Erlendar
67 68 69 70 71 72 73 74 75 … 264 ›
Espanyol - Real Madrid í beinni á Sýn Leikur Espanyol og Real Madrid er nú hafinn í beinni lýsingu Arnars Björnssonar á Sýn, en þar á undan var leikur Recreativo og Sevilla í beinni og það voru gestirnir sem höfðu auðveldan sigur 4-1. Þá er enn eftir leikur Getafe og Atletico í spænska boltanum og svo verður leikur úr NFL í beinni auk Tiger Woods mótsins í golfi. Fótbolti 17.12.2006 18:06
West Ham lagði Manchester United Alan Curbishley knattspyrnustjóri átti sannkallaða draumabyrjun með liði West Ham í dag þegar hann stýrði liðinu til 1-0 sigurs á toppliði Manchester United í lokaleik dagsins í enska boltanum. Það var Nigel Reo-Coker, fyrirliði West Ham, sem skoraði sigurmark liðsins á 75. mínútu og því er forskot Man Utd aðeins tvö stig á toppnum eftir sigur Chelsea á Everton í dag. Enski boltinn 17.12.2006 18:00
Ernie Els sigraði í Suður-Afríku Heimamaðurinn Ernie Els sigraði glæsilega á SA Airways mótinu í Suður-Afríku í dag en mótið var liður í evrópsku mótaröðinni. Els lék frábært golf á lokasprettinum og hafði betur gegn landa sínum Trevor Immelman. Els lauk keppni á 24 höggum undir pari en Immelman var þremur höggum þar á eftir. Golf 17.12.2006 17:31
Norðmenn Evrópumeistarar Kvennalið Noregs varði í dag Evrópumeistaratitil sinn í handknattleik kvenna þegar liðið sigraði Rússa í úrslitaleik mótsins 27-24 eftir að hafa leitt í hálfleik 16-12. Frakkar hirtu þriðja sætið með sigri á Þjóðverjum í bronsleiknum 29-25. Handbolti 17.12.2006 17:26
Loksins útisigur hjá Tottenham Tottenham vann í dag sinn fyrsta útisigur í ensku úrvalsdeildinni á leiktíðinni þegar liðið skellti Manchester City 2-1 á útivelli. Ungu mennirnir Calum Davenport og Tom Huddlestone komu Tottenham yfir í leiknum en Joey Barton minnkaði muninn fyrir City. Heimamenn áttu síðari háfleikinn og hefðu með öllu átt að fá vítaspyrnu undir lokin, en höfðu ekki heppnina með sér. Enski boltinn 17.12.2006 17:14
Chelsea lagði Everton Englandsmeistarar Chelsea lentu tvisvar undir í leik sínum við Everton á útivelli í dag en náðu samt að hirða öll stigin og vinna 3-2 og halda því enn í við topplið Manchester United. Mikel Arteta og Joseph Yobo skoruðu mörk West Ham, en þeir Frank Lampard og Michael Ballack jöfnuðu fyrir Chelsea áður en Didier Drogba skoraði sigurmarkið með þrumuskoti skömmu fyrir leikslok. Enski boltinn 17.12.2006 15:52
Jafnt í grannaslagnum í Glasgow Erkifjendurnir Glasgow Rangers og Glasgow Celtic gerðu í dag 1-1 jafntefli í skosku deildinni og hefur Celtic því enn 14 stiga forskot á toppi deildarinnar. Thomas Gravesen kom Celtic yfir á 38. mínútu í dag, en heimamenn í Rangers höfnuðu með marki Brahim Hemdani aðeins tveimur mínútum fyrir leikslok. Fótbolti 17.12.2006 15:09
Everton leiðir gegn Chelsea Everton leiðir 1-0 gegn Englandsmeisturum Chelsea þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna á Goodison Park. Mikel Arteta skoraði mark Everton úr víti þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik. Síðar í dag eigast svo við Manchester City og Tottenham og þá tekur West Ham á móti Man Utd. Enski boltinn 17.12.2006 15:03
Phoenix jafnaði félagsmet Phoenix Suns vann í nótt 14. leikinn í röð í NBA deildinni í körfubolta þegar liðið skellti Sacramento 105-98 á útivelli. Á sama tíma tapaði Philadelphia 11. leiknum í röð í tapi gegn San Antonio 103-98, en eins og áður kom fram hér á vísi logaði leikur New York og Denver í slagsmálum áður en gestirnir sigruðu 123-100. Körfubolti 17.12.2006 14:54
Curbishley fær tíma og peninga Eggert Magnússon, stjórnarformaður West Ham, hefur lýst því yfir að Alan Curbishley knattspyrnustjóri muni fá allan þann tíma og fjármuni sem hann þarf til að koma West Ham á réttan kjöl í vetur. Enski boltinn 17.12.2006 14:05
Barcelona tapaði úrslitaleiknum Barcelona tapaði í morgun 1-0 fyrir brasilíska liðinu Internacional í úrslitaleik heimsmeistaramóts félagsliða í Japan. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en var skipt af velli undir lokin. HM titill félagsliða er því enn eini titillinn sem katalónska félagið hefur ekki náð að krækja í til þessa. Fótbolti 17.12.2006 13:53
Madison Square Garden logaði í slagsmálum Leikur New York Knicks og Denver Nuggets í NBA deildinni í nótt breyttist úr körfuboltaleik í hnefaleikakeppni á lokamínútunum. Tíu leikmönnum var vísað úr húsi og á stigahæsti leikmaður deildarinnar Carmelo Anthony líklega yfir höfði sér langt keppnisbann fyrir lúalegt hnefahögg. Körfubolti 17.12.2006 04:09
Leikmennirnir græða mest Sam Allardyce, stjóri Bolton, segir að auknar tekjur félaganna í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabili í kjölfar nýrra sjónvarpssamninga muni nær eingöngu renna í vasa leikmanna. Enski boltinn 16.12.2006 19:44
Curbishley ætlar sækja til sigurs á morgun Alan Curbishley, nýráðinn knattspyrnustjóri West Ham, segist aðeins hafa eitt markmið í huga þegar hann stýrir liðinu í fyrsta skipti gegn Mancehster United í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Hann ætlar að sækja þrjú stig. Enski boltinn 16.12.2006 17:17
Miami - Memphis í beinni í kvöld Meistarar Miami Heat taka á móti Memphis Grizzlies í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni í kvöld klukkan hálf eitt. Bæði lið hafa átt mjög erfitt uppdráttar það sem af er vetri, en Dwyane Wade hjá Miami og Pau Gasol hjá Memphis snúa aftur eftir meiðsli í kvöld og því má eiga von á skemmtilegum leik. Körfubolti 16.12.2006 20:19
Ekström sigraði í Race of Champions Sænski ökuþórinn Mattias Ekström kom mjög á óvart í dag þegar hann vann sigur á heimamanninum Sebastien Loeb í úrslitum í Race of Champions fyrir framan 60.000 áhorfendur á Stade de France í París. Sport 16.12.2006 20:09
Lélegasti hálfleikur undir minni stjórn Paul Jewell, stjóri Wigan, sagði að fyrri hálfleikurinn í dag hefði verið lélegasti hálfleikur sem lið hans hafi spilað síðan hann tók við stjórn þess fyrir fjórum árum. Wigan tapaði á heimavelli fyrir lærisveinum Neil Warnock í Sheffield United, en þar á bæ voru menn að vonum kátari með niðurstöðuna. Enski boltinn 16.12.2006 19:59
Íþróttaveislan á Sýn heldur áfram alla helgina Það er búið að vera mikið fjör á sjónvarpsstöðinni Sýn í dag og halda beinar útsendingar áfram langt fram á kvöld. Nú stendur Race of Champions sem hæst og klukkan 20:50 verður leikur Zaragoza og Valencia í spænska boltanum í beinni. Þá er rétt að minna á golfmót Tiger Woods í beinni klukkan 20 á Sýn Extra. Fótbolti 16.12.2006 19:17
Bolton lagði Aston Villa Bolton vann mikilvægan 1-0 útisigur á Aston Villa í lokaleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag og lyfti sér með sigrinum í 5. sæti deildarinnar. Það var gamla kempan Gary Speed sem skoraði sigurmark Bolton úr vítaspyrnu um miðjan síðari hálfleik. Bolton er í fimmta sæti með 30 stig en Aston Villa er enn í því áttunda með 25 stig. Enski boltinn 16.12.2006 19:06
Ótrúlegt að vera á topp fjögur Harry Redknapp gat ekki verið annað en ánægður með frammistöðu sinna manna í Portsmough í dag þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Arsenal á útivelli. Hann hrósaði sínum mönnum í hástert og sagði það ótrúlegt að liðið væri á meðal fjögurra efstu liðanna í deildinni. Enski boltinn 16.12.2006 19:01
Wenger óhress með fyrsta mark Portsmouth Arsene Wenger fékk ekki að standa á hliðarlínunni í síðari hálfleik í dag þegar hans menn í Arsenal náðu aðeins 2-2 jafntefli gegn spræku liði Portsmouth. Wenger þótti fyrsta mark Portsmouth ansi blóðugt en hrósaði leikmönnum sínum fyrir að ná að jafna leikinn. Enski boltinn 16.12.2006 18:40
Schalke á toppinn Schalke komst í dag á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði Bielefeld 1-0 á útivelli með marki frá varamanninum Zlatan Bajramovic og Bayern Munchen burstaði Mainz 4-0 með mörkum frá Hasan Salihamidzic, Roy Makaay, Claudio Pizarro og Bastian Schweinsteiger. Bremen á leik til góða gegn Wolfsburg á morgun. Fótbolti 16.12.2006 17:33
Cannavaro maður ársins hjá World Soccer Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins af breska tímaritinu World Soccer. Cannavaro er aðeins annar varnarmaðurinn sem hlýtur þessi verðlaun á þeim aldarfjórðungi sem þau hafa verið veitt, en áður hafði landi hans Paolo fengið þau árið 1994. Cannavaro fékk þrisvar sinnum fleiri atkvæði en næstu menn, þeir Thierry Henry og Samuel Eto´o. Fótbolti 16.12.2006 17:25
Arsenal og Portsmouth skildu jöfn Arsenal og Portsmouth skildu jöfn 2-2 í hörkuleik á Emirates vellinum í dag þar sem heimamenn lentu tveimur mörkum undir. Noe Pamarot kom Portsmouth yfir með skalla undir lok fyrri hálfleiks og Matt Taylor kom gestunum í 2-0 í upphafi þess síðari. Gilberto og Adebayor jöfnuðu metin svo með 2 mínútna millibili eftir klukkutíma leik. Freddie Ljungberg þurfti að fara meiddur af velli hjá Arsenal. Enski boltinn 16.12.2006 17:04
Shevchenko er kjölturakki konu sinnar Silvio Berlusconi, forseti AC Milan, virðist vera búinn að missa allt álit á félaga sínum og fyrrum leikmanni Andriy Shevchenko hjá Chelsea. Berlusconi segir framherjann vera eins og kjölturakka í höndum konu sinnar. Fótbolti 16.12.2006 16:55
Stankovic knattspyrnumaður ársins Miðjumaðurinn sterki Dejan Stankovic hjá Inter Milan hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins í Serbíu, en hann er fyrsti leikmaðurinn sem hlýtur þessi verðlaun eftir að Serbía og Svartfjallaland skiptust upp. Fótbolti 16.12.2006 16:41
Vantar allt sjálfstraust í liðið Les Reed, stjóri Charlton í ensku úrvalsdeildinni, segir að lið sitt vanti allt sjálfstraust eftir hörmulegt gengi það sem af er vetri og segir að mikil meiðsli í herbúðum þess hjálpi ekki til. Liðið tapaði 3-0 fyrir Liverpool á heimavelli í dag og er í vondum málum á fallsvæðinu. Enski boltinn 16.12.2006 16:14
Portsmouth yfir gegn Arsenal Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum fjórum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Portsmouth hefur yfir 1-0 á útivelli gegn Arsenal þar sem varnarmaðurinn Noe Pamarot skoraði mark gestanna. Reading hefur yfir 1-0 gegn Blackburn og þá er Sheffield United yfir 1-0 gegn Wigan á útivelli. Stöðuna í leikjunum má skoða á Boltavaktinni. Enski boltinn 16.12.2006 16:01
Liverpool vann Charlton Ófarir Hermanns Hreiðarssonar og félaga í Charlton halda áfram í ensku úrvalsdeildinni en í dag lá liðið 3-0 á heimavelli fyrir Liverpool eftir 5-1 tap í síðasta leik sínum. Xabi Alonso kom Liverpool yfir með marki úr vítaspyrnu strax í byrjun leiks og þeir Craig Bellamy og Steven Gerrard bættu við tveimur mörkum á lokamínútunum. Enski boltinn 16.12.2006 14:42
Newcastle sigraði í Intertoto bikarnum Enska knattspyrnuliðið Newcastle er Intertoto meistari þetta árið eftir að ljóst varð að liðið komst lengst liðanna fimm sem fóru í UEFA keppnina. Liðið fær afhentan bikar fyrir næsta leik sinn í UEFA keppninni þann 22. febrúar og er þetta fyrsti bikarinn sem Newcastle vinnur í 1969. Enski boltinn 16.12.2006 14:17
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent