Erlent
141 142 143 144 145 146 147 148 149 … 334 ›
Blackstone Group ætlar í hlutafjárútboð Bandaríski fjárfestasjóðurinn Blackstone Group, sem er einn af stærstu sjóðum heims, ætlar að efna til almenns hlutafjárútboðs með hluta af bréfum í sjóðum og skrá félagið á markað. Markmiðið er að auka hlutafé um fjóra milljarða bandaríkjadali, jafnvirði 266 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 23.3.2007 09:55
Erkibiskup hvetur til mótmæla Erkibiskup rómversk kaþólsku kirkjunnar í Bulawayo í Zimbabwe, Pius Ncube, hefur skorað á almenning að mótmæla þangað til Robert Mugabe, forseti landsins, segir af sér. Ncube sagðist jafnvel tilbúinn að mótmæla þó svo skothríð lögreglumanna myndi dynja á honum. Erlent 22.3.2007 23:13
Bemba leitar hælis í sendiráði Suður-Afríku Jean-Pierre Bemba, fyrrum uppreisnarleiðtogi og núverandi stjórnarandstöðuleiðtogi í Kongó, hefur leitað hælis í sendiráði Suður-Afríku eftir að fylgismönnum hans sló í brýnu við stjórnarher landsins í höfuðborginni Kinshasa í dag. Suður-afríska utanríkisráðuneytið skýrði frá þessu í kvöld. Í tilkynningunni frá utanríkisráðuneytinu var einnig tekið fram að aðeins væri um tímabundna ráðstöfun að ræða. Erlent 22.3.2007 22:58
Handtóku þrjá í tengslum við hryðjuverk Breska lögreglan handtók í dag þrjá menn sem taldir eru tengjast sjálfsmorðssprengjuárásunum í Lundúnum þann 7. júlí árið 2005. Tveir menn voru handteknir á flugvellinum í Manchester rétt áður en þeir fóru um borð í flugvél á leið til Pakistan. Þriðji maðurinn var handtekinn í heimahúsi í Leeds. Erlent 22.3.2007 22:32
Níu létust vegna sprenginga í hergagnageymslu Há hitastig í höfuðborg Mósambík, Maputo, settu af stað miklar sprengingar í hergagnageymslu í dag. Níu manns létu lífið vegna sprenginganna og 99 slösuðust í þeim. Sprengingarnar urðu í hergagnageymslu sem geymdi gamlar sprengjur og eldflaugar. Þær fóru síðan í nærliggjandi hús með fyrrgreindum afleiðingum. Erlent 22.3.2007 22:00
Unglingar verða sektaðir fyrir að mæta ekki í skólann Bresk stjórnvöld ætla sér að refsa unglingum á aldrinum 16 til 18 ára sem neita að vera í námi. Samkvæmt nýrri tillögu sem brátt verður lögð fram eiga unglingarnir yfir höfði sér 50 punda sekt eða nokkurra daga samfélagsþjónustu ef þeir mæta ekki í skólann. Erlent 22.3.2007 21:27
Stálu nærfötum fyrir 785 þúsund krónur Þrír djarfir ræningjar stálu nærbuxum og brjóstahöldurum úr verslun Victoria's Secret í New Jersey í Bandaríkjunum á þriðjudaginn var fyrir andvirði um 785.000 krónur. Þeir voru með sérstakar töskur til þess að koma í veg fyrir að öryggiskerfi verslunarinnar myndi gera starfsmönnum viðvart. Erlent 22.3.2007 21:14
Eiginkona Edwards með krabbamein Elizabeth Edwards, eiginkona John Edwards sem er að vonast til þess að hljóta útnefningu demókrata sem forsetaframbjóðandi þeirra, hefur greinst með krabbamein. Um er að ræða brjóstakrabbamein sem er að taka sig upp á ný. Nú er það komið í beinin. Upp komst þegar að hún rifbeinsbrotnaði og þurfti að fara í röntgenmyndatöku. Erlent 22.3.2007 20:40
Lögregla rannsakar dauðsfall Woolmers Lögreglan á Jamaíka rannsakar nú sviplegt fráfall þjálfara pakistanska landsliðsins í krikket sem grunsamlegt dauðsfall. Hún hefur lokið við að yfirheyra alla liðsmenn pakistanska krikketlandsliðsins og eru þeir nú frjálsir ferða sinna. Enginn er grunaður í málinu enn sem komið er. Erlent 22.3.2007 20:28
Demókratar ögra Bush Fjármálanefnd öldungadeildar bandaríska þingsins samþykkti í dag tillögu sem að kveður á um að George W. Bush, forseti Bandaríkjanna verði að kalla nær alla bardagabúna hermenn frá Írak fyrir 31. mars árið 2008. Ákvæðið var hluti af aukafjárveitingu til stríðsrekstursins í Írak og Afganistan. Erlent 22.3.2007 20:22
Átök í Kongó Vígamenn hliðhollir Jean-Pierre Bemba og hermenn stjórnvalda í Kongó tókust á í höfuðborginni Kinshasa í dag eftir að Bemba hunsaði tilskipun forseta landsins um að fækka í persónulegu verndarliði sínu. Bemba hefur nú nokkur þúsund menn í verndarliði sínu en má einungis hafa tólf. Erlent 22.3.2007 20:17
Öruggt vatn er jafnréttismál Tæpur fimmtungur jarðarbúa hefur ekki aðgang að öruggu drykkjarvatni og fjórir af hverjum tíu hafa ekki aðgang að viðunandi frárennslisaðstöðu. Hreint vatn er brýnasta jafnréttismál þróunarlandanna að mati fræðslufulltrúa Hjálparstarfs kirkjunnar. Erlent 22.3.2007 18:57
Ný tækifæri felast í samningnum Samgönguráðherrar Evrópusambandsins náðu í morgun samkomulagi um umfangsmikinn loftferðasamning við Bandaríkin, sem búist er við að muni stórauka samkeppni á flugleiðum yfir Atlantshafið. Forstjóri Icelandair fagnar samningnum og sér í honum margvísleg tækifæri. Erlent 22.3.2007 18:54
Sjónvarpsstöðvar sameinast gegn YouTube Bandarísku sjónvarpsstöðvarnar NBC Universal og Fox ætla að taka höndum saman og stofna netveitu sem miðlar efni þeirra. Netveitan er stofnuð til höfuðs öðrum netveitum sem miðla sjónvarpsefni, svo sem YouTube, sem er í eigu netleitarfyrirtækisins Google. Viðskipti erlent 22.3.2007 17:06
Helstu fljót heimsins í hættu Talið er að um fimm þúsund börn láti lífið daglega vegna skorts á hreinu drykkjarvatni. Margir óttast að þetta eigi enn eftir að versna, bæði vegna loftslagsbreytinga og annarra þátta. Því er til dæmis haldið fram að mörg helstu fljót heimsins séu í hættu vegna aðgerða mannanna. Það er sagt hafa mjög slæm áhrif á fljót og vötn að setja þar stíflur, eða breyta farvegi. Erlent 22.3.2007 14:22
Gore gagnrýndur fyrir eigin orkunotkun. Al Gore, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna, skoraði í gær á Bandaríkjaþing að grípa til aðgerða gegn hlýnun jarðar sem allra fyrst. Þingmenn gagnrýndu Gore á móti fyrir eigin orkunotkun. Erlent 22.3.2007 13:12
Samkeppnin mun að líkindum stóraukast Leiðtogar Evrópusambandsins náðu í morgun samkomulagi um umfangsmikinn loftferðasamning við Bandaríkin sem búist er við að muni stórauka samkeppni á flugleiðum yfir Atlantshafið. Erlent 22.3.2007 13:06
Vöxtur smásöluverslunar yfir spám í Bretlandi Smásöluverslun jókst um 1,4 prósent í Bretlandi í febrúar. Hækkunin nemur 4,9 prósentum á ársgrundvelli, samkvæmt upplýsingum bresku hagstofunnar. Þetta er nokkru meira en greinendur gerðu ráð fyrir. Þá er þetta talsverður viðsnúningur frá lokum síðasta árs en í nóvember og desember dróst smásöluverslun saman á milli mánaða. Viðskipti erlent 22.3.2007 10:07
Barátta Obama og Clintons hafin Tíu mánuðum áður en forvalskosningar bandarísku stjórnmálaflokkanna fara fram hafa átökin á milli stuðningsmanna Hillary Clinton og Barack Obama hafist. En núna er baráttan háð á internetinu. Erlent 21.3.2007 23:30
Ákærður fyrir samstarf með hryðjuverkamönnum Fyrrum sjóliði í bandaríska hernum hefur verið ákærður fyrir að gefa hryðjuverkamönnum leynilegar upplýsingar um staðsetningu herskipa Bandaríkjamanna. Bandarísk yfirvöld skýrðu frá þessu í kvöld. Hassan Abujihaad, 31 árs, var handtekinn í Phoenix í Bandaríkjunum fyrir stuttu. Erlent 21.3.2007 23:13
700 manna gifting í Belgíu Um 700 belgar létu gefa sig saman í táknrænni athöfn í flæmska bænum St-Niklaas í norðurhluta Belgíu í kvöld. Í febrúar sem leið höfðu þrjú pör neitað að láta svartan prest sem þar starfar gefa sig saman. Erlent 21.3.2007 22:38
Létu háttsettan uppreisnarmann lausan Bandaríski herinn þurfti að láta lausan einn helsta aðstoðarmann sjía klerksins Moqtada al-Sadr að beiðni forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki. Ahmed Shibani, sem hafði verið í haldi Bandaríkjamanna í meira en tvö ár, var háttsettur aðstoðarmaður al-Sadr. Al-Sadr er óvinveittur Bandaríkjunum og er leiðtogi Mehdi hersins sem Bandaríkjamenn hafa sagt helstu ógnina við öryggi í Írak. Erlent 21.3.2007 22:16
Fékk ekki skilnað þrátt fyrir barsmíðar Þýskur dómari neitaði nýverið að veita konu ættaðri frá Marokkó skilnað, þrátt fyrir að eiginmaður hennar hefði lamið hana ítrekað. Ástæðuna sagði dómarinn vera að Kóraninn leyfði barsmíðar á heimilinu. Í úrskurði sínum sagði dómarinn, sem er kvenkyns, að þar sem parið kæmi frá menningarheimi þar sem ofbeldi innan heimilisins viðgengist og væri viðurkennt, fengi konan ekki skilnað frá eiginmanni sínum. Erlent 21.3.2007 21:57
Starbucks og McCartney: Gott kaffi Bandaríska kaffifyrirtækið Starbucks hefur sagt frá því að fyrsti tónlistamaðurinn sem skrifar undir hjá nýju plötufyrirtæki þeirra sé Sir Paul McCartney. Fyrirtækið lýsti því yfir í síðustu viku að það myndi brátt leita samninga við listamenn en það hefur áður aðeins gefið út tónlist sem hefur áður komið út. Erlent 21.3.2007 21:38
Írakar ræða við uppreisnarhópa Stjórnvöld í Írak hafa undanfarna daga átt í viðræðum við forvígismenn uppreisnarhópa sem ekki tengjast al-Kaída. Háttsettur starfsmaður stjórnvalda skýrði frá þessu í dag. Erlent 21.3.2007 21:13
Þingið skipar rágjöfum Bush að bera vitni Nefnd fulltrúadeildar bandaríska þingsins hefur samþykkt tilskipun sem neyðir ráðgjafa George W. Bush, Bandaríkjaforseta, til þess að bera vitni á meðan þeir eru eiðsvarnir. Hvíta húsið hafði áður sagt að það myndi ekki leyfa ráðgjöfunum að ræða við nefndina ef þeir væru eiðsvarnir. Erlent 21.3.2007 20:57
Stýrivextir óbreyttir í Bandaríkjunum Seðlabanki Bandaríkjanna lét í dag stýrivexti óbreytta en viðurkenndi þó að efnahagur landsins hefði veikst og að verðbólga hefði hækkað. Vextirnir verða því áfram 5,25 prósent. Sérfræðingar höfðu búist við því að þetta yrði niðurstaðan. Viðskipti erlent 21.3.2007 19:36
83 flugferðum frestað Flug skandinavíska flugfélagsins SAS, til og frá Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn, lá niðri í morgun þegar flugþjónar og flugfreyjur fóru í nokkurra klukkustunda skyndiverkfall. Erlent 21.3.2007 18:58
Lík hermanna vanvirt Fimmtán manns hafa látið í lífið í átökum uppreisnarmanna og sómalska stjórnarhersins í dag, þeim hörðustu frá því íslamistar voru hraktir frá völdum í lok síðasta árs. Kveikt var í líkum hermanna og þau dregin eftir götum höfuðborgarinnar, Mogadishu. Erlent 21.3.2007 18:28
Chirac styður Sarkozy Jacques Chirac, Frakklandsforseti, lýsti í dag yfir stuðningi við Nicolas Sarkozy fyrir forsetakosningar sem fram fara í landinu í vor. Yfirlýsingin hefur mikla þýðingu fyrir Sarkozy því grunnt hefur verið á því góða með þeim Chirac undanfarin ár. Erlent 21.3.2007 18:24
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent