar á morgun klukkan 11:00. Innlent 11.8.2021 16:36
Fimm nú á gjörgæslu og þar af tveir í öndunarvél Nú eru alls 29 sjúklingar inniliggjandi á Landspítalanum vegna Covid-19 og þar af fimm á gjörgæslu. Tveir þeirra eru í öndunarvél. Innlent 11.8.2021 14:33
Skortur á nauðsynlegum hvarfefnum tafði greiningu Covid-sýna Skortur á hvarfefnum varð til þess að tafir voru á greiningu Covid-sýna hjá sýkla- og veirufræðideild Landspítalans á mánudag. Færðist hluti sýnanna yfir á gærdaginn vegna þessa. Innlent 11.8.2021 13:42
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent