Erlendar
98 99 100 101 102 103 104 105 106 … 264 ›
Barthez er ekki á leið til Chelsea Jose Mourinho hefur hafnað þeim fréttum sem voru á kreiki í enskum miðlum í morgun um að franski markvörðurinn Fabien Barthez væri á leið til Chelsea til að leysa Petr Cech af hólmi. Barhtez lagði hanskana á hilluna fyrir skömmu. Enski boltinn 19.10.2006 14:33
Ekkert tilboð á leiðinni að svo stöddu Forráðamenn West Ham hafa alfarið neitað þeim fregnum bresku blaðanna að stutt sé í að Eggert Magnússon kaupi félagið fyrir 75 milljónir punda. Eggert sjálfur sagði í samtali við NFS í dag að hann furðaði sig á vinnubrögðum bresku blaðanna, því hann ætti enn eftir að funda með stjórn félagsins og það væri frumforsenda þess að hægt sé að gera kauptilboð. Enski boltinn 19.10.2006 14:23
Leikmenn Reading sleppa við refsingu Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur gefið það út að þeim Stephen Hunt og Ibrahima Sonko hjá Reading verði ekki refsað í kjölfar meiðslanna sem þeir ollu markvörðum Chelsea í leik liðanna um síðustu helgi. Í yfirlýsingu frá nefndinni segir að dómari leiksins hafi séð bæði atvik og ákveðið að gera ekkert í þeim og því verði ekki farið með málið lengra. Enski boltinn 19.10.2006 14:19
Samningsbundinn Arsenal til 2014 Spænski miðjumaðurinn Cesc Fabregas hefur undirritað nýjan samning við Arsenal sem gildir til ársins 2014. Þessi samningur er nokkuð sérstakur fyrir þær sakir að hann er til átta ára, sem er einsdæmi nú á dögum, en þessi ungi knattspyrnumaður hefur verið mjög eftirsóttur af stórliðum Evrópu undanfarið ár. Enski boltinn 19.10.2006 14:15
Aragones framlengir samning sinn Spænska knattspyrnusambandið hefur nú formlega framlengt samning landsliðsþjálfarans umdeilda Luis Aragones um tvö ár. Áður hafði legið fyrir munnlegt samkomulag um þetta, en forseti knattspyrnusambandsins hefur staðfest að búið sé að skrifa undir. Fótbolti 18.10.2006 21:33
Hefðum átt að vinna stærra Jose Mourinho var mjög sáttur við sigur sinna manna á Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld og sagðist helst ósáttur við að ná ekki að gera út um leikinn fyrr með því að skora fleiri mörk. Hann segist nú hafa sett stefnuna á að halda toppsætinu í riðlinum. Fótbolti 18.10.2006 22:07
Kiel burstaði Hildesheim Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Kiel burstaði Hildesheim á útivelli 34-25 eftir að hafa verið yfir 19-12 í hálfleik og þá vann Nordhorn góðan útisigur á Kronau/Östringen 25-22. Kiel er í öðru sæti deildarinnar með 15 stig, einu stigi á eftir lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach. Handbolti 18.10.2006 21:20
Drogba tryggði Chelsea sigur á Barcelona Chelsea vann í kvöld sannfærandi sigur á Barcelona 1-0 í Meistaradeild Evrópu. Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona en náði sér ekki á strik frekar en félagar hans í liðinu og var skipt af velli á 60. mínútu. Didier Drogba skoraði sigurmarkið á 47. mínútu með laglegu skoti og Chelsea er komið í vænlega stöðu í riðlinum með fullt hús eftir þrjá leiki. Fótbolti 18.10.2006 20:34
Mikil óánægja með nýja boltann Mikil óánægja er meðal leikmanna í NBA deildinni með nýja keppnisboltann sem notaður verður í vetur, en þetta er bolti úr gerviefni sem koma á í stað leðurboltans sem notaður hefur verið í 35 ár. Raunar eru það aðeins dýraverndunarsinnar sem eru ánægðir með boltann. Körfubolti 18.10.2006 19:59
Jafnt í hálfleik á Stamford Bridge Nú hefur verið flautað til hálfleiks á Stamford Bridge í leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeild Evrópu. Ekkert mark er enn komið í leikinn og besta færið átti Didier Drogba hjá Chelsea eftir 15 mínútna leik, en náði ekki að skora. Eiður Smári er í byrjunarliði Barcelona en hefur fengið úr litlu að moða enn sem komið er. Fótbolti 18.10.2006 19:32
Eggert fundar með stjórn West Ham í vikunni Breska dagblaðið Independent greinir frá því í dag að Eggert Magnússon muni funda með forráðamönnum West Ham fyrir helgina þar sem kauptilboð hans í félagið upp á 75 milljónir punda verði tekið fyrir. Því er einnig haldið fram í blaðinu að framtíð félagsins gæti jafnvel ráðist fyrir leik West Ham og Tottenham á sunnudag. Enski boltinn 18.10.2006 18:29
Eiður í byrjunarliði Barcelona Nú styttist í að flautað verði til leiks í Meistaradeild Evrópu. Stórleikur kvöldsins er viðureign Chelsea og Barcelona og verður leikurinn sýndur beint á Sýn. Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona gegn sínum gömlu félögum og tekur við heiðursverðlaunum frá Chelsea fyrir leikinn. Fótbolti 18.10.2006 18:14
Ferdinand verður með gegn Liverpool Sir Alex Ferguson getur væntanlega stillt upp nokkuð sterku liðið í stórleiknum gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn, en þeir Rio Ferdinand, Gabriel Heinze og Gary Neville eru allir að verða búnir að ná sér af meiðslum sínum og eru farnir að æfa á fullu. Þá verður Ryan Giggs líka í liði United, en hann missti af Evrópuleiknum í gær vegna veikinda. Enski boltinn 18.10.2006 16:54
Sigur á Bordeaux gæfi okkur meðbyr í deildinni Rafa Benitez vonast innilega eftir sigri á franska liðinu Bordeaux í Meistaradeildinni í kvöld og telur að útisigur í kvöld gæfi liði sínu byr undir báða vængi fyrir erfiðan leik við Manchester United í úrvalsdeildinni á sunnudag. Liverpool er aðeins í tíunda sæti í úrvalsdeildinni. Fótbolti 18.10.2006 17:01
Roman Abramovich kemur til Íslands á morgun Milljarðamæringurinn Roman Abramovich, eigandi Chelsea, hefur í nægu að snúast þessa dagana. Í kvöld verður hann að venju á sínum stað í stúkunni þegar Chelsea tekur á móti Barcelona í Meistaradeildinni, en á morgun kemur hann hingað til lands og þiggur heimboð Ólafs Ragnars Grímssonar forseta. Enski boltinn 18.10.2006 16:43
Cech gæti snúið aftur fyrr en áætlað var Petr Krejci, læknir tékkneska knattspyrnulandsliðsins, segir að meiðsli landsliðsmarkvarðarins Petr Cech hjá Chelsea séu ef til vill ekki jafn alvarleg og talað hefur verið um síðustu daga, en menn vildu meina að markvörðurinn þyrfti að vera frá keppni í að minnsta kosti hálft ár. Enski boltinn 18.10.2006 16:09
Xavi segir Chelsea í hefndarhug Spænski miðjumaðurinn Xavi hjá Barcelona á von á því að Englandsmeistarar Chelsea séu í hefndarhug í leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld, eftir að spænska liðið sló þá út úr keppninni á síðustu leiktíð. Fótbolti 18.10.2006 16:26
Risaleikir í beinni í kvöld Sjónvarpsstöðvar Sýnar gera Meistaradeild Evrópu góð skil að venju í kvöld, en þá verður á dagskrá einn af leikjum ársins þegar Eiður Smári og félagar í Barcelona sækja fyrrum félaga hans í Chelsea heim á Stamford Bridge klukkan 18:30. Fótbolti 18.10.2006 15:32
Ekki að taka við Inter Milan Fjölmiðlar á Ítalíu hafa gert því skóna undanfarna daga að Sven-Göran Eriksson muni verða næsti þjálfari Inter Milan ef Roberto Mancini nær ekki að koma liðinu á sigurbraut hið snarasta. Eriksson vísar þessu á bug og segist styðja fyrrum aðstoðarmann sinn hjá Lazio heilshugar. Fótbolti 18.10.2006 16:20
Eiður sæmdur verðlaunum fyrir leikinn í kvöld Eiður Smári Guðjohnsen verður sæmdur sérstökum verðlaunum fyrir ár sín hjá Chelsea skömmu fyrir leik Chelsea og Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld. Það verður stjórnarformaðurinn Bruce Buck sem afhendir Eiði verðlaunagripinn, en landsliðsfyrirliðinn vann tvo Englandsmeistaratitla með félaginu áður en hann gekk í raðir Barcelona í sumar. Fótbolti 18.10.2006 15:26
Við erum miklu betri en Chelsea Victor Valdes hefur nú sent liðsmönnum Chelsea góða ögrun fyrir stórleik liðanna á Stamford Bridge í Meistaradeildinni í kvöld, en markvörðurinn ungi sagði Sky sjónvarpsstöðinni í dag að Barcelona væri einfaldlega betra lið en Chelsea. Fótbolti 18.10.2006 15:19
Cleveland malaði Maccabi Cleveland Cavaliers var ekki í vandræðum með ísraelska liðið Maccabi Tel Aviv í æfingaleik liðanna í Ohio í gærkvöldi og vann auðveldan sigur 93-67. Drew Gooden skoraði 21 stig og hirti 8 fráköst, Donyell Marshall skoraði 19 stig og hirti 8 fráköst og LeBron James skoraði 13 stig, gaf 8 stoðsendingar og hirti 8 fráköst í liði Cleveland. Körfubolti 18.10.2006 14:54
Vöxtur Ferrari er helsta afrek Schumacher Fyrrum þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Sir Jackie Stewart, segir að sjö heimsmeistaratitlar séu ekki merkasta afrek Michael Schumacher í Formúlu 1 - heldur sú staðreynd að hann eigi stærstan þátt í að gera lið Ferrari að því stórveldi sem það er í dag. Formúla 1 18.10.2006 14:45
Grannarnir í Liverpool kærðir Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur birt Liverpool og Everton kæru fyrir að hafa ekki heimil á leikmönnum sínum í varaliðsleik þann 10. október sl. Leikmenn liðanna tókust þá á eftir að brotið hafði verið á Jerzy Dudek, markverði Liverpool, en sá brást illa við og lenti í riskingum í kjölfarið. Enski boltinn 18.10.2006 14:31
Ísland niður um 8 sæti Íslenska karlalandsliðið fellur um 8 sæti á styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun. Íslenska liðið er nú í 95. sæti listans og því á svipuðum stað og í upphafi árs. Brasilíumenn eru enn í toppsætinu, Ítalir í öðru og Frakkar í því þriðja. Íslenski boltinn 18.10.2006 14:28
Einar skoraði 6 fyrir Grosswallstadt Einn leikur fór fram í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Einar Hólmgeirsson var markahæstur í liði Grosswallstadt með sex mörk þegar liðið gerði jafntefli við Göppingen á heimavelli 27-27. Alexander Petersson skoraði 4 mörk fyrir Grosswallstadt. Sport 17.10.2006 22:59
Van Nistelrooy og Beckham í sögubækurnar Félagarnir Ruud Van Nistelrooy og David Beckham skráðu nöfn sín í sögubækurnar í kvöld í stórsigri Real Madrid á Steua Búkarest. Beckham spilaði sinn 100. leik á ferlinum í keppninni og þá varð Nistelrooy aðeins þriðji leikmaðurinn til að skora 50 mörk í Meistaradeildinni þegar hann skoraði glæsilegt fjórða mark spænska liðsins. Fótbolti 17.10.2006 22:43
Ferguson hrósar fyrirliðanum unga Sir Alex Ferguson hlóð Wayne Rooney hrósi eftir 3-0 sigur Manchester United á FC Kaupmannahöfn í Meistaradeildinni í kvöld, en framherjinn ungi tók við fyrirliðabandinu í fyrsta sinn í fjarveru þeirra Ryan Giggs og Rio Ferdinand. Fótbolti 17.10.2006 22:31
Cleveland - Maccabi Tel Aviv í beinni Sjónvarpsleikurinn á NBA TV í kvöld verður mjög áhugaverður því þar etja kappi LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers og ísraelska Evrópustórveldið Maccabi Tel Aviv. Leikurinn hefst klukkan 23 og er sýndur beint á NBA TV á Digital Ísland. Sport 17.10.2006 22:26
Á von á skemmtilegum leik á morgun Jose Mourinho segist eiga von á skemmtilegum leik þegar hans menn í Chelsea taka á móti Barcelona í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Fótbolti 17.10.2006 19:29
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent