Fjármálafyrirtæki
1 2 3 4 5 6 … 57 ›
Vaxtahækkanir og brotið traust - hver ber ábyrgð? Íslenskt samfélag hefur á undanförnum mánuðum staðið saman í viðleitni til að ná niður verðbólgu og stuðla að efnahagslegum stöðugleika. Launþegar hafa tekið á sig hógværar launahækkanir í nýgerðum kjarasamningum til að styðja við þetta markmið. Samkomulagið var gert í góðri trú um að allir aðilar samfélagsins myndu leggja sitt af mörkum. Skoðun 23.11.2024 11:33
Furðuleg réttlæting á hækkun verðtryggðra vaxta Bæði Íslandsbanki og Arion banki hafa birt skýringar sínar fyrir hækkun verðtryggðra vaxta á húsnæðislánum. Nær er að tala um réttlætingu. Skoðun 23.11.2024 09:17
Hækka ekki verðtryggðu vextina Landsbankinn hefur tilkynnt um vaxtabreytingar í kjölfar stýrivaxtalækkunar Seðlabankans í fyrradag. Landsbankinn fylgir ekki fordæmi hinn viðskiptabankanna tveggja, sem hafa tilkynnt um hækkanir á verðtryggðum vöxtum. Viðskipti innlent 22.11.2024 13:44
„Bankinn tekur höggið á sig að stórum hluta“ Fjármálastofnanir hafa undanfarið lækkað vexti á óverðtryggðum íbúðalánum en hækkað á verðtryggðum. Bankastjóri Íslandsbanka segir ástæðu hækkunnar vera að fjármögnun á verðtryggðum lánum hafi hækkað því verðbólga hafi lækkað hraðar en stýrivextir. Hann vonast eftir myndarlegri stýrivaxtalækkun. Viðskipti innlent 22.11.2024 13:43
Launafólk sýndi ábyrgð – Hvað með bankana og fjármagnseigendur? Seðlabanki Íslands tilkynnti á miðvikudag um 0,5 prósentu lækkun stýrivaxta. Þetta voru ánægjuleg tíðindi og í takt við markmið þeirra kjarasamninga sem gerðir voru síðastliðið vor. Árangur samninganna er nú þegar sjáanlegur, verðbólga hefur lækkað úr 7,9% í 5,2% á einu ári, og nú er útlit fyrir að verðbólga verði í kringum 3% um mitt næsta ár. Skoðun 22.11.2024 11:00
Hækka verðtryggða vexti og útskýra hvers vegna Arion banki hefur tilkynnt um vaxtabreytingar í kjölfar lækkunar stýrivaxta. Verðtryggðir vextir hækka og bankinn færir rök fyrir máli sínu samhliða tilkynningunni. Viðskipti innlent 22.11.2024 10:06
Bankinn gefur, bankinn tekur Þó Seðlabankavextir séu enn þeir hæstu í Evrópu, utan átakasvæða, fögnuðu lántakar í gær þegar Seðlabankinn lækkaði stýrivexti. Sáu þeir fram á að greiðslubyrði lána sinna myndu lækka. Skoðun 21.11.2024 15:01
Lækka innlánsvexti um heilt prósentustig Sparisjóðurinn Indó hefur tilkynnt um vaxtalækkanir á bæði inn- og útlánum. Útlánsvextir eru lækkaðir um 0,75 prósentustig, umfram stýrivaxtalækkun gærdagsins. Til þess að mæta því eru innlánsvextir á debetreikningum lækkaðir um heilt prósentustig. Viðskipti innlent 21.11.2024 11:50
Tilkynnir um breytta vexti nokkrum mínútum eftir stýrivaxtalækkun Íslandsbanki ætlar að lækka óverðtryggða vexti á útlánum sínum um allt að 0,5 prósentustig í kjölfar ákvörðunar Seðlabankans um að lækka stýrivexti sína. Tilkynning Íslandsbanka var send út innan við stundarfjórðungi eftir að ákvörðun Seðlabankans var kynnt. Viðskipti innlent 20.11.2024 08:53
Vill að borgin útbúi skýrar leiðbeiningar svo fleiri geti farið sömu leið og Arion Borgarfulltrúi minnihlutans vill að Reykjavíkurborg útbúi skýrar leiðbeiningar fyrir þá vinnustaði sem vilja fara sömu leið og Arion banki og bjóða upp á daggæslu á vinnustað. Eðlilegt væri að borgin tryggi mótframlag í verkefnið. Innlent 15.11.2024 20:00
Starfsmenn Arion himinlifandi með daggæsluna Arion banki ætlar á næstu mánuðum að opna daggæslu fyrir börn starfsmanna. Forstöðumaður segist vona til þess að daggæslan létti líf fleiri en bara starfsmanna. Innlent 15.11.2024 09:13
Er 0,145% bankaskattur virkilega nóg? Umræður um banka á Íslandi eru um margt áhugaverðar. Árið 2023 var metár fyrir stóru viðskiptabankana þrjá, en alls högnuðust þeir um 83,5 milljarða. Samanlagður hagnaður hefur ekki náð hærri hæðum frá fjármálakreppunni árið 2008, að undanskildu árinu 2015, en þá seldi Arion banki hlut sinn í Bakkavör Group sem útskýrir óvenju háa hagnaðinn það ár. Skoðun 15.11.2024 07:15
Arion opnar dagvistun til að auðvelda starfsfólki að brúa bilið Arion banki mun á næstunni opna nýtt dagvistunarheimili sem ætlað fyrir starfsfólk bankans. Dagvistunin verður staðsett í næsta húsi við höfuðstöðvarnar í Borgartúni í Reykjavík, eða á jarðhæð í Borgartúni 21. Innlent 14.11.2024 14:05
Spá því að nefndin lækki stýrivexti duglega Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd lækki stýrivexti um hálft prósentustig þegar hún kemur saman síðar í mánuðinum. Gangi spáin eftir verða stýrivextir þeir lægstu síðan í maí í fyrra. Viðskipti innlent 14.11.2024 11:35
Bein útsending: Leiðir til að lækka vexti Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu ásamt Samtökum atvinnulífsins standa fyrir morgunfundi fimmtudaginn 14. nóvember undir yfirskriftinni Leiðir til að lækka vexti. Viðskipti innlent 14.11.2024 08:30
Spá hressilegri vaxtalækkun Greiningadeild Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka stýrivexti sína um hálft prósentustig þegar hún kemur saman síðar í mánuðinum. Viðskipti innlent 13.11.2024 11:29
Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Íslandsbanki hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í einu vaxtamálanna svokölluðu. Formaður Neytendasamtakanna segir niðurstöðuna gríðarleg vonbrigði og alfarið á skjön við ráðgefandi álit sem EFTA-dómstólinn gaf nýverið út. Neytendur 12.11.2024 16:41
Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings staðfesti í dag lánshæfismat Landsbankans og Íslandsbanka og tilkynnti jafnframt um breytingu á horfum úr stöðugum í jákvæðar. Þriðji stóri viðskiptabankinn, Arion banki, sleit samstarfi sínu við S&P fyrr á árinu. Viðskipti innlent 12.11.2024 16:12
ECIT AS kaupir meirihluta í Bókað frá KPMG Norska fjármála og tæknifyrirtækisins ECIT AS hefur keypt meirihluta í bókhalds- og launaþjónustu KPMG sem rekin hefur verið undir heitinu Bókað. Gert er ráð fyrir endanlegum frágangi viðskiptanna í ársbyrjun 2025 en KPMG verður áfram hluthafi. Greint er frá þessu í tilkynningu frá KPMG. Viðskipti innlent 6.11.2024 15:46
Norrænir eftirlitsstjórar segja brýnt að fjármálaregluverk ESB verði einfaldað Stjórnendur norrænna fjármálaeftirlitsstofnana, meðal annars Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, hafa beint því formlega til Evrópusambandsins að það verði að einfalda hið viðamikla og flókna regluverk sem kemur frá sambandinu og nær til starfsemi fjármálafyrirtækja og verðbréfamarkaða. Í sameiginlegu bréfi til sambandsins segja þeir stjórnmálamenn og almenning ætlast til þess að reglurnar séu einfaldaðar með áherslu á áhættumiðað eftirlit og minni byrðar á fyrirtæki. Innherji 5.11.2024 07:31
Fjögur ráðin í stjórnendastöður hjá Íslandsbanka Íslandsbanki hefur ráðið í fjórar stöður stjórnenda hjá bankanum. Árdís Björk Jónsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður daglegra bankaviðskipta, Freyr Guðmundsson forstöðumaður stafrænnar þróunar, Guðmundur Böðvar Guðjónsson deildarstjóri vörumerkis og Petra Björk Mogensen forstöðumaður viðskiptaumsjónar. Viðskipti innlent 4.11.2024 13:15
Hagnaður Arion banka eykst um tæpa tvo milljarða Hagnaður Arion banka á þriðja ársfjórðungi var 7,9 milljarðar króna, sambanborið við 6,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. „Núverandi vaxtaumhverfi er þess valdandi að við erum varfærin í okkar niðurfærslum,“ segir bankastjórinn um sögulega háa verðtryggða vexti. Viðskipti innlent 30.10.2024 17:05
Vaxtatekjur Íslandsbanka drógust saman milli ára Hagnaður af rekstri Íslandsbanka nam 7,3 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2024. Hagnaðurinn á sama tímabili í fyrra var sex milljarðar króna. Hreinar vaxtatekjur námu 11,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2024 og lækkuðu um 69 milljónir króna frá fyrra ári. Viðskipti innlent 23.10.2024 16:29
Fimm milljarðar í tekjur af vöxtum á mánuði Landsbankinn hefur hagnast um 26,9 milljarða króna eftir skatta á árinu, þar af um 10,8 milljarða á þriðja ársfjórðungi. Hreinar vaxtatekjur bankans á árinu nema 44,1 milljarði króna eða sem nemur tæplega fimm milljörðum á mánuði að meðaltali. Viðskipti innlent 23.10.2024 11:46
Lög um Bankasýsluna verði afnumin Bankasýsla ríkisins mun heyra sögunni til nái frumvarp fjármálaráðherra fram að ganga en drög að frumvarpi um afnám laga um Bankasýsluna voru lögð fram á þingi í gærkvöldi. Viðskipti innlent 23.10.2024 07:54
Frestun sölu Íslandsbanka jákvæð fyrir markaðinn Ákveðið var í gær að slá sölu á útistandandi hlutum ríkisins í Íslandsbanka á frest. Greinandi segir þessa ákvörðun hafa jákvæð áhrif á markaðinn. Viðskipti innlent 19.10.2024 13:53
Sölunni slegið á frest Ákveðið hefur verið að fresta sölu á útistandandi hlutum ríkisins í Íslandsbanka vegna markaðsaðstæðna og þess að skammt er til alþingiskosninga. 42,5 prósenta hlutur ríkisins er um 92 milljarða virði. Viðskipti innlent 18.10.2024 16:45
Hagkerfið nái andanum og spá um tveggja prósenta hagvexti næstu ár Greiningardeild Landsbankans spáir því að hagkerfið standi nánast í stað á milli ára í ár og að landsframleiðsla dragist saman um 0,1 prósent. Þetta sé mikil breyting frá síðustu árum þar sem hagvöxtur hafi verið fimm til níu prósent árlega, en þeim mikla hagvexti hafi fylgt mikil og þrálát verðbólga. Hagspaín geri ráð fyrir öðrum og rólegri takti. Viðskipti innlent 15.10.2024 08:32
Bein útsending: Ný þjóðhags- og verðbólguspá Landsbankans Ný þjóðhags- og verðbólguspá Greiningardeildar Landsbankans 2024-2027 verður kynnt á fundi í Hörpu sem hefst klukkan 8:30 í dag. Viðskipti innlent 15.10.2024 08:01
Bankar og heimili Á sama tíma og vaxtastig er hátt eru ýmsar vísbendingar um að vaxtamunur sem snýr að neytendum, þ.e. mismunur á inn- og útlánsvöxtum, hafi farið lækkandi. Umfjöllun því til stuðnings má bæði finna í skýrslu starfshóps menningar- og viðskiptaráðherra um viðskiptabankana frá því á síðasta ári og nýlegri skýrslu Evrópska bankaeftirlitsins. Umræðan 9.10.2024 07:02