Erlendar
96 97 98 99 100 101 102 103 104 … 264 ›
San Antonio spáð sigri á næsta ári Það er hefði í NBA deildinni fyrir upphaf deildarkeppninnar að framkvæmdastjórar félaganna geri spá fyrir komandi leiktíð líkt og gerist hér á Íslandi. Meirihluti þessara manna spáir því að lið San Antonio muni standa uppi sem sigurvegari næsta sumar og hallast þeir að því að LeBron James verði kjörinn verðmætasti leikmaðurinn á tímabilinu. Körfubolti 25.10.2006 15:47
Ekki afskrifa okkur Steven Gerrard segir að fólk ætti að forðast að afskrifa titilvonir Liverpool þó gengi liðsins hafi alls ekki staðist væntingar í upphafi leiktíðar og bendir á að Manchester United og Chelsea eigi eftir að misstíga sig áður en langt um líður. Enski boltinn 25.10.2006 15:36
Mikill halli hjá Sheffield United Enska úrvalsdeildarfélagið Sheffield United var rekið með methalla á síðasta ári vegna aukinna bónusa sem félagið þurfti að greiða leikmönnum sínum í kjölfar þess að liðið vann sér sæti í úrvalsdeildinni í vor. Enski boltinn 25.10.2006 15:25
Níu æfingaleikir fóru fram liðna nótt Meistarar Miami Heat lögðu Orlando Magic 92-82 í æfingaleik í NBA deildinni í nótt, en leikurinn var sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni og var hin besta skemmtun. Antoine Walker skoraði 16 stig og hirti 10 fráköst fyrir Miami en Hedo Turkoglu skoraði 18 stig fyrir Orlando. Körfubolti 25.10.2006 14:39
Ákærir Englendinga fyrir ólæti í Króatíu Enska knattspyrnusambandinu hefur verið birt kæra vegna óláta stuðningsmanna enska landsliðsins fyrir leik liðsins gegn Króötum í Zagreb á dögunum. Talsmenn enska knattspyrnusambandsins hafa ekki stórar áhyggjur af kærunni því þeir telja sig hafa mikið við starfshætti kollega sína í Króatíu að athuga. Enski boltinn 25.10.2006 14:16
Klístri snýr aftur annað kvöld Framherjinn Alan Smith spilar væntanlega sinn fyrsta leik í níu mánuði í byrjunarliði Manchester United annað kvöld þegar liðið sækir Crewe heim í enska deildarbikarnum. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn. Enski boltinn 24.10.2006 18:53
Hughes stýrir Blackburn í 100. sinn Leikur Blackburn og Chelsea í enska deildarbikarnum annað kvöld er merkilegur fyrir þær sakir að hér er um að ræða 100. leik Mark Hughes í stjórastólnum hjá félaginu. Enski boltinn 24.10.2006 21:12
Enn tapar West Ham Ógæfa enska úrvalsdeildarliðsins West Ham virðist engan endi ætla að taka og í kvöld féll liðið úr keppni í enska deildarbikarnum með því að tapa 2-1 fyrir liði Chesterfield sem leikur í 2. deildinni. Enski boltinn 24.10.2006 20:39
Massa ætlar ekki að gera Raikkönen neina greiða Brasilíski ökuþórinn Felipe Massa hjá Ferrari hefur sent verðandi félaga sínum Kimi Raikkönen og öðrum keppinautum sínum aðvörun fyrir næsta keppnistímabil og ætlar sér stóra hluti. Formúla 1 24.10.2006 19:28
Orlando - Miami í beinni Níu leikir eru á dagskrá á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt og verður leikur Flóridaliðanna Orlando Magic og Miami Heat sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á besta tíma í kvöld eða klukkan 23. Körfubolti 24.10.2006 20:14
West Ham yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í öllum leikjum kvöldsins í enska deildarbikarnum. West Ham hefur yfir 1-0 gegn Chesterfield í sjónvarpsleiknum á Sýn þar sem Marlon Harewood skoraði mark gestanna í upphafi leiks. Enski boltinn 24.10.2006 19:40
Mark Viduka tábrotinn Ástralski framherjinn Mark Viduka getur ekki spilað með Middlesbrough næstu sex vikurnar eða svo eftir að í ljós kom að hann tábrotnaði í leik gegn Newcastle á sunnudaginn. Enski boltinn 24.10.2006 19:15
58% leikmanna gerðu sér upp meiðsli Jiri Dvorak, yfirlæknir alþjóða knattspyrnusambandsins, segir að við nánari athugun hafi komið í ljós að 58% leikmanna sem þurftu læknisaðstoð á meðan leik stóð á HM í sumar hafi alls ekki verið verið meiddir. Fótbolti 24.10.2006 18:28
Dennis Wise tekur við Leeds Harðjaxlinn Dennis Wise var í dag ráðinn knattspyrnustjóri Leeds United og honum til aðstoðar verður annar gamall Chelsea-maður Gus Poyet. Þeir félagar voru síðast við stjórnvölinn hjá Swindon og gerðu þar ágæta hluti. Ráðning Wise hefur valdið nokkru fjaðrafoki á meðal stuðningsmanna Leeds, en árangur hans með liðið fær væntanlega úr því skorið hvort hann verður tekinn í sátt. Enski boltinn 24.10.2006 17:50
Nóg að vinna einn titil í viðbót Heimsmeistarinn Fernando Alonso segist sáttur geta lagt stýrið á hilluna ef hann nær að vinna einn titil í viðbót og jafna þar með árangur Brasilíumannsins Ayrton Senna. Hinn 25 ára gamli Spánverji varð um helgina heimsmeistari annað árið í röð. Formúla 1 24.10.2006 17:10
Kristján og Veigar tilnefndir í lið ársins Kristján Örn Sigurðsson hjá Brann og Veigar Páll Gunnarsson hjá Stabæk eru tilnefndir sem varnar- og sóknarmaður ársins í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þetta árið, en venja er að veita leikmönnum sem þykja hafa skarað framúr í hverri stöðu verðlaun eftir hvert tímabil. Fótbolti 24.10.2006 17:18
Schumacher er besti ökumaður allra tíma Michael Schumacher er besti ökumaður í sögu Formúlu 1 að mati þeirra Niki Lauda og David Coulthard, en þýski ökuþórinn lagði stýrið á hilluna eftir Brasilíukappaksturinn á sunnudaginn. Formúla 1 24.10.2006 16:54
Cech útskrifaður af sjúkrahúsi Tékkneski landsliðsmarkvörðurinn Petr Cech var í dag útskrifaður af sjúkrahúsi og talið er að hann muni hefja léttar æfingar á ný eftir helgina. Höfuðkúpa markvarðarins brákaðist í samstuði hans við leikmann Reading um fyrir rúmri viku og búist er við því að hann verði í það minnsta þrjá mánuði frá fullum æfingum á meðan sár hans gróa. Enski boltinn 24.10.2006 16:50
Kolo Toure framlengir við Arsenal Fílabeinsstrendingurinn Kolo Toure hefur framlengt samning sinn við enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal. Ekki hefur verið gefið upp hve lengi samningurinn mun gilda, en þessi 25 ára gamli varnarmaður hefur lýst því yfir að hann vilji vera sem lengst hjá félaginu. Enski boltinn 24.10.2006 16:34
Adriano farinn í frí til heimalandsins Brasilíska framherjanum Adriano hjá Inter Milan hefur verið gefið vikufrí af forráðamönnum félagsins sem hann mun nota til að fara til heimalandsins í læknis- og sálfræðimeðferð. Adriano hefur alls ekki náð sér á strik á síðustu mánuðum og hefur ekki skorað mark síðan í vor. Fótbolti 24.10.2006 16:01
