Erlendar
72 73 74 75 76 77 78 79 80 … 264 ›
Kiel upp að hlið Flensburg á toppnum Kiel komst í dag upp að hlið Flensburg á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta þegar liðið skellti Lemgo 37-30 á heimavelli sínum. Logi Geirsson skoraði 4 mörk fyrir Lemgo í leiknum en Ásgeir Örn Hallgrímsson komst ekki á blað. Þrír leikir eru á dagskrá í deildinni síðar í kvöld. Handbolti 9.12.2006 16:16
Níu sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix Suns vann í nótt sinn níunda leik í röð í NBA deildinni þegar liðið skellti Boston á útivelli 116-111. Shawn Marion skoraði 29 stig og hirti 12 fráköst fyrir Phoenix en Paul Pierce skoraði 36 stig fyrir Boston. Körfubolti 9.12.2006 15:54
Tottenham yfir gegn Charlton Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sex sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Tottenham hefur 2-1 forystu gegn Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Charlton. Dimitar Berbatov og Teemu Tainio komu heimamönnum í 2-0 en Michael Dawson jafnaði fyrir gestina með sjálfsmarki skömmu fyrir leikhlé. Enski boltinn 9.12.2006 15:49
United vann grannaslaginn Manchester United lagði granna sína í Manchester City 3-1 í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Wayne Rooney, Louis Saha og Cristiano Ronaldo skoruðu mörk United en Hatem Trabelsi minnkaði muninn fyrir City - sem missti Bernardo Corradi af velli með rautt spjald á síðustu mínútunni. United hefur því náð 9 stiga forskoti á Chelsea á toppi deildarinnar. Enski boltinn 9.12.2006 14:48
Dramatískur sigur Flensburg Lærisveinar Viggós Sigurðssonar í Flensburg tryggðu sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta þegar liðið vann 10 marka sigur á Celje Lasko á heimavelli sínum 36-26. Celje vann fyrri leik liðanna einnig með 10 marka mun á heimavelli, en þýska liðið fer áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli. Handbolti 8.12.2006 22:23
Coppell stjóri nóvembermánaðar Steve Coppell, stjóri Íslendingaliðs Reading í ensku úrvalsdeildinni, var í dag kjörinn knattspyrnustjóri mánaðarins í annað sinn á leiktíðinni. Reading hefur komið mjög á óvart í vetur og vann sigur á Tottenham, Charlton og Fulham, en tapaði fyrir Liverpool. Coppell var einnig kjörinn stjóri septembermánaðar. Enski boltinn 8.12.2006 21:00
Sacramento - Miami á Sýn í kvöld Leikur Sacramento Kings og Miami Heat frá því liðna nótt verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 0:25 eftir miðnætti. Þá verður leikur Milwaukee og Memphis sýndur í beinni útsendingu á NBA TV á Fjölvarpinu klukkan 1:30 í nótt svo það er nóg um að vera á skjánum fyrir körfuboltaáhugamenn í kvöld. Körfubolti 8.12.2006 21:18
Ronaldo bestur í nóvember Portúgalski vængmaðurinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United var í dag útnefndur knattspyrnumaður nóvembermánaðar í ensku úrvalsdeildarinnar. United tapaði ekki leik í deildinni í mánuðinum og skoraði Ronaldo tvö glæsileg mörk á þessum tíma. Þetta er í fyrsta sinn sem Portúgalinn ungi vinnur þessi verðlaun, en félagi hans Paul Scholes hjá United hreppti þau í október. Enski boltinn 8.12.2006 20:52
Iverson vill fara frá Philadelphia Skorunarmaskínan Allen Iverson hjá Philadelphia 76ers í NBA virðist nú loksins vera búinn að fá nóg af því að tapa og nú hafa þær fréttir lekið út í fjölmiðla að Iverson hafi formlega farið fram á það við forseta félagsins að fá að fara frá félaginu. Körfubolti 8.12.2006 18:03
Frábær ef ég skora - Feitur ef ég skora ekki Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid er orðinn dauðleiður á þeirri umfjöllun sem hann hefur fengið í fjölmiðlum undanfarin ár, en kappinn skoraði tvö mörk fyrir Madrid í Meistaradeildinni í vikunni. Hann hefur ekki átt fast sæti í liði Real Madrid og vitað er að Fabio Capello er ósáttur við líkamlegt ástand framherjans snjalla. Fótbolti 8.12.2006 17:43
Skoraði 27 stig með vinstri Körfuboltagoðsögnin Larry Bird sem lék með Boston Celtics á árum áður varð fimmtugur í gær og í tilefni af því var heill dagur helgaður ferli þessa frábæra íþróttamanns á NBA TV sjónvarpsstöðinni. Þar sögðu margir af félögum hans og keppinautum skemmtilegar sögur af honum. Körfubolti 8.12.2006 15:22
Sýnir félögum í 1. deild vanvirðingu David Gold, stjórnarformaður enska 1. deildarliðsins Birmingham, segir að Jose Mourinho sýni liðum deildinni vanvirðingu með tillögu sinni þess efnis að varaliðum úrvalsdeildarfélaga verði leyft að spila í 1. deildinni. Enski boltinn 8.12.2006 17:30
Hagnaður hefur dregist saman hjá Tottenham Rekstrarhagnaður hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Tottenham minnkaði verulega á síðasta rekstrarári ef marka má tölur sem gefnar voru út í dag. Á rekstrarárinu sem lauk þann 30. júní sl. kemur fram að hagnaður félagsins minnkar úr 4,9 milljónum punda árið áður í aðeins 600 þúsund pund þetta árið. Enski boltinn 8.12.2006 15:06
Pearce ber mikla virðingu fyrir Ferguson Stuart Pearce, stjóri Manchester City, hrósaði kollega sínum Alex Ferguson í hástert í dag þegar hann var spurður út í leik liðsins gegn Manchester United á morgun. Pearce segir aðdáunarvert hvernig Ferguson hafi komið United á toppinn á ný þrátt fyrir harða gagnrýni. Enski boltinn 8.12.2006 14:27
Speed spilar 500. leikinn á morgun Miðjumaðurinn Gary Speed nær væntanlega þeim merka áfanga á morgun að verða fyrsti leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar til að spila 500 deildarleiki. Formaður leikmannasamtakanna hrósar Speed sem einstökum atvinnumanni. Enski boltinn 8.12.2006 14:57
Cole er við öllu búinn Bakvörðurinn Ashley Cole hjá Chelsea segist vera við öllu búinn þegar hann mætir fyrrum félögum sínum í Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn og segist skilja að margir af stuðningsmönnum Arsenal hugsi sér þegjandi þörfina. Enski boltinn 8.12.2006 14:34
Mourinho ögrar Wenger Jose Mourinho hefur nú sent kollega sínum Arsene Wenger góða sneið fyrir stórleik Chelsea og Arsenal í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn, en Mourinho segir vandræði Arsenal í deildinni í vetur að hluta til stafa af því að Wenger sé ekki nógu góður í að laga lið sitt eftir aðstæðum. Enski boltinn 8.12.2006 14:45
Ferguson á von á mjög erfiðum grannaslag Sir Alex Ferguson segist eiga von á mjög erfiðum leik þegar grannarnir í Manchester eigast við í ensku úvalsdeildinni á morgun. Manchester City hefur náð í stig í síðustu tveimur leikjum sínum á Old Trafford og því á Ferguson von á miklu stríði á morgun. Enski boltinn 8.12.2006 14:16
Shevchenko ekki í úrvalsliði Mourinho Jose Mourinho segir að það séu aðeins bestu leikmennirnir hverju sinni sem fái sæti í liði Chelsea og hefur lýst því yfir að Andriy Shevchenko sé ekki einn þeirra, að minnsta kosti ekki í augnablikinu. Mikið er rætt um framtíð framherjans á Englandi þessa dagana. Enski boltinn 8.12.2006 13:43
Þetta er besti leikur sem ég hef séð Leikur New Jersey Nets og Phoenix Suns í NBA deildinni í nótt er þegar kominn í sögubækurnar, en gestirnir frá Phoenix höfðu sigur 161-157 eftir tvíframlengdan leik. Þetta er fjórða hæsta stigaskor í einum leik í sögu NBA deildarinnar og var hann í járnum allan tímann. Körfubolti 8.12.2006 05:27
Klinsmann hafnar Bandaríkjamönnum Jurgen Klinsmann sendi frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem hann gefur það út að hann ætli ekki að taka við stöðu landsliðsþjálfara bandaríska landsliðsins. Klinsmann átti fund með forráðamönnum knattspyrnusambandsins í gær en ákvað í dag að draga sig út úr viðræðunum og því verður lið Bandaríkjanna án þjálfara fram á nýtt ár. Fótbolti 7.12.2006 22:23
Dein hótar FIFA öllu illu David Dein, stjórnarmaður hjá Arsenal sem einnig situr í stjórn G-14, segir að FIFA eigi ekki von á góðu ef hugmyndir forsetans Sepp Blatter um takmarkanir á útlendingum í evrópskri knattspyrnu ná fram að ganga. Dein segir að ef FIFA falli ekki frá áformum sínum, muni það fá yfir sig þungar lögsóknir. Enski boltinn 7.12.2006 22:06
Mótlætið hefur styrkt Ronaldo Wayne Rooney segir að mótlætið sem félagi hans Cristiano Ronaldo varð fyrir á Englandi eftir hinn umdeilda leik Englendinga og Portúgala á HM í sumar hafi styrkt hann til muna og segir hann einn besta knattspyrnumann heims. Enski boltinn 7.12.2006 21:11
Cole á skilið að fá það hrátt Jens Lehmann, markvörður Arsenal, segir að fyrrum félagi hans Ashley Cole sem nú leikur með Chelsea, eigi skilið að fá það hrátt frá stuðningsmönnum Arsenal þegar liðin mætast í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Enski boltinn 7.12.2006 19:10
Klinsmann að taka við bandaríska landsliðinu Þjóðverjinn Jurgen Klinsmann verður ráðinn landsliðsþjálfari Bandaríkjanna í knattspyrnu á næstu dögum og verður það tilkynnt formlega í síðasta lagi eftir hálfan mánuð. Þetta fullyrða fjölmiðlar í Bandaríkjunum í gær, en Klinsmann hefur verið orðaður við bandaríska liðið allar götur síðan hann hætti með landslið Þjóðverja eftir frábært HM í sumar. Klinsmann býr í Bandaríkjunum. Fótbolti 7.12.2006 17:39
Allt vitlaust í Belgrad (myndband) Fjórir stuðningsmenn og tveir lögreglumenn slösuðust þegar óeirðir brutust út fyrir leik Rauðu Stjörnunnar og PAOK Thessaloniki í körfubolta í fyrrakvöld. Átökin brutust út þegar stuðningsmenn erkifjenda heimaliðsins mættu í höllina og ætluðu að styðja við bakið á PAOK. Kveikt var á blysum í stúkunni og öllu lauslegu kastað í allar áttir eins og sjá má að meðfylgjandi myndskeiði. Körfubolti 7.12.2006 17:24
Cannavaro meiddur eftir tæklingu samherja Nýkjörinn knattspyrnumaður Evrópu, ítalski miðvörðurinn Fabio Cannavaro hjá Real Madrid, missir væntanlega af sínum þriðja leik í röð með félaginu eftir að hann meiddist á ökkla á æfingu liðsins í morgun. Cannavaro varð þá fyrir harkalegri tæklingu frá félaga sínum Ruud Van Nistelrooy og reiddist sá ítalski í kjölfarið og neitaði að taka í hönd félaga síns eftir æfinguna. Fótbolti 7.12.2006 16:50
Tottenham án lykilmanna um jólin Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham verður að sætta sig við að vera án tveggja lykilmanna í árlegri leikjatörn yfir jólin, en í dag tilkynnti Martin Jol knattspyrnustjóri að Robbie Keane yrði frá í 5-6 vikur vegna hnémeiðsla og Jermaine Jenas í um mánuð vegna ökklameiðsla. Tottenham á því aðeins tvo leikfæra framherja í hóp sínum því Egyptinn Mido verður einnig frá um óákveðinn tíma. Enski boltinn 7.12.2006 17:02
Leikmenn Sunderland léku í kynlífsmyndbandi Forráðamenn enska 1. deildarliðsins Sunderland hafa nú hrundið af stað rannsókn eftir að út spurðist að þrír af leikmönnum liðsins hefðu leikið í klámfengnu myndbandi. Leikmennirnir eru Ben Alnwick, Liam Lawrence og Chris Brown, en þeir eiga ekki von á góðu frá Roy Keane knattspyrnustjóra og Niall Quinn stjórnarformanni ef þessar fréttir reynast réttar. Enski boltinn 7.12.2006 16:56
Yfirtaka í Man City á viðræðustigi Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City er nú nýjasta félagið á Englandi til að vera orðað við yfirtöku, en forráðamenn félagsins hafa staðfest að þeir séu í viðræðum við fjárfesta sem hafi í huga að kaupa félagið. Breska sjónvarpið segir að hér sé um fjársterkan einstakling að ræða og því hefur verið slegið fram að 70 milljón punda tilboð verði lagt fram fljótlega. Enski boltinn 7.12.2006 16:44
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent