Fréttir
284 285 286 287 288 289 290 291 292 … 334 ›
Neyðarlög sett á Fídjieyjum Neyðarlög eru í gildi á Fídjieyjum eftir að her landsins rændi þar völdum í gær. Leiðtogar valdaránsins hafa haft hraðar hendur undanfarinn sólarhring, meðal annars leyst upp þingið, sett nýjan forsætisráðherra í embætti til bráðabirgða og rekið lögreglustjóra ríkisins. Erlent 6.12.2006 12:56
Farsímanotkun ekki skaðleg Danskir vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekkert bendi til að notkun farsíma geti valdið krabbameini. Erlent 6.12.2006 12:46
Fjárlög ríkisins fyrir árið 2007 samþykkt á Alþingi Fjárlög ríkisins fyrir næsta ár voru samþykkt frá Alþingi fyrir hálfri klukkustund með 34 atkvæðum stjórnarmeirihlutans en 26 þingmenn stjórnarandstöðu sátu hjá. Fjármálaráðherra sagði fjárlögin markast af hagvaxtarskeiði en stjórnarandstaðan kallaði þau kosningafjárlög. Innlent 6.12.2006 12:02
Lugovoi mun tala við breska lögregluþjóna Andrei Lugovoi, lykilvitni í morðinu á rússneska fyrrum njósnaranum Alexander Litvinenko, mun hitta breska lögreglumenn í dag en frá þessu skýrði rússneska ITAR-Tass fréttastofan í dag. Erlent 6.12.2006 11:48
Trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna stefnt í voða Frakkar sögðu í dag að heimsveldin sem nú funda í París, til þess að reyna að ná samkomulagi vegna kjarnorkuáætlana Írans, yrðu að hraða verkinu því annars væri trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna stefnt í voða. Erlent 6.12.2006 11:34
Ísraelsher skýtur á Palestínumenn Ísraelskir hermenn skutu á og særðu tvo Palestínumenn sem nálguðust landamæri Ísraels við Gaza svæðið. Palestínskir sjúkraflutningamenn sögðu að mennirnir hefðu verið óvopnaðir en þetta er fyrsta árásin sem ísraelski herinn gerir á svæðinu síðan sæst var á vopnahlé þann 26. nóvember síðastliðinn. Erlent 6.12.2006 11:08
Kabila settur í embætti Joseph Kabila, sigurvegari í forsetakosningum í Austur-Kongó, verður settur í embætti í dag. Kabila bar sigur af Jean-Pierre Bemba í einum mikilvægustu kosningum í Afríku undanfarna áratugi. Búist er við fyrirmönnum frá fjölmörgum löndum vegna athafnarinnar en Bemba hefur þó sagt að hann muni ekki vera viðstaddur. Erlent 6.12.2006 10:49
Einræktun fósturvísa leyfð í Ástralíu Ástralir hafa ákveðið að leyfa einræktun á fósturvísum eftir miklar og tilfinningaríkar umræður en forsætisráðherra Ástralíu, John Howard, var á móti lögunum. Hin nýju lög gera það kleift að rannsaka hugsanlegar erfðalækningar á erfiðum sjúkdómum og fötlunum. Erlent 6.12.2006 10:24
Ísraelar treysta ekki þjóðstjórn Palestínumanna Varaforsætisráðherra Ísraels, Shimon Peres, sagði í dag að þjóðstjórn í Palestínu myndi engu áorka auk þess sem hún væri frekar miðuð að því að fá pening þeim til handa en að vinna að friðsamlegri lausn deilunnar við Ísrael. Erlent 6.12.2006 09:58
Vöruskipti óhagstæð um 13 milljarða í október Vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 13 milljarða krónur í nóvember samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Þetta er 2 milljörðum krónum meira en á sama tíma í fyrra. Aukinn vöruskiptajöfnuð má rekja til sveiflna í olíuinnflutningi. Viðskipti innlent 6.12.2006 09:27
Kreditkortavelta jókst um 23 prósent á árinu Kreditkortavelta heimila hérlendis var 23,0% meiri á fyrstu 10 mánuðum þessa árs en í fyrra. Síðastliðna 12 mánuði nemur aukningin 22,1% samanborið við árið á undan. Debetkortavelta jókst um 6,9% á sama tímabili, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Viðskipti innlent 6.12.2006 09:21
8 látnir og 40 særðir Sprengjum var varpað á vinsælt verslunarhverfi í miðborg Bagdad í dag. Átta manns létust og um 40 særðust. Sprengjurnar voru fjórar eða fimm talsins og gerðist þetta í eldra hverfi Bagdad en í því hefur nýlega orðið mikil aukning á árásum. Erlent 6.12.2006 09:07
Pervez býður fram sáttahönd Pervez Musharraf, forseti Pakistan, sagði í sjónvarpsviðtali í gær að hann væri tilbúinn til þess að gefa upp á bátinn allar kröfur til hins umdeilda héraðs Kasmír ef Indland myndi gjalda í sömu mynt og leyfa svæði í Himalaya fjöllum, sem Pakistan og Indland hafa lengi deilt um, að öðlast sjálfsstjórnarrétt. Erlent 6.12.2006 08:52
Múlagöng lokuð á kvöldin Vegna vinnu í Múlagöngum verður göngunum lokað á kvöldin fram á föstudag og aftur frá sunnudagskvöldi og út næstu viku. Lokað er frá kl 21 til 23.30, þá er umferð hleypt í gegn til miðnættis og síðan lokað til kl. 6 að morgni. Innlent 6.12.2006 08:43
Of mikil tilfinningasemi varðandi hvalveiðar Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra sagði í viðtali við Reuters fréttaveituna í morgun að hvalveiðar Íslendinga væru ekki ógn við lífríki sjávar og að alþjóðleg viðbrögð einkenndust af of mikilli tilfinningasemi. Erlent 6.12.2006 08:35
Stjórnarkreppa í Úkraníu Viktor Yuschenko, forseti Úkraínu, ætlar að bjóða þinginu byrginn og fyrirskipa að utanríkisráðherra landsins sitji sem fastast eftir að þingið samþykkti vantrauststillögu á hendur honum og innanríkisráðherra Úkraínu í síðustu viku. Erlent 6.12.2006 08:18
Rauk úr matnum Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað að íbúð á áttundu hæð í Þangbakka í Reykjavík rétt fyrir kl tíu í gærkvöldi. Enginn eldur var þó laus í íbúðinni eins og óttast var í fyrstu, heldur aðeins kafþykkur reykur úr potti á eldavél, og reykræstu slökkviliðsmenn íbúðina fljótt og vel. Innlent 6.12.2006 08:15
Norður-Kórea segir langt í viðræður Sexveldaumræðurnar munu ekki hefjast á þessu ári eða í náinni framtíð vegna ósanngjarnra skilyrða Bandaríkjastjórnar en þessu halda norður-kóreskir embættismenn fram. Þessu skýrði rússneska fréttastofan Interfax frá í morgun en hún er ein af fáum fréttastofum sem hafa aðgang að norður-kóreskum fréttamiðlum. Erlent 6.12.2006 08:02
Átta láta lífið í sjálfsmorðsárás Sjálfsmorðssprengjumaður sprengdi sig í loft upp fyrir utan höfuðstöðvar bandarísks öryggisfyrirtækis í suðurhluta Afganistan í morgun. Átta létust í árásinni og þar af tveir Bandaríkjamenn. Árásin átti sér stað í borginni Kandahar. Erlent 6.12.2006 07:55
Ítalskar veggmyndir frá 14.öld loksins sýndar umheiminum Veggmyndir sem uppgötvuðust í gömlum sal í klaustri í Róm voru loks sýndar umheiminum í gær eftir níu ára viðgerðir. Erlent 6.12.2006 07:20
Meintir árásarmenn og þjófar neita sök í Keflavík Mennirnir tveir, sem handteknir voru í Reykjavík í fyrrinótt, grunaðir um húsbrot og fólskulega árás á húsráðanda í Keflavík í fyrrakvöld, neituðu allri sök við yfirheyrslur í Keflavík í gær. Innlent 6.12.2006 07:18
Engin umbreytt fita í New York Heilbrigðisráð New York borgar ákvað í gær að gera borgina þá fyrstu í Bandaríkjunum þar sem bannað er að nota umbreytta fitu í matvæli. Umbreytt fita er fita sem hefur verið efnabætt til þess að bragðbæta og gera hana endingarbetri en hún er notuð í fjölmörgum matvörum í dag. Erlent 6.12.2006 07:15
Kjarnfóður hækkar um 4 -6 % Bæði Fóðurblandan og Lífland,sem flytja inn nær allt kjarnfóður til landbúnaðarins, hafa tilkynnt um fjögurra til sex prósenta hækkun á kjarnfóðri. Innlent 6.12.2006 07:13
ASÍ lýsir yfir undrun sinni Alþýðusamband Íslands lýsir undrun sinni á undirritun viljayfirlýsingar íslenskra stjórnvalda um fríverslunarviðræður við Kína. Það endurspegli áform um að ætla íslenskum fyrirtækjum og launafólki að keppa á jafnréttisgrundvelli við ríki, sem virðir ekki grundvallar mannréttindi, segir í yfirlýsingu ASÍ. Innlent 6.12.2006 07:07
Gates samþykktur af varnarmálanefnd Varnarmálanefnd Bandaríkjaþings samþykkti einróma tilnefningu Robert Gates sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Gates kom fyrir nefndina í gær og svaraði spurningum hennar. Öldungadeildin mun í framhaldinu greiða atkvæði um tilnefningu Gates og ræður það því hvort hann taki við embættinu af Donald Rumsfeld. Erlent 6.12.2006 07:02
Neyðarástandi lýst yfir á Fídjieyjum Útvarpið á Fídji-eyjum greindi frá því í nótt að neyðarástandi verði lýst yfir í landinu í dag, en herinn framdi valdarán í landinu í fyrrinótt. Það var það fjórða sem framið er á eyjunum síðastliðin 20 ár. Erlent 6.12.2006 06:59
Lagt til að Bandaríkjaher verði til stuðnings Nefndin sem George W. Bush Bandaríkjaforseti setti á laggirnar til þess að endurskoða stefnu Bandaríkjanna í Írak skilaði af sér skýrslu sinni í morgun. Erlent 6.12.2006 06:54
Á þreföldum hámarkshraða Ölvaður ökumaður ók á allt að þreföldum hámarkshraða þegar hann reyndi að stinga lögregluna af á miðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Þegar lögreglumenn eltu hann voru þeir á 85 kílómetra hraða en höfðu samt hvergi nærri við bíl mannsins. Hámarkshraðinn á þessu svæði er 30 kílómetrar. Innlent 6.12.2006 06:50
Fjórða valdaránið á 19 árum Herinn á Fídji-eyjum rændi völdum í nótt og hneppti forsætisráðherra landsins í stofufangelsi. Þetta er fjórða valdaránið á eyjunum síðan 1987. Erlent 5.12.2006 17:22
Gildir einu hvort skilgreint sem borgarastyrjöld Tilvonandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir Bandaríkjamenn ekki á sigurbraut í Írak. Fráfarandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir ástandið þar verra en borgarastyrjöld. En á meðan tekist er á um hvort borgarastyrjöld geisi þar deyja fjölmargir Írakar víðsvegar um landið á degi hverjum og fyrir ættingju þeirra gildir einu hvernig átökin í Írak eru skilgreind. Erlent 5.12.2006 17:16
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent