Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
79 80 81 82 83 84 85 86 87 … 334 ›
Krónan afnemur grímuskyldu Krónan mun afnema grímuskyldu í verslunum sínum á morgun, 1. september. Telja forsvarsmenn keðjunnar að viðskiptavinum og starfsfólki sé nú treystandi til að meta sjálft hvort þörf sé á grímu. Viðskipti innlent 31.8.2021 19:49
Flugfélögin ekki skyldug til að synja íslenskum ríkisborgurum um heimför skorti þá gögn Íslendingar geta frá og með morgundeginum ferðast til útlanda án þess að eiga hættu á að festast þar skorti þá vottorð við heimför til Íslands. Nýjar leiðbeiningar Samgöngustofu skylda ekki flugfélög til að synja Íslendingum um heimför séu þeir ekki með öll gögn. Innlent 31.8.2021 18:38
Skipar nefnd sem tekur út viðbrögð stjórnvalda við faraldrinum Þriggja manna nefnd hefur verið skipuð af forsætisráðherra sem vinna mun úttekt á viðbrögðum stjórnvalda við Covid-19. Meginverkefni nefndarinnar verður að greina áfallastjórnun vegna faraldursins. Innlent 31.8.2021 14:08
Heill bekkur í læknadeild kominn í sóttkví Heill bekkur í læknadeild við Háskóla Íslands er kominn í sóttkví og losnar ekki fyrr en næstkomandi mánudag. Þar til mun allt nám fara fram í fjarnámi. Innlent 31.8.2021 13:12
Metfjöldi smita greinist í Ísrael Alls greindust 10.947 með Covid-19 í Ísrael síðastliðinn sólarhring en um er að ræða metfjölda greininga á einum degi í landinu. Mest höfðu 10.118 greinst smitaðir á einum degi þann 18. janúar síðastliðinn. Erlent 31.8.2021 12:58
Tíu í sóttkví í stað heillar unglingadeildar Yfirstandandi Covid-bylgja er í hægri rénun á þessari stundu, að sögn staðgengils sóttvarnalæknis. Slakari kröfur um sóttkví eru að taka gildi í skólum landsins og mun færri eru sendir í sóttkví eftir hvert smit. Innlent 31.8.2021 12:02
Að minnsta kosti 80 greindust smitaðir af veirunni í gær Síðasta sólarhringinn greindust 80 smitaðir af kórónuveirunni innanlands. Af þeim voru 43 í sóttkví þegar þeir greindust smitaðir en 37 var utan sóttkvíar. Innlent 31.8.2021 10:59
Innilokaður í tíu daga en hélt lífi í vonum KR: „Ekki planið að ég spilaði“ Eftir að hafa verið lokaður inni í eigin húsnæði í tíu daga á meðan hann jafnaði sig af kórónuveirusmiti fékk Kristinn Jónsson óvænt að koma inn á í leik KR gegn Leikni í fyrradag. Hann var ekki ryðgaðri en svo að hann skoraði bæði mörk KR í afar dýrmætum 2-1 sigri í Pepsi Max-deildinni í fótbolta. Fótbolti 31.8.2021 08:31
Allir óbólusettir og hálfbólusettir velkomnir í bólusetningu Í þessari viku og næstu geta allir óbólusettir og hálfbólusettir einstaklingar 12 ára og eldri með íslenska kennitölu mætt í bólusetningu að Suðurlandsbraut 34. Bólusett er frá kl. 10 til 15 alla virka daga, með bóluefnunum frá Pfizer, Moderna og Janssen. Innlent 31.8.2021 08:31
Óska eftir kælibílum til að anna umframeftirspurn hjá útfararstofum og líkhúsum Yfirvöld í tveimur sýslum í Oregon í Bandaríkjunum hafa óskað eftir flutningabifreiðum með kæligeymslum til að höndla þann fjölda líka sem nú safnast upp á sjúkrahúsum, útfararstofum og líkbrennslum. Erlent 31.8.2021 07:51
Líffæraflutningum hefur fækkað verulega í Covid-faraldrinum Líffæraflutningum hefur fækkað verulega í Covid-19 faraldrinum en mismikið eftir löndum. Þeim fækkaði til að mynda um tæp 10 prósent í Kanada árið 2020 en um tæp 67 prósent í Japan. Erlent 31.8.2021 07:00
Hraðpróf stytta hvorki sóttkví né einangrun Neikvætt hraðpróf fyrir Covid-19 styttir hvorki sóttkví né einangrun. Borið hefur á misskilningi um það samkvæmt tilkynningu frá Embætti landlæknis. Innlent 30.8.2021 16:40
Eru uggandi eftir fyrstu smithrinu síðan grunnskólarnir hófust Smituðum grunnskólabörnum fjölgaði mjög um helgina þegar börn og starfsfólk í um þrjátíu skólum, leikskólum og frístundaheimilum á landinu greindust með veiruna. Innlent 30.8.2021 16:17
Staðan í barnavernd enn þung á öðru ári Covid Frá árinu 2015 hefur verið stöðug aukning í tilkynningum til Barnaverndar Reykjavíkur. Fjölgun tilkynninga tók svo stökk á árinu 2020 þegar tilkynningar fóru í fyrsta skipti yfir 5000. Árið 2020 voru tilkynningarnar 5316 talsins, sem er 14% fjölgun frá því árið 2019, þegar þær voru 4677. Skoðun 30.8.2021 11:31
46 greindust smitaðir af veirunni í gær Síðasta sólarhringinn greindust 46 smitaðir af kórónuveirunni innanlands. Af þeim voru 25 í sóttkví þegar þeir greindust smitaðir en 21 var utan sóttkvíar. Innlent 30.8.2021 10:48
Fyrsta dauðsfallið á Nýja-Sjálandi sem tengt er bóluefninu frá Pfizer Yfirvöld á Nýja-Sjálandi hafa tilkynnt um fyrsta dauðsfallið sem er talið tengjast bólusetningu með Covid-19 bóluefninu frá Pfizer. Eftirlitsnefnd segir konuna líklega hafa látist af völdum hjartavöðvabólgu í kjölfar bólusetningar. Erlent 30.8.2021 07:38
Á leið í útrás en allt hófst þetta í háskólanum „Við fórum af stað sem ungt teymi með ýmislegt ólært. Okkur vantaði meiri breidd í hópinn og höfðum ekki nægilega mikla þekkingu í sölu- og markaðstengdum málum, þar af leiðandi lentum við í byrjunarörðugleikum við að koma vörunni á markað. Þá tók við erfitt tímabil þar sem við misstum gott fólk frá okkur,“ segir Aðalheiður Hreinsdóttir framkvæmdastjóri og einn stofnenda LearnCove. „Þessum tíma fylgdi þó mikill lærdómur og við erum reynslunni ríkari ásamt því að hafa bætt við okkur öflugum einstaklingum í sölu- og markaðshliðinni. Við erum virkilega ánægð með breidd hópsins í dag og hversu vel hann nær saman,“ segir Aðalheiður. Atvinnulíf 30.8.2021 07:00
Tugir í sýnatöku eftir að tveir nemendur greindust smitaðir á Ísafirði Tveir nemendur í 1. bekk Grunnskólans á Ísafirði greindust smitaðir af kórónuveirunni og hafa tugir verið sendir í sýnatöku og sóttkví vegna þess. Engir fleiri hafa greinst smitaðir í þeim hraðprófum sem hafa verið tekin í dag. Innlent 29.8.2021 14:40
51 greindist innanlands, minnihluti í sóttkví Síðasta sólarhringinn greindist 51 smitaður af kórónuveirunni innanlands. Af þeim voru tuttugu í sóttkví þegar þeir greindust smitaðir en 31 var utan sóttkvíar. Innlent 29.8.2021 11:14
Andlát vegna Covid-19 Karlmaður á áttræðisaldri lést eftir baráttu við Covid-19 á Landspítalanum í gær. Innlent 29.8.2021 10:40
Nemendur smitaðir í fjórum grunnskólum Kórónuveirusmit hafa verið greind í nemendum í fjórum grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu, þremur í Reykjavík og einum í Mosfellsbæ. Innlent 29.8.2021 08:11
Delta tvöfaldaði líkur á sjúkrahúsinnlögnum Fólk sem smitaðist af delta-afbrigði kórónuveirunnar var tvöfalt líklegra til að þurfa að leggjast inn á sjúkrahús en þeir sem fengu alfa-afbrigðið sem var algengast við upphafi faraldursins í Bretlandi. Erlent 29.8.2021 07:45
Fjölgaði um einn á gjörgæslu Tólf sjúklingar liggja á Landspítala vegna Covid-19. Þar af eru þrír á gjörgæsludeild þar sem fjölgað hefur um einn frá því í gær. Einn þeirra er í öndunarvél. Innlent 28.8.2021 22:19
Óttast hvorki dóm sögunnar né kjósenda Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna, sagðist ekki óttast dóm sögunnar um aðgerðir ríkisstjórnar hennar á kjörtímabilinu í ræðu á landsfundi flokksins í morgun. Þá sagðist hún ekki hafa áhyggjur ef kórónuveirufaraldurinn verður að kosningamáli. Innlent 28.8.2021 11:24
84 greindust innanlands Í gær greindust minnst 84 innanlands með Covid-19. Af þeim voru 50 í sóttkví við greiningu, en 34 utan sóttkvíar. Innlent 28.8.2021 11:12
Nýjar sóttvarnareglur í gildi Engin takmörk eru lengur á hámarksfjölda gesta í sundlaugum eftir að nýjar sóttvarnareglur tóku gildi á miðnætti. Áfram eru samkomur takmarkaðar við 200 manns en gerð er krafa um grímunotkun þar sem ekki er hægt að tryggja eins metra fjarlægðarmörk. Innlent 28.8.2021 07:27
Hraðpróf geta reynst stjórnvöldum rándýr Stjórnvöld hafa ákveðið að greiða fyrir hraðpróf til að liðka fyrir sitjandi viðburðahaldi, en óljóst er hver mun annast framkvæmd þeirra. Þá tilkynntu stjórnvöld óvænt um auknar tilslakanir í dag. Innlent 27.8.2021 20:16
Báðir sem létust í vikunni úr Covid-19 erlendir ferðamenn Tveir hafa látist af völdum kórónuveirunnar í vikunni hér á landi. Báðir voru erlendir ferðamenn í heimsókn á Íslandi. Innlent 27.8.2021 17:54
Hraðpróf verða gjaldfrjáls fyrir viðburðagesti Fólk sem hyggst sækja viðburði þar sem gerð er krafa um niðurstöðu úr hraðprófi mun geta farið í slíkt próf að endurgjaldslausu. Innlent 27.8.2021 16:23
Uppistandi Jimmy Carr frestað Uppistandi Jimmy Carr, eins vinsælasta grínista heims, hefur verið frestað vegna áframhaldandi samkomutakmarkana. Sýningin mun fara fram í mars á næsta ári. Lífið 27.8.2021 13:18