Gerrard verður áfram á kantinum Rafa Benitez segist ætla að halda áfram að tefla enska landsliðsmanninum Steven Gerrard fram á hægri kanti áfram, þrátt fyrir að þessi ráðstöfun hafi verið gagnrýnd harðlega í kjölfar lélegs gengis liðsins í úrvalsdeildinni undanfarið. Enski boltinn 24.10.2006 16:28
Vandræði hjá Sacramento Lið Sacramento Kings virðist ekki ætla að byrja leiktíðina glæsilega í NBA, en nú þegar nákvæmlega vika er í að deildarkeppnin hefjist hefur liðið orðið fyrir tveimur áföllum en góðu fréttirnar eru kannski þær að hvorugt atvikið tengist vandræðagemlingnum Ron Artest. Körfubolti 24.10.2006 14:40
Ensk lið hafa mikinn áhuga á Beckham Glenn Roeder segir að ef David Beckham tæki þá ákvörðun að snúa aftur til Englands, yrði enginn skortur á kauptilboðum frá liðum í heimalandi hans. Þetta segir Roader í kjölfar þess að Beckham sagðist ósáttur við að sitja á varamannabekknum hjá Real Madrid - en það hefur vitanlega valdið fjaðrafoki í breskum blöðum. Enski boltinn 24.10.2006 16:09
Raul íhugaði að hætta eftir tapið gegn Getafe Ramon Calderon, forseti Real Madrid, segir að framherjinn Raul hafi verið mjög langt niðri eftir að liðið tapaði fyrir Getafe í deildinni á dögunum og segir leikmanninn hafa íhugað alvarlega að hætta í kjölfarið. Fótbolti 24.10.2006 15:55
Chesterfield - West Ham í beinni Nokkrir leikir fara fram í enska deildarbikarnum í kvöld og verður sjónvarpsstöðin Sýn með beina útsendingu frá leik Chesterfield og West Ham klukkan 18:30. West Ham hefur gengið afleitlega í síðustu leikjum og því er ekki laust við að öll augu beinist að Alan Pardew og félögum í kvöld. Enski boltinn 24.10.2006 15:05
United að kaupa ungan Portúgala Heimildir Sky sjónvarpsstöðvarinnar herma að Manchester United sé við það að ganga frá kaupum á 15 ára gömlum portúgölskum sóknarmanni, Evandro Brandao hjá Walsall. Brandao þessi hefur búið á Englandi í níu ár og því er haldið fram að hann hafi þegar skrifað undir tveggja ára samning við úrvalsdeildarfélagið. Enski boltinn 24.10.2006 14:54
Wright-Phillips orðaður við Atletico Madrid Talsmaður spænska stórliðsins Atletico Madrid segir ekkert til í þeim orðrómi að félagið ætli að bjóða í enska kantmanninn Shaun Wright-Phillips þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar, en félagið er nú að leita að manni í stað þeirra Maxi Rodriguez og Martin Petrov sem báðir verða lengi frá vegna meiðsla. Fótbolti 24.10.2006 14:47
Þrír leikir fóru fram í nótt Þrír leikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt, en deildarkeppnin hefst eftir nákvæmlega viku. Leikur grannaliðanna Orlando og Miami verður sýndur beint á NBA TV klukkan 23:00 í nótt. Körfubolti 24.10.2006 14:24
Mascherano þykir Defoe sleppa vel Argentínski miðjumaðurinn Javier Mascherano hjá West Ham er mjög ósáttur við að Jermain Defoe skuli ekki hafa fengið harðari refsingu en gult spjald fyrir á bíta sig í leik grannaliðanna á sunnudag. Enski boltinn 24.10.2006 14:14
Porato til reynslu hjá Chelsea Ensku meistararnir Chelsea eru nú með markvörðinn Stephane Porato til reynslu en ef hann stendur sig vel fær hann það hlutverk að leysa Petr Cech af hólmi. Þar eð félagaskiptaglugginn er lokaður, getur Chelsea ekki keypt samningsbundinn leikmann en Porato þessi er með lausa samninga. Enski boltinn 24.10.2006 14:07
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent