Fréttir af flugi
48 49 50 51 52 53 54 55 56 … 147 ›
Lenti lítilli flugvél á bensínstöð Viðstöddum brá heldur betur í brún í dag þegar lítilli flugvél var lent á plani bensínstöðvar N1 í Árnesi. Upphaflega hélt fólk að um brotlendingu væri að ræða og safnaðist saman á bensínstöðinni. Innlent 31.7.2021 22:01
Play tekur á móti nýrri farþegaþotu í næstu viku Flugfélagið Play mun taka á móti þriðju Airbus A321neo farþegaþotu sinni í næstu viku. Þessa daganna er unnið að því að klára undirbúning áður en flugvélin kemur til Íslands og reikna stjórnendur með að taka hana til notkunar snemma í ágúst. Viðskipti innlent 30.7.2021 15:00
Örfáum án Covid-prófs vísað frá hjá Play í dag Örfáum hefur verið vísað frá flugi á vegum flugfélagsins Play í dag, þar sem þeir gátu hvorki sýnt fram á PCR-próf né antigen hraðpróf við Covid við innritun. Viðskipti innlent 29.7.2021 22:02
„Við erum ekki landamæraeftirlit“ Þeir sem ekki geta framvísað neikvæðu kórónuveiruprófi við byrðingu í flug með flugfélaginu Play, verður ekki hleypt um borð á leið til Íslands. Forstjóri félagsins segir ákvörðunina innan lagalegs ramma enda sinni flugfélagið ekki landamæraeftirliti. Viðskipti innlent 28.7.2021 12:41
Voru ekki send strax í sóttkví þrátt fyrir fjölda smitaðra um borð Mistök leiddu til þess að hluti farþega um borð í flugi frá Krít var ekki sendur strax í sóttkví þegar fjöldi útskriftarnema frá Flensborgarskólanum greindist með Covid-19. Innlent 27.7.2021 18:00
Dæmi að fólk missi af flugi vegna ófullnægjandi gagna Talsvert er um að fólk mæti ekki með fullnægjandi gögn á Keflavíkurflugvöll og dæmi eru um að það missi þar af leiðandi af flugi sínu út, segir Arngrímur Guðmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum. Hann hvetur fólk til að fylgjast með þeim reglum sem séu í gildi hverju sinni, sem geti breyst frá degi til dags. Þá sé mikilvægt að ferðalangar mæti snemma í innritun því hún taki lengri tíma nú en áður. Innlent 27.7.2021 12:00
Hyggst sniðganga Play eftir erfiða reynslu sona sinna Leikstjórinn og handritshöfundurinn Ragnar Bragason ber flugfélaginu Play ekki vel söguna og hyggst sniðganga félagið eftir að ungum sonum hans var meinað að fara um borð í vél þess til Kaupmannahafnar í dag. Að sögn Play var um mannleg mistök að ræða. Viðskipti innlent 25.7.2021 22:40
Örtröð á Keflavíkurflugvelli í morgun Fullt var út úr dyrum og gott betur en það á Keflavíkurflugvelli í morgun. Sextán flugvélar hófu sig á loft fyrir klukkan níu í morgun og 34 vélar til viðbótar fljúga utan síðar í dag. Innlent 24.7.2021 09:29
Samþykktu hlutafjáraukningu og fulltrúi Bain komin í stjórn Hluthafafundur Icelandair Group samþykkti í dag hlutafjáraukningu í tengslum við kaup bandaríska fjárfestingasjóðsins Bain Capital í félaginu. Fulltrúi sjóðsins kemur inn í stjórn og Úlfar Steindórsson, stjórnarformaður, stígur til hliðar. Viðskipti innlent 23.7.2021 17:13
Lögregla steig inn í rifrildi ferðamanna og starfsmanna flugvallarins Lögregla og öryggisverðir þurftu að skerast í leikinn þegar til rifrildis kom milli tveggja tilvonandi flugfarþega annars vegar og þjónustuaðila á vegum Play á Keflavíkurflugvelli hins vegar. Innlent 22.7.2021 16:53
Keflavíkurflugvöllur að nálgast þolmörk Aðstoðaryfirlögregluþjónn á Keflavíkurflugvelli segir flugvöllinn að nálgast þolmörk. Suma daga þurfi lögregla á flugvellinum að taka á móti þrjú þúsund farþegum á einum og hálfum klukkutíma. Innlent 18.7.2021 13:32
Raðir mynduðust á Leifsstöð í morgun og 47 flugvélar fljúga frá vellinum í dag Svakalegar raðir mynduðust á Keflavíkurflugvelli snemma í morgun. Raðir voru margar byrjaðar að myndast fyrir klukkan fimm, en þá voru enn um þrír tímar í að lang flestar flugvélar, á leið til Evrópu, legðu af stað. Innlent 18.7.2021 07:19
Þrennt lést í flugslysi í Þýskalandi Lítil flugvél brotlenti í Baden-Württemberg í Þýskalandi í dag. Í vélinni voru þrjár manneskjur sem létust allar. Erlent 17.7.2021 22:36
„Kraftaverk“ að allir lifðu flugslysið af í Rússlandi Allir sem voru um borð í flugvél sem hvarf af ratsjám yfir Rússlandi í morgun lifðu af. Neyðarsendir flugvélarinnar fór í gang þegar henni var brotlent á akri í Síberíu. Það að þau átján sem voru um borð hafi öll lifað af og bara meitt sig lítillega hefur verið lýst sem kraftaverki. Erlent 16.7.2021 16:17
Önnur flugvél brotlent í Rússlandi Farþegaflugvél hvarf af ratsjám yfir Rússlandi í morgun. Nánar tiltekið hvarf flugvél af gerðinni Antonov AN-28 yfir Tomsk-héraði. Alls eru sautján manns um borð í flugvélinni, þar af þrír áhafnarmeðlimir og fjögur börn. Erlent 16.7.2021 11:25
Flugvélin sem gæti orðið sú fyrsta rafknúna hjá Icelandair Ráðamenn Icelandair telja að vetnis- og rafmagnsflugvélar geti orðið raunhæfur kostur í innanlandsfluginu á fáum árum og hafa skrifað undir tvær viljayfirlýsingar við erlend fyrirtæki með það að markmiði að verða á meðal fyrstu flugfélaga heims til að gera innanlandsflug kolefnislaust. Viðskipti innlent 14.7.2021 22:44
Icelandair skoðar vetnis- og rafknúið innanlandsflug Icelandair Group hefur skrifað undir tvær viljayfirlýsingar um að kanna möguleika á orkuskiptum í innanlandsflugi félagsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti innlent 14.7.2021 10:17
„Algjör sprenging“ í einkafluginu Sprenging hefur orðið í komum einkaflugvéla á Reykjavíkurflugvöll frá mánaðamótum, að sögn rekstrarstjóra á vellinum. Reiknað er með meiri umferð nú í júlímánuði en í júlí 2019, sem var einn besti mánuður fyrirtækisins frá upphafi. Viðskipti innlent 14.7.2021 07:00
Skúli hefði viljað sjá lægra verð hjá Play Skúli Mogensen, stofnandi og fyrrverandi forstjóri WOW air, segist hafa viljað sjá flugfélagið Play bjóða upp á lægri fargjöld með það fyrir augum að standast aukna samkeppni úr öllum áttum. Skúli reiknar með því að framboðið í flugi til og frá Íslandi nái nýjum hæðum sumarið 2022. Viðskipti innlent 12.7.2021 15:16
Flugbáturinn flaug hringi yfir öflugum gosstrókum Bandaríski Grumman Goose-stríðsáraflugbáturinn, sem kominn er til landsins vegna flughátíðar á Hellu, flaug hringi yfir eldstöðinni í Fagradalsfjalli um ellefuleytið í morgun á leið sinni frá Keflavíkurflugvelli til Helluflugvallar. Innlent 10.7.2021 12:36
Grumman flugbátur á leið á flughátíð á Hellu Bandarískur flugbátur frá árum síðari heimsstyrjaldarinnar af gerðinni Grumman Goose er væntanlegur á flughátíðina Allt sem flýgur, sem stendur yfir á Helluflugvelli. Þar verður flugbáturinn til sýnis á morgun, laugardag, en honum var flogið sérstaklega til Íslands frá Seattle til að taka þátt í hátíðinni. Innlent 9.7.2021 16:27
Jay-Z og Beyoncé komu ekki með vélinni Rapparinn Jay-Z var ekki um borð í einkaþotunni sem lenti á Reykjavíkurflugvelli í dag. Rapparinn vinsæli ferðast iðulega um á þotunni en hún er merkt með íþróttavörumerkinu Puma, sem Jay-Z á í samstarfi við auk þess sem skráningarnúmer hennar vísar beint í rapparann. Lífið 9.7.2021 15:04
Engin bilun varð í vélarbúnaði flugvélarinnar sem hrapaði Níu fórust í flugslysi í Örebro í Svíþjóð í gær. Umfangsmikil rannsókn um orsakir og aðdraganda slyssins stendur nú yfir en samkvæmt gögnum sem sænska ríkisútvarpið hefur undir höndum er ekkert sem bendir til þess að bilun í vélinni hafi valdið því að hún hrapaði. Erlent 9.7.2021 14:54
Verð á hlutabréfum Play rauk upp í morgun Hlutabréfaverð flugfélagsins Play hefur hækkað mikið í fyrstu viðskiptum eftir að félagið var skráð í Kauphöllina í morgun. Þegar best lét í morgun höfðu bréfin hækkað um 41 prósent í verði, miðað við útboðsgengið 18, sem var gengi almennra fjárfesta. Viðskipti innlent 9.7.2021 11:19
Níu látnir eftir alvarlegt flugslys í Svíþjóð Níu eru látnir eftir að lítil flugvél hrapaði á flugvellinum í Örebrö í Svíþjóð um klukkan fimm að íslenskum tíma. Átta farþegar voru um borð í vélinni auk flugmanns en hún hrapaði skömmu eftir flugtak og lenti rétt fyrir utan flugbrautina. Erlent 8.7.2021 20:14
Þota frá Play lenti í fyrsta sinn á Reykjavíkurflugvelli Forráðamenn flugfélagins Play og Kauphallar Íslands fögnuðu því í tólf þúsund feta hæð yfir hálendi Íslands í dag að fyrirtækið er að fara á hlutabréfamarkað. Hin hefðbundna bjölluhringing var tekin upp til að sýna á föstudag þegar markaðsviðskipti hefjast með bréf félagsins. Viðskipti innlent 7.7.2021 22:55
Fjöldi farþega þrefaldaðist milli mánaða Fjöldi farþega í millilandaflugi Icelandair rúmlega þrefaldaðist á milli maí og júní 2021. 72 þúsund farþegar flugu með félaginu í júní samanborið við 22 þúsund í fyrri mánuði. Samhliða því heldur farþegum í innanlandsflugi áfram að fjölga. Viðskipti innlent 6.7.2021 17:50
Enginn komst lífs af í flugslysinu á Kamtsjatka Allir fórust þegar farþegaflugvél hrapaði á Kamtsjatkaskaga í Austur-Rússlandi, að sögn björgunarsveita þar. Um borð voru tuttugu og tveir farþegar auk sex manna áhafnar. Erlent 6.7.2021 11:12
Rússnesk flugvél með 28 um borð hrapaði við Kamtsjatka Rússnesk farþegaflugvél af gerðinni Antonov An-26 hrapaði í sjóinn nærri Kamtsjatka-skaga í austurhluta Rússlands í nótt. Alls voru 22 farþegar um borð og sex í áhöfn. Erlent 6.7.2021 07:25
Yfir 10 þúsund farþegar á einum degi í fyrsta sinn í fimmtán mánuði Alls fóru 10.580 manns um Keflavíkurflugvöll síðastliðinn laugardag, en svo margir farþegar hafa ekki farið um völlinn á einum degi frá því 13. mars 2020, eða fyrir rúmum fimmtán mánuðum. Viðskipti innlent 5.7.2021 09:01