Erlent
Obie Wan með aukakíló Erlent 27.11.2006 15:21 Olmert býður Palestínumönnum sættir Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels hefur boðið Palestínmönnum sættir, í kjölfar vopnahlés sem lýst var yfir í gær. Hann sagði í stefnuræðu að Ísraelar myndu draga sig í hlé frá Vesturbakkanum og leggja niður landamærabyggðir þar. Forsætisráðherrann sagði líka að ísraelar væru reiðubúnir að fækka eftirlitsstöðvum hersins, afhenda palestínumönnum skattekjur sem þeir hafa innheimt og láta lausa fanga. Erlent 27.11.2006 14:56 Ítalskir hermenn farnir frá Írak fyrir vikulok Síðustu ítölsku hermennirnir í Írak verða komnir til síns heima fyrir vikulok. Þetta segir Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu. Um 60-70 hermenn eru enn í Nassyria þar sem þeir hafa haft yfirumsjón með öryggismálum en írakska lögreglan tekur við af þeim fyrir helgi. Erlent 27.11.2006 14:38 Bandarísk herþota hrapar til jarðar nærri Bagdad Bandarísk herþota af gerðinni F-16 hrapaði til jarðar um 35 kílómetra norðvestur af Bagdad í dag með einn mann um borð. Frá þessu greindu bandarísk hermálayfirvöld. Erlent 27.11.2006 14:26 Blaðamenn fá líflátshótanir Tveir blaðamenn við rússneska blaðið Novaya Gazeta fengu líflátshótanir, í síðustu viku, vegna frétta sem þeir væru að vinna að. Þetta er sama blað og Anna Politkovskaya vann fyrir, en hún var myrt í síðasta mánuði. Erlent 27.11.2006 14:13 Eurotunnel bjargað frá gjaldþroti Meirihluti lánadrottna Eurotunnel, sem rekur göngin á milli Bretlands og Frakklands undir Ermarsundi, hafa samþykkt skuldabreytingu hjá félaginu sem á að forða því frá gjaldþroti og sölu eigna. Breytingin felur í sér stofnun nýs rekstrarfélags, Groupe Eurotunnel. Viðskipti erlent 27.11.2006 14:10 Vilja bætur frá Bretum vegna þrælahalds Blökkumenn í Bretlandi segja að Tony Blair, forsætisráðherra, hafi ekki gengið nógu langt þegar hann harmaði innilega þátt Breta í þrælahaldi fyrr á öldum. Þeir vilja að ráðherrann biðjist fyrirgefningar og lýsi vilja til þess að greiða bætur. Erlent 27.11.2006 13:39 Viðræðurnar út um þúfur Viðræður Tyrkja við Evrópusambandið um stöðu Kýpur runnu í morgun út í sandinn vegna andstöðu þeirra við að aflétta hafnbanni sínu á kýpversk skip eins og ESB hafði krafist. Erlent 27.11.2006 12:46 Þrír sendir í rannsókn vegna hugsanlegrar geislunar Þrír hafa verið sendir á sérstaka rannsóknarstofu í Lundúnum vegna hugsanlegrar geislunar í kjölfar dauða Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB. Frá þessu greindi talsmaður heilbrigðisyfirvalda í Bretlandi í dag. Erlent 27.11.2006 13:12 Ólgan vex vegna morðsins Mikil reiði ríkir á meðal þeldökkra Bandaríkjamanna eftir að óvopnaður blökkumaður var skotinn til bana fyrir utan næturklúbb í New York um helgina, nokkrum klukkustundum fyrir brúðkaup sitt. Erlent 27.11.2006 12:45 Forsætisráðherra Tyrklands hittir páfa Forsætisráðherra Tyrklands hefur breytt dagskrá sinni til þess að hitta Benedikt sextánda páfa, sem kemur í opinbera heimsókn til landsins á morgun. Erlent 27.11.2006 12:44 Neyðarfundur hjá COBRA vegna njósnaramáls John Reid, innanríkisráðherra Bretlands, hefur boðað til neyðarfundar hjá svokallaðri COBRA-nefnd, sem fjallar um þjóðaröryggismál í í Bretlandi, vegna dauða Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB og rússnesku öryggislögreglunni. Erlent 27.11.2006 11:55 « ‹ 214 215 216 217 218 219 220 221 222 … 334 ›
Correa nær öruggur um sigur Talið er nær öruggt að hinn vinstri sinnaði Rafael Correa muni bera sigur af hólmi í forsetakosningunum í Ekvador sem fram fóru á sunnudaginn var. Eftir að búið er að telja hluta atkvæðanna er hann með 63% fylgi og næsti andstæðingur hans aðeins með um 37%. Huga Chavez, hinn vinstri sinnaði forseti Venesúela, er mikill vinur og stuðningsmaður hans og þykir þetta sigur fyrir hann líka en vinstri sinnaðir stjórnmálamenn hafa átt góðu gengi að fagna í kosningum í Suður-Ameríku upp á síðkastið. Erlent 27.11.2006 23:17
Of þungar konur fá síður brjóstakrabbamein Ný bandarísk rannsókn hefur leitt í ljós að konur sem eru of þungar eiga minni hættu á að fá brjóstakrabbamein. Þetta á þó aðeins við fyrir tíðaskipti en eftir þau eru þyngri konur líklegri til þess að fá brjóstakrabbamein. Vísindamenn sögðust gáttaðir á þessu og að þetta gengi gegn flestum viðhorfum um góða heilsu. Þetta á við konur sem eru með yfir 30 í líkamsmassastuðul (e. Body Mass Index). Erlent 27.11.2006 22:56
Bandaríkin vilja alþjóðlegt lið friðargæsluliða til Sómalíu Bandaríkin ætla sér að koma með tillögu í öryggisráðinu um að friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna og Afríkusambandsins muni fara til Sómalíu og styðja stjórnvöld þar í baráttu sinni við íslamska uppreisnarmenn. Ástandið á svæðinu hefur verið vægast sagt erfitt og ræður stjórnin í landinu aðeins yfir borginni sem hún situr í og næsta nágrenni. Erlent 27.11.2006 22:45
Kerry ekki vinsæll meðal bandarískra kjósenda Kjósendur í Bandaríkjunum tóku nýlega þátt í könnun þar sem var metið hversu vel þeir kunnu við hugsanlega forsetaframbjóðendur árið 2008. Alls voru þeir spurðir um 20 hugsanlega frambjóðendur og varð John Kerry, sem tapaði fyrir George W. Bush í kosningunum 2004, neðstur. Erlent 27.11.2006 22:24
Spænska konungsfjölskyldan fjölgar sér Væntanlegt konungshjón Spánar, krónprinsinn Felipe og konan hans Letizia prinsessa, eiga von á sínu öðru barni en þetta staðfestu talsmenn konungsfjölskyldunnar í dag. Letizia prinsessa á von á stúlkubarni og er komin átta vikur á leið. Hún er fyrrum sjónvarpskona og á að eiga í maí á næsta ári. Erlent 27.11.2006 22:00
Íranir lofa Írökum aðstoð Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, tók í dag á móti Jalal Talabani, forseta Íraks, og hófu þeir viðræðu um ástandið í Írak og hvernig Íran gæti komið að því að bæta ástandið þar. Ahmadinejad sagði fyrir fundinn að hann myndi gera allt í sínu valdi til þess að bæta ástandið í Írak en löndin áttu í átta ára löngu stríði á níunda áratug síðustu aldar. Erlent 27.11.2006 21:27
Dómstólar staðfesta sigur Kabila Hæstiréttur Austur-Kongó hefur nú lýst Joseph Kabila forseta landsins eftir að dómstóllinn vísaði frá kærum Jean-Pierre Bemba, hans helsta andstæðings. Dómstóllinn kom saman í utanríkisráðuneyti landsins, þar sem að æstur múgur stuðningsmanna Bemba hafði kveikt í húsi hæstaréttar í mótmælum sem voru í vikunni sem leið, og var dómssalarins og kyrfilega gætt af friðargæslumönnum Sameinuðu þjóðanna sem og hermönnum Austur-Kongó. Erlent 27.11.2006 20:58
Bush í viðræðum við leiðtoga í Mið-Austurlöndum George W. Bush, Bandaríkjaforseti, mun ræða við íraska forsætisráðherrann Nuri al-Maliki um ofbeldisölduna sem er að tröllríða Írak um þessar mundir. Talsmaður Hvíta hússins viðurkenndi að ofbeldið þar í landi væri komið á nýtt stig og vísaði þar í auknar árásir og hefndarárásir trúarhópa. Þess er skemmst að minnast að bandaríska sjónvarpsstöðin NBC hefur ákveðið að kalla ástandið í Írak borgarastyrjöld. Erlent 27.11.2006 20:48
Búið að opna minnismerkið á ný Lögregla í Washington hefur aftur opnað minnismerkið um Lincoln og svæðið í kring eftir að því var lokað í dag vegna ótta um að hættuleg efni eða sprengjur væru þar. Við leit og efnagreiningu kom í ljós að ekki var um hættulegt efni að ræða. Erlent 27.11.2006 20:42
Segist vilja slíðra sverðin Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, segist reiðubúinn til viðræðna við Palestínumenn um lausn fanga og endalok hernáms heimastjórnarsvæðanna. Leiðtogar Hamas-samtakanna taka þessari útréttu sáttahönd með varúð. Erlent 27.11.2006 19:22
Borgarastyrjöld í Írak NBC fréttastöðin í Bandaríkjunum hefur ákveðið að kalla ástandið í Írak borgarastyrjöld þrátt fyrir að hvorki yfirvöld þar í landi eða Írak skilgreini það svo. Talsmenn Hvíta hússins hafa þegar mótmælt þessari skoðun stöðvarinnar. Stjórnmálafræðingar telja að þetta eigi eftir að hafa töluverð áhrif á skoðanir amerísks almennings á ástandinu í Írak. Erlent 27.11.2006 19:25
Grunsamleg efni finnast í Washington Hluta af minnismerkinu um Abraham Lincoln hefur verið lokað eftir að grunsamlegt efni fannst á svæðinu en lögreglumaður þar skýrði frá þessu í dag. Sögðust þeir vera að fylgja settum starfsreglum og að svæðið myndi sennilega aðeins vera lokað í stuttan tíma á meðan efnið yrði rannsakað. Starfsmaður bandarísku ríkisstjórnarinnar sagði að umslag með orðinu "anthrax" hefði fundist við minnismerkið. Erlent 27.11.2006 18:58
Kvörtunum Bemba vísað frá dómi Hæstiréttur Austur-Kongó úrskurðaði rétt í þessu í kvörtunum þeim sem Jean-Pierre Bemba lagði fram vegna því sem hann kallaði óreglu í lokaumferð forsetakosninga landsins sem fram fóru þann 29. október síðastliðinn. Hæstiréttur vísaði þeim öllum frá og samkvæmt því ætti ekki að vera langt þangað til Joseph Kabila, sigurvegari kosninganna, verði staðfestur af hæstarétti sem forseti landsins. Erlent 27.11.2006 18:02
837 demantar í einum hring Úkraínska skartgripahúsið Lobortas & Karpova afhjúpaði í dag gullhring með alls 837 afrískum og jakútskum demöntum og segja þeir jafnframt að þetta sé heimsmet í fjölda demanta á einum hring. Ekki hefur þó verið gefið upp hversu mikils virði hringurinn, sem kallaður er "Dans engilsins" er en hann er í einkaeign úkraínskar viðskiptakonu. Erlent 27.11.2006 17:54
Merkel endurkjörin formaður CDU Angela Merkel, kanslari Þýskalands, var í dag endurkjörin formaður Kristilegra demókrata á landsfundi þeirra í Dresden. Merkel hlaut 93 prósent atkvæða sem staðfesti stuðning flokkssystkina hennar við hana í embætti. Erlent 27.11.2006 16:57
Hvernig er veðrið í Ástralíu ? Farsími sem hvarf af skoska þinginu í janúar árið 2004 hefur verið aftengdur. Hinsvegar verður erfiðara að aftengja símreikning upp á tæpar átta milljónir króna, sem eftir stendur. Síminn var ætlaður starfsfólki til afnota um helgar og þegar það þurfti að yfirgefa skrifstofur sínar. Erlent 27.11.2006 16:47
Tóbaksframleiðendur anda léttar Hæstiréttur Bandaríkjanna staðfesti í dag frávísun 700 milljarða króna sektar á hendur tóbaksframleiðandanum Philip Morris. Erlent 27.11.2006 16:24
Óvægin kvikmyndagagnrýni Hópur vopnaðra múslima réðst inn í kvikmyndahús í Sómalíu, í gær, þar sem verið var að sýna leik Chelsea og Manchester United, í ensku úrvalsdeildinni. Byssumennirnir skutu yfir höfuð fótboltaunnenda, brutu tæki og handtóku tuttugu og fimm þeirra. Meðal hinna handteknu voru börn allt niður í tíu ára. Erlent 27.11.2006 15:51
Olmert býður Palestínumönnum sættir Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels hefur boðið Palestínmönnum sættir, í kjölfar vopnahlés sem lýst var yfir í gær. Hann sagði í stefnuræðu að Ísraelar myndu draga sig í hlé frá Vesturbakkanum og leggja niður landamærabyggðir þar. Forsætisráðherrann sagði líka að ísraelar væru reiðubúnir að fækka eftirlitsstöðvum hersins, afhenda palestínumönnum skattekjur sem þeir hafa innheimt og láta lausa fanga. Erlent 27.11.2006 14:56
Ítalskir hermenn farnir frá Írak fyrir vikulok Síðustu ítölsku hermennirnir í Írak verða komnir til síns heima fyrir vikulok. Þetta segir Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu. Um 60-70 hermenn eru enn í Nassyria þar sem þeir hafa haft yfirumsjón með öryggismálum en írakska lögreglan tekur við af þeim fyrir helgi. Erlent 27.11.2006 14:38
Bandarísk herþota hrapar til jarðar nærri Bagdad Bandarísk herþota af gerðinni F-16 hrapaði til jarðar um 35 kílómetra norðvestur af Bagdad í dag með einn mann um borð. Frá þessu greindu bandarísk hermálayfirvöld. Erlent 27.11.2006 14:26
Blaðamenn fá líflátshótanir Tveir blaðamenn við rússneska blaðið Novaya Gazeta fengu líflátshótanir, í síðustu viku, vegna frétta sem þeir væru að vinna að. Þetta er sama blað og Anna Politkovskaya vann fyrir, en hún var myrt í síðasta mánuði. Erlent 27.11.2006 14:13
Eurotunnel bjargað frá gjaldþroti Meirihluti lánadrottna Eurotunnel, sem rekur göngin á milli Bretlands og Frakklands undir Ermarsundi, hafa samþykkt skuldabreytingu hjá félaginu sem á að forða því frá gjaldþroti og sölu eigna. Breytingin felur í sér stofnun nýs rekstrarfélags, Groupe Eurotunnel. Viðskipti erlent 27.11.2006 14:10
Vilja bætur frá Bretum vegna þrælahalds Blökkumenn í Bretlandi segja að Tony Blair, forsætisráðherra, hafi ekki gengið nógu langt þegar hann harmaði innilega þátt Breta í þrælahaldi fyrr á öldum. Þeir vilja að ráðherrann biðjist fyrirgefningar og lýsi vilja til þess að greiða bætur. Erlent 27.11.2006 13:39
Viðræðurnar út um þúfur Viðræður Tyrkja við Evrópusambandið um stöðu Kýpur runnu í morgun út í sandinn vegna andstöðu þeirra við að aflétta hafnbanni sínu á kýpversk skip eins og ESB hafði krafist. Erlent 27.11.2006 12:46
Þrír sendir í rannsókn vegna hugsanlegrar geislunar Þrír hafa verið sendir á sérstaka rannsóknarstofu í Lundúnum vegna hugsanlegrar geislunar í kjölfar dauða Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB. Frá þessu greindi talsmaður heilbrigðisyfirvalda í Bretlandi í dag. Erlent 27.11.2006 13:12
Ólgan vex vegna morðsins Mikil reiði ríkir á meðal þeldökkra Bandaríkjamanna eftir að óvopnaður blökkumaður var skotinn til bana fyrir utan næturklúbb í New York um helgina, nokkrum klukkustundum fyrir brúðkaup sitt. Erlent 27.11.2006 12:45
Forsætisráðherra Tyrklands hittir páfa Forsætisráðherra Tyrklands hefur breytt dagskrá sinni til þess að hitta Benedikt sextánda páfa, sem kemur í opinbera heimsókn til landsins á morgun. Erlent 27.11.2006 12:44
Neyðarfundur hjá COBRA vegna njósnaramáls John Reid, innanríkisráðherra Bretlands, hefur boðað til neyðarfundar hjá svokallaðri COBRA-nefnd, sem fjallar um þjóðaröryggismál í í Bretlandi, vegna dauða Alexanders Litvinenkos, fyrrverandi njósnara hjá KGB og rússnesku öryggislögreglunni. Erlent 27.11.2006 11:55